Morgunblaðið - 22.02.1981, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.02.1981, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1981 jr „Odrengileg lausn á fiskverðsdeilu44 - segir Magnús Friðgeirsson um breytt útflutningsgjöld á sjávarafurðum FRAM hefur verið lagt á Alþingi frumvarp um breytingar á útflutningsgjöidum sjávarafurða, en þau hafa verið 5,5% af fob-verðmæti. Samkvæmt frumvarpinu verða útflutningsgjöld á skreið 10%, 5,5% á saltfiski og 4,5% á frystan fisk. Ákvörðun um þessa breytingu var tekin samhliða ákvörðun um fiskverð og var ein af forsendunum fyrir fiskverðsákvörðun. Morgunblaðið ræddi í gær við Magnús Friðgeirsson, aðstoðar- framkvæmdastjóra Sjávarafurða- deildar Sambandsins, en Sam- bandið er meðal stærstu útflytj- enda á skreið. Magnús var spurður hvaða augum hann liti frumvarpið um breytt útflutningsgjöld á greinarnar: „Þessari hugmynd mun hafa verið varpað fram í yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins til þess að ná saman verði með sjómönnum, útgerðarmönnum og fiskverkendum," sagði Magnús. „A þessum vettvangi er hins vegar enginn fulltrúi skreiðarframleið- enda og því er varla ofsagt að kalla þessa lausn á deilu um fiskverð ódrengilega. Skattlagning af þessu tagi skekkir verðmæta- mat framleiðenda til að gera sem verðmesta vöru úr því hráefni, sem þeir hafa á milli handanna hverju sinni. Þá er það furðuleg lenzka, sem lengi hefur verið viðloðandi, að líta á skreiðarverkunina sem óæðri hinum vinnslugreinunum, algjörlega án tillits til þess hvort hún skilar sömu rekstrarafkomu eða ekki. Menn, sem tala um málefni fiskvinnslunnar, hafa oft á tíðum fallið í þá gryfju að tala um skreiðarverkun nánast í sama orðinu og úrkast til fiskimjöls- verksmiðja, en það vísar einfald- lega til þess hve ranglátur dómur er lagður á skreiðarverkun yfir- leitt. Við höfum verið að hugleiða það okkar á milli, að þeir sem ákveða þessa hluti upp á skreiðar- verkendur myndu tæplega bera okkur á höndum sér ef erfiðleikar steðjuðu að í skreiðarverkuninni og það eru reyndar ekki mörg ár síðan slíkir erfiðleikar voru í greininni," sagði Magnús. Hann var spurður hvort staða skreiðarverkunarinnar væri ekki það góð, að hún þyldi þessa breytingu á útflutningsgjöldum, en í útreikningum Þjóðhagsstofn- unar um stöðu vinnslugreinanna kom fram, að skreiðarverkunin væri rekin með 25% hagnaði miðað við fiskverð, sem gilti fyrir áramót. Hann sagðist alls ekki vera sáttur við þetta vinnuplagg stofnunarinnar og sömu sögu væri að segja um nánast alla fiskverk- endur og gilti þá einu hvort um væri að ræða menn í freðfisk-, saltfisk- eða skreiðarverkun. Hann sagðist ekki geta sagt ná- kvæmlega um hverju skakkaði í tölum Þjóðhagsstofnunar, en marga þætti þyrfti að taka inn í útreikningana ef rétta ætti þetta plagg af. Magnús var spurður um stöðuna í málefnum skreiðarsölu og sagði, að þau mál væru í biðstöðu. Beðið væri niðurstaðna úr samningum Norðmanna og Nígeríumanna, en Norðmenn eru einmitt um þessar mundir í Nígeríu. Hann sagði, að útflytjendur væru að þreifa á þessum málum, en niðurstöður lægju ekki fyrir. Þá var hann spurður hvort Norðmenn undir- byðu íslenzku skreiðina: „Norð- menn eru með sína verðstefnu og það er spurning hvort við getum kallað það undirboð eða lága verðstefnu, því þeir eru að hækka sitt verð frá því í fyrra í norskum krónum. Vissulega eru þeirra hug- myndir um verð þó lægri en okkar,“ sagði Magnús Friðgeirs- son að lokum. Öll tryggingafélögin taka áfokstjón á bíl- um inn í kaskó MORGUNBLAÐINU barst i gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Samstarfsnefnd bifreiðatrygg- ingafélaganna: „Af gefnu tilefni vill samstarfs- nefnd bifreiðatryggingafélaganna taka fram að á undanförnum mánuðum hafa verið í endurskoð- un kaskótryggingaskilmála bif- reiðatryggingafélaganna. í þeirri endurskoðun hafa öll bifreiða- tryggingafélögin átt sinn fulltrúa. Vegna óveðursins 16.