Morgunblaðið - 23.01.1981, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
21
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir desembermán-
uö 1980, hafi hann ekki veriö greiddur í
síöasta lagi 26. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru oröin 20%, en síöan eru
viðurlögin 4,75% til viðbótar fyrir hvern
byrjaöan mánuö, taliö frá og með 16.
febrúar.
Fjármálaráðuneytið, 20. janúar 1981.
verksmiöjufólks
Hér meö auglýsist eftir listum til stjórnarkjörs
fyrir áriö 1981. Á hverjum lista skulu vera
nöfn formanns, varaformanns, ritara, gjald-
kera og þriggja meðstjórnenda. Einnig nöfn
þriggja manna í varastjórn.
Ennfremur tveggja endurskoöenda og eins til
vara. Hverjum lista skulu fylgja nöfn 100
fullgildra félagsmanna, sem meömælenda.
Listum ber aö skila á skrifstofu félagsins aö
Skólavörðustíg 1, mánudaginn 26. jan. kl. 4
e.h. Kjörstjórn Iðju.
Þorrablót
Sjálfstæöisfélaganna í Kópavogi veröur laug-
ardaginn 24. janúar kl. 19.30. Miöapantanir í
síma 40136 og 42365.
Fulltrúaráð
Gullbringusýslu
heldur aöalfund laugardaginn 24. jan. í
barnaskólanum í Sandgeröi. Fundurinn hefst
kl. 14.00.
Stjórnin.
Kópavogur — Spilakvöld
— Kópavogur
Sjálfstæöisfélag Kópavogs auglýsir. Okkar vinsælu spilakvöld halda
áfram þriöjudaginn 27. jan., kl. 21.00 í Sjálfstæöishúsinu Hamraborg
1, 3. hæö. Nýir þátttakendur velkomnir.
. Mætum öll
Stjórnin
Hafnarfjörður
Framtíð ungs
fólks á íslandi
Sameiginlegur fundur fulltrúaráös og Sjálfstæöisfélaganna veröur
haldinn í Sjálfstæöishúsinu mánudaginn 26. jan., nk. og hefst kl.
20.30.
Fundarefni:
1. Fjárhagsáætlun Hafnarfjaröar. Frummælandi: Árnl Grétar Flnnsson,
bæjarfulltrúi.
2. önnur mál.
Fulltrúaráö Sjálfstæöisfélaganna. Sjálfstseöisfélögin Fram, Stefnir,
Vorboöinn og Þór.
Hvöt, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík
Almennur félagsfundur veröur mánudaglnn 26. janúar nk. (
Sjálfstæöishúsinu Valhöll, Háaleitlsbraut 1, 1. hæö, vestursal og hefst
kl. 20.30.
Fundarefni:
Framsögumenn:
Fundarstjóri:
Fundarritarl:
Framtíð Sjálfstæöisflokksins og staöa rfkis-
stjórnarinnar.
Styrmir Gunnarsson, ristjóri og Friórik Soph-
usson, alþingismaóur.
Almennar umrssóur — veitingar.
Ásdis J. Rafnar, fréttamaöur.
Anna Arinbjarnardóttir, fulltrúl.
Þór FUS Breiöholti, heldur fund aö Selja-
braut 54, mánudaginn 26. janúar kl. 20.30.
Gestur fundarins Erlendur Kristjánsson.
Félagar fjölmenniö.
Stjórnln.
Félög sjálfstæðismanna í
Nes- og Melahverfi
og Vestur- og
Miðbæjarhverfi
boöa til fundar meö umdæmafulltrúum þriöjudaginn 27. jan. kl. 20.30
( Valhöll, Háaleitisbraut 1. Á fundinn mæta Guömundur H.
Garöarsson, Gunnlaugur B. Daníelsson og Sveinn H. Skúlason.
Umdæmafulltrúar eru hvattir til aö mæta stundvíslega.
Stjómlr félaganna.
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al'GLYSINGA-
SÍMIN'N KR:
22480
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgespilarinn
Um næstu mánaðamót kemur
út nýtt bridgeblað, em hlotið
hefur nafnið Bridgespilarinn.
Útgefandi er Páll Bergsson en
auk hans mynda ritstjórn blaðs-
ins 4 ungir menn, Guðmundur
Páll Arnarson, Guðmundur Sv.
Hermannsson, Jón Baldursson
og Vigfús Pálsson. En allir eru
þeir í fremstu röð bridgespilara
landsins. Og í ritstjórnargrein
fyrsta heftis er því lofað, að í
blaðinu verði efni, bæði fyrir
reyndu spilarana og svo fyrir
hina fjölmörgu, sem minna hafa
spilað.
Bridgespilarinn mun koma út
mánaðarlega næstu 3 mánuði og
svo aftur næsta haust ef blaðið
fær þær viðtökur, sem aðstand-
endur þess vonast til. Við dreif-
ingu blaðsins verða að nokkru
notaðar hefðbundnar aðferðir.
