Morgunblaðið - 23.01.1981, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 23.01.1981, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981 9 Skrá sig ekki vegna skerðingar á bótum í SKÝRSLU um atvinnuástand hér á landi á siðasta ári og horfur á 1. ársfjórðungi þessa árs, sem Morgunblaðinu hefur borizt frá félaKsmáiaráðuneytinu, kemur fram, að skráðir atvinnuleysis- dagar á landinu öllu síðastliðið ár hafi verið alls rösklega 86.000. Það mun vera um 12.400 færri atvinnuleysisdagar en árið 1979 og hafa atvinnuleysisdagar að- eins einu sinni verið færri siðan byrjað var að skrá þá, 1975. Það var árið 1977, er þeir voru um 74.000. Það er tekið fram í skýrslunni, að ekki sé tryggt að tala þessi sé fyllilega rétt vegna skerðingar- ákvæða á atvinnuleysisbótum, sem valda þvi að fólk sér ekki ástæðu til þess að skrá sig, þar sem það fær hvort eð er engar bætur. Það er athyglisvert, að öll fækk- un atvinnuleysisdaga síðastliðins árs átti sér stað á höfuðborgar- svæðinu, segir í skýrslunni. í öðrum landshlutum var fjöldi atvinnuleys- isdaga nær hinn sami árin 1980 og 1979. Flestir atvinnuleysisdagar voru í janúar 9.770, en mest aukn- ing varð á þriðja ársfjórðungi og er það talið stafa af vandkvæðum frystiiðnaðarins á þeim tíma. Þá segir í skýrslunni, að ekki sýnist ástæða til annars en að ætla að atvinnulíf á fyrsta ársfjórðungi þessa árs verði í meðallagi miðað við undanfarin ár. Auður Sæmunds- dóttir heitir fararstjórinn PRENTVILLUPÚKINN hefur nú tvisvar höggvið í sama knérunn í nafni ágæts fararstjóra Flugleiða, sem fékk mikið hrós í frétt af jólahaldi íslendinga á Kanaríeyj- um. Fyrst hreppti sú ágæta kona karlmannsnafn og í leiðréttingunni rangfeðraðist hún. En réttu nafni heitir fararstjórinn Auður Sæ- mundsdóttir. Er hún og greinarhöf- undur beðin afsökunar á því, að þeim illa púka prentvillunnar skyldi líðast að vaða svona uppi tvisvar sinnum, án þess að hann væri niður kveðinn. Sjö íslenzkir ungl- ingar tefla á nor- rænu skólaskákmóti í DAG hefst i Eksjö í Sviþjóð skákkeppni skólanemenda á Norðurlöndum. Þetta er einstakl- ingskeppni, sem nú er haldin i fyrsta skipti. Sveitakeppni hefur farið fram árlega nokkur undan- farin ár og hafa islenzku sveitirn- ar verið mjög sigursælar. Ein- staklingskeppnin verður haldin hér á landi árið 1984. Sjö íslenzkir unglingar taka þátt í mótinu í Eksjö. Elvar Guðmundsson 17 ára, Garðaskóla, Jóhann Ragnarsson 15 ára-, Garða- skóla, Halldór G. Einarsson 14 ára, Barnaskóla Bolungarvíkur, Hannes Kr. Gunnarsson 14 ára, Helluskóla, Davíð Ólafsson 12 ára, Hólabrekkuskóla, Tómas Björns- son, 11 ára, Hvassaleitisskóla og Arnaldur Loftsson 10 ára, Hlíða- skóla. Skólarnir styrkja nemendur sína til fararinnar. Fararstjóri er Þorsteinn Þorsteinsson varafor- seti Skáksambands íslands. Mótið í Eksjö hefst sem fyrr segir á morgun og því lýkur á sunnudag- inn. Fyrsta manntalið hérlendis var tekið árið 1703 að tilhlutan Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Það var fyrsta