Morgunblaðið - 17.05.1981, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAI1981
19
einnig unnið honum tíma þannig
að tími „hveitibrauðsdaga" hins
nýja forseta, sem eru 100 dagar
samkvæmt gamalli hefð, verður
lengri en ella.
Gagnrýnendur og bandamenn
forsetans segja að helzti styrkleiki
hans sé sá hæfileiki hans að ná til
fólks og útskýra stefnu sína. Nú
þegar forsetinn reynir að vinna
þingið á sitt band reynir á þennan
styrkleika hans. En eins og einn
aðstoðarmanna forsetans komst
að orði geta þingmenn verið mis-
kunnarlausir. „Samúð er ekki ein-
hlít, það eru hæfileikar sem
tryggja sigur ...“ sagði hann.
Slökun dauð
í utanrikismálum hefur Reag-
an-stjórnin miskunnarlaust reynt
að sannfæra Rússa um eitt: slökun
(détente) er sama sem dauð og
nema því aðeins að Rússar hætti
að „fiska í gruggugu vatni" muni
nýtt kalt stríð áreiðanlega koma í
staðinn.
Nú virðist stjórnin þess fullviss
að Rússar hafi skilið þennan
boðskap og vilja bíða og sjá hvort
þeir mildi stefnu sína. Háttsettir
embættismenn þykjast sjá já-
kvæðar vísbendingar, m.a. vegna
þess að dregið hafi úr ógnuninni
við Pólland og vopnasmygli til
uppreisnarmanna í E1 Salvador
hafi verið hætt.
Fyrir sitt leyti aflétti Reagan
kornsölubanninu á Sovétríkin og
helztu ráðunautar hans í utanrík-
ismálum hafa dregið úr gagnrýni
sinni á Sovétríkin. Stjórnin býr
sig einnig undir að hefja viðræður
um takmörkun staðsetningar
kjarnorkueldflauga í Evrópu. Þótt
því sé neitað í Hvíta húsinu að
með afnámi kornsölubannsins sé
verið að verðlauna Rússa fyrir
Meese
bætta framkomu má víst telja að
þannig verði það túlkað í heimin-
um.
Þíða varla hafin
En sé þíða hafin í sambúðinni
við Rússa er hún aðeins rétt
nýbyrjuð og embættismenn taka
fram að hún geti breytzt í einni
andrá ef Rússar grípi til íhlutunar
i Póllandi. Haig utanríkisráðherra
sagði nýlega þegar hann gerði enn
eina árásina á Rússa að „mesta
ógnunin við heimsfriðinn væri sú
viðleitni Rússa að ýta undir
ofbeldi og beita slíkum ráðum sem
tæki til að koma breytingum til
leiðar" ... það er réttur okkar og
raunar skylda að krefjast þess að
Rússar styðji friðsamlega skipan
mála í heiminum ...“ sagði Haig.
Þessi nýja gagnrýni Haigs virðist
sumpart hafa þjónað þeim til-
gangi að vega upp á móti þeirri
túlkun á afnámi kornsölubannsins
að það hafi dregið úr þeim ásetn-
ingi Bandaríkjanna að berjast
gegn sovézkri árásarstefnu. Haig
vildi viðhalda banninu.
Tíðar árásir á framferði Rússa
hafa átt að sýna þeim og heimin-
um að ótvíræð breyting yrði á
utanríkisstefnunni frá því á dög-
um Carter-stjórnarinnar, sem
Reagan taldi veika og tvístígandi.
Eitt fyrsta skrefið var að gera
nýju stjórnina trúverðuga. Forset-
inn gaf tóninn á fyrsta blaða-
mannafundi sínum 29. janúar þeg-
ar hann kallaði Rússa lygara og
svikara sem stefndu að heimsyf-
irráðum. Haig sagði að hryðju-
verkastarfsemi, sem væri runnin
undan rifjum Rússa, yrði að hætta
og aðrir embættismenn tóku í
sama streng. Stundum var gengið
of langt, eins og háttsettur starfs-
maður utanríkisráðuneytisins við-
urkennir, en hann segir að með því
hafi verið dregið úr kjarki banda-
lagsþjóðanna i Evrópu. Hann
hvatti til „stillilegri" yfirlýsinga
um deilumál austurs og vesturs
upp frá þessu.
