Morgunblaðið - 16.04.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981
51
Þeir starf8menn Þorgeirs sem náðist til
einn góöan vordag fyrir skömmu,
rúmlega 100 talsins. í baksýn sést í
dráttartxautir og hluta skipasmíöa-
stöðvarinnar.
rafmagn. Akranes var þá 7—800
manna pláss og töluvert af bátum,
eiginlega ekkert annað stundað en
sjórinn. Böðvar Þorvaldsson, Loft-
ur Loftsson og Þórður Ásmunds-
son voru þá helstir útgerðarmenn
á Akranesi. Mikið var líka farið að
bera á Haraldi. Ég hafði náin
skipti við hann alla tíð.
Komið við
í Sandgerði
Nám mitt í vélfræði var ein-
göngu verklegt. Það var stórkost-
legur skaði auðvitað, sérstaklega
varðandi tungumálin. Það er mik-
ill munur orðinn í dag. Nú fá allir
menntun við sitt hæfi. Það má
lengi deila um hvað skuli kenna og
hvað ekki, en mestu máli skiptir
að unglingarnir hafi áhuga á
náminu, vilja læra. Mér er sagt
það sé orðið tvennt til um það. En
við vorum fimm í smiðjunni hjá
Ólafi, og Ellert bróðir minn kom
ári síoar en ég.
Það var lítið fyrir okkur að gera
á Akranesi veturna. Svo var hátt-
að í þennan tíma, að útvegur
Akurnesinga fluttist til Sandgerð-
is á vetrum. Sandgerðisútgerðin er
merkilegur þáttur í útgerðarsögu
Akranes og hafði mikla þýð-
ingu fyrir byggð suður með sjó.
Við fylgdum því bátunum til
Sandgerðis og höfðum með okkur
nauðsynleg tæki, alveg þar til
þessi útilega Akurnesinga lagðist
af 1927.
Á þessum árum vaf siður að
yfirfara vélar bátanna stykki fyrir
stykki áður en vertíð hófst. Þessu
er skiljanlega hætt núna, en
áreiðanlega bjargaði þetta margri
vélinni. Þetta var hroðalega mikið
verk og kunnátta okkar vélamann-
anna í þá daga var kannski ekki
upp á marga fiska, smávægi-
legustu verkefni gátu valdið okkur
miklum heilabrotum.
Við bjuggum í búð Lofts Lofts-
sonar og borðuðum með skrif-
stofufólki hans. Loftur og Harald-
ur Böðvarsson ráku hvor um sig
mjög umsvifamikla útgerð frá
Sandgerði í þennan tíma. Ég man
mest eftir 60 bátum í Sandgerði.
Það var þvi margt um manninn,
og innanum skrítnir fuglar. Þar
var til dæmis Oddur sterki af
Skaga og annar flækingur sem
Siggi hlaupi var kallaður. Einu
sinni vorum við nokkrir að rabba
saman og þá bar að Odd sterka af
Skaga. Hann heyrði ákaflega illa,
kallinn, en vildi áfjáður heyra
hvað við töluðum, og nauðaði í
okkur þangað til ég kallaði upp í
eyrað á honum, að við værum að
velta því fyrir okkur hvor væri
vitlausari Óddur sterki af Skaga
eða Siggi hlaupi. Það þótti Oddi
vænt um að heyra.
Aðstaða okkar vélamannanna í
Sandgerði var heldur bágborin, og
kuldinn okkur verstur. Maður
mátti stundum passa sig á því á
morgnana að frjósa ekki við járn-
in. Svo var tækjaskorturinn okkur
mjög erfiður. Við vorum fegnir á
vorin, þegar lauk Sandgerðisdvöl.
Sjúkdómar
Ég var heilsuhraustur framan
af aldri, en eftir að ég komst á
fullorðinsár fékk ég slæman asma.
Ég lá oft langtímum saman á
vetrum útaf asmanum, og batnaði
ekki fyrr en úti í Svíþjóð árið 1946.
Þá sótti ég norræna iðnþingið og
einn íslenskur læknanemi kom
mér í samband við sænskan lækni.
Hann gerði nú lítið sá, gaf mér
samt lifandis fyrn af meðulum, en
svo þóttist hann finna af hverju
asminn stafaði.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
e,P^ítíma
11 nasstu bóka
^^óósson
Bætt haf naraðstaða
Aukið geYmslurými
Hafskip hf. tekur um þessar mundir í notkun fyrsta áfanga af þremur ad nýrri hafnar- og
vörugeymsluaðstööu í Austurhöfninni. Breytingar nú eru þessar:
1. í Tollstöðvarbyggingu og Hafnarhúsi er vöruafgreiðsla fyrir vörur frá Norðtur-
sjávarhöfnum og höfnum á Bretlandi. Einnig fyrir vörur frá U. S. A. og Kanada.
í Tollstöðvarbyggingu er einnig miðstöð allrar vöruafgreiðslu í Austurhöfninni.
2. í A skála er móttaka á vörum sem fara eiga á hafnir við Norðursjó, Bretlandi
svo og U. S. A. og Kanada.
Vöruafgreiðslan við Grandagarð þjónar áfram vöruflutningum til og frá
Skandinavíu og höfnum við Eystrasalt. Vöruafgreiðslusvæðið við Njarð-
argötu (Tívolí) mim einnig þjóna áfram um sinn.
Síðar verða svo teknar í notkun vöruafgreiðslur í Faxaskála I og II.
Mimu þær breytingar verða kynntar þegar nær dregiu:.
Tilgangur Hafskips hf. með þessum breytingum er að stórbæta
afgreiðsluskipulag sem og vörumeðferð, og auka þar meö þjón-
ustu við viðskiptamenn félagsins.
HAFSKIP HF.
Hafnarhúsinu, v/Tryggvagötu, Sími21160