Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981 17 ítalir eru sérfræöingar í matargerð og þaö eru þeir einnig í eldhúsum og eldhúsinnréttingum. Höfum tekiö upp mikiö úrval af eldhúsinnréttingum. KOMIÐ, SJÁIÐ OG SANNFÆRIST Opiö kl. 10—12. húsgögn, Langholtsvegi 111, Reykjavík símar 37010 — 37144. Fílabeinstum yfirvaldsins eftir dr. Matthías Jónasson Vegna samþykktar fræðsluráðs Reykjavíkur 1. þ.m. að leggja niður núverandi starfsemi með- ferðarheimilisins að Kleifarvegi 15 og taka húsakynni og aðrar eignir þess til annarra nota, finn eg mig knúinn að benda á nokkra annmarka þessarar ákvörðunar. Til þess er nauðsynlegt að víkja með nokkrum orðum að stofnun meðferðarheimilisins. Eg átti frumkvæði að stofnun Barna- verndarfélags Reykjavíkur og veitti því forstöðu í 25 ár. Mark- mið þessa áhugamannafélags var að glæða skilning almennings og stjórnvalda á uppeldiskjörum þeirra barna, sem lenda vegna andlegs vanþroska eða líkamsfötl- unar i sérstöðu og eiga aðeins að nokkru leyti og með sérstakri meðferð og tilhögun samleið með alheilbrigðum börnum í námi. Til liðs við Barnaverndarfélagið sner- ust margar ágætar konur og karlar, sem gerðu málstað þess að sínum. Þannig varð unnt að flytja mikinn fjölda fyrirlestra víðs veg- ar um landið um nauðsyn þess að veita börnum, sem skera sig út með andlega, geðræna eða líkam- lega fötlun, uppeldi við þeirra hæfi, svo að þau mættu verða nýtir þjóðfélagsþegnar. Mér sæm- ir ekki að fjölyrða um árangur þessa starfs, en þó töldum við að á mörgum sviðum snerust málin til réttrar áttar. Utan við það stóð þó sá hópur barna, sem þjáist af þeim kvilla, sem við köllum taugaveiklum — neurosis á fræðilegu máli. Þau börn eru mestir smælingjar meðal hinna smáu, því að hvorki þau sjálf né foreldrar þeirra geta gert sér grein fyrir, hvað að þeim amar. Þau verða sífellt til vand- ræða, oftast bæði á heimili sínu og í skólanum, og vegna vanþekk- ingar er taugaveikluðu barni lang- oftast gefin sök á þess eigin vandræðum og þannig enn aukið á örðugleika þess. Til þess að vísa leið út úr þessu öngþveiti stofnaði Barnaverndar- félagið Heimilissjóð taugaveikl- aðra barna í þeirri von að unnt yrði að koma upp meðferðar- og endurhæfingarheimili fyrir börn, sem vegna alvarlegrar taugaveikl- unar þörfnuðust sérfræðilegrar meðferðar um lengri eða skemmri tíma. Við unnum árum saman að söfnun í þennan sjóð og nutum stuðnings fjölmargra velviljaðra manna. Þegar Hvíta bandið, sem um áratuga skeið hefir gegnt leiðandi hlutverki i líknarmálum tók höndum saman við stjórn Heimilissjóðs, buðum við sameig- inlega borgarstjórn Reykjavikur fjárframlög til að stofna meðferð- arheimili fyrir taugaveikluð börn. Þáverandi borgarstjóri, Birgir Is- leifur Gunnarsson, mætti viðleitni okkar með velviljuðum skilningi. Þannig varð Kleifarvegsheimilið til og borgin tók að sér rekstur þess. Stjórn Heimilissjóðs tauga- veiklaðra barna og stjórn Hvíta bandsins stigu þetta skref í þeirri trú, að borgin myndi hlúa vel að þessu litla meðferðarheimili, sem átti að bæta úr brýnni þörf hennar eigin skólabarna. Sjálfur Dr. Matthias Jónasson vonaðist eg til að starfsemi þess myndi leiða til stofnunar fleiri slíkra heimila, sem gætu þá notið sameiginlega aðstoðar klíniskt sérmenntaðra sálfræðinga. Eg hef reynslu af því í eigin starfi, að meðal taugaveiklaðra barna finn- ast einstaklingar gæddir frábær- um gáfum, og að oft þarf lítið til að losa þau við kvilla sinn. Mér kom því sízt til hugar og varla nokkrum öðrum heldur, að Reykjavikurborg myndi kippa að sér hendinni, vitandi um mikinn fjölda taugaveiklaðra barna og þá erfiðleika, sem þau búa við og valda í skólum. I yfirgripsmikilli rannsókn, sem Sigurjón Björnsson og samstarfsmenn hans gerðu á reykvískum skólabörnum kemur í Ijós, að nálægt fimmta hvert skólabarn sýnir einkenni alvar- legrar taugaveiklunar. Um það kemst Sigurjón m.a. svo að orði í bók sinni Börn i Reykjavik. Rannsúknarniðurstöður: „Slæm geðheilsa er alltið hjá börnum í þessu úrtaki. 