—17. febrúar sl. hafi bifreiðatrygginga- félögin ákveðið að kaskótrygg- ingar bifreiða feli í sér áfokstjón á hinni tryggðu bifreið. Eigendur kaskótryggðra öku- tækja, sem orðið hafa fyrir tjóni af þessu tagi eru beðnir að hafa samband við viðkomandi vátrygg- ingafélag sem fyrst." Grafa rennu fyrir Heimaey Vestmannaeyjum 21. febrdar SJÓPRÓF vegna strands Heima- eyjar VE 1 á Þykkvabæjarfjöru verða haldin fljótlega eftir helgi, en yfirmenn á skipinu eru enn á strandstað við að reyna að bjarga skipinu. Þar eru fleiri björgun- armenn með stórvirk tæki og hefur þeim tekizt að snúa skipinu, þannig að stefni þess veit nú mót hafi og verður reynt að draga skipið þannig út. Fyrir utan bíður björgunarskipið Goðinn, en á milli skipanna eru um 800 metrar af sandrifi. Björgunarmenn vinna að því að grafa rennu fyrir Heimaey út í sjó og á að reyna að draga skipið út næstu daga þó svo að nú sé smækkandi straumur. Sigurgeir Siglufjörður: Nýja ráðhúsið opnað á mánudag Sigluíirði, 21. febrúar. HIÐ nýja ráðhús okkar Siglfirð- inga verður formiega opnað á mánudag, en bæjarstarfsmenn hafa undanfarna daga staðið i flutningum á bókhaldi og öðrum gögnum. Skrifstofur bæjarins verða nú undir einu og sama þaki og rætist þar langþráður draumur Siglfirð- inga. — Fréttaritari. Skyldusparnað- urinn greiddur út árið 1984 SKYLDUSPARNAÐUR, sem tek- inn var af skattgreiðendum á árinu 1978, kemur til útborgunar eftir þrjú ár, þ.e. í febrúar 1984. Samkvæmt lögum frá árinu 1978 verður skyldusparnaðurinn greiddur út með verðtryggingu. Skyldusparnaðurinn náði í fyrst- unni aðeins til einstaklinga, en með efnahagsráðstöfunum síðar það ár var hann einnig látinn ná til fyrirtækja. Sjálfstæðisflokkurínn hvetur til samstöðu um kjördæmamálið: Fulltrúi Korchnois, svissneski iögfræðingurinn Alban Brod- beck, er væntanlegur til tslands á næstunni til að kynna sér aðstæður hér vegna tilboðs Skáksambands fslands i heimsmeist- araeinvígið i skák. Myndin sýnir þá Korchnoi og Brodbeck spjalla saman á aðalþingi FIDE í Buenos Aires 1978. Ljósm.: Einar S. Einarsson. Karpov og Korchnoi haúi lýst yf ir áhuga á Islandsferð í ár KARPOV og Korchnoi höfðu báðir áður en tilboð Skáksambands íslands í einvígi þeirra um heims- meistaratiltilinn kom til lýst yfir áhuga sínum á að heimsækja ísland á þessu ári. Karpov hafði sem kunnugt er tekið þá ákvörðun að láta málið áhuga á að koma hingað til lands í fyrra, en ekki gat orðið af því. í samtölum á Möltu, þegar ól- ympíuskákmótið fór þar fram, kvaðst heimsmeistarinn enn hafa áhuga á íslandsferð og nefndi þann möguleika, að hann kæmi við á íslandi í sambandi við ferð til Mexíkó, sem er á dagskrá hans eftir einvígið um heimsmeistaratitilinn. Frá Korchnoi bárust þau boð í janúar sl., að hann hefði áhuga á að heimsækja ísland með vorinu og þá í sambandi við hugsanlega afmælishátíð Taflfélags Reykja- víkur, sem varð 80 ára í fyrra. Stjórn Taflfélagsins mun hafa liggja í láginni meðan ekki er séð fyrir endann á því, hvar heims- meistaraeinvígið