Morgunblaðið - 21.12.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
67
LAUGARÁSBÍÓ XANADU
Maður mun minnast Xanadu fyrst og
fremst sökum þess að hún var fyrsta
myndin sem sýnd var hérlendis með nýrri
og fullkominni hljðmburðartækni —
Dolby stereo. Það er merkur og ágætur
áfangi sem nokkur önnur kvikmyndahús
eru einnig að nálgast á á næstu vikum og
mánuðum.
Að öðru leyti gleymist filman fljótt.
Efnisþráðurinn álíka beysinn og maður á
að venjast i þeim ofast væmnu frænkum,
söngva- og dansmyndum, ef ekki undir
meðallagi, og er þá mikið sagt. En Xanadu
á einnig sínar góðu hliðar. Þar ber hæst
skemmtilega kóreografiu, búninga, hljóð-
upptöku, þá er framtíðarleg tónlist ELO
skemmtileg og fellur vel að efninu, og
nýtur sin einkar vel i þessum byltingar-
kennda tæknibúnaði.
Hryllingur í
háloftunum
Eítirminnilegt atriði úr einni bestu mynd Roegs, Don’t Look Now.
NÝJA BÍÓ ALIEN
- ÓVÆTTURINN
Aðalhlutverk: Tom Skerritt,
Sigourney Weaver, Veronica
Cartwright, Harry Dean Stan-
ton, Yaphet Kotto, John Hurt,
Ian Holm.
Handrit: Dan O'Bannon.
Leikmynd: Michael Seymour.
Leikstjóri: Ridley Scott.
og
Eins og flestum er kunnugt
sem fylgjast með kvikmyndum
þá er uppgangur vísinda- _r
hrollvekjandi mynda, með ólík
indum síðustu misserin og er
lítið lát á. Hvorki meira né
minna en tæpur þriðjungur
kvikmyndaframleiðslu Banda-
ríkjamanna á þessu ári má skipa
í þessa flokka. Það hlaut því að
koma að því að einhverjum dytti
í hug að skapa geimgrýlu á borð
við þá sem ber fyrir augu í
óvættinum.
Söguþráðurinn er einfaldur.
Sjö manna áhöfn risavaxinnar
geimferju, sem stödd er í óra-
fjarlægð í tíma og rúmi frá
okkur, hvílist í dásvefni á milli
áætlunarstaða. Hún er aðeins
vakin, af stjórnendum, tölvunni
„mömmu", ef eitthvað fer úr-
skeiðis, og myndin hefst einmitt
undir slíkum kringumstæðum.
„Mamma“, tilkynnir skips-
höfninni um dularfull hljóð-
merki frá lítilli og ókunnri
reikistjörnu, og ákveður að
kannað skuli hvort þau berist
frá vitsmunaveru. Leiðangur er
gerður út til að kanna þetta
dularfulla fyrirbrigði og verður
einn af meðlimum hans fyrir
árás af óhugnanlegri geimveru
sem á eftir að þjarma að áhöfn-
inni.
Svo sem ekkert ýkja frumleg-
ur söguþráður, það sem skiptir
sköpum er að myndin er gerð af
fjársterku fyrirtæki, sem hvorki
hefur sparað fé né mannafla, því
segja má að það sé valinn maður
í hverju rúmi hvort sem er aftan
eða framan við myndavélina. Ef
þessa hefði ekki notið við, hefði
blasað við á tjaldinu enn ein,
gamalkunnug B-hrollvekjan.
Ridley Scott, sem áður hefur
aðeins gert eina mynd, hina
undurfögru og gjörólíku mynd,
The Duellists. tekst að halda
uppi krassandi spennu svo um
munar frá upphafi til enda. Til
þess að halda athygli áhorf-
andans fanginni notar hann mý-
mörg ráð. Fyrst og fremst þenn-
an ófélega ferðafélaga, svolítið
blóðbragð, stórkostleg tækni-
brögð og leikmyndir, oft angr-
andi lýsingu og kvikmyndatöku.
Og í bakgrunninum er sífellt
drungaleg tónlist Jerry Gold-
smith, sem bregst ekki frekar en
fyrri daginn.
Sjálfsagt finnst sumum
óhugnaðurinn full mikill í
Óvættinum en hann er svo
einstaklega fagmannlega unninn
að hann er afsakanlegur og
hafinn yfir gagnrýni. Hins vegar
byggir hann upp þá heiftar-
legustu spennu sem undirr. hef-
ur upplifað langa lengi í kvik-
myndahúsi.
Tæknilega er Óvætturinn,
(nokkuð klúðursleg nafngift),
einstaklega vel gerð, sem dæmi
má nefna titlana og radartölvu-
vinnsluna. Leikmyndin er frum-
leg og oft óhugnanleg, auk þess
sem lýsingin er mikið notuð til
að undirstrika óttann og auka
innilokunarkenndina. Og þessi
vágestur, „alien", er sannkölluð
meistarasmíð, enda hlutu höf-
undar hans og tæknibrellnanna,
Oscarsverðlaunin í ár. Leikurinn
er jafn og góður og óhætt er að
fullyrða að Óvætturinn er ein
besta hrollvekja sem boðið hefur
verið uppá um langa hríð, þrátt
fyrir nokkur rauðleit atriði.
Bókafrétt
Internationai Film Guide 1981.
Ritstj.: Peter Cowie.
The Tantivity Press, London
Bókaverslun S. Eymundsson.
Þá er útkomin enn á ný þessi
ágæta árbók, uppfull af fróðleik
fyrir alla kvikmyndaunnendur
Megininnihald hennar liggur i
þeim fróðleik sem hún miðlai
um kvikmyndagerð, allt frá fjar-
lægustu heimshornum til stór-
velda iðnaðarins. Þá er löngum
forvitnilegt val Dowies á „leik-
stjórum ársins", en kvintett
hans í ár er Spánverjinn Louis
G. Nerlanga, sem vægast sagt er
lítt þekktur hérlendis, fæddur
1921 og kunnastur fyrir mynd-
irnar Caiabuch (56) og Life Size,
(73), Pólverjinn Krzysztof Kiesl-
owski, Italinn Ermanno Olmi,
sem ekki þarf kynningar við, en
gaman væri að fara að fá að sjá
eina merkilegustu mynd hans
L’Albergo Degli Zoccoli, Bretinn
Nicholas Roeg og landi hans
Peter Yates sem er í .hópi
útvaldra vegna þeirrar ágætu
myndar Breaking Away, sem
sýnd var hérlendis í sumar.
Þá er greint frá helstu kvik-
myndahátíðum ársins, kvik-
myndaverslunum, -skólum,
gagnrýndar bækur og upptalin
nokkur blöð og tímarit um þessa
listgrein. Margan annan fróðleik
er að finna.
Kaflinn um ísland er ágætur,
líkt og við mátti búast frá Birni
Vigni og Árna Þórarinssyni.
Tilkynning
til eigenda þjóðsagna
Ólafs Davíðssonar
4. og síöasta bindiö er komiö út.
Yfirgripsmikil nafnaskrá og atriö-
isoröaskrá fyrir allt safniö, 160
blaösíöur.
sími 13510.
Volvo eigendur
athugió
Verkstæöi okkar aö Hyrjarhöföa 4, og Suöurlands-
braut 16, veröa lokuö dagana 24., 31. desember og
2. janúar.
Veltir hf.
Mrzbera) Postulín
GERMANY
w AAFOSSBÚÐIN
Vesturgötu 2, sími 13404.