manntal í heiminum sem tekur til allra íbúa heils lands og hefur varðveitzt. Síðan var ekki tekið manntal hér fyrr en 1762 og svo 1769,1785 og 1801. Manntal var síðan tekið reglulega á fimm ára fresti 1835—1860 en eftir það á 10 ára fresti til 1960. Manntal 1970 féll hins vegar niður. Ástæða þess var sú að álitið var að með tilkomu þjóðskrár hefðu aðstæður breytzt þannig að ekki væri lengur þörf á slíku manntali. Vonir manna í þessu efni hafa þó ekki rætzt sem skyldi — einkum hefur skort veru- lega á að nægar upplýsingar séu um atvinnu, menntun og húsnæði landsmanna. Þó að allmikið væri tiltækt af talnaefni um þetta, hafa verið miklir örðugleikar á að tengja það gagnasafni þjóðskrár og grundvöllur til samanburðar við fvrri manntöl reyndist gloppóttur. Ákvörðun um niðurfellingu mann- tals 1970 hefur af þessum sökum verið gagnrýnd. Hagstofan átti samráð við ýmsa aðilja, sem hafa hagsmuna að gæta, um tilhögun og viðfangsefni manntalsins. Aðallega voru það sveitarfélögin, sem bæði kosta og annast staðbundna framkvæmd manntalsins og munu verða einir helztu notendur manntalsniður- staðna. Samband íslenzkra sveitar- félaga og Reykjavíkurborg önnuð- ust að mestu þátt sveitarfélganna. Þá hefur Hagstofan og haft samráð við eftirtalda aðilja: Fasteignamat ríkisins, Félagsvísindadeild Há- skólans, Framkvæmdastofnun ríkisins, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneyti, Húsnæðis- málastofnun, Jafnréttisráð, Land- læknisembættið og Þjóðhagsstofn- un. Afmörkun viðfangsefnisins er að mestu leyti hefðbundin. Manntal- inu er ætlað að upplýsa samsetn- ingu mannfjöldans eftir helztu einkennum, s.s. kyni, aldri, hjú- skaparstétt, heimilis- og fjöl- skyldutengslum, heimili, námi, menntun, lífsframfæri og atvinnu. Ennfremur á það að upplýsa um húsakost landsmanna og tengsl húsnæðis og mannfjölda. Nú bæt- ast við upplýsingasviðið, eins og það hefur verið í fyrri manntölum, að spurt er um tíma við heimilis- störf, um ferðir til vinnu og veikindafjarvistir úr vinnu. Þetta tengist jöðrum eldra upplýsinga- sviðs — heimilisstörf eru framlag til þjóðarbúskaparins á við atvinnu og nám, og ferðir og fjarvistir varða atvinnu sem slíka. Spurning á íbúðarblaði um bifreiðaafnot, sem ekki hefur verið áður, tengist spurningunum um ferðir til vinnu. Manntalsframkvæmd er ekki lokið fyrr en helztu niðurstöður eru komnar út á prenti, aðgengilegar almenningi. Fyrirhugað er að manntalsniðurstöður 1981 verði birtar ekki síðar en 1984 þó að sjálfsögðu verði ýmsar upplýsingar úr því tiltækar allnokkru áður. Tilgangur manntalsins 31. janúar 1981 er að safna mikilsverðum upplýsingum um íslenzkt þjóðfélag, sem ekki er hægt að afla með neinu öðru móti. Niðurstöður verða not- aðar til hagnýtra verkefna, auk þess sem þær hafa mikið almennt fróðleiksgildi, bæði í nútíð og framtíð. Af þessum sökum verður að vanda mantalsskráninguna eins vel og frekast er kostur. Er það mikið komið undir dugnaði og nákvæmni manntalsstjóra og telj- ara, en mikilvægast er þó