Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981
33
Gjálp fyrrverandi methafi í þeirri
vegalengd en Don núverandi met-
hafi. í þriðja sæti varð svo Skelf-
ir-Ægir á 27,1 sek. Eigandi hans
er Hans Einarsson en knapi var
Hrafnkell Guðmundsson.
óvænt úrslit í
unghrossahlaupi
í unghrossahlaupi voru mætt til
leiks tvö kunn hlaupahross sem
stóðu framarlega í eldlínunni í
fyrra, þau Lýsingur og Litbrá, og
var talið að þau myndu berjast um
fyrsta sætið. En það fór á annan
veg, því ungur og óreyndur foli
sem hljóp þarna í fyrsta skipti á
kappreiðum stal frá þeim senunni.
Þessi foli heitir Mansi og hljóp
hann vegalengdina á 18,9 sek.
Eigandi Mansa er Sigurjón Úlfar
Guðmundsson, en nafn knapa
vantaði í skrána. I öðru sæti varð
svo Lýsingur á 19,0 sek. Eigandi
hans er Fjóla Runólfsdóttir, en
knapi var Steingrímur Ellertsson.
í þriðja sæti varð svo Litbrá
Ólafar Guðbrandsdóttur á 19,4
sek., knapi á Litbrá var Hinrik
Bragason.
í 250 m skeiði sigraði Skjóni
nokkuð örugglega á mjög góðum
tíma við slæmar aðstæður. Tími
hans var 22,9 sek. og má mikið
vera ef hann á ekki eftir að höggva
nærri metinu sem hann á sjálfur
og er 21,6 sek. Eigandi Skjóna er
Helgi Valmundsson, en knapi var
Aðalsteinn Aðalsteinsson. I öðru
sæti varð Villingur Harðar G.
Albertssonar á 23,3 sek. Knapi á
Villing var Trausti Þór Guð-
mundsson. í þriðja sæti varð Þór á
23,6 sek. Eigandi hans er Þorgeir
Jónsson í Gufunesi, en knapi var
Sigurður Sæmundsson.
I 150 m skeiði náði bestum tíma
Börkur Ragnars Tómassonar á
15,2 sek. Knapi var Tómas Ragn-
arsson. Annar varð Vafi, eigandi
og knapi Erling Sigurðsson, á 15,4
sek. í þriðja sæti varð svo „brokk-
arinn mikli“, Fengur, á 15,8 sek.
Ekki verður annað séð en menn
séu ánægðir með frjálsa þátttöku í
150 m skeiðinu, enda hefur komið í
ljós að sumir hestar eiga ekkert
erindi í 250 m skeið, sama hversu
oft þeir eru reyndir á þeirri
vegalengd. Aftur á móti geta
þessir sömu hestar náð ágætum
árangri á 150 m sprettfæri.
Greinilegt er að skeiðið á mest-
um vinsældum að fagna meðal
áhorfenda, og kom það hvað
gleggst í ljós þegar keppni hófst í
skeiðinu. Þá var grenjandi rigning
og farið að fækka verulega á
áhorfendastæðunum, en þegar
vekringarnir voru teymdir fram
fyrir dómpall og kynntir flykktist
fólk á ný í áhorfendastæðin og lét
sig hafa það að standa úti í
rigningu og kuldanepju, frekar en
að missa af skeiðinu.
I heild sinni má segja að þetta
hafi verið nokkuð gott mót. Er það
einkum tvennt sem því veldur,
annarsvegar eru það vel sýndir og
jafnir hestar að gæðum í góð-
hestakeppni og hinsvegar mjög
góður árangur í 800 m stökki og
brokki og 250 m skeiði. Tímasetn-
ingar fóru lítillega úr skorðum en
þó tókst að vinna þann tíma upp
sem tapaðist með harðfylgi og
dugnaði starfsmanna mótsins.
Einn áhorfenda kom'í dómpall og
kvartaði undan lélegu upplýs-
ingastreymi frá dómpalli og var
kannski ekki vanþörf á því, en
ekki hefði sá óánægði skaðað
málstað sinn þótt hann hefði
sparað raddstyrkinn örlítið meira
en hann gerði. Sérstök ástæða er
til að minnast á þul mótsins, en
hann var greinilega ekki rétti
maðurinn til að standa í slíku.
