Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1980 44 3-cruóalem, &ld city 1 rM -v. § ■ % - P(pi) -f <..!Ífcfc./V V 4* •• »■ -« _ fí.r ^ pny " '■ ■ ^*Sígfc ■ ■’ *. * • ' V i/Zti-fck* * , . -'t -,-(í ' í. ,^í;- f WtjuSJÍ1. l*' — i ■- 't, ,v.' * »ií Damaskus-hliðiO. Sr. Árelíus Níelsson: J er úsalem borgin heilaga Meðal allra þeirra undra sögulegra og trúarlegra helgi- dóma, sem ber fyrir augu í ísrael eða Gyðingalandi, má telja höfuðborg- ina Jerúsalem hjartastað og- brennidepil. Hún er borgin eilífa, heilaga, fræga og fagra. Börn hennar í útlegð orðuðu sambandið við hana fyrir þúsundum ára með orðunum: „Gleymi ég þér Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd.“ Og ekki munu aldirnar neitt hafa breytt þeirri afstöðu, hollustu og ást. Samt eru ekki allir sammála um þessa borg. Fáar borgir hafa verið hataðar heitar né ofsóttar og eyddar, brenndar né ruddar til rústa á hryllilegri hátt. Jafnvel um nafn hennar eru fræðimenn ekki alveg á sama máli, að öðru en því að óskin um frið er þar sem inngreiptur dem- ant helgaður nafni æðsta guðdóms hverri mannlegri sál. Elzta merking nafnsins Jerúsal- em sem ég hef heyrt um er Friðar-arinn Guðs eða Jahve. Þá er merkingin Friðarsjón Guðs algeng í útskýringum fræði- manna. En shahem eða salem þýðir friður. Og Je er rót orðsins Jahve — Guð eða „ég er“, sém það það þýðir að frummerkingu. Sem sagt, það er ósk og þrá eftir friði og öryggi sem er frumþáttur og hornsteinn, bjarg aldanna, sem borgin hvílir á. Hitt er svo annað mál, hvernig menn, stjórnendur, valdhafar og virðingamenn, höfðingjar heims hafa unnið að þeim friði, byggt á hornsteinum þessara óska og bæna. Saga þessarar heilögu friðar- sjónar í óskheimi mannshjart- anna er harmsaga haturs og styrjalda, ófriðar og sundrungar fram á þennan dag. - Ef til vill er það vegna þessara hryllilegu mistaka, að hvergi birt- ist dýrð friðarsjónar Guðs á fegri hátt en yfir hæðum þeim, sem Jerúsalem hvílir á. Hvergi hefur þrá og sigur kærleikans í manns- hjörtum logað heitar né lýst skærar en frá Zion og Golgata Jerúsalemborgar. Þessi heilaga borg stendur á hæð milli tveggja dala eða dal- draga. Annar sá austari heitir Kedrondalur, kenndur við lækinn eða ána, sem þar rennur, raunar aðeins að vetri um regntímann. Nafnið Kedron er sagt að þýði Svarti vetrarlækurinn. Hinn dalurinn er miklu dýpri að hluta til að minnsta kosti og með brattari hlíðum og nefnist Hinnomsdalur, kenndur við ein- hverja Hinnomssyni úr sögu ís- raels. I þessum dölum var að vissu leyti vernd og öryggi borgarbúa falið. Erfitt að sækja með óvina- her upp hlíðarnar, ekki sízt eftir að ókleifir múrar höfðu verið reistir um borgina á allar hliðar. Kedrondalur naut virðingar og ástúðar. En Hinnomsdalur var notaður sem ruslakista og sorp- haugar. Hann er sú líking, sem Kristur notar um glötun og kallar í Fjallræðu sinni Gehenna eldsins. Það er dalur ruslahauganna, sem logar í. En guðfræðingarnir hafa gert úr þessari líkingu um Hinn- omsdal helvíti allra alda, með dauða og pínu. Þessi Jerúsalemhæð er 25 km. ■frá norðurströnd Dauðahafsins og um 50 km. frá botni eða strönd Miðjarðarhafsins og er 700—800 metra