Morgunblaðið - 11.10.1980, Qupperneq 30
30
NORRÆNA HÚSIÐ:
Jón Reykdal sýnir
málverk og grafík
í l>\<; opnar Jón Reykdal mál-
vorka- ok KrafíksýninKU í kjallara
Norra na hússins. A sýnin>{unni or
21 olíumalverk ok 27 Krafíkmvndir
sem hann hefur unniö á árunum
1977 — 80.
Jón Reykdal er fæddur í Reykja-
vik 1945. Stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands ’62—
’66 og hlaut árið 1968 styrk hol-
lenska menntamálaráðuneytisins til
framhaldsnáms í Kraf>k við Gerrit
Rietveld Akademie í Amsterdam
skólaárið ’68—'69. Stundaði síðan
nám í málun og (jrafík við Konunjí-
lega listaháskólann í Stokkhólmi
’69—’71, og að lokum við Teikni-
kennaraskólann þar ’71—’72. Jón
hefur verið kennari við Myndlista-
náttúrurómantík af einhverju tagi.
Og mér er hugleikið að fjalla um
manninn og samband hans við
náttúruna. Hér á sýningunni er
t.a.m. myndaflokkur sem ég kalla
„Fuglar og fólk.“ Náttúran í heild
sinni er ákaflega heillandi verkefni
finnst mér.
Eftir þessa sýningu hyggst ég
snúa mér alfarið að grafíkinni, en
hún hefur legið á hillunni hjá mér
undanfarið. Okkur grafíklista-
mönnum hérlendum hafa borist
freistandi sýningartilboð frá Banda-
ríkjunum, svo að það eru skemmti-
leg verkefni framundan og eins gott
að spýta í lófana. Og það er
hugsanlegt að vinna þetta náttúru-
tema í sáldþrykki.
ÞÓRSCAFÉ:
Kabarettsýningar
að hefjast að nýju
ANNAÐ kvöld hefjast kabar-
ettsýningar að nýju I Þórscafé
og verða þær á sunnudags-
kvöldum með svipuðu sniði og
siðastliðinn vetur.
Nokkrar breytingar hafa ver-
ið geröar á húsinu og hefur
hljómsveitarpallurinn t.d. verið
færður tii svo að gestir sjái
betur til skemmtikraftanna.
Það eru þremenningarnir
Halli, Laddi og Jörundur sem
sjá um kabarettsýningarnar
ásamt dansmeyjunum Birgittu
Heide. Ingibjörgu Pálsdóttur
og Guðrúnu Páisdóttur.
Dagskráin á sunnudagskvöld-
um í vetur mun verða með þeim
hætti að húsið opnar kl. 19 og
verður gestum boðið upp á lyst-
auka við barinn þar til borðhald-
ið hefst kl. 20. Að borðhaldinu
loknu kl. 22 hefst kabarettsýn-
ingin og stendur til kl. 23 en
síðan efnir hljómsveitin til
hálfrar klukkustundar dixie-
landsýningar. Að henni lokinni
er almennur dansleikur til kl. 01.
Vegna húsrýmis er ekki hægt að
selja nema 250 manns aðgang að
kabarettsýningum hverju sinni.
Kaupa matargestir miða sem
gildir að kabarettsýningunni og
greiða fyrir kvöldmat um leið.
Efsta hæð hússins verður lokuð
öðrum gestum þar til að kabar-
ettsýningunni lokinni, kl. 23.
Eigandi Þórskaffis er Ragnar
Jónsson en framkvæmdastiórar
þeir Björgvin Árnason og Omar
Hallsson.
og handíðaskóla íslands frá 1972.
Hann var formaður félagsins ís-
lensk grafík 1975—78 og á sæti í
ráði Norrænu myndlistamiðstöðvar-
innar í Sveaborg í Finnlandi og
stjórn Kjarvalsstaða. Hann hefur
tekið þátt í tæplega 60 sýningum á
ymsum stöðum innanlands og ýms-
iim l«..rgum á Norðurlöndum, auk
þess sem hann hefur séð um
myndskreytingar og umbrot bóka.
Sýning Jóns Reykdals í kjallara
Nprræna hússins stendur til 26.
október.
