Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981 11 ókunnir eru vindarnir í augum þínum. 2 Ain bláir upp í augum þínum. 3 Senn kemur svartur bakki með él tveggja bakka veður og þú kveður augu þín. Tveggja bakka veður, þeas. tvísýnt veður, er grunntónn í bók Matthíasar. Þessi vissa um að allt getur gerst er ekki eins háð samtímaefnum og löngum fyrr, heldur er hún persónulegri, sár- ari. Einstaklingurinn viil vera hraustur og er það yfirleitt, en hvernig getur hann verið það ailtaf. Eins og segir í Höldumst í hendur eru allir dánir í draumi og um leið lifandi: „í draumi hittum við vini okkar/ og þeir hitta okkur í draumi." Óttinn við dauðann er ekki einungis skelfi- legur heldur getur iíka leitt til jafnvægis. Við eigum það öll sameiginlegt að deyja. Það getur satt að segja verið dapurlegt fyrir okkur þegar enginn kemur í heimsókn, ekki einu sinni dauðinn eins og hjá gömlu kon- unni sem Matthías yrkir um. Kannski skiptir mestu máli, að hafa rúmgott hjarta og barna- lega sál eins og trúarskáldið séra Matthías í ljóðinu um hann. Ef til vill munum við meta Tveggja bakka veður fyrst og fremst sem mannlegan vitnis- burð. Þegar að slíku mati kemur er Matthías Johannessen síður en svo einn á báti. En það er umhugsunarvert að eftir því sem listrænn þróttur skáldsins vex verður rödd þess nærtækari og höfðar beint til iesandans. Tilfinning og list eiga alltaf samleið. Bæklingur um áfengismál „Átak gegn áfengi" hefur gefið út bækling sem nefnist Hanastél. „Átak gegn áfengi" er samstarf yfir 30 aðila sem hafa það að markmiði að breyta viðhorfum til áfengis- neyslu svo að heildarneysla minnki og dragi úr tjóni af völdum áfengisneyslu. I bækl- ingnum er að finna ýmsar upplýsingar um það sem hlýst af völdum áfengisneyslu hér á landi sem annars staðar og hvað hver einstaklingur getur gert til að draga úr áfengis- neyslu þjóðarinnar. Loks er þar að finna ýmsar uppskriftir að óáfengum drykkjum. Áfengisvarnarráð sá um gerð textans en Jóhannes Berg- sveinsson læknir hannaði hann og gaf ráð. Hanastöli „Minn stíll að taka stökk u — Hver ert þú, Kristján Jóhannsson, sem byrjar á þvi að móðga fjölda manns með þvi að lýsa þvi yfir i blaðaviðtali að þú sért svo upptekinn á óperu- sviðinu erlendis, að þú getir þess vegna ekki sungið i fyrstu sýningum Þjóðleikhússins á La Bohéme — annar tenór verði að taka við hiutverkinu i þinn stað? Svo kemurðu eftir nokkr- ar vikur og gerir stormandi lukku á tónleikum hjá Tón- listarfélaginu. þannig að hvorki tónleikagestir né gagn- rýnendur eiga nógu sterk orð til að lýsa hrifningunni og þegar þú ferð svo að syngja Rudolfo þá slærðu svo rækilega i gegn að a.m.k. einn gagnrýn- andinn fitjar upp á þvi að við íslendingar séum að eignast nýjan Stefán íslandi. Kristján hlær hátt og lengi en segir svo: — Já, mér skilst að þessi ummæli séu búin að valda miklu fjaðrafoki. Ég hefði kannski átt að orða þetta öðruvísi, en ég tel mig ekki hafa móðgað einn eða neinn. Ég hafði það reyndar á tilfinningunni þegar ég prufu- söng hér að hlutverkaskipanin hefði þegar verið ákveðin en að söngur minn raskaði þeirri ákvörðun. Ég var raunverulega um það spurður hvort ég gæti sungið hlutverkið, en ég var bundinn í Saarbrúcken og gat því ekki verið hér fyrr en í maí. Það var þetta sem ég var að reyna að koma til skila, en ætlunin var ekki að valda sár- indum. En þú spyrð hver ég sé. Ég er 31 árs plötu- og ketilsmiður frá Akureyri, sem byrjaði 24ra ára að læra söng fyrir alvöru. Ég bar gæfu til að taka mark á mínum góða kennara, Sigurði Demetz, sem var svo viss um að röddin væri í sérflokki, að ég ætti að fara til færustu kennara á ítaliu, svo ég tók mig upp með börn og bú þegar ég var 26 ára, seldi fyrirtækið sem ég var búinn að byKgja upp fyrir norðan, og dreif mig út. Mér hefur gengið vel, en ég hef heldur ekki setið auðum höndum. Ég er við nám hjá einum bezta söngkennara heinis- ins, Maestro Campogalliani, en hann er raunar sérstæður fyrir það m.a. að hann er ekki söngv- ari sjálfur. Yfirleitt er það svo að beztu söngvararnir eru beztu kennararnir. — Hvenær komst þú fyrst fram á óperusviði? — í september í fyrra. Það var í Saarbrúcken í La Traviata í hlutverki Alfredos. Rétt á eftir söng ég svo í konsertuppfærslu á La Bohéme í San Gallen í Sviss. — Hvað er framundan? — í haust á ég að syngja í Sviss í André Chenee og í Tosca, en þar að auki er ég með tilboð