Morgunblaðið - 23.01.1981, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
íranir vilja ekki
á ráðstefnu
með Hussein
Beirút. 22. jan. — AP.
ÍRANIR hafa vísað frá tilraun
ríkja Múhameðstrúarmanna til
að miðla málum í deilu þeirra ok
íraka. Opinber talsmaður í íran
sa«ði hins vegar að íranir «ætu
fallist á að Alsirmenn og skæru-
liðasamtökin PLO miðluðu mál-
um í deilu ríkjanna.
Nabavi, talsmaður írönsku
stjórnarinnar var í dag spurður í
viðtali í útvarpinu í Teheran um
þá ætlan ríkja Múhameðstrúar-
manna að senda nefnd til Teheran
til að fá fulltrúa írana á ráðstefnu
ríkjanna sem Hussein, forseti ír-
aks mun sækja.
Nabavi sagði að það kæmi ekki
til mála að fulltrúi Irana færi á þá
ráðstefnu. Þeir myndu ekki taka
þátt í ráðstefnu með Hussein.
Olof Palme, sendimaður Sam-
einuðu þjóðanna til að miðla
málum í deilu Irana og Iraka, er
kominn til Stokkhólms eftir aðra
ferð sína til ófriðarsvæðanna.
Hann sagði á blaðamannafundi í
dag að margt stæði í vegi fyrir að
samningar gætu tekist.
BLAÐAFULLTRÚI banda
riska utanríkisráðuneytisins,
John Cannon. hélt fund með
fréttamönnum i Wiesbaden í
gær vegna gislamálsins og
lýsti nokkuð þeim hörmung-
um. sem þeir urðu að þola i
prísundinni.
(Símamynd-AP)
Alta:
Ákæra lög-
reglustjóra
Frá Jan Erik Lauré. fréttaritara Mbl.
i Ósló, 22. jan.
Alþýðuhreyfingin á móti virkj-
un Alta-árinnar i Noregi hefur
ákært yfirlögregluþjóninn í Alta.
Einar Henriksen vegna aðgerða
lögreglunnar á virkjunarsvæðinu
í gær. Lögreglan reif niður eða
lagði hald á 21 tjald i eigu
mótmælenda. Ilreyfingin telur
þetta ólöglegt athæfi þar sem
tjöldin voru á svæði i einkaeign.
Lögreglan vildi einnig rannsaka
Gargia-ferðamiðstöðina sem á
landið sem tjöldin stóðu á. Hreyf-
ingin telur slíkt ekki réttlætan-
legt.
Mótmælendurnir eru nú tjald-
lausir við Alta-ána og reyna að fá
inni hjá fólki sem á hús eða býr á
svæðinu. Að minnsta kosti 100
mótmælendur hafa þegar fengið
inni í húsum í einkaeign.
spörum
RAFORKU
GÍSLARNIR FAGNA CARTER — bessir ónafngreindu menn úr hópi gislanna fyrrverandi stóðu á svölum bandariska hersjúkrahússins
í Wieshaden í V-Þýzkalandi i fyrrakvöld og fögnuðu Carter fyrrverandi Bandaríkjaforseta, þegar hann kom til að bjóða þá velkomna ur
prisundinni. (Simamynd AP).
Carter við heimkomuna:
„Gíslunum sýnd ótrú-
leg - fáheyrð grimmd“
PlainN. Georfdu. 22. jan. — AP.
CARTER fyrrverandi Banda-
rikjafurseti, sagði eftir heimkom-
una frá V-I>ýzkalandi, að íranir
hefðu beitt handarísku gíslana
„ótrúlega glæpsamlegri meðferð
og sýnt fáheyrða grimmd.“ Hann
sagði að þeir hefðu ekki getað
New York. 22. jan. - AP.
„BANDARÍSKU gislarnir 52
gátu hrósað sigri, þrátt fyrir allt,
vcgna þess að þeir koma heim.
heilsugóðir á flestan hátt og hafa
i engu glatað sjálfsvirðingu
sinni, þrátt fyrir stöðugar og
grimmúðlegar tilraunir írana til
að niðurlægja þá“ sagði Richard
Morefield, einn af gíslunum 52 i
viðtali við CBS á Teheranflug-
velli. Hann sagði hver og einn
gíslanna hefði komizt að þeirri
niðurstöðu að við skyldum
þrauka og afbera þessa kvöl og
koma út heilir á sál ekki siður en
likama.
Morefield er 51 árs, og var
ræðismaður Bandaríkjanna í Te-
heran, þegar sendiráðið var tekið.
Hann sagði að gíslarnir ættu það
inni hjá löndum sínum að þeir
sýndu reisn í hvívetna.
