Morgunblaðið - 11.10.1980, Qupperneq 4
4
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næstunni
sem hér segir:
ANTWERPEN:
Helgafell 13/10
Helgafell 27/10
Helgafell 10/11
Helgafell 24/11
ROTTERDAM:
Helgafell 14/10
Helgafell 28/10
Helgafell 11/11
Helgafell 25/11
GOOLE:
Helgafeli 16/10
Helgatell 30/10
Helgafell 13/11
Helgafeli 27/11
LARVIK:
Hvassafell 13/10
Hvassafell 27/10
Hvassafell 10/11
Hvassafell 24/11
GAUTABORG:
Hvassafell 14/10
Hvassafell 28/10
Hvassafell 11/11
Hvassafell 25/11
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell 15/10
Hvassafell 29/10
Hvassafell 12/11
Hvassafell 26/11
SVENDBORG:
Dísarfell 9/10
Hvassafell 16/11
Hvassafell 30/11
Dísarfell 6/11
Hvassafell 13/11
„SKIP“ 18/11
Hvassafell 27/11
HELSINKI:
Dísarfell 6/10
Dísarfell 3/11
Dísarfell 29/11
ARCHANGELSK:
Mælifell 23/10
GLOUCHESTER, MASS.:
Skaftafell 5/11
Jökulfell 9/11
Skaftafell 5/12
HALIFAX, CANADA:
Laxfoss 6/10
Skaffafell 7/11
Jökultell 11/11
Skaftafell 7/12
HARBOUR GRACE,
NEW FOUNDL.:
Skaftafell 7/10
SKIPADEILD SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
Illjoðvarp kl. 14.00:
Frelsissvipting í
margvíslegri mynd
Dagskrá á vegum Amnesty International
í kvöld kl. 21.55 sýnir sjónvarpið bresk-ástralska biómynd frá árinu
1960, leikstjóri Fred Zinnemann. Aðalhlutverk: Robert Mitchum,
Deborah Kerr, Glynis Johns og Peter Ustinov.
Paddy Carmody er farandvcrkamaður 1 Ástralíu. Kona hans og
sonur cru orðin langþreytt á eilifum ferðalögum og vilja eignast fastan
samastað, en Paddy má ekki heyra á slíkt minnst. Þýðandi er Ileba
Júllusdóttir.
Illjóðvarp kl. 15.20:
Tvær ógleymanleg-
ar manneskjur
- Dr. Gunnlaugur Þórðarson segir frá
í hljóðvarpi kl. 14.00 er
dagskrárliður er nefnist Frels-
issvipting í margvíslegri mynd.
dagskrá á vegum Amnesty Int-
ernational í umsjá Margrétar R.
Bjarnason og Friðriks Páls
Jónssonar.
Amnesty-samtökin gangast
fyrir Viku samviskufangans í
októbermánuði ár hvert, sagði
Friðrik Páll Jónsson, — og er þá
vakin athygli á einhverju sér-
stöku málefni þeirra sem dæmd-
ir hafa verið til fangelsisvistar
vegna skoðana sinna. En það er
Margrét R. Bjarnason.
meginmarkmið samtakanna að
fá þessa menn leysta úr haldi.
Að þessu sinni vilja Amnesty-
samtökin minna á að þau beina
einnig sjónum sínum í aðrar
áttir. Ýmsir eiga í vök að verjast
og sæta kúgun yfirvalda, sem
telja sig eiga eitthvað sökótt við
þá. Beita þau ýmsum ráðum til
að komast hjá réttarhöldum.
Einkum eru það fjórar aðferðir
sem við beinum athyglinni að
nú:
1. Menn eru látnir „hverfa" og
þá oftast fyrir tilstuðlan „að-
stoðarmanna" yfirvalda.
2. Bannsetning, stofufangelsi
og útlegð innanlands.
3. Skammtímafrelsissvipting.
Víða leika yfirvöld þann leik,
þegar þeim eru settar tíma-
skorður í lögum um frelsissvipt-
ingu, að sleppa fanganum úr
prísundinni en handtaka hann
svo strax aftur og þannig koll af
kolli til að fara í kringum
Friðrik Páll Jónsson.
lagaákvæði við framlengingu
fangelsisvistar viðkomandi án
réttarhalda.
4. Tilbúnar sakargiftir.
Stjórnvöld dylja oft raunveru-
legar sakargiftir með því að
skapa aðstæður sem valda því að
þau fá tylliástæður til að hand-
taka menn. Þeir er þá t.d. sviptir
lífsviðurværi sínu og síðan sak-
aðir um að lifa sníkjulífi."
í hljóðvarpi kl. 15.20 er
dagskrárliður er nefnist Tvær
ógleymanlegar manneskjur. Dr.
Gunnlaugur Þórðarson segir frá.