18,6% eða tæplega fimmta hvert barn er talið vera við svo slæma geðheilsu, að þörf er talin á meðferð" (154). Það hlýtur því að vekja almenna undrun borgarbúa, að fræðsluráð sam- þykkir með naumum meirihluta að leggja niður meðferðarheimilið við Kleifarveg fyrr en búið væri að minnsta kosti að tryggja tauga- veikluðum börnum sambærilega aðstöðu í annarri stofnun til að njóta nauðsynlegrar meðferðar og endurhæfingar. Áður en til hinnar fljótfærnislegu samþykktar kom, höfðu forstöðumenn sálfræði- deilda skólanna bent fræðsluráði á þar að lútandi skyldu samkvæmt lögum. Rétt er að minna á það, að mannúðarfélög hafa margsinnis stutt sjúkrahús og aðrar slíkar stofnanir með því að gefa dýr tæki eða bæta úr annarri vöntun. Tel eg að slíkur stuðningur geti orðið til „Þau börn eru mestir smælingjar meðal hinna smáu, því að hvorki þau sjálf né foreldrar þeirra geta gert sér grein fyrir, hvað að þeim amar mikilla hagsbóta. Forsenda þess er þó, að gjöfin sé þegin af jafn heilum hug og hún er í té látin og hagnýtt í því skyni sem til var ætlazt. Þegar það bregzt, er hætt við að einstaklingsframtakið dragi sig til baka. Að því er hlutdeild Heimilis- sjóðs taugaveiklaðra barna varð- ar, þá er ráðstöfun fjár hans bundin af ákvæðum skipulags- skrár sjóðsins. Samkvæmt henni er óhefmilt að verja fé hans til annarra þarfa en faglegrar með- ferðar og endurhæfingar tauga- veiklaðra barna. Eg leyfi mér að vænta þess að borgarstjórn Reykjavíkur taki framangreinda samþykkt fræðslu- ráðs til rækilegrar endurskoðun- Hestamenn - Bændur Nokkrir þægir og góögengir hestar óskast til leigu í sumar til feröalaga. Góöri meöferö heitiö. Uppl. í síma 54079 um helgina og eftir kl. 19 næstu daga. Italskt andrúmsloft f eldhúsinu Dregið 17. júní í, happdrætti SVFÍ „VIÐ ÞÖRFNUMST þín, þú okkar,“ eru einkunnarorð hinna fjölmörgu félaga úr siysavarna- deildum og björgunarsveitum, sem þessa dagana eru að hefja lokaátakið i sölu happdrættis- miða Slysavarnafélags íslands. Síðasti söludagur er 17. júni og þá um kvöldið verður dregið í happdrættinu. Drætti verður ekki frestað. Vinningar eru tíu talsins, að verðmæti 135 þúsund krónur, skattfrjálsir. Aðalvinningurinn er bifreið af gerðinni Mitsubishi Gal- ant 2000 GLX árgerð 1981. Þá er land undir sumarbústað í Hafnar- landi við Svalvoga í Dýrafirði, 1 hektari ásamt uppsátri fyrir smá- báta, en þaðan er stutt að sækja á fengsæl mið og gott berjaland er í nágrenninu. Loks eru átta DBS-reiðhjól, 10 gíra með full- komnum öryggisbúnaði. Miðar fást hjá slysavarna- deildum og björgunarsveitum um allt land, auk þess sem þeir eru seldir í happdrættisbifreiðinni, sem nú er til sýnis í Austurstræti. Happdrættismiðar SVFÍ eru fjór- blöðungar og að þessu sinni geym- ir opna miðanna 10 heilræði í máli og myndum um varúð við ár og vötn. Kálf ur get- inn í til- raunaglasi Kennct Square. Pennsyl vaniu. II. júnl. AP. FYRSTI „glasakálfur" heims hefur verið getinn í dýrafræði- skóla háskólans i Pennsylvaniu. Kálfinum heilsast vel og hann er eðlilegur í alla staði. Þar með er talið að tímamót hafi orðið í húsdýrarækt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.