Áskrift verður seld að fyrstu
þrem blöðunum en þau munu
mynda 1. bindi, en auk þess
munu bridgefélög fá blaðið á
sérstökum kjörum með umtals-
verðum afslætti. Og er því
ástæða til að benda forráða-
mönnum bridgefélaga að hafa
samband við útgefanda í síma
19847 eða Vigfús Pálsson í síma
83533 til að afla skýrari upplýs-
inga.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Board A Match sveitakeppn-
inni lauk sl. miðvikudag með
sigri sveitar Hjalta Elíassonar.
Það er hætt að koma á óvart þótt
sveit Hjalta sigri keppni hjá BR
en fyrir síðustu umferðina mátti
segja að það væri aðeins fræði-
legur möguleiki þeirra að vinna
keppnina. Spiluðu þeir báða síð-
ustu leikina gegn sveit Karls
Sigurhjartarsonar sem var lang-
efst í keppninni og komu út sem
sigurvegarar. í sveit Hjalta eru
ásamt honum: Guðlaugur R.
Jóhannsson, Ásmundur Pálsson,
örn Arnþórsson og Þórir Sig-
urðsson.
Röð eístu sveita:
Hjalti Elíasson 105
Karl Sigurhjartarsson 102
Sigurður Sverrisson 100
Þorfinnur Karlsson 100
Samvinnuferðir 93
Jón Hjaltason 91
Næsta keppni BR verður aðal-
tvímenningur sem hefst á mið-
vikudaginn kemur og verður
spilaður með Barometerfyrir-
komulagi. Væntanlegir þátttak-
endur sem ekki hafa þegar skráð
sig eru beðnir að hringja í síma
76356 í síðasta lagi sunnudags-
kvöld.
Undankeppni
íslandsmóts
á Reykjanesi
Sl. laugardag var spiluð for-
keppni að undankeppni Is-
landsmóts í tvímenningi á
Reykjanesi. Fór keppnin fram í
A
Kópavogi og var spilað í tveimur
riðlum.
Úrslit í A-riðli:
Jón Hilmarsson —
Þorfinnur Karlsson 197
Haukur Þórðarson —
Valdimar Þórðarson 196
Úrslit í B-riðli:
Jón Steinar Gunnlaugsson —
Gestur Jónsson 196
Óli Gíslason —
Friðþjófur Einarsson 189
Um næstu helgi keppa 22 pör
til úrslita í Þinghóli og verða
spiluð 4 spil milli para. Hefst
keppnin stundvíslega kl. 13 og
verður spilað með Barometer-
formi.
Talið er líklegt að 10 pör
komist í íslandsmótið af Reykja-
nesi. Keppnisstjóri er Sigurjón
Þór Tryggvason.
Pörln wm »pila tll ursllta: Jón —
Þorflnnur, Jón — Grntur, Haukur —
Valdlmar, óli — Frlðþjólur, ómar — Jón,
GuAmundur — Þorvaldur, Glali — SifturA-
ur, GuAmundur — Þórarlnn, Björn —
MaitnÚN. Grimur — Guðmundur. Jón —
GarAar, Gróa — Kristmundur. Dröfn —
SlariAur. Kaunar — Sa-vin. örn — ÞórA-
ur, Glsll — Maitnús, Ólafur — Björn,
Guðmundur — Jóhann. Jón — Guðjón,
Erla — Kristmundur. Ármann — Pétur,
Gylfi — Jóhannes.
Sigurður Þorbergur
Björnsson - Minning
Fæddur 15. ágúst 1906
Dáinn 16. janúar 1981
Hann andaðist að Hrafnistu
föstudaginn 16. þ.m. Siggi, eins og
hann var kallaður, bjó í nokkur ár
í sama húsi og ég og fjölskylda
mín að Baldursgötu 11 hér í borg.
Það tókst alveg sérstök vinátta
með honum og börnunum mínum
og þegar ég hugsa til baka, þá veit
ég, að þessi kynni eru þeim
ómetanleg. Hann hafði svo sér-
staka kímnigáfu sem höfðaði til
þeirra. Fyrir nokkrum árum
veiktist hann alvarlega og eftir
það var hann ekki samur maður,
en hann var jafn rólegur og
glaðlegur ef við komum til hans.
Hann eignaðist einn son, Einar
að nafni, og reyndist hann föður
sínum einstaklega vel í hans löngu
veikindum. Eins veit ég, að Ingi-
björg, systir hans, átti til hans ófá
sporin til að létta undir með
honum.
Ég vil þakka honum af alhug
allt sem hann var börnunum
mínum og bið góðan guð að gefa
honum góða heimkomu.
Sesselja ó. Einarsdóttir
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.