frá Sviss og Þýzkalandi, sem ég hef enn ekki tekið afstöðu til. Héðan fer ég til Ancona á Ítalíu þar sem ég syng í II Tabarro og - segir Kristján Jóhannsson óperusöngvari Gianni Schicchi eftir Puccini. — Það hefur heyrzt að þú hafir tekið heljarstökk, ef borinn er saman söngur þinn nú og þegar þú söngst hér á tónleikum í fyrra, og sumir halda að Dorriet Kavanna eigi heiðurinn að því. — Já, ég hef lært geysimikið af henni, en þar að auki er þetta minn stíll, ef svo má segja. Ég tek ekki framförum hægt og sígandi, heldur tek svona stökk. Ekki bara í söngnum heldur yfirleitt því sem ég tek mér fyrir hendur. Én ég er mjög viðkvæm- ur fyrir stöðnun. Ef ég verð þess var að ekkert er að gerast, ef mér fer ekki vel fram hjá einhverjum kennara, þá er ég fljótur að koma mér annað. Ég nenni ekki að hanga yfir ein- hverju sem ekki ber árangur. — Ertu montinn? — Montinn? Það veit ég ekki. Það getur svo sem vel verið. Kannski er ég bara raunsær. Ég er mjög gagnrýninn á sjálfan mig. Sit lon og don og hlusta á upptökur með sjálfum mér. Ég veit að ég hef alveg ágæta tenórrödd og ég get sungið vel. Ég kann músíkina og textana og ég legg mig allan fram. Þegar ég fæ góðar undirtektir þá blómstra ég. En það er ekki mitt að leggja dóm á það hver árang- urinn verður — það er áheyrendanna. — Hvernig finnst þér að koma hingað heim og syngja? Kemurðu hingað heim til að sanna sjálfan þig eða af ræktar- semi? — Fyrst og fremst af því að ég tel að mér beri skylda til að syngja fyrir íslendinga. Það er m.a. fyrir tilstilli góðra manna hér á Islandi að ég komst í þetta nám. — Hverra? — Fyrst og fremst Vals Arn- þórssonar, en einnig fleiri ein- staklinga. En það er ekki til að koma því inn hjá íslendingum að ég eigi að standa látlaust hér á sviðinu í framtíðinni sem ég kem, heldur af því að mér finnst mér bera skylda til að koma. — Ertu að gefa í skyn að þú sért búinn að gera skyldu þína og hafir ekki sérstakan áhuga á að koma til að syngja hér í bráðina? — Nei, ég væri alveg til í að koma til að syngja hlutverk sem hæfði mér vel, ef ég fengi sæmilega borgað fyrir það. — Hvað færðu fyrir að syngja Rudolfo í Þjóðleikhúsinu? — Þúsundkall á kvöldið og svo eitthvað fyrir hverja æfingu, þannig að það er ekki pen- inganna vegna, eins og þú sérð. — Færðu betur borgað ann- ars staðar? — Já, ég er farinn að fá það núna. í Sviss í haust fæ ég t.d. 6—8 þúsund mörk fyrir kvöldið og það er dálaglegur skildingur. Ég sé ekki ástæðu til að hræsna með það að auðvitað vill maður fá sem bezt borgað fyrir sína vinnu. — Ertu ánægður með viðök- urnar hér? — Já, ég er hæstánægður með það hvernig áheyrendur hafa brugðizt við, svo og margt tón- listarfólk. En það hefur líka verið reynt að gera mér erfitt fyrir og það tekur á taugarnar. Þess vegna var ég óskaplega taugatrekktur á fyrstu sýningu á La Bohéme. Ég var bókstaflega miður mín í fyrsta þætti, en svo lagaðist það. Sieglinde Kahmann hefur reynzt mér óskaplega vel og ég tel það sérstakt lán fyrir mig að hafa fengið að syngja á móti henni. Hún er stórkostlegur listamaður og alveg frá fyrstu stundu hefur samvinna okkar verið frábær. Manneskjan hefur svo mikið að gefa og hún gefur það af því örlæti sem miklum listamönnum er eiginlegt. — Eftirlætishlutverk? — Beztu hlutverkin fyrir mig eru lýrísk tenórhlutverk eins og t.d. Rudolfo í La Bohéme, Mario Cavaradochi í Tosca, Pinkerton í Madame Butterfly, Duca di Mantova í Rigoletto, Alfredo í La Traviata og Edgardo í Lucia de Lammermor, svo eitthvað sé nefnt. VIÐTAL: ÁSLAUG RAGNARS MYND: GUÐJÓN BIRGISSON Njörður gefur Grens- ásdeild lyftibaðkar Lionsklúbburinn Njörður af- henti nýlega Grensásdeild Borg- arspítalans að gjöf svonefnt lyfti- haðkar. Er þetta í annað sinn á árinu, sem deildin fær gjöf frá klúbhnum. en áður gaf hann myndsegulband. Baðkarið er af gerðinni ARJO frá Svíþjóð og er verðmæti þess um 115 þúsund krónur. Fékk klúbburinn eftirgefin aðflutnings- gjöld og Eimskipafélagið gaf af- slátt af farmgjöldum. Þá gaf innflytjandinn, A. Karlsson, af- slátt af tækinu. Baðkarið léttir vinnu við sjúklinga og auðveldar störf á Grensásdeild. Daníel Þórarinsson formaður Njarðar afhenti baðkarið og Adda Bára Sigfúsdóttir tók við gjöfinni og þakkaði fyrir hönd starfsliðs og stjórnar spítalans. Njarðarfélagar og fulltrúar Borgarspítalans við hið nýja lyftibaðker.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.