Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981 Sjómannadagurinn DÓMKIRKJAN: Kl. 11 sjómanna- dagsmessa. Sr. Ólafur Skúlason dómprófastur predikar. Sr. Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friöriksson. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guös- þjónusta í safnaðarheimili Ár- bæjarsóknar kl. 11 árd. Sr. Guömundur Þorsteinsson. ÁSPREST AK ALL: Messa aö Norðurbrún 1 kl. 11. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIOHOLTSPREST AK ALL: Messa kl. 11 árd. í Breiöholts- skóla. Sr. Lárus Halldórsson. BÚSTADAKIRKJA: Guösþjón- usta kl. 11. Sr. Hreinn Hjartarson messar. Sóknarnefndin. ELLIHEIMILIÐ Grund: Messa kl. 10. Sr. Þorsteinn Björnsson messar. FELLA- og HÓLAPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Bústaöakirkju kl. 11. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Guösþjón- usta kl. 11. örn Báröur Jónsson djákni predikar. Organisti Jón G. Þórarinsson. Almenn samkoma nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriójudagur 16. júní: Bænaguös- þjónusta kl. 10.30. Beöiö fyrir sjúkum. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárus- son. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organleikari Ulf Prunner. Sr. Tómas Sveinsson. KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjón- GUÐSPJALL DAGSINS: Jóh. 3.: Kristur og Nikodemus usta kl. 11. Sr. Þorbergur Krist- jánsson. LANGHOLTSKIRKJA: guösþjón- usta kl. 11. Athugiö breyttan messutíma. Sjómannafjölskyldur og íbúar viö Gnoöarvog, Glaö- heima og Hlunnavog heiöurs- gestir okkar aö þessu sinni. Organleikari Kristín Ögmunds- dóttir. Prestur sr. Sig. Haukur Guöjónsson. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Messa fellur niöur vegna skemmtiferöar safnaöarins um Borgarfjörö. Lagt veröur af staö frá kirkjunni kl. 9.30 árd. Fjölmennum. Þriðju- dagur 16. júní: Bænaguösþjón- usta kl. 18. Sóknarþrestur. NESKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guömundur Óskar Ólafsson. SELJASÓKN: Guðsþjónusta í Ölduselsskóla kl. 11. Sr. Valgeir Ástráösson. FRÍKIRKJAN f Reykjavík: Messa kl. 2. Organleikari Siguröur ís- ólfsson. Prestur sr. Kristján Rób- ertsson. FÍLADELFÍUKIRKJAN: Almenn guösþjónusta kl. 20. Barnabless- un. Ræðumaöur Jóhann Páls- son. Fórn tekin fyrir innanlands- trúboö. DÓMKIRKJA Krists konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síöd. Alla rúm- helga daga er lágmessa kl. 6 síöd., nema á laugardögum, þá kl. 2 síöd. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11 árd. HJÁLPRÆOISHERINN: Útisam- koma á Lækjartorgi kl. 16. Bæn kl. 20 og hjálpræöissamkoma kl. 20.30. Ofursti Alf og Solveig Ajer tala og syngja. FÆREYSKA sjómannaheimilið: Samkoma kl. 17. KAPELLA St. Jósefssystra í Garóabæ: Hámessa kl. 2 síöd. VÍÐISTADASÓKN: Guösþjón- usta kl. 11 árd. Sr. Siguröur H. Guömundsson. KAPELLAN St. Jósefsspítala Hafnarf.: Messa kl. 10 árd. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30 árd. Rúmhelga daga messa kl. 8 árd. KEFLAVÍKUR- og NJARÐVÍK- URPREST AKÖLL: Sjómanna- messa í Keflavíkurkirkju kl. 11 árd. Sr. Ólafur Oddur Jónsson. GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 11 árd. Sóknarprestur. SANDGERÐI: Sjómannamessa kl. 11 árd. Sóknarprestur. ÚTSKÁLAKIRKJA: Sjómanna- guösþjónusta kl. 13.30. Sóknar- prestur. AKRANESKIRKJA: Sjómanna- guösþjónusta kl. 10.30 árd. Aldr- aöir sjómenn heiöraöir. Drukkn- aöra sjómanna minnst. Sr. Björn Jónsson. Jakobína Guðmunds- dóttir kosin formaður HeimilisiðnaðarfélaK ís- lands hclt aðalfund 28. april sl. að Kjarvalsstöðum. Starfsemi félagsins er aðal- lega fólgin í því að gefa út ársritið „Hugur og hönd“ sem kom nú út í 15. sinni á árinu 1980. í ritinu eru birtar greinar og uppskriftir ýmisskonar. Skóli á vegum félagsins er að Laufásvegi 2, en í honum eru bæði styttri og lengri námskeið í ýmsum handmenntagreinum. Verzlunin íslenskur heimilis- iðnaður er nú rekinn á tveimur stöðum í Reykjavík og á hún 30 ára afmæli í haust. Félagið tók þátt í norrænu heimilisiðnaðar- þingi sem haidið var í Tromsö 1.