Morgunblaðið - 11.10.1980, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Stokkseyri
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Stokks-
eyri.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 3316
og á afgreiöslunni í Reykjavík í síma 83033.
ptí0-K0wttMafoiifo
Innflutningur
Framleiöandi staösettur í Bretlandi óskar eftir umboösmanni til aö sjá
um sölu á samkeppnishæfum matvörum, fatnaöi, rafmagnsvörum og
þungavinnuvélum. Sjáum um allar skipasendingar.
FCL Technical Servicea,
Caring House,
19—24 Orchard Place, Southampton,
Hants, England, telex 477003,
hafiö samband viö David Poulton.
Garðabær
Morgunblaðið óskar eftir að ráða blaðbera í
Grundir.
Sími 44146.
Hjúkrunarskóla íslands vantar
hjúkrunarkennara
Aöallega er um aö ræða kennslu í hjúkrun
sjúklinga á lyflækningadeild.
Fullt starf æskilegt, en hálft starf kemur til
greina. Barnaheimili á staðnum.
Uppl. veitir skólastjóri.
Umsóknir sendist Menntamálaráöuneytinu,
verk- og tæknimenntunardeild.
Sjúkarahús Kefla-
víkurlæknishéraðs
Þrjár hlutastöður við ræstingu eru lausar frá
1. nóv. Umsóknarfrestur er til 20. okt.
Takið eftir, þeir sem áður hafa sótt um starf
eru vinsamlega beðnir að endurnýja um-
sóknir.
Uppl. gefur hjúkrunarforstjóri í síma 1401.
Skrifstofustarf
Óskað er eftir starfskrafti til vinnu við
vélritun, símsvörun auk fleiri algengra skrif-
stofustarfa. Vistlegt og skemmtilegt húsnæði
og vinnuaðstaða.
Umsókn er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist Mbl. merkt: „E — 4321“ eigi
síðar en 13.10.
Vistheimili Bláa bandsins, Víðinesi,
Kjalarnesi
Matreiðslukona
óskast
til starfa nú þegar. Aðeins konur sem vanar
eru vinnu í mötuneytum koma til greina.
Reglusemi skilyrði.
íbúö fyrir einhleypa fyrir hendi.
Uppl. hjá forstöðumanni og ráöskonu í síma
66331 og 66332.
Verkstjóri
Frystihús á stór-Reykjavíkursvæðinu óskar
eftir að ráða verkstjóra meö matsréttindi.
Umsóknir um aldur og fyrri störf sendist
augld. Mbl. merkt: „Verkstjóri — 4361“ fyrir
17 þ.m.
Suðureyri
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaöið á Suðureyri
frá 1. nóv.
Uppl. hjá umboösmanni í síma 6102 og afgr.
í Reykjavík, sími 83033.
Skrifstofustarf
Skattstofan í Reykjavík óskar að ráða
starfsmenn í eftirtalin störf:
Starf viðskiptafræðings í söluskattsdeild.
Skattendurskoðun atvinnurekstrarframtala.
Viöskiptafræði eða verslunarmenntun áskil-
in. Endurskoðun almenningsskattframtala.
Vinnsla launaframtala til álagningar, launa-
skatts og tryggingagjalda.
Umsóknum er greini aldur, menntun og fyrri
störf, þurfa að hafa borist Skattstofunni í
Reykjavík, fyrir 17. október n.k.
Bókband
Bókbindari og aöstoðarfólk óskast nú þegar.
Prentsmiöja Hafnarfjaröar hf.
Sími 50477.
Sölustjóri
Viö erum að leita að manni með reynslu í
sölustörfum. Þarf að geta unniö sjálfstætt og
hafa gott vald á ensku og Norðurlandamáli.
Starfið er fólgið í sölu tölvuvoga og sam-
skiptum viö umboðsmenn erlendis.
Póllinn hf., sími 94-3092,
ísafiröi.
Guðjón F. Teitsson:
Má læra af Svisslendingum?
í Norges Handels og Sjöfarts-
tidende hinn 19. sept. sl. er skýrt
frá komu Fritz Honneger ráð-
herra efnahagsmála og fleiri
stjórnardeilda í Sviss til Noregs
þá í vikunni, og er tekið fram, að
þótt undarlegt kunni að virðast, sé
þetta fyrsta heimsókn ráðherra
frá nefndu landi til Noregs í
opinberum stjórnarerindum.
Sviss er sem kunnugt er eitt af
löndum Fríverzlunarbandalags
Evrópu (EFTA), og lætur nefndur
ráðherra í viðtölum við stéttar-
bræður og fjölmiðla í Noregi mjög
vel af reynsiu Svisslendinga af
veru í EFTA. Bendir á, að við-
skipti innan EFTA séu Svisslend-
ingum þýðingarmeiri en t.d. við-
skipti við Bandaríkin og Japan. Þá
hafi EFTA mjög góða aðstöðu
gagnvart Efnahagsbandalagi Evr-
ópu og litlu lakari möguleika til
viðskipta við það en innan eigin
vébanda. Loks sé EFTA heppi-
legur aðili til að leysa alþjóðleg
hagsýslumál, sem falla undir
GATT (General Agreement of
Tariffs and Trade) og OECD
(Organisation of Economic Co-
operation and Developement) eða
varða viðskipti milli „austurs og
vesturs".
Svisslendingar hafa orð á sér
fyrir vöruvöndun. Heimsfræg er
úragerð þeirra, og framarlega
standa þeir í lyfjagerð og vefnaði,
svo dæmi séu nefnd. Þá eru
landbúnaðarvörur þeirra víð-
þekktar fyrir gæði, svo sem ostar.
