Morgunblaðið - 22.05.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981
19
Minning:
Hrefna Guðmundsdótt-
ir frá Þúfnavöllum
Og þó hún kvala konndi
af kvillum i elli,
brúna jaínhoiAsklr himinn
huKarró sýndi.
DauÓa næst hjartleKast brosti
blidlyndid henni úr auKum.
Var sem önd leftaði Ijóra
ok liti til veóurs.
B.Th.
Þannig birtist Hrefna mér fyrir
hugarsjónum þegar ég horfi aftur
og minnist síðasta fundar okkar á
sjúkrahúsinu á Akureyri. Ég held
hinni eyfirsku húsfreyju hafi ver-
ið bjart fyrir sjónum, ég held hún
hafi skynjað veðrabrigði til hins
betra framundan. Hún bar sig vel,
var góð og glöð að sjá. Hún
bugaðist ekki.
Bernharð segir í æviminningum
sínum að sólskin hafi verið, þegar
þau giftust, og hafi sambúð þeirra
verið eftir því. Mun það ekki
ofmælt. Svo samrýnd voru þau og
óaðskiljanleg, meðan bæði lifðu,
að mér fannst ég allt eins skynja
eina persónu sem tvær, þar sem
þau fóru. Og svo erfitt sem það
var, að hugsa sér Hrefnu án
Bernharðs og venjast því, þá hefði
verið fjarri öllu lagi að ímynda sér
Bernharð án Hrefnu.
Hrefna var heilsteypt, svo sem
hún átti kyn til, hreinskiptin og
hispurslaus, í engu hikandi né
hálfvolg. Hún hvikaði ekki í ást
sinni. Umhyggja hennar var
sleitulaus. Hún fékk falsleysi og
fastlyndi í vöggugjöf.
Mér þykir sem Hrefna hafi
kunnað að njóta lífsins og láta
aðra njóta þess með sér, félags-
lynd og mannblendin og fór ekki
Ólafsvík:
Vertíðin var um 20%
lélegri en i fyrra
feimulega. Langt á aldur fram
spilaði hún bridge af leikgleði og
kallaði til þá sem hún vissi besta.
Hún valdi sér aldrei félaga af
verri endanum.
í skjóli barna, frænda og vina
lifði hún elliárin og var grann-
heppin með afbrigðum. Þrjátíu
ára stríð við ólæknandi sjúkdóm
háði hún af því æðruleysi sem því
aðeins næst að bæði sé meðfætt og
áunnið. Ég kemst aldrei fram hjá
ýmsum sérlegustu persónum Is-
lendingasagna og Sturlungu, þeg-
ar ég hugsa til Hrefnu og reyni að
lýsa henni. Mér finnst hún hafa
verið einhvers konar þráður,
mjúkur og sterkur í senn, sem
ofinn væri úr tryggð Auðar,
Ólalsvik. 20. mai.
HEFÐBUNDINNI vetrarvertíð
lauk hér 15. maí, en f raun var
henni lokið þann 8., er netaveiði-
bann gekk i gildi. Vertiðin var
erfið. einkum framan af vegna
harðviðra. Fiskigöngur voru einn-
ig í minnsta lagi. Eftirtekjan varð
því 20% rýrari en í fyrra eða 8.296
lestir á 20 báta.
Aflahæstur varð Gunnar Bjarna-
son SH 25 með 847 lestir, skipstjóri
Ríkarð Magnússon. Næstur kom
Garðar II með 785 Iestir og í 3. sæti
varð Fróði með 598 lestir. Togarinn
Lárus Sveinsson hefur landað á
árinu 1.220 tonnum og siglt eina
söluferð til útlanda og Már hefur
landað um 1.200 tonnum og sigldi
hann tvær söluferðir.
Mikil umferð hefur verið um
Ólafsvíkurhöfn, eða um 65 togara-
og skipakomur á árinu og 11.500
lestir hafa verið fluttar að og frá
þeim skipum.
Við þennan lestur um erfiða
vertíð er svo því að bæta, að
farsæld fylgdi sjómönnum okkar á
vertíðinni og erum við Ólsarar
þakklátir forsjóninni fyrir það.
Helgi.
SHI með
fund um fjölda-
takmarkanir
í DAG, 22. maí, kl. 12.15 mun stjórn
Stúdentaráðs Háskóla íslands efna
til almenns stúdentafundar í matsal
Félagsstofnunar stúdenta v/Hring-
braut. Efni fundarins eru fjöldatak-
markanir í Háskóla íslands.
Fundur þessi fylgir í kjölfar sam-
þykktar Háskólaráðs nú nýverið um
fjöldatakmarkanir í læknis- og
tannlæknisfræði og er það í fyrsta
skipti um langt árabil aö takmarka á
fjöída læknanema við fyrirfram
ákveðna tölu.
Framsögumenn á fundinum verða
jafnt úr hópi stúdenta sem kennara
og fylgjenda sem andstæðinga
fjöldatakmarkana.
drenglund Bergþóru og stórhug
Steinvarar á Keldum.
Hún lést 2. þessa mánaðar, hátt
á 86. aldursári, og var viku síðar
borin til moldar í Bakkakirkju-
garði hjá Bernharði. Þá var sólfar
mikið um Öxnadal og Eyjafjörð,
svo sem var þegar hún gafst
honum ung. I sólskini ævinnar
reistu þau sér traustari minnis-
varða í hugum fólks en nokkurn
þann stöpul sem stendur í kirkju-
garði. Sagan geymir nöfn þeirra
og fjöldi íslendinga minningu
þeirra með þökk og virðingu. Þeim
var gott að kynnast og gaman að
minnast.
Gísli Jónsson
Nýja platan hans Pálma er komin.
Dreiíing:
■ ■ *
HUOMPLOTUUTG4MN hf.
Sími11308
Já, það eru tvær
hliðar á Pálma...
vörnkynniiig
I ■ #11 ■■ i ■ w ■ / t ■ Jmr
ss
á Medisterpylsu í SS búóinni
Laugavegi 116 í dag kl 2-7
Komið og bragðið á