Morgunblaðið - 11.10.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
3
Svipur haustsins færist yfir land og skepnur. Ljósm. Sig. Sigm.
Loðnuaflinn
72 þús. tonn
Engin veiði í 10 daga vegna brælu
LOÐNUAFLINN frá 6. til 30.
september er 72.551 tonn, sam-
kvæmt yfirliti Fiskifélags ís-
lands. Vejjna bræiu hefur engin
loðna veiðst i 10 daga. Veðurspá
er slæm fyrir veiðisvæðið út af
Norðuriandi og óvíst hvenær bát-
arnir geta hyrjað veiðar að nýju.
Loðnu hefur verið landað á
eftirtöldum höfnum: 1. Siglufjörð-
ur 25.612, 2. Raufarhöfn 10.403, 3.
Krossanes 7.030, 4. Bolungarvík
6.560, 5. Reykjavík 5.158, 6. Kefla-
vík 4.495, 7. Neskaupstaður 2.601,
8. Akranes 2.531, 9. Hafnarfjörður
2.346, 10. Seyðisfjörður 2.151, 11.
Vestmannaeyjar 1.386, 12. Sand-
gerði 1.260 og 13. Þórshöfn 1.018
tonn.
Hafnarfjarðar-
bær kaupir hluta
Setbergslands
H AFN ARF J ARÐ ARBÆR hefur
gengið frá kaupsamningi við eig-
endur Setbergslands I Ilafnarfirði
um kaup á stórum hiuta jarðarinn-
ar. Kaupsamingurinn hljóðar upp á,
að bærinn kaupi landsvæðið i áföng-
um eftir því sem það verður tekið í
notkun, á næstu tiu árum. Kaupverð
er tvö þúsund kr. fyrir hvern
fermetra lands og breytist kaup-
verðið skv. visitölu á hverjum tíma.
Setbergslandið, sem féll undir
lögsögu Hafnarfjarðar við maka-
skipti á löndum við Garðabæ fyrir
nokkru, er 103 ha. í heild sinni, en
samningur Hafnarfjarðar við eigend-
urna nær aðeins yfir hluta þess
svæðis, þar sem eigendur hafa þegar
nýtt hluta þess.
Sl. þrjú ár hefur verið unnið að
skipulagningu Setbergslandsins og er
reiknað með að hafist verði handa
um byggingu íbúðarhúsa á svæðinu í
síðasta lagi 1982, og kaup á landinu
hefjist á sama tíma.
Ingvar Ingvarsson
Lézt í
eldsvoða
INGVAR INGVARSSON, sextugur
bóndi að Birkilundi i Biskupstung-
um, lézt i eldsvoða að Birkilundi i
fyrrakvöld. Tilkynnt var um eldinn
um klukkan 21.00 í fyrrakvöld og
var slökkvilið þegar kvatt á stað-
inn.
Húsið var þegar alelda og enginn
möguleiki að komast inn í það, að
sögn lögreglunnar á Selfossi. Elds-
upptök eru ekki kunn. Að sögn
lögreglunnar urðu miklar skemmdir
á húsum og innbú nánast ónýtt.
Rætt við Norð-
menn um hugs-
anleg olíukaup
ÞÓRHALLUR Ásgeirsson,
ráðuneytisstjóri í viðskipta-
ráðuneytinu, og Vilhjálmur
Jónsson, forstjóri Olíufélags-
ins hf., fóru til Osló í byrjun
þessa mánaðar til viðræðna
um olíumál.
— Við ræddum við fulltrúa frá
norska fyrirtækinu Statoil um
möguleika á kaupum á olíuvörum
frá Noregi. Málið er enn á athug-
unarstigi og ekkert frekar um það
að segja. Þessi ferð var þáttur í
þeirri viðleitni okkar að fylgjast
með olíumörkuðum og þeim við-
skiptamöguleikum sem bjóðast,
sagði Þórhallur Ásgeirsson, er
Mbl. ræddi við hann í gær.
INNLENTV
Albert hafnaði boði
Gunnars um forseta-
embætti neðri deildar
- og einnig boði um formennsku í utanríkismálanefnd
„ÞAÐ ER rétt, en ég hafnaði því, þar sem ég tel sætið vel skipað.“ sagði Albert Guðmundsson,
alþingismaður, er Mbl. spurði hann i gær. hvort honum hefði verið boðið embætti forseta neðri deildar
Alþingis. sem Sverrir Hermannsson skipaði og var endurkjörinn til í gær. Albert staðfesti í samtalinu við
Mbl., að bæði hefði Gunnar Thoroddsen. forsætisráðherra. boðið sér embættið og einnig hefðu menn úr
þingflokkum framsóknarmanna og alþýðubandalagsmanna rætt málið við hann. Þá hefur Mbl. það einnig
eftir öruggum heimildum, að Alberti hafi verið boðin staða formanns utanríkismálanefndar. sem Geir-
Hallgrímsson gegndi. en hann hafnað.
