Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981 Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins: Dregið í kvöld I DAG eru síðustu forvöð að tryiínja sér miða í landshapp- drætti Sjálfsta-ðisflokksins. því dretfið verður í kvöld. Öflugt flokksstarf kostar mikið fé. Happdrættið gegnir veiga- miklu hlutverki í fjáröflun flokks- ins og því treystir hann á velvild og skilning stuðningsmanna sinna og væntir þess, að þeir vilji leggja fram hver sinn skerf til styrktar stefnu hans og verkefnum, sem framundan eru. Þeir, sem ennþá eiga ógerð skil á heimsendum miðum, eru vin- samlega beðnir að gera það strax í dag — það verður aðeins dregið úr seldum miðum. Afgreiðsla happdrættisins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og verð- ur hún opin til kl. 19, — og geta þeir, sem óska látið sækja greiðslu til sín og eins er hægt að fá heimsenda miða. (FróttatilkynninK.) Hljóðnemamálið í Þjóðleikhúsinu: Þjóðleikhúsráð vill skýrslu um búnaðinn „ÞJÓÐLEIKIIÚSRÁÐ samþykkti á fundi sínum í dag að Þjóðleikhús- stjóri og það starfsfólk sem málið varðar geri nákvæma skýrslu um þann húnað og tæki sem deilt er um í skrifstofu Þjoðleikhússtjóra og síðan verður sú skýrsla birt mjög fljótlega,“ sagði Haraldur Ólafsson formaður Þjoðleikhúsráðs í samtali við Mbl. í gær um segulbandið og hljóðnema i skrifstofu Þjóðleikhússtjóra, sem deilt hefur verið um að undanförnu, en aðspurður sagðist Ilaraldur telja eðlilegt að það verði athugað hvort ekki eigi að fjarlægja umræddan tækjabúnað eða eitthvað af honum. Fyrsta sýning ökuþóranna í American Helldrivers fór fram á Melavelli í gærkvöldi og tók Guðjón þessa mynd af einu sýningaratriðanna. Fyrsta kaþólska messan í Odda eft- ir siðaskiptin FYRSTA kaþólska messan eftir siðaskipti verður í kirkjunni á Odda á Rangárvöllum i dag, laugardag, en árleg safnaðar- ferð kaþólskra verður á sögu- slóðir Njálu. Að sögn Toría Ólafssonar mun messan í dag vera hin fyrsta siðan eftir siða- skipti. Um 60 manns munu taka þátt í ferðinni og átti að leggja upp frá Reykjavík kl. 8 í morgun. Ráðgert var að halda rakleiðis í Odda með stuttri viðkomu á Hellu og messa í Odda fyrir hádegi. Séra Ágúst K. Eyjólfsson í Landakoti mess- ar. Áð lokinni messunni heldur hópurinn á ýmsar söguslóðir Njálu, Begþórshvol, Hlíðarenda og fleiri staði og verður komið til Reykjavíkur undir kvöld. Torfi Ólafsson sagði þessar safnaðar- ferðir farnar á hverju ári og hefði t.d. verið nýlega farið að Hólum í Hjaltadal og Kirkjubæjar- klaustri. Sveinn Einarsson Þjóðleikhús- stjóri sagði í samtali við Mbl. í gær að þetta leiðindamál væri ekki eins alvarlegt og sumir teldu, því þessi upptökubúnaður í skrifstofu Þjóðleikhússtjóra hefði alls ekki verið misnotaður með því að taka upp tal fólks án vitundar þess. Segulbandstæki hefði verið í skrifstofu Þjóðleikhússtjóra um árabil til þess að grípa til ef þörf væri á en aldrei án vitundar fólks og reyndar hefði þetta tæki verið sáralítið notað. „Ef ég hefði haft einhverju að leyna sýnist mér ljóst að ég hefði látið fjarlægja þennan búnað áður en hafist var handa um breytingar á skrifstofu minni,“ sagði Sveinn, en hann kvaðst vonast til þess að fólk treysti því að hann hefði ekki misboðið neinum með þessu tæki. Varðandi það hvort tækið yrði þarna áfram sagði Þjóðleikhús- stjóri að þótt það ætti að vera til hagræðingar þá væri það varla þess virði ef það kostaði þau leiðindi sem orðið hafa. Nokkrir fulltrúar starfsmanna héldu í gær fund um þetta mál með fulltrúa Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og talsmanm Þjóðleikhúsráðs. Mál þetta er sprottið vegna þess að við breytingar á skrifstofu Þjóðleikhússtjóra, þegar hann var erlendis, fundust leiðslur undir teppum í skrifstofunni tengdar í