að almenningur geri sér ljóst mikil- vægi manntalsins og eigi sinn þátt í góðri framkvæmd þess um allt land. 26600 ÁLFHEIMAR 3)a—4ra herb. ca. 110 fm íbúö á 4. hæð í blokk. Ágætis innrétt- ingar. Suöur svalir. Verð: 390 þús. AKURHOLT 4ra—5 herb. ca. 118 fm stein- steypt einbýlishús á einni hæö, auk 2falds bílskúrs. Næstum fullbúiö hús. Verö: 680 þús. BARÐAVOGUR 2] a herb. ca 50 fm íbúö í þríbýlis steinhúsi. Sér hiti. Falleg íbúö. Hentar vel fyrir eldri konu. Verö: 280—300 þús. ENGIHJALLI 5 herb. ca 110 fm íbúö á 1. hasö í 2ja hæöa nýrri blokk. Góöar Innréttingar. Suöur svalir. Verö: 500 þús. HÁALEITISBRAUT 4ra—5 herb. ca 117 fm íbúö á 3. hæö í blokk. Sér hiti Dan- fosskerfi. Ágætis innréttingar. Vestur svalir. Verö: 500 þús. HRAUNBÆR 3) a herb. ca. 90 fm íbúö á efstu hæö í blokk auk herb. í kjallara meö baði. Ágætis innréttlngar. Vestur svalir. Verð: 410 þús., útb. 310 þús. VIÐ MIÐBORGINA 4ra herb. ca 130 fm hæö í fjórbýlishúsi, steinhúsi. Verö: 600 þús. HRAUNBÆR 4ra herb. ca 108 fm íbúö á 3. hæö (efstu) í blokk. Fallegar innréttingar. Mikiö útsýni. Verö: 430 þús. HRAUNBÆR 2ja herb. ca 60 fm íbúö á 2. hæö f 3ja hæöa blokk. Ágætis innréttingar. Suöur svalir. Verö: 310 þús. KRUMMAHÓLAR 4ra herb. ca 100 fm fbúö á 4. hæö í enda í nýiegu háhýsi. Fallegar innréttingar. Suöur svalir. Mikiö útsýni. Verö: 340 þús. MARKHOLT MOS. 3ja herb. ca 78 fm fbúö á efri hæö í fjórbýlishúsi. Sér hiti. Ágætis innréttingar. Suöur svallr. Stór lóö. Verö: 320 þús. MIÐVANGUR Einstakiingsíbúö á 6 hæö. Góö- ar innréttingar. Fallegt útsýni. Laus fljótlega. Verö: 250 þús. VESTURBERG 4ra herb. ca 110 fm fbúö á jaröhæö f 4ra hæöa blokk. Góöar innréttingar. Sér lóö. Getur iosnaö fljótlega. Verö: 410 þús. Fasteignaþjónustan Aintmtmti 17,12UOO. Ragnar T ómasson hdl AK.LVSIM. \ >IMI\\ KH: 22480 Einbýli8hús í Seljahverfi 300 fm einbýlishús á skemmtilegum staö meó útsýni. Tll afh. strax í fokheldu ástandi. Skipti hugsanleg á íbúö eöa skrifstofu- eöa verziunarhúsnasöi f Reykjavfk eöa Kópavogi. í smíöum Hafnarfiröi 150 fm sérhœö í tvíbýlishúsi m. innb. bflskúr. Selst fokheld. Til afh. strax. Telkn. á skrifstofunni. Raöhús viö Raufarsel 210 fm raóhús. Til afh. strax. Fokhelt. Skipti æskileg á 4ra herb. fbúö f Reykjavík. Teikn. á skrifstofunni. Raöhús í Lundunum 6 herb. glæsilegt raöhús sem er m.a. saml. stofur, 4 herb. o.fl. Vandaöar innréttingar. Fallegt útsýni. Bflskúr. Æskileg útb. 650 þús. Lúxusíbúö viö Tjarnarból 6 herb. 138 fm lúxusfbúö á 1. hæö m. 4 svefnherb. Þvottaaöstaöa í íbúöinni. Upplýsingar á skrifstofunni. í Skerjafiröi 3)a herb. 70 fm snotur íbúö á 2. hæö. Tvöf. verksmiöjugler. Sér hiti. Útb. 220 þús. Viö Hraunbæ 2ja herb. 60 fm góö íbúó á 3. hæö (efstu). Útb. 230 þús. Viö Fálkagötu 2ja herb. 85 fm góö fbúó á jaröhæö Útb. 250 þús. Gjafavöruverslun í Breiöholti Vorum aó fá til sölu gjafavöruversiun í fullum rekstri f verslanasamstæöu á góöum staö f Breiöholti. Upplýsingar á skrlfstofunni. Tískuverslun viö Laugaveg Vorum aö fé til söiu