Morgunblaðið - 22.05.1981, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1981
Athugasemd vegna ummæla
Jónasar Guðmundssonar
Kjólasýning
á Kjarvals-
stöðum
í KVÖLD kl. 20.30 verður sýning á
batikkjólum á Kjarvalsstöðum.
Sýnir Katrín Ágústsdóttir þar
kjóla, sem hún hefur framleitt, en
um þessar mundir stendur þar
yfir sýning á batikverkum.
í Morgunblaðinu 21.5. er greint
frá því í frétt að Jónas Guð-
mundsson, listmálari, hafi kært
fyrir útvarpsráði fréttastofu sjón-
varps sem hann telur hafa beitt
sig rangindum að yfirlögðu ráði.
Morgunblaðið lætur ekki svo lítið
að leita til beggja aðila svo öll
sjónarmið fái komið fram, en
lætur sér nægja að reka garnirnar
úr Jónasi einum. Það er með
ólíkindum hve miklum rangfærsl-
um og dylgjum sá maður fær
komið að í jafn fáum orðum og
raun ber vitni.
Ástæðuna fyrir því að ekki var
getið um opnun málverkasýningar
hans í þættinum Á döfinni telur
Jónas vera þá, að „fréttastofan sé
í einhverju tilfinningastríði gagn-
vart sér“. Svo er að skilja að
málverk séu sett á skjáinn „í
einhverri mýflugumynd", eins og
hann kemst að orði, vegna þess að
Emil Björnssyni, fréttastjóra,
„sem leyfist að reka einkasjónvarp
á íslandi", sé í nöp við Jónas sem
hafi unnið sér það eitt til saka að
hafa í frammi „málefnalega gagn-
rýni“. Fyrr má nú rota en dauð-
rota.
Tildrög málsins eru þessi: í
vetur hafa verið í sjónvarpinu
þættir sem nefnast Á döfinni. Þar
er greint frá útgáfustarfsemi,
listviðburðum og öðru af því tagi.
Ég hef haft umsjón með þessum
þáttum ásamt Mariönnu Friðjóns-
dóttur. Sé háttur hefur verið
hafður á, að fólk sendir þættinum
efni til birtingar en jafnframt er
óskað eftir ljósmyndum eða öðru
myndefni. í sumum tilvikum er
samið um að Ijósmyndarar frá
sjónvarpinu taki myndir til birt-
ingar. Um slíkt var samið við
Jónas Guðmundsson, listmálara,
þegar hann kom í sjónvarpið
miðvikudaginn 13. þ.m. til að láta
vita af sýningu sem hann ætlaði
að opna í Norræna húsinu í
vikulokin.
Þar sem ég átti frí frá vinnu
umræddan miðvikudag vissi ég
ekki af komu Jónasar og svo
slysalega vildi til að beiðni um
myndatöku á sýningunni í Nor-
ræna húsinu fór fram hjá mér
þegar ég tók til við að vinna
þáttinn sem vera átti föstudaginn
15. maí.
Ég áttaði mig ekki á mistökum
mínum fyrr en á föstudag eftir að
þátturinn hafði verið tekinn upp
og orðið of seint að leiðrétta þau. I
þætti sem þessum má alltaf gera
ráð fyrir að eitthvað þessu líkt
geti komið fyrir þar sem þættin-
um berst jafnan mjög mikið efni.
Ég hafði aftur á móti enga
hugmynd um að sá maður sem hér
átti í hlut byggi yfir svo ótrúleg-
um hæfileikum til að þess að
spinna upp samsæriskenningar.
Þetta kom þó ekki á daginn fyrr
en síðar því þegar ég skýrði
málvexti fyrir Jónasi á föstudag
og bað hann afsökunar á þessum
mistökum virtist mér hann skilja
hvemig í málinu lá. Eitthvað
virðist honum þó hafa runnið i
skap yfir nóttina því á laugardag
vildi hann ekkert skilja og taldi
sig hafa verið beittan rangindum
að yfirlögðu ráði. Það var sam-
dóma álit manna á fréttastofu
sjónvarps að leiðrétta mistökin og
segja frá sýningu Jónasar í
fréttatíma sjónvarpsins laugar-
dagskvöldið 16. maí og þá með
líkum hætti og gert hefði verið í
þættinum Á döfinni. Héldu menn
nú að allir mættu vel við una. Nei,
ekki aldeilis. Nú var tekið tií
handa um kærur og opnaðar voru
allar gáttir fyrir svívirðinga-
flaum. Vegna mistaka minna hafa
aðrir starfsmenn fréttastofu sjón-
varpsins verið bornir röngum sök-
um og er það ástæðan fyrir þessu
bréfi mínu. Ég vil einfaldlega
leiðrétta þaö sem rangtúlkað hef-
ur verið. Til fjölmiðla á borð við
Morgunblaðið vil ég gera þá kröfu
að rétt sé frá öllum málavöxtum
skýrt, ekki síst þegar jafn þungt
er reitt til höggs og hér hefur
verið gert. Til Jónasar Guð-
mundssonar geri ég hins vegar
engar siðgæðiskröfur enda er sýnt
af skrifum hans að hann fær ekki
undir þeim risið.
Karl Sigtryggsson,
umsjónarmaður þáttarins
Á döfinni.