segulband inni í skrifstofuskáp, hljóðnema bak við gluggatjöld og fótstigið stjórntæki fyrir segul- bandið var við skrifborðsstól. Nokkuð dró úr hækkun peningalauna á sl. ári - segir Þjóðhagsstofnun um breytingar á helztu hagstærðum EFTIR hækkun verðbóta á laun um ta’plega 6% 1. marz sl. voru kauptaxtar launþega 54% ha>rri en í marz 1980. Eftir 8,10% hækkun verðbóta á laun 1. júní eru kauptaxtar um 49% hærri en í júni á liðnu ári, þannig að nokkuð hefur drcgið Vélageymsla og tæki eyðilögðust í eldsvoða VÉLAGEYMSLA að bænum La'kjartúni í Ásahreppi í Rang- árvallasýslu brann og tæki sem þar voru geymd gereyðilögðust aðfaranótt föstudags. Eldsins varð vart um kl. 01:30 um nóttina og var vélageymslan þá alclda. Slökkvilið frá Hcllu, Hvolsvelli og Selfossi komu á vettvang og gekk slökkvistarf- ið vel. Sveinn Tyrfingsson bóndi tjáði Mbl., að auk hússins sjálfs, sem væri ekki talið mjög mikils virði, hefðu brunnið bindivél, rafsuðu- og logsuðutæki og margs konar verkfæri og áhöld er hann notar til viðgerðar- starfa. Kvaðst hann áætla fjár- hagstjónið milli 100 og 150 þúsund krónur, en verkfærin voru lágt vátryggð. Sagði hann bagalegt að geta nú ekki sinnt viðhaldi tækjanna sjálfur, tíma- frekt og dýrt gæti orðið að leita annað ef bilanir kæmu upp. Landsþing LÍV: Leiðrétting kjaramála stærsta viðfangsefnið * - segir Björn Þórhallsson, form. LIV Á ÞINGI Landssambands ís- lenskra verzlunarmanna. sem sett var í ga-rmorgun og standa mun til sunnudags. kom fram að aóalmál þingsins yrðu kjara- mál. leiðrétting launa- mismunar og trygging kaup- máttar. Morgunblaðið náði tali af Birni Þórhallssyni LÍV. og sagði hann að þingstörfin gengju með ágætum. „Helztu mái þingsins eru núm- er 1, 2 og 3 kjaramálin í víðum skilningi, það er verið að ræða mótun kröfugerðar, en hún verð- ur sennilega ekki fullmótuð á þessu þingi, heldur aðeins í megin dráttum. Þar verður lögð áherzla á það að kaupmáttur batni frá því, sem nú er og verði síðan tryggður svo að hann falli ekki sífellt niður eins og verið hefur. Þó má segja að okkur verzlun- armönnum sé nærtækast að jafna þann launamismun, sem er á milli okkar annars vegar og hins vegar ýmissra fjölmennra launþegahópa í þjóðfélaginu, sem vinna sambærileg störf, en hafa mun hærra kaup. Þar á ég við þá sem vinna hjá ríki og sveitarfélögum, hvort sem þeir eru í BHM eða BSRB og banka- mennina, en samningskjör þeirra eru miklu hagstæðari en okkar á margan hátt. Við munum einnig gefa því nokkurn gaum að kauptaxtar segja ekki alltaf hvað menn hafa fyrir sína vinnu því að afkasta- hvetjandi launakerfi, sem í flest- um greinum eru orðin talsvert algeng, eru varla til hjá okkur. Þau geta gefið mönnum allt að fjórföld laun fyrir sama vinnu- tímann. Þarna er allt of mikill munur á og einhvernveginn verður að finna leið út úr þessu. Þannig mætti hugsanlega ákveða kauptaxta okkar talsvert hærri en hjá þeim, sem þessa möguleika hafa, eða að reynt væri að koma þessu launakerfi á í okkar greinum. Við höfum alltaf haft þá skoðun að það sé ekkert kapps- mál að sækjast eftir stórum krónutöluhækkunum í kaupi, það er kaupmátturinn hverju sinni sem máli skiptir. Við þurfum auðvitað hækkanir til að ná jafnstöðunni, en að henni fenginni má beita öðrum ráðum. Eg vil einnig segja það sem skoðun mína, að ef að ná á til hinna tekjulægstu og þeirra sem raunverulega eru tekjulægstir, ekki bara metið eftir einhverjum kauptöxtum, en þá er ekki hægt að finna, nema þegar menn gefa tekjur sínar upp til skatts. Þarf að leiðrétta laun þeirra í gegn um skattakerfið og þá kemur helzt til álita verulega aukin beiting neikvæðs tekjuskatts. Það held ég að sé álitlegasti vegurinn til þess að ná til þessa fólks og bæta þess hag,“ sagði Björn Þórhallsson. úr hakkun