Morgunblaðið - 11.10.1980, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
25
JMtogtmÞlfifrifr
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innaniands. í lausasölu 280
kr. eintakiö.
Orð og efndir
r
Istjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar segir orðrétt um
niðurtalningu verðlags á árinu 1980:
„Verðhækkun á þeim vörum og þjónustu, sem verðlagsráð
fjallar um, verði sett eftirgreind efri mörk ársfjórðungslega á
árinu 1980: Til 1. maí skulu mörkin vera 8%. Til 1. ágúst 7%.
Og loks til 1. nóvember 5% ...“
Ekki þarf að eyða orðum að því, hvern veg þessi fyrirheit
hafa staðizt dóm reynslunnar. Raunar hefur verðbólgan ætt
áfram á öllum vígstöðvum þjóðarbúskaparins nánast stjórn-
laust. Framfærsluvísitalan, sem var 1162 stig í ágúst 1978, er
ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar fór frá, var komin upp í
2600 stig í ágúst 1980, og hafði þá hækkað um 124% á 2ja ára
stjórnarferli Alþýðubandalagsins. A þessu ári sprungu öll
framangreind ársfjórðungsmörk ríkisstjórnarinnar, enda
verður verðbólgan ekki vegin með orðum, og Alþýðubanda-
lagið er ekki og hefur aldrei verið reiðubúið til aðgerða, sem
tryggt gætu samsvarandi verðlagsþróun hér og í helztu
viðskiptalöndum okkar — eða sambærilega verðlagsþróun og
tókst að tryggja hér á 11 ára ferli viðreisnarstjórnarinnar
1959-1971.'
Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, hélt því fram í
sjónvarpsviðtali í endaðan aprílmánuð sl., að líkleg verðbólga
hér á landi frá ársbyrjun 1980 til ársloka yrði 40% og alls
ekki hærri en 45%. Af því tilefni bar Lárus Jónsson,
alþingismaður, fram fyrirspurn á Alþingi til forsætisráð-
herra, enda stangaðist þessi staðhæfing á við upplýsingar
Þjóðhagsstofnunar til fjárveitinganefndar Alþingis, sem
fyrirspyrjandinn á sæti í.
Forsætisráðherra sagði orðrétt í svari sínu: „Það liggur
alveg ljóst fyrir, að þær tölur sem ég gat um eru réttar miðað
við þessar áætlanir Þjóðhagsstofnunar... Ef miðað er við
árið frá byrjun til enda er samtalan 45%, þ.e. hækkun
verðbólgunnar á þessu tímabili." Forsætisráðherra sagði
ennfremur: „Hér eru til teknar forsendur í áætlun Þjóð-
hagsstofnunar, þær forsendur, að kostnaðarbreytingar hafi
áhrif á verðlag á Iíkan hátt og verið hefur. Nú er það
hinsvegar augljóst að það er ætlun ríkisstjórnarinnar og
stefna að breyta til og er sú starfsemi þegar hafin ..
Ríkisstjórnin hefur skipað sérstaka efnahagsnefnd og
ráðherranefnd til að gera tillögur um efnahagsráðstafanir.
En allt situr við hið sama. Ekkert bólar á efnahagsráðstöfun-
um ársins 1980, enda engin samstaða í ríkisstjórninni um
slíkar ráðstafanir. Fjármálaráðherra Alþýðubandalagsins
lætur hafa eftir sér í vikunni, að ákvarðanir í efnahagsmálum
séu ekki væntanlegar fyrr en „öðru hvoru megin við nýárið".
Naumast hafa svo síðbúnar ráðstafanir, jafnvel þó þá sjái
dagsins ljós, áhrif á verðlagsþróun ársins 1980. Enda eru
nýjustu upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun um verðlagsþróun á
árinu þær, að verðbólgan, mæld á mælistiku framfærsluvísi-
tölu, hækki um 52—54% frá ársbyrjun til loka árs, sem þýðir
57—58% meðaltalshækkun á árinu. Stangast sú niðurstaða
heldur betur á við staðhæfingu forsætisráðherra um 40—45%
verðbólguvöxt en kemur hinsvegar heim og saman við
verðbólguspár, sem forsætisráðherra sá ástæðu til að
mótmæla í sjónvarpsviðtalinu 29. apríl sl.