tískuverslun meö dömu- og herrafatnaö viö Laugaveg. Upplýsingar á skrifstofunni. Sérhæö óskast í Reykjavík 4ra—6 herb. haaö m. bflskúr óskast f Reykjavík. Sklpti á 3ja herb. íbúö m. bflskúr f Vesturbæ koma til greina. Raöhús óskast í Fossvogi og Háaleiti. EiGnnmiÐLunin ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SÍMI 27711 Sölustjóri Sverrir Kristinsson Unnsteinn Beck hrl. Sími 12320 fí úsava FLÓKAGÖTU 1 SÍMI24647 Lúxus íbúö Tll sölu 4ra herb. (búö á efstu hæö viö Hamraborg. Sérstak- lega falleg og vönduö (búö. Stórar svalir. Fagurt útsýnl. Bllageymsla. Bein sala. Álfheimar 3ja herb. rúmgóö íbúö á 1. hæö. S-svalir. lönaöarhúsnæöi TH sölu 500 ferm. iönaöarhús- næöl í smíðum viö Skemmuveg (Kópavogl. Helgi Ólafsson löggiltur fasteignasali. Kvöldsími 21155. SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDL Til sölu og sýnis m.a.: 2ja herb. stór og góð íbúö í Laugarneshverfi á 1. hæö um 70 ferm. Teppalögð. Góö innrétting. Rúmgóö geymsla er í kjallara. Mikil sameign. Þurfum aö útvega íbúö meö 4 svefnherb. og bílskúr eöa bílskúrsrétti. Skipti möguleg á nýju elnbýlishúsi í Mosfellssveit. Þurfum aö útvega 2ja herb. íbúö í Fossvogi eöa Árbæjarhverfi. Óvenju mikil út- borgun. AIMENNA FASTEIGWASALAN LAUGAVEG118 SIMAR 21150-21370 l .til . Islands ferma skipin sem hér segir: AMERIKA PORTSMOUTH Bakkafoss 26. jan. Goöafoss 4. febr. Berglind 9. febr. Bakkafoss 16. febr. Hofsjökull 26. febr. Bakkafoss 9.mars NEWYORK Bakkafoss 28. jan. Bakkafoss 18. febr. Bakkatoss 11. mars HALIFAX Goöafoss 9. febr. Hofsjökull 2. mars BRETLAND/ MEGINLAND ANTWERPEN Álafoss 28. jan. Eyrarfoss 4. febr. Álafoss 9. febr. Eyrarfoss 16. febr. FELIXSTOWE Álatoss 27. jan. Eyrarfoss 3. febr. Álafoss 10. febr. Eyrarfoss 17. febr. ROTTERDAM Álafoss 26. jan. Eyrartoss 2. febr. Álatoss 11. febr. Eyrartoss 18. febr. HAMBORG Álafoss 29. jan. Eyrarfoss 5. febr. Álafoss 12. febr. Eyrarfoss 19. febr. WESTON POINT Urrlöafoss 4. febr. Urrlöafoss 18. febr. < o < Q Q H s s < nJ — < 0S Q < ÍH .>* w OS Q H NH DÖ W PS Q W < '< os w NORÐURLOND/ < EYSTRASALT « Q Q BERGEN Mánafoss Mánatoss Mánatoss KRISTIANSAND Dettlfoss 26. ian. 9. feb. 23. febr. 2. tebr. Dettitoaa 16. tebr. xx Dattlfoss 2. mars. MOSS Mánafoss 27. jan. Dettlfosa 3. febr. Mánaloaa 10. febr. os Dettltoaa 17. febr. GAUTABORG Q Mánatoss 28. |an. Dettlfoss 4. tebr. Mánafoas 11. febr. > Dettlfoaa 18. tebr. < KAUPMANNAHÖFN T Mánafoss 29. |an. 'XS Dettlfoss 5. febr. Mánafoss 12. tebr. W Detttfoss 19. febr. cs HELSINGBORG Ménatoss 30. jan. o DettHoaa 6. tebr. Mánatoaa 13. febr. os Dettlfoss 20. tebr. ÞRÁNDHEIMUR os FjaHfoss 2. tebr. >* HELSINKI w os '—\ Iratoaa 12. tebr Iratoss 2. mars VALKOM H Iratoss 13. febr. -i- Irafoss 3. mars < RIGA Q Irafoss 13. febr. irafoas 5. mars H GDYNIA Q fratoss 17. febr. fraloss 6. mars OS —c FERÐIR FRA REYKJAVÍK TIL ISAFJARDAR OG AKUREYRAR ALLA MANUDAGA u. < '< PS Frá REYKJAVÍK: á mánudögumtil 'H AKUREYRAR "" ÍSAFJARÐAR EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.