Nauðsynlegt er að þulur þekki
eitthvað til þeirra hrossa er keppa
og ekki síst ef starfandi er veð-
banki eins og þarna var. Það er
hálf hjákátlegt þegar annar hver
hestur á hlaupabrautinni er orð-
inn efnilegur og þá að hinir sem
eftir eru lofi góðu.
VK
Blekiðjufólk
Sölumaður Unitor, Per Torbjörnsen. tekur nokkur sundtök i
Reykjavíkurhöfn. klæddur björgunarbúningnum.
Fríðrik Á. Jónsson:
Ný tegund björg-
unarbúninga kynnt
Ritstjórn og lesendur!
Eftirfarandi úrsögn mína úr
Rithöfundasambandi íslands
sendi ég stjórninni nýverið:
Eg undirrituð segi mig hér með
úr söfnuði þeim er nefnist Rithöf-
undasamband Islands. Um leið
geri ég þá kröfu, að gjald af
bókum mínum í söfnum landsins
verði ekki framar notað til að fita
ákveðinn hóp innan sambandsins!
Nánari skýringar koma hér:
Mér er lífsins ómögulegt, sem
hver önnur erfiðismanneskja í
þessu þjóðfélagi, að styðja þá
Guðrún Jacobsen
Fjölbrautaskólanum á
Akranesi var slitið laugar-
daginn 23. maí 1981 og lauk
þar með f jórða starfsári skól-
ans. Á skólaárinu braut-
skráðust 96 nemendur frá
skólanum, af heilbrigðissviði
2, listasviði 1, samfélagssviði
10, tæknisviði 41, viðskipta-
sviði 29 og af raungreinasviði
13 nemendur. Þar af luku 30
nemendur stúdentsprófi.
Ólafur Ásgeirsson skóla-
meistari flutti ræðu. í janúar
tók öldungadeild til starfa og
voru nemendur í henni á
sjöunda hundrað. Húsnæð-
isskortur hefur hrjáð skólann
og er þörfin mest fyrir heima-
vistarrými en nú sækja skól-
ann um 100 utanbæjarnem-
endur.
Á vorönn hófst í skólanum
kennsla í tölvufræði og forrit-
un og mun tölvufræði verða
skyldugrein í skólanum næsta
vetur.
Við skólaslitaathöfnina lék
Björn Steinar Sólbergsson
nýstúdent píanósónötu eftir
Mozart og söng kór skólans
undir stjórn Jensínu Waage.
Benjamín Jósefsson nýstúdent
flutti ávarp.
Viðurkenningu fyrir bestan
námsárangur hlaut Þorbjörg
Skúladóttir nemandi á samfél-
agssviði, verðlaun úr sjóði
Elínar írisar Jónasdóttur
hlaut Elín Árnadóttir á sam-
félagssviði en Björn Steinar
Sólbergsson fékk viðurkenn-
ingu fyrir kunnáttu í tónlist-
argreinum og Víðir Bragason
fyrir ágæta frammistöðu í
stærðfræði. Viðurkenningu
Trésmiðafélags Akraness
hlaut Ingibjörg Reynisdóttir,
stjórn, sem ár eftir ár hefur hönd
í bagga með að veita fé og
ferða'styrki í sömu lúkur innan
sambandsins, meðan aðrir fá
aldrei neitt nema gíróreikning
uppá óheyrilegt félagsgjald.
(Núna 500 nýkr.)
Ég er líka ófær um að styðja
„hugsjónafélag", sem aldrei kjapt-
ar á sínum fundum um annað en
peninga eða kröfur um meiri
peninga, meðan gamalt fólk, rún-
um rist af mótlæti lífsins, er að
burðast við að sjá sér farborða
með því að bera út dagblöð í
Reykjavík!