há. Eftir þessari hæð liggur svo lítil! dalur eða lægð, suður og norður. Hann skilur að nokkru hæðirnar frægu Moria og Zion. En ekki koma fræðimenn sér saman um það á hvern hátt þau skipti eru. Sumir telja jafnvel Zion og Moria sama staðinn. Fátt eru menn ásáttir um í borginni helgu. Þessi lægð er líka næstum horfin af yfirborði jarðar, orðin full af rústum hruninna halla og múr- veggjabrunninna borga. Talið er að upphaflega hafi borgin verið byggð í hlíð Moria, þar sem ekki er nú innan borgarmúra. Þar var sú borg Jebusita, sem Israelsmenn áttu erfiðast með að sigra. Og þar mun vera sú Zion, sem oftast ei* talað um í Gamla testamentinu. Sú borg sem Davíð konungur gerði að sinni borg og höfuðborg landsins 1000 árum áður en okkar tímabil hefst. Um val borgarinnar virðist tvennt hafa legið til grundvallar: Hæðin tilvalin til virkisgerðar, góð uppspretta lifandi vatns. Það er sístreymandi vatn úr jörðu í hinni svonefndu Gihonlind eða Meyjarlind. Síðar var sú upp- spretta tengd Silvannlind í suð- austurhluta borgarinnar. En hennar er minnzt bæði í Gamla og Nýja testamentinu, ekki sízt í sambandi við laufskálahátíðina. En silvah eða sælah þýðir vatns- leiðsla eða útsent vatn. Alla tíð fram á þennan dag i 3000 ár hafa þessar lindir verið lífæðar Jerúsalemborgar. Það var einnig hér, sem Abra- ham átti að fórna Isak syni sínum á því bjargi, sem nú er varðveitt sem einn nelzti helgidómur ver- aldar í sjálfri Omarsmoskunni á musterishæðinni. En sú helgisögn er hornsteinninn í friðþægingar- kenningu kirkjunnar, þótt lang- sótt sé. í samræmi við þessar fornhelgu sagnir gyðingdóms og forfeðra þeirra, reisti Salomon konungur, sonur Davíðs, hið fyrsta musteri ísraels á þessum stað. Og þar hafði áður tjaldbúðin verið, með sáttmálsörk hinna tveggja steintaflna með boðorðin tíu frá dögum Móse, geymda í hinu allrahelgasta. En rúmum þrem öldum síðar var það musteri brennt til kaldra kola, múrarnir felldir, borgin rænd og fólkið sem eftir lifði flutt austur í Babylon. Það var árið 586 f. Kr. Sögu musterisins var þó ekki þar með lokið. Hinn einstæði konungur allrar veraldar sögu, Kýros, leyfði útlögunum heim aftur, eftir 70 ára dvöl í herleið- ingu til Babylonar. Sagt er að þessi fáheyrða náð valdhafa allra alda hafi verið sprottin af ást konungs til einnar af dætrum ísrales austur þar. Hún hét Ester, sem þýðir stjarna, og um hana og afrek hennar er ein af bókum Gamla testamentinu hvernig hún beitti áhrifum sínum til að koma í veg fyrir fjöldamorð á útlögunum í Babylon og síðar veitingu heim- fararleyfis. Þá var strax hafizt handa um byggingu musteris á rústum hins rænda og fallna. En aldrei þótti það nema svipur hjá sjón saman- borið við Salomonsmusterið. Enda var nú sáttmálsörkin týnd og hefur aldrei fundizt. Seinast var það beinlínis látið víkja fyrir musteri Herodesar mikla á síð- ustu árum fyrir fæðingu Krists og upphaf hins nýja tímatals vorra daga. Það var talið voldugasta mann- virki hinnar heilögu Jerúsalem- borgar fram á þennan dag, þótt reist væri af einum versta vald- níðingi allra alda, en snillingi samt og stórmenni, sem ekki var þó beint af gyðingaættum. Einnig lét hann reisa í