Kjarni málsins er sá að ekki er samstaða í ríkisstjórninni
um efnahagsaðgerðir. Ábyrgari hluti þingflokks Framsóknar
knýr á um aðgerðir, en Alþýðubandalagið þráast við. Það er
staðráðið í því, eins og í vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar,
að koma í veg fyrir hvers konar viðleitni til að hemja
verðbólguna.
Samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, Viðreisnar-
stjórninni, tókst að halda verðbólguvexti innan við 10%, og
oft vel innan við 10%, að meðaltali, öll viðreisnarárin, eða á
annan áratug, 1959—1971. Þá tók við fyrri vinstri stjórn
Ólafs Jóhannessonar, með Alþýðubandalagið innanborðs. Á
þremur árum óx verðbólgan í yfir 50%. Ríkisstjórn Geirs
Hallgrímssonar tókst að koma verðbólgunni niður í 26% á
miðju ári 1977, þegar óraunhæfir kjarasamningar og síðar ný
vinstri stjórn komu dýrtíðardraugnum á fætur á ný. Og í
lyktir þessa árs stendur núverandi ríkisstjórn í vanefndunum
einum með 54% verðbólguvöxt frá ársbyrjun til loka árs og
58% meðalhækkun framfærsluvísitölunnar. Það verður oft
lítið úr því högginu, sem hátt er reitt, segir máltækið. Og
„niðurtalning" ríkisstjórnarinnar hefur orðið sér rækilega til
skammar.
Sjómenn um ákvörðun íiskverðs og olíugjaldiö:
Kjartan Kristófersson í Grindavík:
Sjómenn standa
sameinaðir til átaka
ÞAÐ VIRÐIST vera sama hverjir
fara með völdin. sauöi Kjartan
Kristófersson, formaður Sjó-
mannafélaKs Grindavikur. Hvort
sem stjórnvöld eru jjul, rauð.
Kræn eða blá, þá hafa þau fyrr
eða siðar reynt að hlunnfara
sjómannastéttina ok þá fyrst og
fremst i fiskverðsákvörðunum.
Síðan það varð ljóst, að fiskur-
inn var takmarkaður umhverfis
landið, hefur skapast óeining milli
landsfjórðunga og vegna þessarar
óeiningar hefur sjómannastétt-
inni ekki fundist tímabært að fara
í neina hörku. Þeir hafa haft það
sjónarmið, að það yrði að reyna að
bjargast við það sem til væri og
gera gott úr þessum litla afla.
Síðustu ríkisstjórnir hafa svona
druslast við að skila okkur því sem
við teljum eðlilegt, en samt hafa
þær alltaf gengið pínulítið á hlut
okkar sjómanna. En nú held ég að
ríkisstjórnin, núverandi ríkis-
stjórn, hafi gengið það hraustlega
til verks, að henni hafi tekist að
sameina sjómannastéttina til
átaka og þannig þurrkað út allar
krytur milli landsfjórðunga. Þetta
er mín persónulega skoðun, og það
skiptir mig sem fulltrúa sjó-
manna, andskotans engu máli
hverjir fara með stjórn í þessu
landi — þeir eru allir eins.
Það stendur ekki á sjómönnum
að moka flórinn. Sjómenn eru
reiðubúnir að fórna sér, ef út í það
færi, en það er frumskilyrði að
allir landsmenn taki þátt í þeim
mokstri, sagði Kjartan Kristó-
fersson í Grindavík.
Bjarni L. Gestsson á ísafirði:
Svik hjá Steingrími
„ÞETTA eru svik hjá Steingrími
Hermannssyni,“ sagði Bjarni L.
Gestsson, varaformaður Sjó-
mannafélags ísafjarðar. „Þegar
við sömdum hér fyrir vestan i
vetur, þá var það einmitt til þess
að liðka fyrir samningum að
olíugjaldið var lækkað, þvi krafa
okkar um prósentuhækkunina
byggðist á oliugjaldinu og kraf-
an lækkaði eftir þvi sem olíu-
gjaldið var lækkað. í restina var
oliugjaldið komið niður i 2,5%,
svo það hafði sitt að segja, að
samkomulag náðist.
Eins lét Steingrimur þau orð
falla á þingi, að réttast væri að
oliugjaldið hyrfi, og maður hélt
það væri hans stefna að láta það
hverfa, en nú snýr Steingrimur
Hermannsson við blaðinu og
hækkar það!
