Morgunblaðið - 11.10.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 11.10.1980, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980 Stálkreppan segir til sín í Noregi Osló, 10. október. Frá Jan Erik Laurie, fréttaritara Mbl. KREPPA á alþjóðastálmarkaði segir nú til sin í Noregi oj? hefur 1.500 verkamonnum verið sagt upp störfum af þeim sökum. Hjá fyrirtækinu A/S Sydvaranjjer i Kirkenes hefur 1.000 starfs- mönnum verið sagt upp störfum vegna örðugleika á sölu járn>?rýt- is til evrópskra stálframleiðenda. Þá missa um 450 hafnarverka- menn í Narvik vinnu sína, en þeir hafa unnið við útskipun á járn- grýti sem kemur með lestum frá Kiruna í Svíþjóð, en útflytjandinn, sænska stórfyrirtækið Lkab Grub- er, hefur orðið fyrir barðinu á kreppunni og sagt upp 4.500 starfsmönnum sínum. Kúbönsk hjón flýja á Ganderf lugvelli Gander, 10. október. AP. KÚBÖNSK hjón struku frá horði er austur-þýzk farþegaflugvél, sem þau voru i á leið til Kúbu. tók eldsneyti á flugvellinum í Gander á Nýfundnalandi og bað Pólland: Veitingunni fagnað Varsjá. 10. október. AP. FREGNUM um að sænska aka- demían hefði veitt pólska. land- flótta skáldinu Czeslaw Milosz bókmenntaverðlaun Nóbels í ár var vel tekið í Póllandi, og formað- ur útgáfunefndar stjórnarinnar sá hjá sér sérstaka ástæðu til að geta þess. að verk hans hefðu á sínum tíma verið gefin út í sýnishorni pólskrar ljóðagerðar. Hins vegar hefur því verið illa tekið, að Miiosz skuli vera kallaður Lithái, og segja Pólverjar það álíka gáfulegt og að segja að maður fæddur í Los Angeles sé Kaliforníu- maður en ekki Ameríkani. Litháen var hluti Póllands, þar til Rússar tóku landið, en sú skipting ríkti þar til í heimsstyrj- öldinni fyrri, og er Milosz því „tæknilega" fæddur á rússneskri grund, er Pólverjar gerðu þó tilkall til. Pólskir og v-þýzkir embættis- menn gengu í dag frá samningum er veita Pólverjum allt að 1,2 milljarða marka í lánafyrirgreiðsl- ur í V-Þýzkalandi. Tekið var fram að þriðjungur upphæðarinnar færi til að koma kolaframleiðslu Pól- verja í lag. Veður víða um heim Akureyri 1 skýjaö Amslerdam 12 skýjaó Aþena 25 heiöskírt Berlin 11 skýjað BrUssel 14heiðskirt Chicago 17 skýjað Feneyjar 14 skýjað Frankfurt 12 rigning Færeyjar 7 skýjaö Genf 10 heiðskírt Helsinki 14 skýjað Jerúsalem vantar Jóhannesarborg 30 heióskírt Kaupmannahöfn 12 heióskírt Laa Palmas 24 léttskýjað Lissabon 21 skýjað London 12 skýjaö Loa Angeles 26 skýjaö Madrid 18 heiöskírt Malaga 24 lóttskýjað Mallorca 22 hálfskýjað Miami 29 skýjað Moskva 11 skýjað Mew York 21 heiðskírt Oalo 11 rigning Paría 12 rigning Reykjavík 2 skýjað Ríó de Janeiro 31 heiöskírt Rómaborg 20 skýjað Stokkhólmur 14 skýjað Tel Aviv vantar Tókýó 22 skýjað Vancouver 14 skýjað Vínarborg 9 rigning ciginmaðurinn þegar um hæli sem pólitískur flóttamaður. Kanadíska lögreglan sagðist ekki láta konuna úr haldi, þar sem verið væri að ganga úr skugga um hvort hún vildi vera um kyrrt í Kanada eða halda áfram til Kúbu. Flugvélin var kyrrsett á flugvell- inum í Gander. Með henni er hópur A-Þjóðverja á leið í frí á Kúbu. Kúbanskar flugvélar og flugvél- ar frá austantjaldsríkjunum hafa venjulega viðkomu á flugvellinum í Gander til að taka þar eldsneyti. Flugstjóri Jiotunnar áætlaði 80 mínútna dvöl á flugvellinum og leyfði- farþegum að fara inn í flugstöðvarbygginguna, og notuðu hjónin þá tækifærið til að flýja. Tilkynnt var í Monte Carlo í gærkvöldi. að Karólínu prins- essu hefði formlega verið veittur skilnaður frá eigin- manni sínum. Philippe Junot, glaumgosanum. sem hún gekk að eiga fyrir röskum tveimur árum. Meðfylgjandi mynd af Karólínu og Philippe mun vera ein sú siðasta sem tekin var af þeim saman. Nixon ekki í stjórn Reagans St. Louíh, 10. okt. — AP. RONALD Reagan. framhjóðandi Repúblikanaflokksins við forseta- kosningarnar i haust. tók það sérstaklega fram og lagði þunga áherzlu á orð sín. að hann mundi ekki ráða Nixon fyrrum forseta til starfa i stjórn sinni ef hann næði kjöri við kosningarnar i nóvember næstkomandi, en tók þó fram að hann mundi leita ráða hjá Nixon í ýmsum málum. Reagan sagðist hafa rætt við Nixon öðru hverju meðan á kosn- ingabaráttunni hefur staðið, og ráðgjafar sínir og aðstoðarmenn hefðu átt náið samstarf við forset- ann fyrrverandi. Nixon gaf það í skyn í viðtali í síðustu viku, að ekki væri loku fyrir það skotið að honum yrðu boðin störf í ríkis- stjórn Reagans ef hann næði kjöri. Nóbelsverðlaunahafarnir í læknisfræði (f.v.) Jean Dausset, Baruf Benacerraf og George Snell. Nóbelsverðlaun í læknisfræði veitt Stokkhólmi. 