Morgunblaðið - 18.12.1980, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
45
stjóri: — Foreldrar kynnast líka
vel innbyrðis og það skapar sam-
stöðu í hverfinu. Slík samvinna
hefur áhrif út í hverfið og skapar
tilfinningu fyrir því að fólk til-
heyri þessu hverfi. Til dæmis
settum við saman niður í hverfinu
plöntur í vor. Ef krakkarnir eru
með í að setja niður slíkar plöntur,
þá fá þau það á tilfinninguna að
þetta séu þeirra plöntur í þeirra
hverfi.
Allir á skíði
og í dansinn
Það kemur fram í spjalli okkar,
að í tilefni 5 ára afmælis skólans
var hann opinn foreldrum í eina
viku. Gátu þeir þá komið og
hlustað á lcennslu. Margt foreldra
kom, en reynt var að haga svo til
að ekki væru of margir í einu, til
að trufla ekki kennsluna. Sagði
Áslaug skólastjóri að á þennan
hátt tækjust betri kynni milli
skóla og heimila, og foreldrarnir
gætu þá betur áttað sig á skóla-
starfinu, góðum hliðum þess og
hinum verri.
í ölduselsskóla hefur verið fitj-
að upp á fleiri nýjungum. T.d. er
alltaf að vorinu íþróttahátíð, sem
stendur í tvo daga, og þykir mikill
viðburður. Þar sem ekkert leik-
fimihús er við skólann, hefur fram
undir þetta þurft að skera niður
leikfimi og senda þau í leikfimisali
í öðrum hverfum. Núna er þeim
ekið í hið nýja og glæsilega
Ármannshús og sögðu þau Áslaug
og Sigurður að það gengi vel. Er
áformað að næsti áfangi í skóla-
byggingum í hverfinu — eftir að
seinni byggingin í Ölduselsskóla
er upp steypt, sé að ráðast í
byggingu leikfimihúss við Selja-
skóla, sem nýtist báðum skólun-
um. Hefur verið orðað að e.t.v.
væri heppilegra að fá síðar litla
kennslusundlaug við Öldusels-
skóla í stað íþróttahúss.
Sigurður sagði, að áhugi væri
hjá foreldrafélaginu að athuga
eftir áramótin hvort það gæti ekki
komið á skíðaferðum. Þar sem
nemendur eru á svo mismunandi
aldri og sumir vilja vera í brekk-
um meðan aðrir ganga, þá þyrfti
mikið lið fullorðinna til aðstoðar,
meira en skólinn réði yfir. Gætu
foreldrar því farið í skíðaferðir
með börnunum ef nemendum yrði
skipt í 3 hópa. Þetta væri í
athugun og ýmislegt fleira. Til
dæmis að foreldrarnir tækju þátt í
diskódansinum með unglingunum
engu síður en öðru félagslífi. En
það er til siðs, eins og t.d. þegar 12
ára börnin voru með skemmtun
sem endaði á diskódansi, að allir
fullorðnir fara heim, þegar dans-
inn byrjar. Þetta telur Sigurður
eitt af því sem stuðlar að rofnu
sambandi Áður hefðu allir aldurs-
' flokkar dansað saman, svo sem á
sveitaböllunum. En um leið og
foreldrar og börn hætti að geta
skemmt sér saman, þá rofni sam-
bandið. Allir ættu að geta haft
gaman af að skemmta sér þannig
saman í dansi.
Foreldrafélagið hefur semsagt
ýmislegt á prjónunum. Fyrst og
fremst viljum við auðvitað stuðla
að því að ekki bregðist að þetta
hús, sem er verið að byggja komist
í not fyrir haustið 1981 og veita
skólanum það lið sem við megum,
sagði Sigurður. Óhætt er að segja
að ef ekki er góður skóli, þá sé
ekkert foreldrafélag og ef ekkert
foreldrafélag, þá enginn skóli,
þetta er svo samtvinnað, sagði
hann. Það er erfitt að reka skóla
öðruvísi en að samvinna sé milli
hans og heimilanna.
Foreldrafélög eru nú víða að
komast á í skólum landsins og
hefur komið til orða að stofna
landssamtök þeirra. Sigurður
taldi það of fljótt, þar sem for-
eldrafélög væru ekki alls staðar.
Betra að byrja á samstarfi til
dæmis skólanna í Breiðholti, enda
gott fyrir félögin að hafa stuðning
hvert af öðru, þar sem um sömu
vandamálin væri að ræða. Hann
taldi réttara að leyfa þessu að
þróast, byrja með samtökum
nærliggjandi skóla, færa sam-
bandið svo yfir borgina og síðan í
samband á landsvísu. En það er
greinilega rösklega riðið úr hlaði í
ölduselsskóla. — E.Pá.
Klcippa'stig 44 Reykiovik simi 11783
Jólagjöf
sem gleður
Listskautar
Stæröir 30—35.
Verö gkr. 31.100, nýkr. 321,00
Stæröir 36—41.
Verö gkr. 34.120, nýkr. 341,20
Stærðir 42—47.
Verö gkr. 34.475, nýkr. 344,75
Hvítír: Stærðir 30—42.
Svartir: Stærðir 32—47.
Póstsendum samdægurs.
$
SUZUKI
Höfum til afgreiðslu strax SUZUKI TS50 og GT50E
létt vélhjól.
Hagstætt verð. — Hagstæöir greiðsluskilmálar.
Suzuki-umboöiö
Ólafur Kr. Sigurösson.
Tranavogi 1. sími 83499.
*
I * *
W J1
skápar
og kommóður.
Góð jólagjöf.
Bíásícó
Símar: 86080 og 86244 f
1
ar
Athyglsivert
verö
Höfum einnig stereobekki á mjög góöu verði
gerðum. Hentugar og smekklegar jólagjafir.
ma- m
Fyrir þá sem hafa áhyggjur af því að geta ekki látið
sér líöa vel eða slappað ærlega af eftir jólahátíö,
höfum viö hjónarúm og einstaklingsrúm í miklu
úrvali á mjög hagstæðum verðum.
Opið til kl. 18 i kvöld og n.k. mánudags-
kvöld til kl. 19, föstudag og laugardag til
kl. 22 og til kl. 23 á Þorláksmessu.
Sími
77440.
1Q
Nú geta allir eignast vegghillusamstæður þvi
veröiö er ekki eins ótrúlegt heldur hreint og beint
hlægilega ódýrt. Veröið á þessum vegghillusam-
stæöum er aöeins kr. 319.700.- nýkr. 3.197.-