Við vorum að tala um það hérna
fyrir vestan, að Steingrímur hefði
með þessari olíugjaldshækkun
fundið upp ágæta leið til þess að
létta undir með Flugleiðum. Hann
er líka samgönguráðherra og gæti
sett lög um það, að hluti launa
starfsfólks Flugleiða færi í það að
greiða bensínskuldir fyrirtækis-
ins!“
„Þetta er í einu orði sagt
fráleitt," hélt Bjarni áfram. „Og
hækkunin á aflaverðmæti til
skipta er aðeins 8%, en laun
landfólks hækkuðu um 8,57% og
það fyrir einum og hálfum mán-
uði! Samt var vitað að sjómenn
hefðu dregist mikið aftur úr miðað
við stéttir í landi undanfarin ár!
En það hefur reyndar oft viljað
gleymast að það er fleira en
olíugjaldið sem er tekið af óskipt-
um afla. Það hafa verið tekin í
mörg ár 10% í Stofnfjársjóð til að
greiða niður afborganir af fiski-
skipum og vexti af lánum. Þannig,
að eftir að olíugjaldið hækkaði
upp í 7,5%, þá er þetta samanlagt
17,5%, sem er tekið af raunveru-
legu fiskverði framhjá skiptum.
Þessi 10% eru nú búin að vera
lengi og sjómenn margir hverjir
virðast farnir að sætta sig við
þetta, en ég hef aldrei sætt mig við
þessi 10%.
í lokin vil ég eindregið taka
undir með Ingólfi Ingólfssyni, að
ég hreinlega trúi því ekki, fyrr en
ég þá sé það svart á hvítu, að það
sé meirihluti á þingi fyrir þessum
ákvörðunum. Eg hreinlega trúi því
ekki á þingmenn," sagði Bjarni L.
Gestsson á ísafirði.
í blaðinu hefur nýlega verið sagt frá hlutafélaginu Fiskeldi, sem er að
hefja umfangsmiklar framkvæmdir i laxarækt og er að byggja
iaxeldisstöð í norðanverðum Kaldbaksmel og á meðfylgjandi mynd má sjá
afstöðu til Húsavíkur. l.jésm. Mbl. Spb.
Matthías Bjarnason fyrrum sjávarútvegsráðhcrra:
Verðlagsráð sjávarútvegs er
ekki neinn leynifélagsskapur
„FISKIÐNAÐURINN í land
inu, og þá sérstaklega
frystiiðnaðurinn, stendur nú
mjög höllum fæti samkvæmt
upplýsingum þeim er ég hef
úr röðum fiskiðnaðarins,“
sagði Matthias Bjarnason al-
þingismaður i samtali við
Morgunblaðið í gær, er hann
var spurður um nýja ákvörð-
un um fiskverð. „Það kemur
mér því mjög á óvart,“ sagði
Matthias ennfremur, „að
fiskvinnslan — þá á ég við
fyrirtæki Sambands ísl. sam-
vinnufélaga — skuli nú geta
tekið á sig 13% fiskverðs-
hækkun. Þetta gerist að því
að sagt er, án þess að nokkur
skuldbinding komi opin til
frá rikisvaldinu um að bæta
frystiiðnaðinum þetta upp.
Þetta hlýtur að gera það að
verkum, að almenningur í
þessu landi spyr: Er staða
frystiiðnaðarins þá eins slæm
og menn vilja vera láta? —
Eða ræður eitthvað annað
atkvæði fulltrúa Sjávaraf-
urðadeildar Sambandsins?
Einnig kemur mér mjög á
óvart, að fulltrúi Sölumið-
stöðvarinnar greiðir ekki at-
kvæði við ákvörðun um fisk-
verð. Ég sé að Morgunblaðið á
viðtal við fulltrúa SH þar sem
hann er spurður hver sé
ástæða þess að hann hafi ekki
greitt atkvæði á móti fisk-
verðsákvörðuninni. Fulltrúi
SH svarar því til, að það sé of
flókið að fara út í það af
hverju hann sitji hjá. Segir
hann þetta vera mál sem ekki
skipti máli út á við! Síðan
segir hann, að alla vega hafi
hann ekki viljað standa í vegi
fyrir því að málið yrði af-
greitt á löglegan hátt. Ég get
ekki skilið, að þótt hann hefði
greitt atkvæði á móti, hefði
ekki verið unnt að afgreiða
málið á löglegan hátt með 3
Matthias Bjarnason
atkv. gegn 2. Þetta er því út í
hött.
