Morgunblaðið - 23.01.1981, Page 1
40 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
18. tbl. 69. árg.
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gíslamir barðir, sveltir,
einangraðir og pyntaðir
Bandaríkin munu þó líklega standa við samninginn við íran
WaNhinKtun. Wirsbaden. Brussel.
22. janúar. — AP.
CARTER fyrrum Bandaríkjafor-
seti hvatti i kvöld eftirmann sinn til
að halda í heiðri ákvæði samninKs-
ins um lausn KÍsladeilunnar. jafn-
vel þótt í ljós hefði komið að
Kislarnir hafi ' «rið harðræði beitt-
ir. Carter ritaði Reagan forseta
hréf á leið sinni frá Wiesbaden í
V-býzkalandi ok saKði þar m.a. að
Kislarnir hefðu sætt verri meðferð
en hann hefði áður Kert sér Krein
fyrir ok írönsku mannræninKjarnir
haKað sér villimannleKa. Carter
kallaði athæfi trana „opinber
hryðjuverk“.
Reagan Bandaríkjaforseti sendi
gíslunum fyrrverandi kveðju sína í
kvöld og bauð þá velkomna i hóp
frjálsra manna. Reagan sagði, að hið
erfiða tímabil í bandarískri sögu,
þegar gíslarnir voru í haldi, mundi
ætíð í minnum haft, en nú skyldu þó
allir horfa fram á veginn.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í kvöld, að
Bandaríkjastjórn hyggðist „standa
við skuldbindingar Bandarikjanna"
þótt samningurinn við Irani væri nú
til endurskoðunar hjá hinni nýju
rikisstjórn landsins. Haig utanríkis-
ráðherra sagðist einnig búast við
því, að staðið verði við samninginn
eftir að hin nýja ríkisstjórn hefur
yfirfarið ákvæði hans.
Starfsmenn bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins skýrðu frá því í dag,
að sifellt væru að koma upp á
yfirborðið nýjar epplýsingar um þau
grimmdarverk, sem gíslarnir hefðu
verið beittir. Þeir hefðu verið barðir,
sveltir, haldið í köldum, rökum
dýflissum og pyntaðir með ýmsum
öðrum hætti. Sumir þeirra hefðu
verið neyddir til að leika „rússneska
rúllettu" og aðrir verið leiddir fyrir
aftökusveitir, sem hleypt hefðu af
púðurskotum. Þá hefði mönnum
verið meinað að sofa og verið
neyddir til að vera í kulda utandyra
Murdoch kaupir
Times í London
London, 22. janúar. — AP.
TILKYNNT var 1 London í
dag, að náðst hefði bráða-
hirgðasamkomulaK milli eig-
anda stórblaðanna Times,
Sunday Times og þriggja fyÍKÍ-
rita þeirra ok ástralska hlaða-
kónKsins Rupert Murdochs um
að Murdoch kaupi bloðin öll.
GenKÍð verður frá lokasamn-
inKÍ þcKar viðræðum við full-
trúa stéttarfélaKa starfsmanna
er lokið.
Murdoch verður cinn stærsti
blaðaeigandi í heimi, þegar
hann tekur við Times-blöðun-
um. Hann á fyrir dagblöð,
tímarit og hluta í sjónvarps-
stöðvum í Ástralíu, Bandaríkj-
unum og Bretlandi. Times í
London hefur átt við mikla
fjárhagserfiðleika að stríða
undanfarin misseri og um tíma
kom blaðið ekki út vegna deilu
eiganda og prentara um tækni-
nýjungar á blaðinu. Núverandi
eigandi blaðsins, kanadíski
milljónamæringurinn Thomson
lávarður, tilkynnti í október sl.
að hann hygðist selja Times-
blöðin. Talið er að söluverð
blaðanna sé um 50 milljónir
punda (u.þ.b. 750 milljónir
nýkróna).
heilu og hálfu næturnar. Aðrir hefðu
verið hlekkjaðir við húsgögn dögum
og vikum saman. Einn gíslanna
hefði misst krónu af tönn, en verið
meinað að koma henni fyrir aftur.
Sumir hefðu verið hafðir í algerri
einangrun í langan tíma.
Fréttamenn náðu tali af nokkrum
gíslanna fyrrverandi í stutta stund í
dag og staðfesti fyrrverandi blaða-
(Sim»mynd-AP)
VERKFALL — Hópur manna safnaðist saman framan við
skrifstofu Samstöðu i Gdansk i gærmorgun á meðan verkfall stóð
yfir. Hátalarar flytja fólkinu nýjustu fréttir úr baráttunni.
fulltrúi bandaríska sendiráðsins í
Teheran, Barry Rosen, að þeir hefðu
„frá mörgu að segja“, en frásagnirn-
ar yrðu að bíða, þar til þeir væru
komnir heim til Bandaríkjanna.
Leiðtogar í báðum deildum Banda-
ríkjaþings tilkynntu í dag, að haldn-
ar yrðu opinberar yfirheyrslur í
þinginu til að upplýsa um grimmd-
arverk írana og kanna hvernig hægt
sé að tryggja, að sendiráðsfólk lendi
ekki í svipuðum raunum á ný annars
staöar.
Gíslarnir fyrrverandi áttu náðug-
an dag í Wiesbaden í dag, margir
þeirra fóru til tannlæknis í skoðun
og í klippingu og konurnar tvær
meðal þeirra fóru í fótsnyrtingu.