—3. júlí árið 1980. Kosið var í stjórn á fundinum en Stefán Jónsson arkitekt sem hefur verið formaður síðan 1968 lét af formennsku. Einnig gengu úr stjórn Soffía Þórar- insdóttir og Sigríður Gísladótt- ir. Nýkosinn formaður er Jakobína Guðmundsdóttir. Pottarím Umsjón: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR Nú blómstrar grilláhugi, ef marka má matardálka blað- anna, enda er nú sá árstími, sem býður upp á útimatreiðslu Og þeir sem ekki elda úti, vilja kannski líka gjarnan borða léttan og sumarlegan mat og þá er glóðarsteikt kjöt tilvalið. Það þarf ekki endilega að fara út fyrir bæjarmörkin til að glóðarsteikja. Garðar og svalir eru kjörnir staðir, og það þarf ekki mikið pláss til að athafna sig. Gryfja, full af kolum, og grind er allt sem þarf. Síðan er auðvitað hægt að kaupa sérstök grill, ef vill. Það er ákjósanlegast að grind- in sé úr pottjárni, en slíkt er ekki jafn auðvelt að ná í og veigaminni grindur. Pottjárnið þykir betra vegna þess að það hitnar vel, þannig að kjötið stiknar um leið og það kemur á heita grindina. En þetta er nú kannski ekki aðalatriðið, held- ur að skemmta sér við mat- reiðsluna, og njóta hennar til hins ýtrasta. Þegar þið hyggist hefjast handa, munið þá að kolin eiga að vera án loga og hvítglóandi, áður en þið byrjið að steikja, og að það á að hita grindina áður en kjötið er sett á hana. Það er bezt að kjötið sé ekki feitt, því þá brennur fitan, og glóðarsteikt kjöt á alls ekki að vera brennt fremur en annað kjöt. Innmatur hentar t.d. mjög vel til að glóðarsteikja, enda bæði meyr ög magur. Það tíðkast víða að leggja kjöt í kryddlög, áður en það er steikt, bæði til að meyra það og eins til að gefa því gott bragð. Víða um Evrópu er olía og svo eitthvað súrt, t.d. edik, sítr- ónusafi eða vín, aðaluppistað- an. Eftir að Norðanmenn fóru að streyma til sólarlanda, og kynntust m.a. matnum þar- lendis, hefur hvers kyns krydd- legið kjöt verið afar vinsæll matur, eins og glöggt má sjá í matarblöðum og -dálkum, og svo í veitingahúsum og búðum, þar sem er boðið upp á krydd- legið kjöt. Útgáfurnar eru margar, og ekki allar jafn glæsilegar eða hollustusamleg- ar. Ef litið er í austurátt, í Indlandsátt, þá kemur í ljós að Indverjar hafa svolítið annan hátt á. Þeir nota t.d. jógúrt í kryddlög. Uppskriftir að slík- um lögum hafa fylgt nú í kjölfar hreinu jógúrtarinnar. En þeir hafa líka enn aðra aðferð, enda margslungnir í matargerðinni. Hún er sú að búa til nokkurs konar krydd- mauk, smyrja á kjötið og láta það þorna inn í kjötið. Síðan er kjötið glóðarsteikt ásamt kryddinu, og e.t.v. penslað með smjöri eða olíu á meðan. Það er þessi aðferð sem ég ætla að Kjöt í kryddlegi viðhafa í dag. Hún hefur ýmsa kosti. Þegar kjöt er glóðar- steikt, þarf það að vera sæmi- lega þurrt, til að stikna vel. Það þarf því oftast að strjúka kryddlöginn af. Þess þarf ekki hér, því kjötið þornar í krydd- maukinu. Með kjötinu hér á eftir er tilvalið að bera fram gott salat. Ég mæli eindregið með að þið saxið niður tómata, gúrkur og e.t.v. grænt salat, allt fremur smátt, piprið e.t.v. og bætið í fínsöxuðum lauk og berið þannig