— Þetta er mín fyrsta einkasýn-
ing á höfuðborgarsvæðinu, sagði
Jón Reykdal, — og mín fyrsta
meiriháttar sýning. Við skulum
segja að náttúrutema sé ráðandi í
mínum myndum. Já, sjáðu til, rót-
tæk list var til skamms tíma mjög
algeng á Vesturlöndum en síðan má
segja að rómantíkin hafi náð yfir-
höndinni og ég held að mínar
myndir gætu flokkast undir
í kvöld kl. 20.30 sýnir Leikfélag Kópavogs Þorlák þreytta i 44. sinn.
Uppselt hefur verið á hverja sýningu i haust. 45. sýning verksins
verður á mánudagskvöld. Á myndinni eru þeir Magnús Olafsson og
Finnur Magnússon í hlutverkum sínum.
TÓNLIST:
Kammertónleikar
í Norrœna húsinu
Erling Blöndal Bengtsson
og Anker Blyme leika saman
Á MORGUN kl. 16.30 leika selló-
leikarinn Erling Klöndal liengts-
son og píanóleikarinn Anker
Blyme saman í Norræna húsinu.
Þessir tveir tónlistarmenn hafa
oft komið fram saman, bæði í
Danmörku og utan, á kammertón-
leikum og hafa hvarvetna vakið
mikla hrifningu áheyrenda. I
Norræna húsinu leika þeir fyrst
A-dúr-sónötuna eftir Beethoven,
sem samin var 1808 og er eitt
meðal þeirra stórverka, sem skrif-
Erling Hlondal Bengtsson
uð hafa verið fyrir selló. Síðan
verður á efnisskránni sónata eftir
danska tónskáldið Herman D.
Koppel (1908), sem hann samdi
1956, en Herman D. Koppel hefur
samið mörg verk fyrir Erling
Blöndal Bengtsson, þ.á m. þessa
sónötu. Eftir hlé ljúka svo lista-
mennirnir þessum tónleikum með
sónötu í D-dúr eftir Mendelssohn,
en hún er meðal síðustu verka
tónskáldsins.
Aðgöngumiðar eru seldir í kaffi-
stofu Norræna hússins, og við
innganginn, ef eitthvað verður
óselt.
KVIKMYNDIR:
Þessi sæti sjúkleiki
Mánudagsmynd Háskólabíós
Mánudagsmyndin sem Há-
skólabió frumsýnir eftir helgina
er franskur „þriller“, Þessi sæti
sjúkleiki (This Sweet Sickness)
sem Claude Milier hefur gert
eftir samnefndri sögu Patriciu
Highsmith. Með aðaíhlutverkin
fara Gerard Depardieu, Miou-
Miou, Claude Pieplu. Jacques
Denis og Dominique Laffin.
Myndin fjallar um ungan
mann, David (Gerard Depardi-
eu), sem virðist fullkomlega heil-
brigður og eins og fólk er flest.
En öll hans tilvera stjórnast af
ást hans til stúlku, Lise (Domin-
ique Laffin), sem ekkert vill með
hann hafa. Stúlkan giftist öðrum
manni, en David getur ekki
hugsað sér að missa hana. Hann
bætir sér þetta upp í eigin
hugarheimi, kaupir sér hús sem
stendur afskekkt í skógi nokkr-
um og innréttar það eftir smekk
konunnar sem hann elskar. Hann
ímyndar sér síðan að hann dvelj-
ist þarna hjá sinni heittelskuðu
um hverja helgi, matreiðir handa
þeim og talar við hana. En virka
daga lifir hann eðlilegu lífi og
stundar sína vinnu. Kona nokk-
ur, Juliette (Miou-Miou), sem
vinnur með honum verður ást-
fangin af honum en hann á
ekkert rúm í hjarta sínu fyrir
hana, „konan hans“ er honum
allt. Samverkakona hans eltir
hann eitt sinn að skógarhúsinu
til að ganga úr skugga um, hvort
hann sé raunverulega bundinn
annarri konu, en hraðar sér á
brott þegar hún heyrir hann eiga
orðastað við einhvern í húsinu.
Ást Davids sem ekki er endur-
goldin leiðir hann loks út í
öngþveiti ofbeldis og örvænt-
ingar.
Gerard Depardieu og Miou-Miou i hlutverkum Davids og Juliettu í
mánudagsmyndinni „Þessi sæti sjúkleiki“.