Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 1
Fimmtudagur
16. apríl 1981
Jfltrjpwítltefoífo
Bls. 49—80
Happafleytan Sigurfan — fyrsta skipið som Þorgeir smíðaðL
Athafnamaðurinn, hinn sanni athafnamaður. Upp-
risinn úr fortíðinni og markar stefnuna inn i
framtiðina. Hann hefst af sjálfum sér úr fátækt
til mikilla eifjna og umsvifa. Hann reisir sér ekki
skýjaborgir, lætur sig ekki dreyma um auð og völd og
frægð. Hann framkvæmir. Athöfnin er hans lífsfylling.
Og þegar tekur að rökkva í lífi þessa manns lítur hann
sáttur yfir dagsverkið sitt, sáttur við Guð, sáttur við lífið,
sáttur við samferðamenn sína. Og það er bjart yfir honum
þegar hann tekur að rif ja upp sögu sina.
Þorgeir Jósefsson er mikill vexti og stórskorinn — en
þó hægur og lítillátur. Skipasmiðastöð, trésmiðja, raf-
magnsstofa, lagerhús og skrifstofa: næstum 6000 fermetr-
ar og 150 manns í vinnu: Þaðan hafa komið 35 ný skip,
hundruð gamalla úr viðgerð og 500 lærlingar í vélfrseði. í
þessu er falið líf Þorgeirs Jósefssonar. Svo hefur hann
„fiktað“ ýmislegt: setið í bæjarstjórn í 30 ár, gert út
togara, rekið steypustöð, reist hús, lagt vegi og grafið
fyrir hitaveitulögnum. Og nú á 79da aldursári stendur
hann i þvi að klára smiði 50 metra skuttogara:
„Annaðhvort fer fyrirtæki á hausinn," segir hann,
„ellegar það er í stöðugum vexti. Það skiptir öllu að vera
heppinn með fólk og haldast vel á góðu fólki. Og sú hefur
verið min gæfa, að til mín hefur ráðist afbragðsfólk og
það hefur unnið hjá mér áratugum saman.“
Þorgeirs
þáttur Jósefssonar
Orlygur
Hálfdánarson
56
Jóakím
Pálsson
Snorri
Halldórsson