Morgunblaðið - 24.12.1980, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.12.1980, Qupperneq 20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1980 51 Geturðu hjálpað kanínunni að finna holuna sína? Lítil þraut, teiknuð af Áslaugu Jónsdóttur, 12 ára. Frúin: Ég er hrædd um að Kata á loftinu hafi fengið sér nýja ryksugu! Frúin: Kæri jólasveinn, getur þú ekki tekið af þér skeggið, því hún Jóna litla er svo hrædd við skeggjaða menn. Hver er leikinn? Klippið og límið saman nokkra pappír-toppa, eins konar lítil kramarhús eins og sýnt er á myndinni, Setjið örlítinn leir, eða álkúlur í odd hvers topps. Síðan skerið þið eða klippið göt á pappakassa eins og sýnt er, búið til vegasalt úr blýanti, teygju og reglustiku. Hver skyldi nú vera leiknastur í að láta toppana lenda ofan í götum kassans? Silki- ormur „Silkiormur" spinnur hýði sitt við að hreyfa höfuðið til sitt hvorrar hliðar aftur og aftur. Því er haldið fram, að hann hljóti að þurfa að fram- kvæma þessar hreyfingar um 300.000 sinnum, áður en hýðið er tilbúið. Silki- þráðurinn, sem hýðið er ofið úr er um 135 metra langur! Jólasveinninn: Og hvers óskar þú þér í jólagjöf? Drengurinn: Ég óska mér ekki neins, ég settist bara hjá þér af því að ég var orðinn svo þreyttur í fótunum af að róla hér um í öllum þessum látum. Frúin: Við hefðum ekki átt að senda kort til fjöl- skyldunnar á efri hæðinni, því hún sendi okkur ekkert. Aðfangadagskvöld á nú- tíma heimili. Aéfanga- dagur Eftir Agúst Magnússon, 14 ára. Það var 24. desember í dag og klukkan var 10 að morgni. Ég sat glaðvakandi í rúminu mínu og horfði út um gluggann! Enn var nokkuð dimmt úti og snjónum kyngdi stöðugt niður.Ég var sá eini í fjölskyldunni, sem var vakandi. Ég gekk að jóladag- atalinu og opnaði rúðu 24! Þar var mynd af Maríu mey með Jesú-barnið. Nú greip mig strax mikil hátíðartilfinning. Ég vissi ekki, hvað ég átti að gera, allir voru sofandi, enginn úti til að leika sér við. Loks ákvað ég að fara að sofa aftur. Ekki gekk það of vel, því að mér var stöðugt hugsað til kvöldsins. Samt sofnaði ég að lokum og vaknaði aftur klukkan tólf. Þá voru allir vaknaðir, pabbi, mamma, Óli og Magga. En enginn var úti. Mamma kallaði á mig og sagði, að nú væri kominn matur, og ég fór að borða. Eftir matinn fór ég að lesa teiknimyndabók. Skömmu síðar kom pabbi til mín og spurði hvort ég vildi koma með honum og Möggu til þeirra, sem áttu að fá jólapakkana. Ég sagði já við því og við fórum af stað. Við fórum til Óla, Bóbóar og Siggu Jóns, Ásthildar og fleiri krakka og síðast fórum við til ömmu og afa. Klukkan var brátt hálf fimm og nú fóru menn að klæða sig í jólafötin. Klukkan sex fórum við í kirkju. Hún var alveg full. Presturinn talaði um fæðingu Jesú og mennina þrjá, sem leituðu hans. Klukkan sjö fórum við heim að borða jólamatinn, sem var hangikjöt. Nú þegar við höfðum lokið við matinn fóru pabbi og mamma að þvo upp. Þegar því var lokið fórum við að taka upp pakkana, en þá var klukkan orðin hálf níu. Ég fékk skólaúr frá mömmu og pabba og bækur frá Óla og Sigga, Bóbó og Siggu. Frá ömmu, afa og Möggu fék ég bílabraut og einnig fleiri gjafir. Nú var klukkan orðin tíu og kominn tími til að fara að lesa jólakortin. Pabbi gerði það og nóg var af þeim. Þegar því var lokið komu þau Anna systir og maðurinn hennar í heimsókn eins og hafði verið ákveðið. Á eftir var farið að taka upp pakkana þeirra, það er að segja, sem við gáfum þeim og þau okkur. Þau gáfu mér bók. Skömmu síðar fórum við mamma að leika okkur með bílabrautina og héldum því áfram til klukkan tvö um nóttina, en þá fóru allir að sofa. Hvert ætlar ferðalangurinn? Eins og þið sjáið á þessari mynd, er ferðamaðurinn ákveðinn í að sjá allar byggingar og líkneski, sem fram koma á myndinni. En áður en hann leggur af stað, er eins gott að athuga í hvaða löndum þessi mannvirki eru! Getur þú hjálpað honum? Ef ekki, þá skaltu spyrja einhvern í fjölskyldunni af því að við ætlum ekki að birta lausnina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.