peningalauna. Þetta segir m.a. í stuttu yíirliti Þjóðhagsstofnunar um breyt- ingar helztu hagstærða á fyrsta ársfjórðungi. Þá segir, að kaupmáttur kaup- taxta launþega miðað við vísitölu framfærslukostnaðar hafi verið um 2% minni á fyrsta ársfjórð- ungi en á sama tíma í fyrra og um 1% minni en á síðasta ársfjórð- ungi í fyrra. Sé litið á verðbreytingar á föstu gengi frá 4. ársfjórðungi 1980 til 1. ársfjórðungs 1981 hefur útflutn- ingsverð án áls hækkað um 5,4%, en innflutningsverð hins vegar um 2%. Viðskiptakjörin, séu álvið- skiptin undanskilin, hafa batnað um nærri 3,5% á þessu tímabili. Þessi bati viðskiptakjara stafar að verulegu leyti af gengisbreyting- um að undanförnu, einkum hækk- un Bandaríkjadollars gagnvart Evrópumyntum. Um 2,5% af þeim 3,5%, sem viðskiptakjör hafa batnað stafa af breytingu gengis. Breyting viðskiptkjaranna frá ársmeðaltali 1980 til 1. ársfjórð- ungs 1981 er snöggtum minni en frá 4. ársfjórðungi eða um 1%. Útflutningsverð hækkar svipað eða 5,8%, en breyting innflutn- ingsverðs er 4,8%, eða nær 3% meiri en frá 4. ársfjórðungi. Að meðtöldum viðskiptum ál- verksmiðjunnar reyndust við- skiptakjörin á 1. ársfjórðungi 1981 um 2,8% lakari en að meðaltali 1980 og 1,2% lakari en á 4. ársfjórðungi 1980. Upplýsingar um söluskattsveltu fyrsta ársfjórðung ársins eru ekki fyrir hendi, en tölur ríkisbókhalds um innheimtan söluskatt fyrstu fjóra mánuði ársins gefa vísbend- ingu um veltubreytingar, og þar kemur fram um 8% samdráttur í veltu söluskattsskyldrar vöru og þjónustu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. ■ . «, » «---- Matareitrunin á Sauðárkróki: Sjúklingarn- ir virðast vera á batavegi „ÞETTA er alvarleg og langvarandi matareitrun og annað veit maður ekki um hana.“ sagði Óskar Jónsson læknir á Sauðárkróki í samtali við Morgunhlaðið er það innti hann eftir þeirri matareitrun er tvö bórn, syst- kini. og fra-nka þeirra urðu fyrir um síðustu helgi. Sjúklingarnir voru sendir á gjörga-sludeild hér í Reykja- vík og liggja nú á harnadeild Landa kotsspítala. Óskar sagði ennfremur að þetta væri sérstök óþekkt tegund matareitrunar er hefði áhrif á mið- taugakerfið með lömun á vissum taugum. Er haidið að börnin hafi horðað það sem olli eitruninni viku áður en hún kom fram. Morgunblaðið hafði samband við Ólaf Ólafsson landlækni vegna þessa máls og sagði hann að þetta væri trúlega matareitrun sem gæti hugsan- lega verið frá pylsum. Annars hefðu sýni verið send til Atlanta í Banda- ríkjunum og er von á niðurstöðum þaðan fljótlega. „Mér er ekki kunnugt um eitrun líka þessari en hún getur verið mjög hættuleg. Það var gerð rannsókn á mataræði krakkanna og erum við að vinna úr henni. Sjóklingarnir virðast vera á batavegi," sagði Ólafur að lokum. Spánarveikin: Matarolía talin orsakavaldurinn NÚ ER talið nokkuð öruggt að komizt hafi verið að orsök „Spán- arveikinnar“ svokölluðu. Talið er að ólögleg sala matarolíu hafi valdið henni, en á Spáni er óleyfilegt að selja slíka olíu nema á lokuðum flöskum. Að sögn landlæknis, Ólafs Ólafssonar, hefur honum borizt skeyti frá Alþjóða heilbrigðis- stofnuninni og segir þar, að tölfræðilegt samband sé á milli sölu á ólöglegri matarolíu og sjúkdómstilfella af Spánarveik- inni, þó sé orsakavaldurinn, eða hinn eiginlegi sýkill, enn ófund- inn. Sagði þar, að ef sjúkdómstil- fellum fækkaði nú eftir að sala olíunnar hefði verið stöðvuð, teld- ist það sanna, að hún hefði valdið veikinni, en fyrr ekki. Landlæknir sagðist fagna því, að nú virtist vera ljóst hvað veikinni hefði valdið og sagði, að þar með féllu úr gildi ráðleggingar þær, sem gefnar hefðu verið út til ferðalanga hér á landi i samráði við lungna- og farsóttasérfræð- inga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.