10. okt. — AP. NÓBELSVERÐLAUNUNUM í læknisfræði var í dag deilt milli þriggja sérfræðinga í ónæmisfræði fyrir uppgötvanir þeirra á þætti erfða í ónæmissvörun fruma. Tveir sérfræðingarnir eru bandarískir, en sá þriðji franskur. Þeir eru George Snell, 76 ára, frá Bar Harbour í Maine, Baruj Benacerraf, prófessor við Harvard, háskólann, en hann var fæddur í Venezuela og er 60 ára og franski vísindamaðurinn og prófessorinn Jean Dausset, sem er 63 ára. Vísindamennirnir hafa allir unnið að rannsóknum sínum sjálfstætt, en þó skipst á upplýsingum í gegnum árin. (Símamynd-AP) Torvelda ferðir til A-í»ýzkalands Bonn, 10. okt. — AP. YFIRVÖLD í Vestur- Þýzkalandi fordæmdu í dag austur-þýzk yfirvöld fyrir að hækka verulega þá upphæð sem ferða- mönnum er gert að skipta yfir í austur-þýzk mörk er þeir koma til A-Þýzka- lands. Með þessum aðgerðum eru A-Þjóðverjar sagðir ætla ð loka landinu fyrir útlendum ferða- mönnum, og í Bonn var aðgerðun- um lýst sem „verulegu áfalli" fyrir samskipti landanna tveggja. Klaus Bölling, talsmaður stjórnarinnar, sagði, að stjórnin mundi ekki líða A-Þjóðverjum þessar aðgerðir og taka til sinna ráða. Hinar nýju reglur væru skýlaust brot á Helsinki-sáttmál- anum, á þeirri forsendu að þær gerðu heimsóknir til A-Þýzkalands torveldari. Með nýju reglunum verður út- lendum ferðamönnum gert að skipta sem svarar 25 mörkum, eða um 14 dollurum, fyrir hvern dag sem þeir ætla að dveljast í A-Þýzkalandi, en áður urðu þeir að skipta 13 mörkum. Ellilífeyris- þegar voru undanskildir gjaldeyr- isskiptareglunum, en verða nú að skipta peningum sínum er þeir koma til landsins. Belgía: Martens leggur fram efnahagsmálatillögur BrllHHel. 9. október. AP. WILFRIED Martens, fyrrv. forsætisráöherra, sem nú reynir að koma saman stjórn kristilegra demókrata og sósíalista, hefur lagt til að laun verði fryst a.m.k. í eitt ár og að stjórnin auki stuðning sinn við atvinnufyrirtæki til að reyna að ráða bót á erfiðleikunum í belgísku efnahagslífi. Fráfarandi stjórn, sem var sam- steypustjórn kristilegra demó- krata, sósíalista og ihaldsmanna, féll um sl. helgi þegar íhalds-- mönnum þótti ekki nóg að gert í að draga úr útgjöldum til félags- mála. Þær tillögur, sem Martens hefur nú lagt fram, fela m.a. í sér launafrystingu í eitt ár, 100 millj- ón dollara aukalega aðstoð við lítil og miðlungsfyrirtæki til að létta þeim byrðarnar og auka atvinnu og skattalækkun hjá iðnfyrirtækj- um, sem samsvaraði 5% af hagn- aði. Martens sagði, að efnahagur Belga væri nú slíkur, að ef ekkert yrði aðhafst, fengi þjóðin að kenna á kreppu, sem hefði ófyrirsjáan- legar afleiðingar í för með sér. Viðskiptahallinn í Belgíu var 2,7 milljarðar dollara fyrstu fimm mánuði þessa árs. Laker fær leyfi til frekara flugs lyondon, 10. október. AP. BRESK flugmálayfirvöld veittu Laker-flugfélaginu i dag heim- ild til að fljúga þrisvar i viku frá Manchester og Prestwick til Los Angeles og New York. Einnig var honum heimilað að hefja flugferðir milli London og Tampa á Flórída. Laker mun bjóða hin ódýru fargjöld sin á þessum flugleiðum. Laker hyggst hefja ferðir þessar bráðlega og verður flogið milli New York og Manchester annars vegar, og milli Los Ang- eles og Manchester og Prestwick í Skotlandi hins vegar. Auk þessa var British Air- ways veitt heimild til beins flugs milli London og Pittsburg frá og með næsta vori, og British Cale- donian heimild til að millilenda á San Juan í Puerto Rico á flugleið sinni til Suður-Ameríku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.