Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 20
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980 Jólapósturinn til íbúa á Hveravöllum ÞYRLA Landhelgisgæzlunnar, TF-RÁN, flutti í gær árlega jólasendingu til íbúa Hvera- valla, sem þar starfa við veður- athuganir. Undanfarin ár hefur Landhelgisgæzlan hlaupið und- ir bagga og fært veðurathugun- arfólkinu vistir og póst rétt fyrir jólin. Minni þyrla gæzlunnar hefur annast verkið yfirleitt, en þar sem hennar nýtur ekki við í bili var stóra þyrlan fengin til verks- ins. Sögðu þau Bergún Gunnars- dóttir og Gunnar Pálsson, að þau hefðu ekki búizt við neinni sendingu í ár úr því litla þyrlan væri úr leik, en ánægjan væri jafnan mikil að fá jólapóstinn og ný matvæli. Síðast fengu þau heimsókn í október þegar gangnamenn voru í eftirleitum og er án efa alllangt í næstu heimsókn, en gestkvæmt er þó jafnan á Hveravöllum þegar færð er góð yfir hásumarið. Ragnar Axelsson ljósmyndari Mbl. fékk að fljóta með í póst- ferðinni í gær og tók þá með- fylgjandi myndir. Gunnar og Bergrún og hundurinn Lubbi kveðja gestina, en þau segjast haida jól á venjulegan hátt þótt lítið sé e.t.v. um fjölskylduboðin. i.jó»m. Rax. Hjónin á Hveravöllum, Gunnar Pálsson og Bergrún Gunnarsdóttir taka hér við varningnum, sem þeim barst i gær. Þyrlan í baksýn, en henni flaug Bjðrn Jónsson við annan mann. Gestirnir þágu kaffiveitingar, en hinn stutti dagur leyfði ekki langa dvöl og er um klukkustundar flug frá Reykjavik til Hveravalla. Ko Gjöfin sem gleour strax! Nýja gerðin af Kodak Instant myndavélinni er komin. Fallegri og nettari. Kodak Instant framkallar myndirnar um leið í björtum og fallegum Kodak litum — Engin bið og árangurinn af vel heppnuðu „skoti“ kemur í Ijós. HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI AUSTURVER GLÆSIBÆR S:20313 S:36161 S: 82590 Umboðsmenn um allt land Kodak Instant Ek 160-EF Kr. 47.200.- Nýkr. 472

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.