Ég er líka búin að missa alla
respekt fyrir þeirri stjórn sem
sigtar inn nýja félagsmeðlimi eftir
einhverjum þeim prívathvötum,
sem ég hef aldrei hleypt inn í mitt
sálarlíf. — Ég tek aðeins tvö
nýjustu dæmin:
María Skagan og Jón Birgir
Pétursson, sem fengu ekki inn-
göngu í sambandið meðan allra-
handa tötralýður, sem aldrei hef-
ur gefið út mannbæra bók, fleytir
rjómann af vinnu annarra við
styrkúthlutun á fyrsta félagsári!
Ef þetta er ekki einn af lög-
vernduðu þjófnuðunum á íslandi,
veit ég ekki hvað það er að steia!
Og ég get ekki lengur virt þá
sömu rithöfunda, með unga og
heilbrigða fætur, sem alla daga
taka við öllum þessum fimmþús-
undköllum án þess að kunna að
skammast sin!
3. júní 1981,
Guðrún Jacobsen,
matráöskona.
Helgi Helgason hlaut svo við-
urkenningu frá Félagi ís-
lenskra rafvirkja.
Jón P. Björnsson hlaut við-
urkenningu fyrir elju sína í
leiklist og félagsmálum.
KKÍIsstaAir.
TÓNKÓR Fljótsdalshéraðs átti
10 ára afmæli i vor. Kórinn hefur
haldið nokkra tónleika á Egils-
stöðum og viðar i tilefni afmælis-
ins, m.a. kom kórinn fram þegar
fyrstu stúdentarnir voru útskrif-
aðir frá Menntaskólanum á Eg-
ilsstöðum i sl. mánuði.
Nú í júni hélt kórinn í söngferð
FRIÐRIK A. Jónsson heíur haf-
ið sölu á nýrri tegund björgun-
arhúninga, sem ekki heíur áður
sést hérlendis en verður brátt
lögleidd i öll skip i Noregi.
Búningur þessi er af gerðinni
Unitor og er framleiddur i
Kanada. Hér á landi er nú
staddur sölumaður frá Noregi
og sýndi hann hvernig búning-
urinn er notaður að viðstöddum
blaðamönnum í Reykjavikur-
höfn.
Búningurinn er gerður úr
gúmmíefni, neoprene, og er með
lokuðum hólfum þannig að hann
flýtur í sjó. Hólfin gegna jafn-
framt einangrunarhlutverki og
búningurinn tapar ekki eiginleik-
um sínum þótt hann rifni. Líflík-
til Danmerkur og Noregs og hófst
ferðin með tónleikum í Bústaða-
kirkju á annan í hvítasunnu.
Kórinn mun halda tvenna tón-
leika í Danmörku: í Grundvigs-
kirken í Kaupmannahöfn og í
Sorö-kirkju. Að því búnu heldur
kórinn til Noregs og tekur þátt í
vinabæjamóti á Eiðsvöllum, en
Eiðsvellir er vinabær Egilsstaða.
ur manns, sem klæðst hefur
þessum búningi eru að meðaltali
13 klst. í 0°C heitum sjó en þær
aukast mjög ef sjór er heitari.
Búningurinn er 5 millimetra
þykkur og þolir allt að 800 gráða
hita og þolir eld að því marki að
það slokknar í honum um leið og
logarnir hætta að leika um hann.
Á olíuborpöllum í Noregi er
skylda að klæðast búningi með
þessa eiginleika við ákveðin störf,
en búningurinn þolir olíu mjög
vel, að sögn framleiðenda.
Sölumaður Unitor tók nokkur
sundtök fyrir blaðamenn í höfn-
inni. Við góðar aðstæður tekur
aðeins um hálfa mínútu að klæð-
ast slíkum búningi og fötin sem
viðkomandi klæðist innanundir
blotna ekki.
A efnisskrá kórsins verða verk
eftir Bach, Þorkel Sigurbjörnsson,
Sigursvein D. Kristinsson, Jón
Ásgeirsson, Inga T. Lárusson og
fleiri.
Einsöngvari með kórnum er
Laufey Egilsdóttir, en stjórnandi
er Magnús Magnússon. Kórfélagar
eru 40, en alls verða í ferðinni 70
manns. J.D.J.
Tölvufræði gerð
að skyldugrein
Tónkór Fljótsdalshéraðs
í söngför til Norðurlanda