Mjög margir hafa orðið til þess að
senda gíslunum fyrrverandi gjafir
og boð ýmiss konar, sem þeir geta
ýmist þegið strax eða við komuna
heim. Dóttir eins af gíslunum kom
til Wiesbaden í dag, en ættingjar
höfðu þó verið beðnir að bíða þeirra
í Bandaríkjunum.
Ríkisstjórnir á Vesturlöndum
hafa nú aflétt viðskiptabanni af
Irönum, en ekki er búizt við því að
miklar breytingar verði á samskipt-
um þessara landa og írans í bráð. Þó
mun ræðismannssamband og stjórn-
málasamband væntanlega verða tek-
ið upp að nýju, þar sem slíkt
samband var rofið í kjölfar gíslatök-
unnar. Sjá nánar á bls. 14 og 15 í
Mbl. í dag.
ísbirnir
verndaðir
Osló, 22. janúar. — AP.
FIMM riki á norðurhveli hafa
komið sér saman um að fram-
lengja um óákveðinn tima
samkomulag frá árinu 1973
um verndun isbjarna-
stofnsins.
Ríkin fimm eru Noregur,
Danmörk, Kanada, Sovétríkin
og Bandaríkin, en fulltrúar
þeirra hafa setið á fundum í
tvo daga í Osló og fjallað um
málið. Erik Lykke, fulltrúi
Norðmanna og ráðstefnu-
stjóri, sagði í dag að einhugur
hefði ríkt um nauðsyn þess að
framlengja samkomulagið,
þrátt fyrir hagsmuni ýmissa
aðila af aukinni hagnýtingu
heimsskautasvæðanna, t.d. til
olíuvinnslu. Nú er áætlað að
ísbjarnastofninn telji rúmlega
30 þúsund dýr.
Ný mótmælaverk-
föll í Póllandi í dag
Varsjá, 22. janúar. — AP.
ÓHÁÐU pólsku verkalýðssamtök-
in Samstaða lýstu í daK yfir
fjöKurra tíma verkfalli á morgun,
föstudaK, í Varsjá ok fleiri borg-
um Póllands. Verkfall þetta kem-
ur 1 kjölfar fjölda mótmadaverk-
falla i ýmsum borKum og sveitum
landsins i dag. þar sem afstöðu
stjórnvalda til 5 daga vinnuviku
var mótmadt.
í bænum Bydgoszoz u.þ.b. 200
kílómetrum sunnan við Gdansk og
í fleiri smábæjum óku reiðir bænd-
ur dráttarvélum sínum um göturn-
ar til að mótmæla því, að stjórnin
hefur neitað að viðurkenna rétt
þeirra til að stofna stéttarfélag
innan Samstöðu.
Viðræður fulltrúa Samstöðu og
pólsku stjórnarinnar um styttingu
vinnuvikunnar fóru út um þúfur í
gær og er sambúð stjórnarinnar og
verkalýðsfélaganna nú mjög erfið.
Skorizt gæti í odda að nýju á
laugardaginn, en leiðtogar Sam-
stöðu hafa hvatt verkafólk til að
mæta þá ekki til vinnu. Leiðtogar
Samstöðu segjast hafa boðið
stjórninni að vinnuvikan yrði 41,5
stundir að meðaltali en þessu hafi
stjórnin hafnað.
Sovézki blaðamaðurinn og áróð-
ursmeistarinn Leonid Zamyatin
hélt til Moskvu í dag eftir vikudvöl
í Póllandi. Heimildir í Varsjá
herma, að Zamyatin hafi harðlega
gagnrýnt starfsbræður sína og
starfsmenn fjölmiðla í Póllandi
fyrir hvernig þeir hafa greint
almenningi í landinu frá atburðum
undanfarinna mánaða.
Reagan undirbýr
efnahagsaðgerðir
WashlnKton. 22. janúar. — AP.
ÞRÍR hinna nýju ráðherra i ríkisstjórn Ronald Reagans bandaríkja-
forseta sóru embættiseiða sína í dag i Ilvíta húsinu. Sá fjórði,
Wcinberger varnarmálaráðherra, tók við embadti sínum við athöfn í
varnarmálaráðuneytinu. Pentagon. í gærkvöldi. Aðrir ráðherrar munu
taka formlega við störfum næstu daga jafnskjótt og þeir hafa hlotið
staðfestingu öldungadeildarinnar.
Reagan hélt í dag fund með
helztu efnahagsráðgjöfum sínum
og þingmönnum, sem gegna for-
mennsku í þingnefndum er fjalla
um efnahagsmál. David Stockman
fjárlagastjóri Reagans sagði eftir
fundinn, að Reagan hefði í undir-
búningi umfangsmikla áætlun til
fjögurra ára, sem ætlað yrði að
koma mikilli hreyfingu á efna-
hagslífið.
Reagan hringdi í dag í Helmut
Schmidt kanzlara V-Þýskalands og
bauð honum að koma til Washing-
ton í apríl. Hann hafði í gær hringt
í ýmsa aðra þjóðarleiðtoga tii að
koma á persónulegu sambandi við
þá.
Caspar Weinberger, hinn nýi
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sagði í ræðu í dag, að
ríkisstjórn Reagans mundi stefna
að skjótri enduruppbyggingu her-
afla Bandarikjanna.
(Simamynd AP).
RÍKISSTJÓRN REAGANS Á FUNDI — Ronald Reagan boðaði
ríkisstjórn sína til sins fyrsta fundar í gter og var þessi mynd tekin við
það tækifæri. Lengst til vinstri á mvndinni er Bush varaforseti, en
sinn hvoru megin við Reagan sitja Ilaig utanríkisráðherra og
Weinberger varnarmálaráðherra.