— Ég segi þarna frá sjálf-
menntaðri konu, Kristínu Gests-
dóttur, bónda í Hringveri á
Tjörnesi, sagði Gunnlaugur. —
Hún átti grein í síðasta Skírni,
tímariti Hins íslenska bók-
menntafélags, og nefnist grein-
in: Fáein alþýðleg orð. í henni
fjallar Kristín um þá áráttu
norrænufræðinga að vilja gera
sem minnst úr sagnfesti íslend-
ingasagna. Mér þótti greinin svo
mögnuð, að ég ákvað að finna
höfund hennar að máli og gerði
það. Segi ég frá heimsókn minni
til hennar í erindinu og vitna í
þessa merku grein.
Hin manneskjan sem ég segi
frá er Sven B. Janson, fyrrver-
andi þjóðminjavörður Svía.
Hann var lektor í Háskóla ís-
lands 1935—38 og er í miklu
uppáhaldi meðal Islendinga og
almennings í Svíþjóð. Hann er
einnig hinn mesti rúnasérfræð-
ingur og ýmist kallaður íslands-
Janni eða Rúna-Janni manna á
milli. Hann færði Listasafni
Islands að gjöf í fyrra málverk
eftir Gunnlaug Scheving. í er-
indi mínu verður vikið að fyrir-
lestri sem hann flutti þá í
Norræna húsinu. Þessar tvær
manneskjur eru með þeim
ógleymanlegustu sem ég hef
kynnst.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
Útvarp Reykjavlk
L4UG4RCX4GUR
11. október
MORGUNINN____________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar. ,
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Tónleikar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tiikynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga: Ása
Finnsdóttir kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir).
11.20 Þetta erum við að gera:
Þú getur bjargað lífi. Stjórn-
andinn. Valgerður Jónsdótt-
ir. fjallar um aðstoð við
nauðstadda Afríkubúa.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍODEGIO
12.20 Fréttir. 12.45 Veður
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 Frelsissvipting i marg-
víslegri mynd
Dagskrá á vegum íslands-
deildar Amnesty Internat-
ional í umsjá Margrétar R.
Bjarnason og Friðriks Páls
Jónssonar.
14.30 Miðdegissyrpa með
léttklassískri tónlist.
15.20 Tvær ógleymanlegar
manneskjur. Dr. Gunnlaug-
ur Þórðarson segir frá.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlistarrabb; — I. Atli
Heimir Sveinsson rabbar um
„Meistarasöngvarana frá
NUrnberg“.
17.20 Hringekjan.
Blandaður þáttur fyrir börn
á öllum aldri. Stjórnendur:
Edda Björgvinsdóttir og
Helga Thorberg.
SKJÁNUM
LAUGARDAGUR
11. október
16.30 Iþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Drengurinn og sleða-
hundurinn.
Finnsk mynd um dreng,
sem á stóran, sterkan hund
af Síberíu-kyni.
Þýðandi Kristin Mantylá.
(Nordvision — Finnska
sjónvarpið).
18.50 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
tjlffá
20.35 Löður.
Bandariskur gaman-
myndaflokkur. Þýðandi
Ellei t Sigurbjörnsson.
21.00 Sænsk þjóðlagatónlist.
Sænski söngflokkurinn
„Folk og rackare“ flytur
þjt'tðlög og ræðir um þau.
Þýðandi Þrándur Thor-
oddsen. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
21.55 Flakkararnir.
(The Sundowners). Bresk-
áströlsk bíómynd frá árinu
1960. Leikstjóri Fred
Zinnemann.
Aðalhlutverk Robert
Mitchum. Deborah Kerr.
Glynis Johns og Peter Ust-
inov.
Paddy Carmody er farand-
verkamaður í Ástralíu.
Kona hans og sonur eru
orðin langþrcytt á eilifum
ferðaiögum og vilja eignast
fastan samastað. en Paddy
má ekki heyra á slikt
minnst.
Þýðandi Heba Júliusdóttir.
7
17.50 Söngvar í léttum dúr.
Tilkynningar.
KVÖLDIÐ
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Heimur í hnotskurn“,
saga eftir Giovanni Guar-
eschi. Andrés Björnsson ís-
Ienzkaði. Gunnar Eyjólfsson
leikari les (3).
20.00 Hlöðuball. Jónatan Garð-
arsson kynnir ameriska kúr-
eka- og sveitasöngva.
20.30 „Handan um höf“
Ási í Bæ ræðir við Kjartan
ólafsson hagfræðing og rit-
höfund um Suður-Ameríku
og fléttar inn i þáttinn lög-
um þaðan.
21.15 „Jöfnur“, smásaga eftir
Siv Scheiber. Sigurjón Guð-
jónsson þýddi. Jóhanna
Norðf jörð leikkona les.
21.35 Fjórir piltar frá Liver-
pool. Þorgeir Ástvaldsson
rekur feril Bitlanna. „The
Beatles“; — fyrsti þáttur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Sætbeizka
sjöunda árið“ eftir Heinz G.
Konsalik. Bergur Björnsson
þýddi. Halla Guðmundsdótt-
ir les (18).
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.