Það finnst mér á hinn
bóginn undarlegt, að talsmað-
ur jafn stórra samtaka og SH
eru, skuli segja í blaðaviðtali
að það sé of flókið að útskýra
hvers vegna hann taki þessa
afstöðu, og telji það ekki
skipta máli út á við. Ég tel að
það skipti höfuðmáli út á við
að skýringar manna í verð-
lagsráði komi fram. Verðlags-
ráð sjávarútvegsins er enginn
leynifélagsskapur. Samtök
sjómanna, útgerðar eða fisk-
vinnslu eru heldur engin
leynisamtök. Því ber þessum
aðilum skylda til að skýra það
fyrir almenningi hver þeirra
afstaða er.
Hafi frystiiðnaðurinn feng-
ið leynileg loforð frá ríkis-
stjórninni um bætta stöðu, þá
tel ég enga ástæðu til að
liggja á þeim loforðum. En
hafi þeir engin loforð fengið
verður að líta svo á að full-
trúar fiskiðnaðarins telji
grundvöll til að greiða hærra
verð fyrir fiskir.n. Hjáseta
Tómas Árnason ritari Framsóknarflokksins:
„Óþolinmóður að bíða eft-
ir raunhæfri niðurtalningu44
„JÁ, ÉG er orðinn óþolinmóður
að bíða eftir raunhæfri niður-
talningu. Það er óhætt að segja
það,“ sagði Tómas Árnason,
viðskiptaráðherra, ritari
Framsóknarflokksins, er Mbl.
leitaði álits hans á ummælum
Þórarins Þórarinsson, Hall-
dórs Ásgrímssonar og Guð-
mundar G. Þórarinssonar um
það, að ekki sé hægt að segja,
að niðurtalning verðbólgunnar
sé hafin og að fyrr en síðar
þurfi ríkisstjórnin að marka
heildarstefnu í efnahagsmál-
unum.
„Ég hef margsagt og segi enn,
að raunhæf niðurtalning á að
fela í sér niðurtalningu allra
helztu kostnaðarliða," sagði
Tómas. „Ef sett eru efri mörk,
ákveðin prósenta, á verðlag og
þjónustu, þá verður jafnframt
að setja slík mörk á verð
landbúnaðarvara, fiskverð,
vexti, verðbætur á laun og til
þess að gera möguleg slík efri
mörk á verðbætur á laun, þarf
að koma til móts við þá lægst-
launuðu og eitthvað upp launa-
stigann með skattabreytingum.
Auðvitað verða svo ríkisfjár-
málin að fylgja eftir, fjárfest-
ingarmálin og peningamálapóli-
tíkin.
Mér finnst Islendingar ekki
nægilega raunsæir, þegar þeir
reyna að gera sér grein fyrir
afleiðingum olíukreppunnar.
Hún hefur komið niður á okkur
íslendingum og það mjög hart.
Ofan á þetta bætist svo veru-
legur vandi í þjónustugreinun-
um, þar sem til dæmis flug milli
landa er stórmál, og olíukreppan
hefur aukið verðbólgu í öllum
okkar viðskiptalöndum, sem
kemur fram í verði innfluttrar
vöru. Þetta eru staðreyndir, sem
menn verða að gera sér ljósar og
hafa í huga.
En menn verða Iíka að gera
sér ljóst, að þetta viðhald verð-
bólgunnar hjá okkur í meginat-
riðum er stórhættulegt fyrir
okkur.“
Mbl. spurði Tómas, hvað ylli
því, að niðurtalningaráform rík-
isstjórnarinnar væru ekki enn
komin til framkvæmda betur en
raun ber vitni. „Þetta er enginn
mælikvarði á niðurtalninguna
sem stefnu í efnahagsmálum,"
sagði hann. „Það þarf að fram-
kvæma niðurtalninguna áður en
einhver dómur er upp kveðinn.
Hins vegar ber að viðurkenna
að svigrúmið hefur þrengzt á
marga lund vegna þess að enn er
ósamið um laun í landinu og
óvissan um útkomuna þar hefur
gert ríkisstjórninni erfitt fyrir
varðandi mótun framtíðarefna-
hagsstefnu. En þegar úrslit eru
fengin í kjaramálunum, er ekki
eftir neinu að bíða fyrir ríkis-
stjórnina."