„Ég hef ekkert komið inn í
þessar nefndaumræður, en hvað
sjálfan mig varðar vil ég enga
breytingu á frá síðasta þingi,"
sagði Albert í samtalinu við Mbl. í
gær, en Albert átti sæti í utanrík-
ismálanefnd og fjárhags- og við-
skiptanefnd neðri deildar.
Þá hefur Mbl. einnig eftir áreið-
anlegum heimildum, að í hópi
stjórnarliða hafi verið ræddur sá
möguleiki, að Þorvaldur Garðar
Kristjánsson yrði kjörinn forseti
efri deildar og forsetasæti Sjálf-
stæðisflokksins þannig flutt milli
deilda. Helgi Seljan var forseti
efri deildar á síðasta þingi og
hefðu alþýðubandalagsmenn því
fengið forseta neðri deildar, sem
þá hefði hugsanlega orðið Garðar
Sigurðsson. Þorvaldur Garðar
Kristjánsson sagði í samtali við
Mbl. í gær, að við hann hefði
enginn orðað möguleikann á því,
að sjálfstæðismaður yrði forseti
efri deildar, en hins vegar hefði
honum verið sagt það í fyrradag,
að sá möguleiki hefði eitthvað
verið til umræðu. Mál skipuðust
svo þannig, að Sverrir Her-
mannsson og Helgi Seljan voru
endurkjörnir forsetar neðri og efri
deildar í gær.
Sú breyting varð á forsetaskip-
an Alþingis, að Pétur Sigurðsson
var ekki éndurkjörinn fyrri vara-
forseti Sameinaðs Alþingis, held-
ur var Karl Steinar Guðnason,
sem var annar varaforseti á síð-
asta þingi, í gær kjörinn fyrri
varaforseti með 37 atkvæðum.
Pétur Sigurðsson hlaut 20 atkvæði
og tveir seðlar voru auðir.
I fyrrakvöld gerði Gunnar Thor-
oddsen Alþýðuflokknum tilboð um
stuðning við alþýðuflokksmann í
embætti fyrri varaforseta Sam-
einaðs Alþingis og tóku alþýðu-
flokksmenn tilboðinu. í gærmorg-
un komu þingflokksformennirnir
svo saman til fundar að beiðni
Ólafs G. Einarssonar, formanns
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
þar sem til umræðu voru breyt-
ingar á skipan varaforsetaemb-
ætta. „Hlutur Alþýðuflokksins var
lítill í fyrra, en það var þeirra
eigin smíð," sagði Ólafur G. Ein-
arsson, í samtali við Mbl. í gær.
„Það má vel fallast á það sjónar-
mið, að hann hafi ekki haft
eðlilegan hlut, en það breytir ekki
því, að ef þessum málum átti að
hreyfa nú, mátti hreyfa þeim með
öðrum hætti. Eg tók undir þau
sjónarmið, að ef menn vildu
breyta, þá mætti athuga mögu-
leikana, en í tilboði hinna fólst
ekkert annað en þessi eina breyt-
ing.“
Pétur Sigurðsson hafnaði þeim
möguleika að vera ekki í framboði
til embættis fyrri varaforseta og
ákvað þingflokkur sjálfstæð-
ismanna þá að framboð hans
skyldi standa. Pétur Sigurðsson
hafnaði því svo að vera í framboði
til embættis annars varaforseta
Sameinaðs Alþingis og samþykkti
þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
þá, að Steinþór Gestsson yrði í
framboði og var hann kjörinn í
það embætti í gær með 49 atkvæð-
um, en Pétur Sigurðsson hlaut 5
atkvæði, Gunnar Thoroddsen 1 og
4 seðlar voru auðir.
Sjón er sögu ríkari. Sýnum vandlátum viðskiptamönum vorum frá
eftirtöldum aðiljum.
Sturtuhliöar og huröir frá Nýborg hf. Smíöaö eftir máli.
Baöhúsgögn frá Svedberg í Svíþjóö. Stærsti framleiöandi í sinni grein á
Noröurlöndum.
Furuhúsgögn frá Laukaan Puu, Finnlandi. Gæöavara.
Sófasett frá Stockmann, Finnlandi. Sígilt form.
Stólar og borö frá ítalíu.
Allt kjörin vara. Opið laugardag frá 10—7.
Umboðsmenn óskast út á landi.
Nýborgncg)
Ármúla 23 - Sími 86755