Morgunblaðið - 24.12.1980, Page 28
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1980
HÖGNI HREKKVlSI
I
Ast er...
áö kunna ad tapa.
TM Rm. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
• 1980 Los Angeles Times Syndicate
Þetta mun vera sá stærsti sem
hefur verið skotinn!
COSPER
Þá látum við fyrirberast hér í nótt. — Góða nótt
drengir!
Þórarinn E. Jónsson skrifar.
Jólin 1980 eru að nálgast. í dag
er 21. desember, skammdegið hvað
svartast. Samt skín bjart ljós inn í
þennan heim, sem er fullur af
efasemdum og myrkri vantrúar.
Hvers konar ljós er það, sem hér
er átt við? Sjálfsagt er að spyrja,
leita og reyna til að finna svör við
spurningunni. Hvert verður svar-
ið? Svarið um Ljósið eilífa. Þetta:
„Yður er frelsari fæddur, Kristur
drottinn í borg Davíðs."
Þá furðar okkur
varla, þótt mik-
il birta lýsti
Jólin 1980 eru í nánd. Fyrir 1980
árum fæddist drengur austur í
Gyðingalandi, langt frá voru
landi. Þarna, í Gyðingalandi, er
næturmyrkrið svartara en hér.
Ljósið heilaga lýsti bjart og geisl-
andi. Skin þess var bjart. Við-
brigðin voru stórkostleg, ólýsan-
leg. Hvað var að gerast? Svar:
Drengur var að fæðast í þennan
heim. Þó að drengur þessi, sem
hér um ræðir, væri fæddur í
gripahúsi, þá kunngerði almáttug-
ur guð komu þessa drengs, inn í
þennan heim, á ógleymanlegan
hátt. Næturmyrkrið var rofið.
Englar, verur frá öðrum heimi,
sungu guði lofsöngva. Meðal ann-
ars þetta: „í dag er 21. desember, skammdegið hvað svartast. Samt skín bjart
„Yður er í dag frelsari fæddur. íjós inn í þennan heim, sem er fullur af efasemdum og myrkri
Kristur drottinn í borg Davíðs." vantrúar. Hvers konar ljós er það, sem hér er átt við? Sjálfsagt er
Þá furðar okkur varla þótt mikil að spyrja, leita og reyna að finna svör við spurningunni. Hvert
birta lýsti yfir plánetuna Jörð verður svarið? Svarið um Ljósið eilífa. Þetta: „Yður er frelsari
fyrst það var Kristur Jesús, frels- fæddur, Kristur drottinn, í borg Davíðs.““ (Ljósm. MaitnúH Hjörleifsson)
Frelsan er
oss fœddur
ari mannanna, sem þarna var
fæddur, á jólanótt fyrir 1980
árum.
Nær þessi boðskapur
til vor mannanna?
Nú nálgast jólin árið 1980, hin
1980-ustu í röðinni ... Erum við
viðbúin slíkum jólum, sem hinum,
sem lýst var, þegar ljós guðs lýsti
yfir jörðina. Spyrja má: Þolum við
slíka birtu? Fer ekki fyrir okkur
eins og lærisveinum Jesú Krists,
er hann um-myndaðist þeim á
fjallinu forðum, og þeim varð sú
birta ofviða ... Færi okkur ekki
líkt og þeim, að birtan mikla, ljós
guðs, yrði oss ofviða? ... Jólin eru
að koma. Jólaskreytingar, hið
ytra. Slíkt er til prýði, vissulega,
en innri skreyting þarf einnig að
koma til eigi jólin að ná til vor,
með jólaboðskap Jesú Krists ...
Frelsari er yður fæddur: Þetta er
boðskapur jólanna. Nær þessi boð-
skapur til vor mannanna, mitt í ys
og þys daglega lífsins, þar sem
hávaðinn og marklaust glamur
virðast yfirtaka mannlega hugsun
hvað það snertir að hugleiða
hvaða þýðingu það hefur fyrir
mennina að Jesús Kristur fæddist
í þennan heim?
Hvað veldur?
Brauð vantar handa hungruðum
heimi, er hrópað. Kallað er á
hjálp, til handa hungruðu, fata-
lausu og heimilislausu fólki, í
milljóna tali, sem eymdinni er
ofurselt, fólki, sem hvergi á skýli
yfir höfuðið, fólki, sem hrekst
allslaust og hjálparvana, land úr
landi, eins og rekald, sem rekur á
Þórarinn E. Jónsson
fjörur, af hafi. Hér er vissulega
hjálpar vant. íslendingar eru
hjálpsamir og bregðast vel við í
tilfellum sem þessu. En spyrja má:
Hvers vegna er þetta fólk, sem hér
um ræðir, svona illa statt? Hvað
veldur? Svarið verður þetta:
Ófriður geisar víða um lönd.
Styrjaldir á meðal þjóða og einnig
einstakra sérhyggjuhópa. Saga
þessa ófarnaðar verður ekki rakin
hér, en neyðaróp fólksins segir til
um að hér er þörf á hjálp. En um
leið verðum við einnig að leiða
hugann að því hvaða ráð muni
bezt fallið til úrbóta, í þessu efni.
Ekkert tillit tekið til
fagnaðarboðskaparins
Hér liggur svarið ljóst fyrir:
„Yður er frelsari fæddur." Hvers
er að vænta frá honum? spyrja
margir. Svara sér sjálfir og segja:
Þessi Jesús fæddist fyrir mörgum
öldum síðan. Enn ríkir ófriðar-
ástand hér í heimi þrátt fyrir
marglofaðar kenningar hans.
Hvernig stendur á þessu? Því skal
svarað. Ófriðar-ástandið, sem enn
ríkir hér á jörðu stafar fyrst og
fremst af því að ekkert tillit er
tekið til fagnaðarboðskapar Jesú
Krists. Mennirnir loka fyrir hið
andlega viðtöku-tæki sálar sinnar,
þ.e. láta kenningu hans eins og
vind um eyru þjóta, til dæmis
þessi ómetanlegu magnþrungnu
orð: „Frið skil ég eftir hjá yður.
Minn frið gef ég yður. Hjörtu yðar
hræðist eigi né skelfist. (Jóh. 14,
27-28).
Friður á jörðu
Þarna er Jesús að búa læri-
sveina sína undir þá raun, að nú
komi að því að hann skilji við þá
um sinn. Þessi voru huggunarorð
hans, til þeirra. Friður á jörðu.
Hvers er mönnum fremur vant nú
en þessa friðar, sem Jesús talaði
um þá? Þessi orð hans um frið á
jörðu eru i gildi enn í dag.
Islendingar eru taldir friðelsk-
andi menn ... Margir, meðal
þjóðarinnar, sýna það eflaust í
verki og láta ekki neyðar-hrópin
vanheyrð, og gefa gjafir til hjálp-
ar hinum nauðstöddu. Slíks er að
vænta enda þörfin brýn. En þessu
vil ég bæta við, orðum, sem koma
innan frá, minu eigin hjarta.
Biðjum nú sameinuð, á þessum
jólum, um frið guðs, hér á jörðu.
Biðjum í Jesú Krists heilaga
nafni: Friður á jörðu sé og veri
bænar-orð íslenzku þjóðarinnar
nú og um aldir: „Yður er frelsari
fæddur."
Gleðileg jól.“