Morefield sagði að eftir hina
misheppnuðu björgunartilraun í
apríl hefðu gíslarnir verið fluttir á
mismunandi staði. Hefðu sumir
verið settir í einangrunarfangelsi
og aðrir fengið inni í íbúðarhús-
um. Hann sagði að íranir hefðu í
hvívetna reynt að beita hann
sálrænum þvingunum og svipta
hann þeirri sjálfsvitund að hann
setið á sér, þegar var verið að
fara með gislana út í vélarnar;
hefði þá hópur manna stillt sér
upp og reynt að kasta þeim á
milli sín, slá þá og sparka í þá er
þeir voru að ganga að flugvél-
arstiganum. Hefði bersýnilega
enginn verið settur þeim til
væri heiðvirður maður og dipló-
mati. Hann sagðist ekki búast við
að íranir hefðu skilið afstöðu
Bandaríkjamanna og allra sízt
Fréttastofan sagði að gíslarnir
væru í fullkominni einangrun og
að bandarískir embættismenn
myndu skera úr um það hvenær
gíslarnir fengju leyfi til að hitta
fulltrúa fréttastofnana. Áður en
það yrði leyft myndu gíslarnir
gangast undir meiriháttar yfir-
varnar.
Carter sagði, að það samkomu-
lag, sem bandaríska stjórnin gerði
við írani til að leysa deiluna,
skyldi haldið, væri sómi Banda-
ríkjanna þar í veði.
Carter sagði þetta um borð í vél
siúni á leið frá Evrópu. Hann
hversu mikið þol þeir sýndu. Hann
sagði að margir gíslanna hefðu
mátt þola meira harðræði en
hann, en enginn hefði kvartað.
heyrslur og heilaþvott og að
fjöldamargir sérfræðingar CIA og
geðlæknar væru á staðnum til að
annast það.
Tass sagði að vegna þess að
bandarískir embættismenn óttuð-
ust að gíslarnir yrðu ekki „nægi-
lega neikvæðir" í garð írana
bætti við, að dagurinn sá, sem
hann vék úr Hvíta húsinu fyrir
Ronald Reagan hefði undir lokin
orðið mestur hamingjudagur lífs
síns, vegna þess að fjórtán mán-
aða samningastapp og þvarg hefði
loks borið þennan giftusamlega
ávöxt.
Carter sagði að reynt hefði verið
að sannfæra gíslana um glæpa-
verk Bandaríkjamanna í íran.
Hefði því jafnan verið haldið að
þeim, að Bandaríkjamenn hefðu
misnotað og mergsogið Irani í 35
ár, og virtust gæzlumenn gíslanna
allar stundir hafa sem mesta
ánægju af því að reyna að lítil-
lækka þá. Carter sagðist ítreka að
hann fordæmdi þetta, en bætti við
„en nú heyrir þetta fortíðinni til.“
Aðspurður um hvort eitthvað sér-
stakt hrjáði gíslana, sagði hann,
að einangrunarvist sem margir
hefðu orðið að sæta, hefði orðið
mjög þungbær og allmargir hefðu
Iézt verulega. Að öðru leyti taldi
hann furðu sæta í hve góðu
líkamlegu og andlegu ástandi þeir
væru.
reyndu fjölmiðlar í Bandaríkjun-
um nú að koma af stað móðursýk-
islegri herferð sem legði áherzlu á
að Bandaríkjamennirnir hefðu
sætt hinni verstu meðferð í íran.
Áður hafði kommúnistaflokks-
málgagnið Pravda sagt að Cart-
er-stjórnin hafi leikið á tilfinn-
ingar bandarísku þjóðarinnar
meðan deilan um gíslana stóð yfir
til framdráttar sínum eigin hags-
munum. Sagði Pravda að málið
hefði mátt leysa yfir löngu eftir
friðsamlegum diplómatískum leið-
um, og uppfylla lögmætar kröfur
írana, varðandi bætur.
Einn gíslanna:
Við sigruðum írani -
því við héldum
sjálfsvirðingu okkar
TASS-fréttastofan:
Móðursýkisleg herferðj
Bandaríkjunum gegn íran
Moskvu. 22. jan. — AP.
SOVÉSKA fréttastofan TASS sagði í dag að bandarískir fjölmiðlar
væru að hleypa af stokkunum „móðursýkislegri herferð“ gegn íran og
sagði að sálfræðingar og geðlæknar myndu „heilaþvo“ bandarísku
gislana, áður en þeim yrði leyft að hitta fréttamenn. „Samkvæmt
fréttum frá Wiesbaden eru bandarisk stjórnvöld augljóslega hrædd
um að gislarnir fyrrverandi muni lýsa því yfir i heyrandi hljóði, að
þeir beri engan kala i garð irönsku þjóðarinnar,“ sagði fréttamaður
Tass i Washington.