Jerúsal- em þrjá frábæra skrautturna. Einn þeirra helgaður Fasael, bróð- ur Herodesar. Hann er þeirra stærstur og stendur í miðju, 45 m. hár. Við hlið hans er annar turn 40, m. hár, helgaður kærasta vini konungs og hinum megin sá minnsti, en taiinn fegurstur allra turna helgaður eiginkonu Hero- desar, Marianne hinni fögru, sem hann tók nú raunar frá bróður sínum, og er hún frægust fyrir þá ósk sína, að fá höfuð Jóhannesar skírara borið inn í veizlu á silfur- fati. Þessa konu sína lét Herodes myrða af ótta við valdarán og mig minnir að svo væri um öll þessi þrjú, sem turnarnir eru helgaðir. Hann var sem sagt brjálaður af hræðslu þessi mikli maður. Musterið hans hið mikla og fagra var tæplega fullgjört árið 70, þegar það var brennt og eyðilagt. En turnunum var þyrmt og þeir eru til sýnis öllum, sem heimsækja musterishæðina enn í dag. Hið eina, sem enn stendur af þeim miklu mannvirkjum Hero- desar, sem musterinu tilheyrðu, er hluti af múrnum í vesturhlíð musterishæðarinnar. Hann er frægur undir nafninu Vesturmúrinn eða Grátmúrinn og er helgasti staður gyðingaþjóðar- innar allt til þessa dags. Þangað hafa þeir leitað úr heimi öllum til að gráta forna frægð og biðja um frið, frelsi og náð til að eignast borgina sem hina heilögu friðar- sjón í ljóma Guðs, heimkomnir úr dreifingu hins gangandi gyðings, landflótta og flakkandi. Þegar helgasti og göfugasti son- ur Landsins helga kom síðast til Jerúsalem norðan úr Galileu grét hann yfir þeim örlögum hennar, að hún yrði eydd og musterið brotið svo ekki stæði þar steinn yfir steini, þar eð íbúarnir vissu ekki hvað -til friðar heyrði. Og hann grét. Þessi spá rættist bókstaflega árið 70 e. Kr. Og það mun fyrst á þessu ári 1980, að lög mæla svo fyrir að öll Jerúsalem sé á þeirra valdi og höfuðborg hins nýja Israelsríkis. En í nánd við Grátmúrinn hefur um allar aldir ríkt hin mesta helgi og lotning sú, sem birtist í orðum íslendinga hinna fornu um sín helgafell: Þangað mátti enginn óþveginn líta. Við Grátmúrinn skyldu allir klæðast dökkum við- hafnarbúningi, börnum kenndar bænir, höfði í auðmýkt hneigt, í lotningu kropið og sorgarsöngvar hljóma líkt og óendanlegt rímna- lag í íslenzkri baðstofu í gamla daga eða grallarasöngur nýjustu tízku í Skálholtskirkju. Sérkennilegt við svip eða stíl hinna miklu helgidóma Jerúsal- emborgar eru ferhyrndir gluggar, sem eru oft tveir á sama veggfleti, eins og tvíburar, þótt húsin geti sjálf verið í hinum ólíkustu stíl- tegundum löngu liðinna tíma, gotneskum, rómönskum eða már- ískum. Ég minnist þannig glugga á Beit Tabor, Laemol-skólanum og meira að segja Rockefeller-fornminja- safninu, sem allt er byggt á 19. og 20. öld, sama má segja um glugga Grafarkirkjunnar. Hinar nýjustu byggingar ísraels eru hins vegar með algjörlega ókenndum svip ólíkt öllu öðru. Þannig er Holocaust-safnið til minningar um fjöldamorðin í Þýzkalandi úr einföldum, nöktum, hrjúfum steinum, samtengdum með steinsteypu, án alla skreyt- inga, gult á lit. Þá er safnhúsið yfir Dauðahafs- handritunum líkast risavöxnum hatti tilsýndar, hvítt á litinn. Kennedy-minjasafnið líkist ný-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.