fram. Það er engin ástæða til að vera alltaf með salatsósur, grænmetið er býsna gott eins og það kemur fyrir. Já, og gott brauð ... Finnst ykkur það ekki tilvalið meðlæti? Þettá tvennt fer býsna vel með kjötinu og allir ættu að geta orðið saddir og sæiir ... Góða skemmtun! Kjöt í kryddlegi á indverska vísu I (Handa fjórum) Uppskriftirnar eru ekki síð- ur hugsaðar sem ábendingar. Þið farið svo ykkar eigin leiðir í kryddvalinu. Ef þið kjósið að nota ekki jógúrt, þá er sítrónu- safi góður í staðinn, en einnig matarolía. Meginatriðið er að búa til fremur þykkt mauk, til að smyrja á kjötið. Indverjar stinga í kjötið til að það dragi betur í sig kryddið, en ég er hálf feimin við það, því mér finnst það þá fremur þorna upp. Síðan er það þrætt upp á teina og steikt yfir vel heitum glóðum eins og áður er nefnt. Þið gætið að snúa því, svo ekkert brenni og steikja það ekki of lengi, svo það þorni ekki. Ef þið notið ekki grill, hvort sem það nú er útigrill eða ofn, getið þið steikt kjötið í ofurlít- illi feiti á pönnu. Það skiptir ekki höfuðmáli,- hvaða kjöt þið notið, þið takið það sem ykkur lízt bezt. En meyrt og magurt þarf það að vera, eins og áður er nefnt. Lambakjöt, t.d. lundir, nauta- kjöt, svínakjöt, kjúklingar og kálfakjöt, allt kemur þetta vel til greina. Og ekki má gleyma folaldakjöti, sem er prýðis gott, ef það er folaldakjöt, en ekki af einhverjum jálki. En þá er það uppskriftin ... 800 gr beinlaust kjöt eða um 1 kg með beinum í 1 tsk. anísfræ 1 tsk. kanell 2 msk. graslaukur 2 negulnaglar 1—2 hvítlauksrif 3 msk. jógúrt nýmalaður pipar nokkrar msk. bráðið smjör eða olía 1. Skerið kjötið í hæfilega bita. 2. Steytið anísfræin og neg- ulnaglana. Merjið hvítlaukinn, saxið graslaukinn smátt. Blandið kryddinu saman við jógúrtina. Þetta á að verða þykkt mauk. Ef það er full þurrt, bætið þá svolítilli jógúrt saman við. Makið þessu nú á kjötið og látið það liggja í a.m.k. 3—4 klst. en gjarnan lengur. Það er óþarfi að setja kjötið í kæliskáp, þó það bíði í allt að 6 klst., en kjötið á þó ekki að liggja í sól eða hita. 3. Þræðið kjötið á teina. Einhvern tíma hefði slíkur teinn verið kallaður sneis. Það fást víða hentugir trépinnar, mjög skemmtilegir. Smyrjið þá með olíu, áður en þið setjið kjötið á þá. Og svo steikið þið það, eins og áður var nefnt. Notið smjör/olíu til að pensla kjötið með, en það á ekki að vera löðrandi. Kjöt í kryddlegi á indverska vísu II (Handa fjórum) Þið notið jafn mikið kjöt og áður er nefnt, en hér er önnur uppástunga um lög: Vk tsk. nýrifið múskat 2 hvítlauksrif 1 tsk. engifer, nýrifið eða duft 3 msk. fínsöxuð steinselja 3 msk. rifnar/fínsaxaðar möndlur/heslihnetur nýmalaður pipar 3 msk. sitrónusafi 1. Merjið hvitlaukinn. Blandið öllu saman. Ef þetta er of þurrt, bætið þá svolitlu af sítrónusafa saman við. Farið að eins og lýst er hér að ofan. í staðinn fyrir sítrónusafa er einnig tilvalið að nota app- elsínusafa, eða jafnvel greip- safa. Bragðið verður þá óvenjulegt en gott... í staÖ úðunar á garða Um daginn nefndi ég að það er gamalt húsráð í Evrópu að nota hvítlauk gegn alls kyns meindýrum, og benti á þetta í staðinn fyrir eiturausturinn. Það má bæta við að það er einnig húsráð að setja appel- sínubörk í matjurtabeð. Remman úr honum fælir maðkinn. Fáið ykkur nú app- elsínu að borða og setjið börk- inn meðal matjurtanna. Auk þess ku vera heillaráð að þvo trén vel, þ.e. sprauta á þau vatni úr garðslöngunni. Byrjið strax á þessu áður en ófögnuð- urinn hefur náð fótfestu og haldið áfram í allt sumar V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.