verður, þar sem opinbert boð til Korchnois á meðan gæti hugsanlega spillt fyrir tilboði Skáksambands ís- lands, ef Rússar tækju slíkt óstinnt upp. Taflfélagsmönnum þykir hins vegar jafnrétt, að Skáksamband íslands fari á sama tíma varlega i samskiptum við Skáksamband Sovétríkjanna, ef Korchnoi tæki slíkt óstinnt upp, en eins og Mbl. hefur skýrt frá fara menn á vegum SÍ til Sovétríkjanna á næstunni í boði sovézka skáksambandsins, en Skáksamband íslands greiðir ferðakostnað til og frá Moskvu. Einmeimingskjördæmi, fjölgun kjördæmakjör- inna þingmanna um sex Einmenningskjördæmi sem telja 49 og að kjördæmakjörnum þingmönnum verði fjöigað um sex og þeim skipt til helminga milli Reykjavikur og Reykjaness er aðalinntak hugmynda sjálf- stæðismanna i kjördæmamálinu, en innan flokksins hefur verið unnið að máli þessu í vetur og nú fyrir helgi voru bréf send for- mönnum allra stjórnmálaflokk- anna með ósk um að þeir tilnefni fulltrúa til sameiginlegra við- ræðna um málið. Geir Hall- grimsson formaður Sjálfstæðis- flokksins skýrði frá þessu á ráðstefnu um sveitarstjórnarmál, sem hófst í Valhöll í gærmorgun og sagði einnig hugmynd Sjálf- stæðisflokksins, að með breyt- ingu á stjórnarskránni yrði einn- ig sérstaklega tekin fyrir verk- efnaskipting ríkis og sveitarfé- laga og sjálfsforræði sveitarfé- Iaganna verulega aukið með ákvæðum í stjórnarskrá. Á flokksráðs- og formannafundi Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var í nóv. sl. var skipuð nefnd til þess að móta tillögur flokksins um breytingar á kosningalögum og kjördæmaskipan. Niðurstöður nefndarinnar voru, að einmenn- ingskjördæmi kæmust næst per- sónukjöri og myndu treysta tengslin við kjósendur. Sjálfstæð- isflokkurinn leggur til, að upp verði tekin 49 einmenningskjör- dæmi og 11 þingmenn verði kjörn- ir af landslista. Þá er og í hugmyndum sjálfstæðismanna, að með viðhaldi núverandi kjör- dæmaskipunar mætti fjölga kjör- dæmakjörnum þingmönnum í 55, þannig að þingmönnum Reykja- víkur fjölgaði um þrjá og Reykja- ness einnig um þrjá og lands- kjörnir þingmenn yrðu þannig aðeins fimm. Þó mætti, segir í tillögunum, ef yrði mikið ójafn- vægi milli kjördæma með þeirri breytingu, fjölga uppbótarþing- mönnum um sex. Það var sam- þykkt í fyrrgreindri nefnd, að fela Geir Hallgrímssyni, Matthíasi Bjarnasyni og Matthíasi Á. Math- iesen að hefja viðræður við full- trúa annarra stjórnmálaflokka og kynna framkomnar hugmyndir um lausn málsins og hafa for- mönnum stjórnmálaflokkanna þegar verið send bréf þessa efnis. Geir Hallgrímsson gerði grein fyrir þessum hugmyndum í setn- ingarræðu á ráðstefnu um sveitar- stjórnarmál, sem hófst í Valhöll í gærmorgun. Hann sagði, að unnið hefði verið að þessu máli í allan vetur og væri hugmynd flokksins sú, að leiða þetta brýna réttlæt- ismál til farsællar úrlausnar með samvinnu allra stjórnmálaflokk- anna og sagðist hann vonast til, að unnt yrði að ná þingmeirihluta um breytingarnar tímanlega fyrir næstu þingkosningar. Þá gerði Geir einnig grein fyrir hugmyndum Sjálfstæðisflokksins um að í stjórnarskrá verði vald- svið sveitarfélaganna gert ákveðn- ara og mun meira en það er í dag og sagði að Sjálfstæðisflokkurinn myndi beita sér fyrir því samhliða kjördæmabreytingunni. Leiðrétting RANGHERMT var í Mbl. í gær, aó Richard Björgvinsson væri bæjar- stjóri Kópavogs, hann er bæjar- fulltrúi sjálfstæðismanna þar, en bæjarstjórinn heitir Bjarni Þór Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.