Morgunblaðið - 11.10.1980, Side 31
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
31
SAFNAHÚSIÐ Á SELFOSSI:
Svava Sigríður Gests-
dóttir opnar sýningu
f DAG opnar Svava Sigríður
Gestsdóttir sýningu i Safnahús-
inu á Selfossi.
Á sýningunni eru olíumálverk,
pastelmyndir og myndir málaðar
með kínversku bleki. Þetta er 5.
einkasýning Svövu Sigríðar, en
hún hefur auk þess tekið þátt í
samsýningum hér heima og er-
lendis. Sýningin verður opin kl.
15—21 virka daga og 14—22 um
helgar og stendur til 19. þ.m.
LEIKLIST:
í öruggri
borg
Síðustu sgningar
NÚ ERU síðustu forvöð að sjá leikrit Jökuls
Jakohssonar í öruggri horg á Litia sviði Þjóðleik-
hússins. Aðeins þrjár sýningar eru eftir á ieiknum:
sunnudaginn 12. októher. miðvikudaginn 15.
október og sunnudaginn 19. október.
Atburðarásin gerist á heimili í Reykjavík. Æsku-
vinur húsbóndans kemur í heimsókn eftir langdvöl í
Þriðja heiminum. Á heimilinu ríkir hið undarlegasta
ástand sem á rót sína að rekja til þess að veröldin
stendur á heljarþröm og loksins er kominn tími
athafna í stað orða. „Það þarf að gera eitthvað
raunhæft," segir í verkinu og er raunar kunnugleg
krafa úr okkar eigin samtíma. En viljum við
raunhæfar aðgerðir þó svo allt sé í kalda koli?
Æskuvinurinn stendur óvænt frammi fyrir þessari
spurningu í leiknum og þessi spurning krefst svars
og kallar á athafnir.
í hlutverkunum eru Helga Bachmann, Þorsteinn
Gunnarsson, Bessi Bjarnason og Bríet Héðinsdóttir
Leikstjóri er Sveinn Einarsson. Leikmynd eftir
Baltasar. Dóra Einarsdóttir gerði búninga, en
Kristinn Daníelsson sá um lýsingu.
í öruggri borg. borsteinn Gunnarsson í hlut-
verki sínu.
Magnús Kjartansson virðir fyrir sér plakatið
sem hann hefur gert i tilefni sýningar sinnar i
Djúpinu.
MYNDLIST:
Magnús Kjart-
ansson sýnir
í Djúpinu
f dag opnar Magnús Kjartansson sýningu í
Djúpinu við Hafnarstræti. Þar sýnir hann málverk
og silkiprent sem hann hefur unnið á undanförnum
þremur árum.
Magnús Kjartansson er fæddur í Reykjavík 1949.
Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík,
1969, stundaði hann nám í Myndlista- og handíðaskóla
Islands til 1972 og í Kaupmannahafnarakademíunni
frá ’72—’75. Magnús sýndi ásamt Sigurði Örnólfssyni í
Norræna húsinu 1972. Síðan hefur hann haldið
einkasýningar á Kjarvalsstöðum 1976 og í Gallerí
Sólon Islandus 1977. Þá sýndi hann í Djúpinu fyrr á
þessu ári ásamt Árna Páli þrívíð myndverk, sem þeir
höfðu gert í samvinnu.
Sýning Magnúsar Kjartanssonar i Djúpinu stendur
til 22. þ.m.
Ingvar Þorvaldsson við eitt verka
sinna á sýningunni i Ásmundar-
sal.
Lars Ilofsjö á sýningu sinni i
FÍM-salnum á Laugarnesvegi
112.
Galleri Langbrók, Landlæknis-
húsinu á Bernhöftstorfu: Rúna,
Sigrún Guðjónsdóttir, sýnir
leirmyndir og teikningar. Sýn-
ingin stendur til 17. þ.m.
Mokka-kaffi, Skólavörðustíg:
Gunnar Hjaltason sýnir 33
myndir málaðar á japanskan
ríspappír. Sýningin stendur út
októbermánuð.
Sýningar um helgina
Kjarvalsstaðir: Haustsýning
FIM 1980. Á sýningunni eru
teikningar, olíumálverk, vatns-
litamyndir, pastelmyndir, gler-
myndir, vefnaður, höggmyndir,
grafík og myndir unnar í leir.
Sýningunni lýkur annað kvöld.
Norræna húsið: Palle Nielsen
sýnir grafíkmyndir í anddyri
hússins. Sýningin stendur til
mánaðamóta.
Jón Reykdal sýnir 21 olíumál-
verk og 27 grafíkmyndir í kjall-
ara hússins. Sýningin stendur til
26. þ.m.
FÍM-salurinn, Laugarnesvegi
112: Lars Hofsjö sýnir teikningar
af veggskreyti ngum, grafík og
veggteppi. Sýningin er opin í dag
og á morgun kl. 14—22 en henni
lýkur annað kvöld.
Djúpið, Hafnarstræti: Magnús
Kjartansson sýnir málverk og
silkiprent. Sýningunni lýkur 22.
þ.m.
Ásmundarsalur: Ingvar Þor-
valdsson sýnir 32 olíumálverk.
Sýningin er opin kl. 16—22 og
henni lýkur annað kvöld.
Bókasafnið á ísafirði: Kjeld
Heltoft sýnir 19 myndir unnar
með þurrnál. Sýningunni lýkur í
kvöld.
Safnahúsið á Selfossi. Svava
Sigríður Gestsdóttir sýnif olíu-
málverk, pastelmyndir og mynd-
ir málaðar með kínversku bleki.
Sýningin stendur til 19. þ.m.
Gunnar Hjaltason við nokkur verka sinna á sýningunni í Mokkakaffi.
MYNDLIST:
Gunnar Hjaltason
sýnir á Mokka
Á þriðjudaginn opnaði Gunnar
Hjaltason gulismiður i Hafnarfirði
sýningu i Mokkakaffi við Skóla-
vörðustíg. Þar sýnir Gunnar 33
myndir málaðar á japanskan rís-
pappír.
Gunnar Hjaltason er fæddur 21.
nóvember 1920 að Ytri-Bakka við
Eyjafjörð, en fluttist til Hafnar-
fjarðar 1952 og hefur búið þar síðan.
Hann stundaði nám í teikniskóla
Björns Björnssonar og Marteins
Guðmundsonar 1933—42 og tók
einnig þátt í nokkrum námskeiðum
á vegum Handíðaskólans, m.a. í
tréristu hjá hans Alexander Muller
1952. Gunnar hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga og haldið einka-
sýningar víða úti á landi og í
Reykjavík.
Sýning Gunnars Hjaltasonar í
Mokkakaffi stendur út októbermán-
uð.
Kór Kennaraskólans í Luzerne í Sviss hefur verið hér á landi í boði
Selkórsins á Seltjarnarnesi. Kórinn hefur ferðast víða um og sungið ba’ði
á Akureyri og Húsavík. svo og í Kristskirkju í Landakoti. í dag kl. 17
heldur kórinn tónleika í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi og flytur þar
m.a. þjóðlög frá Sviss og ísrael. Aðgangur er ókeypis. Á myndinni hér
fyrir ofan sem Ol.K.M. tók er kórinn að syngja í hauststemmningu fyrir
utan Kristskirkju.