Helmut Sonnenfeldt, sem var
einn helzti ráðunautur Henry
Kissingers utanríkisráðherra,
sagði að Rússum kynni að hafa
blöskrað reiðilesturinn, þar sem
þeir hafi trúlega gert ráð fyrir að
Reagan hefði hamazt gegn komm-
únistum til að ná kosningu, en
yrði málefnalegri þegar hann væri
kominn í Hvíta húsið. „Ég held að
þeir hafi orðið dálítið undrandi ...
að hann hélt áfram að tala eins og
frambjóðandi eftir að hann varð
forseti ... og ég held að þeir hafi
orðið dálitið undrandi á hinni
miklu aukningu á herútgjöldum.
Þetta hefur sennilega fengið tals-
vert á þá,“ sagði Sonnenfeldt í
viðtali.
Aðrir þættir stjórnarstefnunn-
ar hafa hins vegar verið lengi að
mótast og gamalreyndur starfs-
maður utanríkisráðuneytisins hef-
ur líkt afstöðu stjórnarinnar við
„fallbyssu í leit að skotmarki".
Einstök atriði utanríkisstefnunn-
ar hafa ekki verið mótuð svo að
Deaver
viðunandi geti talizt, þótt því sé
lofað að stefnan verði fullmótuð
innan skamms. Töfin stafar sum-
part af því að stjórnin ákvað að
gera ítarlega úttekt á utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna hvarvetna í
heiminum og sumpart af því að
efnahagsstefnan situr í fyrirrúmi.
Stefnan mótast
Þess er þó skammt að bíða að
þessari úttekt verði lokið og útlín-
ur hinnar nýju stefnu eru í
aðalatriðum sem hér segir:
• Bandarikin eru reiðubúin að
mæta sovézkum árásaraðgerð-
um með eigin ráðstöfunum i
eins konar heimsskák. Ilér get-
ur m.a. verið um að ræða
þrýsting á Kúbu, hergagna-
sendingar til Kina og aðstoð við
afghanska uppreisnarmenn.
• Máttur Uandaríkjanna verð-
ur efldur til að stöðva sovézka
árás með stórauknum herút-
gjöldum og vopnasendingum til
vinveittra þjóða. Sú stefna Cart-
ers að haida vopnasölu i heimin-
um i iágmarki er dauð.
• Stefnu Carters i mannrétt-
indamálum verður breytt á
þann veg, að virðing fyrir
mannréttindum verður sett sem
skilyrði fyrir nánum samskipt-
um. Nánari tengsl verða við
Suður-Kóreu, Argentinu og
Chiie. Opinberri gagnrýni á
vinveittar þjóðir verður haldið i
lágmarki.
• Komið verði til leiðar „her-
fræðilegri samstöðu“ þjóða í
Miðausturlöndum. allt frá
Tyrklandi i vestri til Pakistans
í austri. til að stemma stigu við
framrás Rússa og tryggja að-
gang Bandarikjanna og heims-
ins að oliu þessa heimshluta.
• Hægfara uppbygging band-
arísks herliðs i Miðausturlönd-
um, fyrst með þátttöku i frið-
argæzluliði á Sinai-skaga 1982,
en seinna með því að útvega
aðstöðu fyrir herlið, sem verði
hægt að beita með stuttum
fyrirvara. Þetta er framhald á
stefnu Carters.
• Rikjum i Afriku er hallast að
marxisma verði haldið i hæfi-
legri fjarlægð, einkum ríkjum
þar sem Kúbumenn og Rússar
hafa hreiðrað um sig — eins og
Angola — og tilraun verði gerð
til að koma í veg fyrir að
marxistar komist til valda i
Namihíu. Vinsamlegra sam-
band við Suður-Afriku.