Mbl. spurði Tómas þá, hvort
hann sæi fram á samstöðu
stjórnarliða um nauðsynlegar
aðgerðir. „Það vona ég,“ svaraði
viðskiptaráðherra. ^Ég tel það
ákaflega brýnt að væntanlegri
gjaldmiðilsbreytingu um ára-
mótin fylgi heilsteypt efna-
hagsmálastefna og ég vænti
þess, að þeir, sem að ríkisstjórn-
inni standa, séu allir reiðubúnir
til að standa við þau ákvæði
stjórnarsáttmálans, sem lúta að
því að telja verðbólguna niður.
Til þess eru refirnir skornir með
stjórnarsamningnum."
þýðir sama og samþykki í
þessu efni.“
Að lokum sagði Matthías,
að hann hefði ekki hugmynd
um hvernig þessu máli myndi
reiða af á Alþingi. Svo mikið
væri þó víst að ekki vissi hann
til að það hefði verið rætt við
Sjálfstæðisflokkinn og ekki
við Alþýðuflokkinn eftir því
sem hann best vissi. Af því
hlyti að mega draga þá álykt-
un að stjórnin hefði þegar
tryggt sér stuðning allra
stjórnarliðanna í málinu. „En
í þessu máli vil ég taka það
fram, að ég skil mjög vel
gremju sjómanna vegna þessa
fiskverðs. Þó ég telji að stöðva
eigi allt verðlag eins og nú er
ástatt, þá tel ég ekki að slíkt
eigi að bitna á einni stétt — í
þessu tilviki sjómannastétt-
inni.“
(Vegna þrengsla í blaðinu í
gær féll hluti viðtals þá við
Matthías Bjarnason niður, og
er hann því birtur hér. Jafn-
framt er rétt að leiðrétta
misskilning, sem fram kom í
því viðtali, þar sem talað var
um að olíugjald hefði hækkað
um 5%. Þar átti að sjálfsögðu
að standa 5 prósentustig, því
olíugjaldið hækkaði um 200%
eins og raunar kom fram
síðar í viðtalinu.)
Samverustundir
aldraðra í Nes-
kirkju í vetur
SAMVERUSTUNDIR aldraöra I
Nessókn voru skipulagðar I fyrsta
sinn sl. vetur og gáfu góða raun. Þvi
hefur nú verið ákveðið að bjóða upp
á eitt og annað til fróðleiks, gagns
og gamans í safnaðarheimili kirkj-
unnar á laugardögum i vetur. frá
klukkan 15.00 — 17.00.
Auk þess verður farið í kynnisferð-
ir á ýmsa staði í borginni og næsta
nágrenni. Leitaí hefur verið bæði til
leikra og lærða um að koma og stytta
fólki stundir, jafnframt því sem
konur í Kvenfélagi Nessóknar munu
annast kaffiveitingar. Fyrsta sam-
verustundin verður á laugardaginn
11. október n.k.
i
Fyrirhugað háhýsi Sam-
handsins við Elliðavog
1 I.
i :! .
■ ii- * i.
1 í \
l_ b
Hér sjást fyrstu hugmyndir að hinu 8—10 hæða skrifstofuhúsi. sem Samband íslenzkra
samvinnufélaga vill byggja neðan við Elliðavoginn. Ilefur hafnarstjórn Reykjavíkur
samþykkt fyrir sitt leyti slíka byggingu á lóðinni. Þessi háa hlokk mun þá rísa á horni
Holtavegar og Elliðavogs og milli götunnar og Holtagaröa. húss Sambandsins við
höfnina. Holtagarðar eru til vinstri á teikningunni og með samanhurði við þá má átta sig
á stærðinni. Einnig gefa bílarnir á Elliðavoginum til hægri hugmynd um stærð og
fjarlægð frá götunni og þá íbúöarblokkunum á móti. í skipulagi á þessu svæði er ekki
gert ráð fyrir sltku háhýsi, sem mun loka fyrir útsýni frá ibúðarbyggðinni ofan
Eliiðavogar.
HCLTACATOAR
SKRICST0FJHÚ5
ELLÐAVC0UR