Framtalsfrest-
ur framlengdur
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið
að framlengja áður ákveðinn
skilafrest á skattframtölum ein-
staklinga, sem hafa með höndum
atvinnurekstur eða sjálfstæða
starfsemi, frá 25. maí nk. til og
með 1. júní nk. og skilafrest á
skattframtölum lögaðila frá 31.
maí nk. til og með 15 júní nk.
SUS:
Hugmyndafræði
frjálshyggjunnar
umræðuefni
á fundi NUU
— sem haldinn verður í
Reykjavík á sunnudag
SUNNUDAGINN 24. maí nk. verð-
ur haldinn á Ilótcl Loftleiðum í
Reykjavík. aðalfundur Nordisk
Ungkonservativ Union.
NUU eru samtök ungliðasam-
banda nokkurra af stærstu borgara-
flokkum Norðurlanda og er Sam-
band ungra sjálfstæðismanna á
íslandi eitt aðildarsamtakanna.
Aðrir aðilar að samtökunum eru
ungliðasamtök eftirtalinna stjórn-
málaflokka: Hægri flokksins, Nor-
egi, Hægfara flokksins, Svíþjóð,
Sameiningarflokksins, Finnlandi og
íhaldsflokksins í Danmörku.
Samhliða aðalfundinum verður
haldið „seminar" á vegum NUU og
SUS. Umræðuefnið verður hug-
myndafræði frjálshyggjunnar. Með-
al ræðumanna verða Jónas Haralz,
bankastjóri, Hannes H. Gissurar-
son, sagnfræðingur og Friðrik Frið-
riksson, formaður Félags frjáls-
hyggjumanna.
Fundina munu sækja 25 fulltrúar
frá Norðurlöndunum fimm.
Gierek fyrir
rannsóknar-
nefnd
Varsjá. 19. maí. - AP.
EDWARD Gierek, fyrrum leið-
togi pólska kommúnistaflokksins
kom í dag í fyrsta sinn, svo vitað
sé, fyrir nefnd þá úr kommún-
istaflokknum sem rannsakar það
hvort hann eigi sök á núverandi
ástandi í Póilandi, að sögn PAP,
pólsku fréttastofunnar.
í fréttinni kom það einnig fram
að Gierek varði sumar gerðir
sínar en gagnrýndi aðrar.
Gierek og nokkrir aðrir hátt-
settir stjórnmálamenn misstu
stöður sínar í ágúst sl. í kjölfar
verkfalla sem leiddu til stofnunar
óháða verkalýðsfélagsins Sam-
stöðu. Gierek hafði verið leiðtogi
flokksins frá því árið 1970, en
verkföllin í Gdansk það ár leiddu
til þess að hann fékk stöðuna.
Belgar
slá lán
Briissol. 21. maí. AP.
BELGÍSKA stjórnin sagði í dag
að hún mundi taka „neyðarlán“ í
na-sta mánuði vegna vaxandi
halla á ríkisfjárlögum er nemur
nú um 150 milljörðum franka eða
fjórum milljörðum dollara.
Mark Eyskens forsætisráðherra
stakk upp á lántökunni í marz
þegar hann var fjármálaráðherra.
Opinberlega var ekki skýrt frá
lánsfjárupphæðinni, en embætt-
ismenn hafa sagt að þeir verði
fyrir vonbrigðum ef hún nemi ekki
að minnsta kosti 60 milljónum
franka.
Sex ára
nauðgarar
Syracuso. Ncw York, 21. maí. AP.
TVEIR sex ára gamlir drengir og
einn átta ára hafa verið sakaðir
um að nauðga sjö ára gamalli
stúiku í skóiavagni ug síðan á ný
i fjölbýlishúsi að sögn lögreglu.
Frásögn lögreglunnar um málið
er óljós, en sagt er að sjúkrahús-
læknar hafi staðfest að stúlkunni
hafi verið nauðgað.
Sumir læknar sögðu í dag að hin
meinta nauðgun væri „líkamlega
óvenjuleg". Einn sérfræðingur
taldi „mjög ósennilegt" að nauðg-
unin hefði átt sér stað.
Móðir stúlkunnar segir að stúlk-
an hafi oft leikið sér með drengj-
unum.
Á Long Island hefur 14 ára
drengur verið látinn laus gegn
1500 dollara tryggingu í nauðgun-
armáli. Hann og tveir vinir hans,
10 og 12 ára, voru sakaðir um að
nauðga 10 ára stúlku.
Smurolían sem dregió
getur úr bensíneyóslu
bfla um 5-7%
Meíri smurhaefní,
minnaslit,
CORANDA
Olís kynnir nýja smurolíu: Visco
Coranda með LHC.*
Visco Coranda tekur fram gæða-
flokki (gæðastandard) API - SF
sem vandlátir vélaframleiðendur
geranú kröfurum.
Visco Coranda er fjölþykktarolía
10W/30.
Ný framleiðsluaðferð Visco
Coranda gerir mögulegt að nota
þynnri olíu en fyrr. Slíkt eykur
smurhæfni og minnkar mótstöðu í
vél. Þannig minnkar bensíneyðslan
verulega.
Visco Coranda er mjög hitaþolin og
heldur eiginleikum sínum við hinar
erfiðustu aðstæður.
Reynið Visco Coranda frá BP.
* LHC (Lavera Hydrocracker Compon-
ent) er grunnolía sem BP hefur, eftir ára-
langar rannsóknir, tekist að vinna úr
hreinni jarðolíu
Visco
OORANOA
H
OLÍUVERZLUN ÍSLANDS HF.