Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1980
43
Einar Markússon:
Innsýn
MEÐ MIKILLI eftirvæntingu
hafa margir músíkunnendur beðið
eftir framhaldi Tónmennta, öðru
bindi L—ö, sem gefið er út af
Menningarsjóði. Nú er bætt úr
þeirri þörf og knýjandi nauðsyn.
Bókin er komin út. Höfundurinn,
dr. Hallgrímur Helgason, eys hér
sannarlega af nægtabrunni víð-
Ný lög frá Alþingi:
Biskupskosn-
ingar, fæðing-
arorlof
og almanna-
tryggingar
FJÖLMÖRG frumvörp urðu að
lögum frá Alþingi í önnunum
síðustu dagana fyrir jólaleyfi
þingmanna, sem hófst á laug-
ardaginn, hinn 20. desember.
Alþingi verður aftur kvatt
saman eigi síðar en hinn 26.
janúar á nýju ári.
Meðal þeirra frumvarpa, er
urðu að lögum fyrir jól, má
nefna lög um biskupskosn-
ingar. en þar er meðal annars
gert ráð fyrir auknum réttind-
um leikmanna við kjör biskups
yfir íslandi. Biskupskosning
samkvæmt hinum nýju lögum
mun fara fram á næsta ári.
Þá voru samþykkt lög um
minnstu mynteiningu við
álagningu opinberra gjalda.
en þar er að finna ákvæði um
að skatta og skyldur skuli
landsmenn greiða í heilum
krónum, nýkrónum, en ekki
aurum, og verða upphæðir ým-
ist hækkaðar upp eða lækkaðar
til að slíku verði við komið. Er
það gert vegna erfiðleika á að
breyta tölvutækni hins opin-
bera.
Þá varð frumvarpið um sér-
stakt vörugjald á öli, gos-
drykkum og sælgæti að lögum
eins og áður hefur komið fram,
einnig lög um fæðingarorlof,
almannatryggingar og lög um
söfnunarsjóð lifeyrisréttinda.
Messur í
Siglufirði
Siglufirði 20. desember.
MESSUR um hátíðarnar verða
sem hér segir; aftansöngur á
aðfangadag klukkan 18 og hátið-
arguðsþjúnusta á jóladag klukk-
an 14. A jóladag verður haldin
guðsþjónusta i sjúkrahúsinu
klukkan 16:30.
A annan í jólum verður skírn-
armessa klukkan 11. Á gamlárs-
dag verður aftansöngur klukkan
18 og hátíðarguðsþjónusta á ný-
ársdag, 1. janúar 1981, klukkan 14.
Fréttaritari
í hljómheima
Myndin er tekin i húsakynnum hinnar nýju verzlunar að Suðurlands-
braut 30.
Verzlunin Markmið — ný sérverzl-
un með reiðhjól og hjólaskauta
tækrar þekkingar sinnar, ekki
síður en í fyrra bindi.
Rakin eru og kostgæfilega út-
skýrð bæði útlend og innlend
hugtök tónlistar, sögulega, fagur-
fræðilega og skemmtilega. Mikill
fengur er að samanburði efnisorða
við önnur tungumál, sem í meðför-
um ekki eru á hvers manns færi.
Þá koma hér og við sögu íslenzk
orð og talshættir, sem færðir eru
tii uppruna síns, t.d. Vilhjálmur
korneis og „að draga seiminn".
Fróðleikur er alltaf skemmtileg-
ur, og sérhverjum hugsandi manni
er hollt að ala með sér fróðleiks-
þorsta. Slíkum mönnum er þessi
bók sannkölluð svalalind, svo víða
er komið við og svo margt nýstár-
legt ber á góma, framsett á
auðskildu, kjarnyrtu máli. Auk
þess sýnist mér textinn vera hrein
náma nýyrða.
Til augnayndis inniheldur bókin
mikinn fjölda fágætra mynda,
sem hér hafa aldrei áður sést. Má
þar m.a. nefna serenötumyndina
frá Luzern með listaverki Thor-
valdsens í baksýn. Skýringar
myndanna segja í stuttu máli oft
ótrúlega mikið, eins og t.d. um J.S.
Bach: „Hjá honum fara saman
innblástur og úrvinnsla, heilagur
eldur listamanns og handverksleg
ábyrgðartilfinning kunnáttu-
manns.“ Árni Elfar hefur með
miklum ágætum teiknað myndir
af íslenzkum tónlistarmönnum.
Ennfremur prýða nokkrar lit-
myndir bókina.
Þökk sé dr. Hallgrími Helgasyni
fyrir stórkostiegt framtak í þágu
menningar og framfara. Með verki
sínu hefur hann opnað okkur
innsýn í glæstan og göfugan heim,
er mörgum hefur til þessa verið
lítt kunnur.
Einar Markússon
OPNUÐ hefur verið ný verzlun í
Reykjavík, Verzlunin Markið að
Suðurlandsbraut 30. Verzlunin
mun hafa á boðstólnum mikið
úrval af reiðhjólum fyrir alla
aldursflokka, allt frá þríhjólum
upp í tíu gíra keppnishjól, en
einnig gamaldags fullorðinsreið-
hjól. Hjólin sem verzlunin býður
eru: ítölsk barnahjól frá Vivi,
barna- og fullorðinshjól frá Marl-
boro í Englandi og Starnord í
Frakklandi. Verzlunin býður einn-
ig uppá úrval af hjólaskautum.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta
verður fyrir öll hjól og hjóia-
skauta sem verzlunin hefur á
boðstólum.
\>«8
N/\OV>
,\o9aS
,Kiá
198^
MVKr'
AOOOQ0
50.000
20.000
A0.000
5.000
A.000
500
900.00°
2-
500
450-000
A 80-000
'^720^00
'oiX,
ú\ #***
ffMó*
{Stttte^verVoT5\öVl
I op ooooo