Orkuþörf Svisslendinga er að
63% leyti háð innflutningi olíu,
4,4% háð gasi, 3,5% háð kolum og
timbri, en 29,1% háð vatns- og
atomorku. I landinu eru 4 atom-
orkuver, sem framleiddu 4000 MW
á árinu 1979, en sögð er hugmynd-
in að bæta við tveim atomorkuver-
um á þessum áratug.
Olíuvörur kaupa Svisslendingar
þar sem hagkvæmt þyidr á hverj-
Ámundi Loftsson:
Föstudaginn 19. þ.m. gat að líta
nokkuð sérstakan uppslátt í Þjóð-
viljanum, þar sem birtir eru
Staksteinar Mbl. frá deginum áð-
ur, en þar er annars vegar skrifað
um viðbrögð kommúnista í algjöru
málefnalegu ráðaleysi. Hvernig
þeir nánast ráðast á hvað sem
fyrir er, og vitnar Mbl. þar
réttilega til Adolfs Hitlers til
samanburðar. Hinsvegar gerir
Mbl. að umtalsefni hvernig komið
sé fyrir herstöðvaandstæðingum,
þeir séu farnir að hagnast stórlega
á hersetu Ameríkana á íslandi
með hátíðarhöldum þeim sem
um tíma, nú á svo nefndum
„spotmarkaði", án afskipta ríkis-
ins.
í viðtali nefnds ráðherra við NH
& ST kemur fram, að verðbólga í
Sviss sé nú aðeins í kringum 4% á
ári, sem megi að verulegu leyti
þakka því, að gagnkvæm tillits-
semi ríki og náið samstarf milli
verkalýðsfélaga og atvinnurek-
báru yfirskriftina „Rokk gegn
her“ og haldin voru í Laugardals-
höll.
í léttum dúr gefur Staksteina-
höfundur upp þann möguleika að
Gunnari Thor hafi eftilvill tekist
að gera kommúnista að hermöng-
urum.
Nú var herstöðvaandstæðingum
nóg boðið. Einn af moldhöfðum
Þjóðviljans grípur til pennans.
Svo hefur blekið flætt úr penna
þessa nýja moldhöfða, að ekki sér
að þar hafi nokkur stjórn verið á.
Hann leggur að jöfnu aronsku
herstöðvaandstæðinga og fjár-
enda. Deilumál milli þessara aðila
séu því leyst með samkomulagi, og
um margra ára skeið hafi ekki
orðið nein verkföll.
Hinn frjálsi markaðsbúskapur
hefir að dómi ráðherrans auðveld-
að grundvallarbreytingar á fram-
leiðsluháttum, svo sem í úra- og
vefnaðarvöruiðnaði.
I Sviss eru ekki opinber verð-
söfnun til líknarmála og að Mbl.
telji þar með fjársöfnun til líkn-
armála ábyggilega óæskilega, eða
sé alfarið á móti henni.
Ég vil leyfa mér að benda
moldhöfða þessum á að hann hefði
svo léttilega getað kórónað þenn-
an viðbjóð sinn og sýnt sig allan.
Hann gat sagt að fjársöfnun sú,
sem hann vitnar til, svo sem
Rauða krossins, væri að mati Mbl.
tií að tryggja hungruðum öruggan
dauðdaga.
Moldhöfða virðist líka svíða, að
fjármunir þeir, sem nást í fjár-
söfnun Slysavarnafélagsins, skuli
lagsákvæði eða verðlagseftirlit, en
frjáls samkeppni ræður verðlag-
inu.
Festa ríkir í stefnu þjóðbankans
í peningamálum. Hann prentar
ekki seðla með óforsjálni. Aukin
seðlavelta er aðeins krigum 4% á
ári, og er því ekki verðbólguhvetj-
andi.
Það kom fram í viðtali við
nefndan ráðherra, að hann væri
einn af samtals 7 ráðherrum í
ríkisstjórn Sviss, þar sem íbúatal-
an er nú á bilinu 6,3—6,4 milljón-
ir, og verður íslendingi, sem þetta
les, ósjálfrátt hugsað til þess í
verðbólguvandanum, að hér á
landi eru 10 ráðherrar fyrir rúm-
lega 200 þúsund íbúa.
ekki fást í áróðursrekstur komm-
únista gegn aðild íslendinga að
Atlantshafsbandalaginu.
Moldhöfði heldur áfram og segir
orðrétt: „En þó mun taka út yfir
þegar umfjöllun Mbl. nær til
Krabbameinsfélagsins, en það
stundar fjáröflun með beinni til-
höfðun til hryllilegasta sjúkdóms
mannkynsins."
Hvers vegna gat Moldhöfði
Þjóðviljans ekki haldið áfram sínu
hundalógíska getgátukjaftæði og
sagt að Mbl. liti svo á að Krabba-
meinsfélagið eigi að hætta fjáröfl-
un sinni og vinna gegn krabba-
meinslækningum?
Nú geta menn séð hvort farið er
mað fleipur þegar talað er um
málefnasnauðar árásir kommún-
ista á nánast það sem hendinni er
næst.
Klippara Þjóðviljans finnst
moldhöfði þessi skarpur stílisti, og
sýnir það vel hvað málefnasjóður
Þjóðviljans er að þrotum kominn,
enda ekki furða, hann hefur verið
rekinn með dúndrandi halla í
meira en tvö ár. 23.9.1980,
Tómahljóð úr mál-
efnasjóði Þjóðviljans