Hergö>?n til E1 Salvador
Reagan-stjórnin sendi í flýti
hergögn og ráðunauta til eins
óróasvæðis heimsins, E1 Salvador,
til að stöðva það sem hún kallaði
árás með stuðningi Kúbumanna
og Rússa. En stjórnin gerði ekki
ráð fyrir þeirri hörðu andstöðu,
sem fylgdi í kjölfarið undir for-
ystu kaþólsku kirkjunnar.
Tilraun Haigs til að sýna Rússa
í ljósi helztu ógnunarinnar við
Baker
öryggi í Miðausturlöndum, og
draga þannig úr mikilvægi deilu
Araba og Israelsmanna, mætti
mótspyrnu í Saudi-Arabíu og
Jórdaníu, þar sem ráðamenn
héldu þvi fram að Israel væri
alvarlegasta ógnunin við öryggi
þessara landa.
Sú ákvörðun að seija fimm
ratsjárflugvélar (AWACS) til
Saudi-Arabiu sætti harðri gagn-
rýni á Bandaríkjaþingi og við
blasir sú hætta að þingið valdi
Reagan-stjórninni áfalli, sem geti
skaðað sambúðina við Saudi-
Arabíu.
Þótt Reagan-stjórnin héti því
þegar hún kom til valda að tala
„einum rómi“ um utanríkisstefn-
una hafa nokkrum sinnum heyrzt
hjáróma raddir og Haig lenti í
erfiðleikum í Hvíta húsinu er
vöktu efasemdir um hvort hann
gæti haldið áfram í embætti. Haig
óttaðist að almenningi fyndist að
stjórnin léti sér á sama standa um
mannréttindi og taldi sig knúinn
til að flytja ræðu, þar sem hann
tók ótvírætt fram að ríkisstjórnin
„berðist gegn brotum á mannrétt-
indum, hvort sem í hlut ættu
bandamenn eða mótherjar, vinir
eða óvinir."
(AP)
Kerfisbundin
kostnaðarlækkun
Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiös um
Kerfisbundna kostnaöarlækkun og verður þaö
haldiö í fyrirlestrasal félagsins að Síöumúla 23
dagana 25., 26. og 27. maí frá kl. 13—17.
Efni:
— Hvernig beita má kerfisbundinni kostnaöar-
lækkun.
— Kostnaðarlækkunarkerfi í sambandi viö hráefn-
ismóttöku, efnisflæöi, vinnuaöferöir, vinnustaöla,
verksmiöjuskipulagningu,
lager, afhendingu og
viöhald.
— Hvernig á aö taka kostn-
aðarlækkunarkerfi í
notkun.
— Hvernig er kostnaöarlækk-
unarátak byggt upp og
hver eru einkenni árang-
/. ' . , Dr. Ingjaldur Hannibalsson
ursriks 3t3kS. Idnaðarverkfræðmgur.
Leiðbeinandi:
Námskeiöið á einkum erindi til framkvæmdastjóra í
framleiðslufyrirtækjum.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma
82930.
Astiórnunarfélag Isiands
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930
Cl
avK5
Nýkomnir frúarskór frá Clarks
Verð 510 kr.
Litir: svart. brúnt
Verð 468 kr.
Litir: svart. ljóst
Verð 510 kr.
Litir: Ijós, brúnt, svart
Verð 517.70 kr.
Litir: svart og rautt
SKÓSEL,
Laugavegi 60
sími 21270.
Þessi beltagrafa JCB-808 árg. ’75
3300 vinnust. og í mjög góöu lagi er til sölu og sýnis.
Mjög gott verö og greiösluskilmálar.
Einnig: Bröyt X-30 '74 og Cat. 966C ’75 og JCB-3C
’78. Vélarnar eru á hagstæðum veröum og í góöu
Ragnar Bernburg, vélasala,
Skúlatúni 6, s. 27020 kv.s. 82933.