Morgunblaðið - 11.10.1980, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
11
TEXTI: Ágúst I. Jónsson. MYNDIR: Ragnar Axelsson.
Þaö var ekki litið upp og blosaar leifturljóasins virtust engin áhrif hafa
á hópinn í Auðbjörgu. Eínstaka sinnum mæta karlarnir í söltunina með
konum sínum eins og sjá má á myndinni.
Sigrún, Ásta og Bára blönduöu saltið af nákvasmni hjá Auöbjörgu.
PÁÁÁSA. Unga fólkið hendir sár niður á nasstu saltpoka og hangir þar
eins og fuglar á priki þessar 15 mínútur.
Dóttursonur Helgu laumar merki í vasa ömmu sinnar.
Alrún Kristmannsdóttir og stöllur hennar að Ijúka söltun hjá Friðþjófi.
Nanna Bjarnadóttir fór beint úr
söltuninni hjá Friöþjófi yfir til
Sæbergs, þar sem lengur var
unnið þennan daginn.
Gallarnir spúlaðir og skrúbbaðir aö dagsverki loknu.
„Gott og kröft-
ugt fólk og góö-
ur starfsandi"
FYRSTA síldin var söltuð hjá
Söltunarstöð Auöbjargar á Eski-
firði 8. október í fyrra, en alls var
þá saltaö í 3.800 tunnur hjá
Auðbjörgu, sem reyndar var í
minna lagi hjá því fyrirtæki miöaö
við árin á undan. Síðastliöinn
þriöjudag, eða 7. október, var
hins vegar búið aö salta í um
5.400 tunnur og á Eskifirði er nú
búið að salta meira heldur en alla
vertíðina í fyrra og eru heimabát-
ar þó rétt að tygja sig á veiöar og
nótabátar, sem veröa í viðskipt-
um við stöðvar á Eskifiröi, eru
ekki byrjaöir, að Seleynni undan-
skilinni, en hún fékk sinn
skammt á tveimur nóttum.
Reyndar gerði Ingvi Rafn, skip-
stjóri á Seley, gott betur, því
hann gaf tveimur nærstöddum
bátum um 100 tonn úr nótinni
seinni nóttina.
Blaðamaður leit viö hjá Auö-
björgu á þriöjudaginn og hitti
Tómas verkstjóra Hjaltason aö
máli. Hann hefur dvaliö langdvöl-
um í söltunarstööinni síöustu þrjár
vikurnar, en þennan tíma hefur
veriö samfelld söltun hjá fyrirtæk-
inu. Reyndar sendi Regína, frétta-
ritari Dagblaösins, frétt um þaö í
vikunni, aö Tómas hefði ekki sofið
hjá konunni í hálfan mánuö og
aöeins getaö hallaö sér örfáa tíma
á sólarhring. Við seljum þessa
sögu þó ekki dýrara, en viö
keyptum hana.
Tómas sagöi, aö um 20 konur
heföu starfaö viö söltun hjá fyrir-
tækinu og frekar vantaöi starfsfólk
heldur en hitt ef þessi hrota héldi
áfram. Átta Hornafjaröarbátar
hafa verið í viðskiptum hjá Auö-
björgu og vinnutíminn hjá stúlkun-
um hefur iöulega veriö frá klukkan
8 á morgnana til 11 á kvöldin.
„Þaö eru húsmæöur, sem hafa
boriö söltunina uppi hjá okkur,
hvernig í ósköpunum sem þær fara
að því aö samræma þessa miklu
vinnu og störfin heima. Ég hef víöa
unnið og er óhræddur viö aö
segja, aö það er gott og kröftugt
fólk, sem nú er í vinnu hérna og
góöur starfsandi,“ segir Tómas
Hjaltason.
VONANDIVERÐUR
FRAMHALD Á SÍLDAR-
ÆVINTÝRINU
Viö spuröum Tómas hvort hann
héldi, aö næstu ár yröu sambæri-
legar síldargöngur inni á fjöröum
eystra viö það sem veriö hefur í ár.
Sagöist hann sannarlega vona aö
svo yröi og jafnvel enn meiri og
sagöist ekki sjá neina ástæðu til
aö aetla, aö svo yröi ekki.
„Ástandið núna er ekki ósvipaö
og þaö var á árunum 1963 og 64
er síldin gaus upp fyrir Norðurlandi
og færöi sig síðan suöur meö
Austfjörðum. Þá var stldveiöunum
miöstýrt frá Siglufirði og þá mátti
ekki leita suöur fyrir Gletting,
þannig að síldargöngur kunna að
hafa verið miklu sunnar. Annars er
þetta allt heldur einkennilegt og
þegar fólk fór í jólaleyfi frá svörtum
sjó af síld 1967 átti enginn von á
aö síldarævintýrinu væri lokiö. Sú
varö þó raunin, því enga síld var
aö finna þegar fariö var aö leita
hennar íársbyrjun 1968.
Fiskifræöingarnir sögöu aö síld-
in heföi öll verið drepin, en ég hef
ekki trú á því, heldur haföi síldin vit
á að forðast mannskepnuna. Þaö
er ekki nýtt, aö fiskur hverfi
tímabundiö af ákveönum svæöum
og hér áöur fyrr flutti fólk sig á milli
eftir því hvar mesta atvinnu var að
hafa. Nú er þetta þannig, aö um
leiö og eitthvað dregst saman er
hrópaö á hjálp. Annars hefur þessi
stöö aldrei stöövast alveg og
hingaö til Auðbjargar barst t.d. á
sínum tíma síld úr Noröursjónum.
Þó svo að lítið hafi verið unniö hér
daufasta tímann í ein tvö ár, hefur
stöðinni veriö mjög vel viö haldiö
og vonandi veröur framhald á
þessu síldarævintýri," sagöi Tóm-
as Hjaltason aö lokum.