Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1980
Palli prins kemur til hjálpar
Dreki hefur numið Pöllu prinsessu á brott og Palli prins heldur i skyndingu af stað til
þess að bjarga henni. Mörg ljón verða á vegi hans, en hendir sig lfka að óvænt happ
verður til þess að flýta för hans. — Leikmenn varpa teningi til skiptis og færa sig i
samræmi við töluna sem kemur upp, nema annað sé ákveðið í leikreglunum sem hér
fara á eftir. Sá sem hafnar fyrstur á 60 fer með sigur af hólmi.
1) Óskabyrjun hjá Palla prins! Flyttu þig á 7.
6) Ræningjaflokkur situr fyrir prinsinum undir brúnni. Bíddu eina
umferð.
11) Hópur banhungraðra úlfa eltir Palla greyið. Flyttu þig á 16.
15) Bandótt bjarndýr ræðst til atlögu. Bíddu uns þú hefur fengið upp 2.
21) Norn sem er í nöp við prinsinn, birtist á veginum. Hörfaðu 3 til
baka.
24) Töfrar hafmeyjunnar rugla Palla í ríminu. Til þess að sleppa úr
álögunum og geta haldið áfram, verðurðu að fá 1, 3 eða 5 á
teningnum.
29) Tveir ástúðlegir álfar vísa veginn framhjá næstu hindrun. Flyttu
þig á 35.
33) Herská valkyrja skorar prinsinn á hólm. Bíddu tvær umferðir.
37) Palli prins hafnar í völundarhúsinu. Kastaðu teningnum tvisar
aukalega. Færðu þig fram í fyrra skiptið, aftur á bak í það síðara.
45) Galdrakarlinn góði leggur Palla lið. Flyttu þig á 52.
51) Einhyrningur lokar leiðinni. Aðeins með því að fá upp 1 geturðu
haldið ferð þinni áfram.
57) Prinsinn verður að fela sig fyrir hinum eldspúandi dreka. Aðrir
leikmenn flytji sig fram um 3. -
60) Palli prins eignast Pöllu prinsessu og hálft kóngsríkið að auki. En
bíddu nú hægur! Ef upp kemur hærri tala á teningnum en þú þarft
að nota, þá áttu að telja að 60 og síðan til baka og bíða eftir næsta
kasti. Þú sigrar því aðeins að upp komi rétta talan hjá þér og þú
hafnir nákvæmlega á 60.