Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981
Menachem Bexrin forsæt-
is- (>k landvarnaráðherra
fsraels slær á létta
strengi með Rafael Eitan
hershöfðingja. forseta.
herráðsins, við lok
hlaðamannafundar for-
sætisráðherrans í kjölfar
árásarinnar á kjarnorku-
verið í írak.
Símamynd AP.
Tel Aviv. 12. júní. AP.
MENACIIEM BeRÍn, forsætis-
ráðherra fsraels, ok flokkur
hans, Likud-flokkurinn, hefur
talsvert meira fyÍKÍ en Verka-
mannaflokkurinn ok hefur
unnið á að undanförnu. að því
er fram kemur i úrsiitum
tveKKja sk(>ðanakannana sem
birt voru í ísrael í daK-
Begin vinnur á
í annarri könnuninái kemur
það fram að flokkur Begins fái
46 þingsæti en Verkamanna-
flokkurinn 40 í þingkosningun-
um sem fram fara 30. júní nk.
Alls sitja 120 á ísraelska þing-
inu. í fyrri skoðanakönnunum
skildu einungis 3 þingsæti flokk
Begins og Verkamannaflokkinn
að.
Hin úrslitin sýna fram á að
Begin fái 43 þingsæti en Verka-
mannaflokkurinn 37.
Kannanir þessar voru gerðar
fyrir dagblöðin Jerusalem Post
og Haaretz áður en ísraelar
gerðu árásina í kjarnorkuverið í
írak. Er gert ráð fyrir að næstu
skoðanakannanir sýni að fylgi
Begins hefur enn vaxið til muna.
I maí sl. sýndu skoðanakann-
anir í fyrsta sinn í tvö ár að
meirihluti ísraela fylgdi Begin
að málum. Á síðastliðnu ári
sýndu skoðanakannanir mikið
fylgishrun Likud-flokksins og
var jafnvel búist við því að
Verkamannaflokkurinn færi
með sigur af hólmi í komandi
kosningum, í fyrsta sinn í 33 ára
sögu Israels.
Danmörk:
Osló. 12. júnl. AP.
LEONII) Brezhnev, forseti Sov-
étríkjanna hefur sent leiðtogum
jafnaðarmannaflokka i Vestur-
Evrópu bréf. Í bréfinu lýsir hann
nauðsyn á slökun spennu í heim-
inum (>k afvopnun, að þvi er haft
er eftir Gro Harlem Brundtland.
forsætisráðherra NoreKS og
formanni norska Verkamanna-
flokksins.
Brundtland sagði i viðtali við
Arbeiderbladet að hún hefði
fengið slíkt bréf.
„Ég veit ekki alveg hvað stendur
í bréfinu þar sem það er skrifað á
rússnesku en ég mun skoða það
vandlega eftir að ég hef fengið það
þýtt yfir á norsku,“ sagði hún.
Hún lýsti því jafnframt yfir að
Kosningalögum í
A-Berlín mótmælt
Konn. 12. júní. AP.
KURT Becker talsmaður stjórn-
arinnar i Bonn skýrði frá því í
dag. að sendiherrar Bandaríkj-
anna. Bretlands og Frakklands í
Moskvu myndu í dag afhenda
valdamönnum í Kreml mótmæia-
bréf ríkisstjórna sinna. þar sem
því væri haldið fram. að kosn-
ingarnar í Austur-Berlin á
sunnudag hrytu i bága við fjór-
veldasamkomulagið um borgina.
Kosningareglum hefur nýlega
verið breytt í A-Þýzkalandi á
þann veg, að íbúar Austur-Berlín-
ar kjósa nú í fyrsta skipti beint til
landsþingsins. Litið er á þetta
sem tilraun yfirvalda í
A-Þýzkalandi til að „upphefja"
borgina. Fyrir breytingarnar á
kosningalögunum valdi borgar-
stjórnin í A-Berlín hvaða full-
trúar borgarinnar sætu á lands-
þinginu, en sami háttur er hafður
á í Vestur-Berlín.
Ibúum Vestur-Berlínar var á
sínum tíma leyft að kjósa beint til
þings Efnahagsbandalags Evr-
ópu, og var það harðlega fordæmt
í Austantjaldsríkjunum.
Verkamannaflokkurinn áliti það
nauðsynlegt að hafa sambönd við
kommúnistaflokkana í Austur-
Evrópu.
Arbeiderbladet segir að bréf
Brezhnevs sé næstum samhljóða
því sem hann sendi til forsætis-
ráðherra Vestur-Evrópulanda
fyrr á þessu ári.
Þá vitnar blaðið í Bengt Carl-
son, ritara Alþjóðasambands jafn-
aðarmanna sem segir að bréfið
verði tekið fyrir á nefndarfundi
samtakanna í næstu viku.
Olof Palme, fyrrum forsætis-
ráðherra í Svíþjóð, er nú í heim-
sókn í Sovétríkjunum. Hann
ræddi við Brezhnev í eina klukku-
stund í dag. Palme sagði blaða-
mönnum eftir fundinn að Brezh-
nev hefði gagnrýnt Bandaríkin
fyrir að vera treg til þess að hefja
afvopnunarviðræður. Palme sagði
að Brezhnev hefði sagt Sovétmenn
tilbúna til viðræðna um takmörk-
un vígbúnaðar og staðsetningu
kjarnorkuvopna í Evrópu „eins
fljótt og unnt væri“.
Séð fyrir endann á
kjaradeilu prent-
ara og útgefenda
Kaupmannahofn 12. júnl, frá frcttaritara
Mhl. Ib. Bjornhak ok AP.
DANSKIR prcntarar samþykktu i
dag tillögu að nýjum kjarasamn-
ingi sem Kildir til tveggja ára.
ÚtKefendur hafa enn ekki sam-
þykkt tillöKuna formlega en frétt-
ir herma að öruKKt sé að þeir
muni fallast á hana. 91,6% prent-
ara Kreiddu atkvæði um tillöguna
ok voru 52% henni meðfylgjandi.
Kjaradeila prentara og útgef-
enda hefur stöðvað útgáfu flestra
blaða í Danmörku sl. 2‘/i mánuð.
Brezhnev skrifar leið-
togum iafnaðarmanna
Veður
víða um heim
Akureyri 12 skýjaö
Amsterdam 18 skýjaö
Aþena vantar
Barcelona 28 heiöskífr
Berlin 20 skýjaó
BrUssel 18 heióskírt
Chicago 25 skýjaö
Dyflinní 14 skýjaö
Feneyjar 27 léttakýjaó
Frankfurt 24 heiöskirt
Færeyjar 10 léttskýjaö
Genf 28 heióskírt
Helsinki vantar
Hong Kong 28 skýjaó
Jerúsalem 27 heiöskírt
Jóhannesarborg 14 heiöskíri Kaupmannahöfn 17 rigning
Las Palmas 23 léttskýjaö
Lissabon 32 heióskírt
London 19 skýjaó
Los Angeles 26 skýjaö
Madrid 37 heióskírt
Malaga vantar
Mallorka 29 heiöskírt
Mexicoborg 28 heiöskirt
Miami 30 skýjaó
Moskva 30 heiðskírt
New York 29 rigning
Nýja Delhi 42 skýjaö
Osló 18 skýjaö
Reykjavík 11 alskýjaö
Rió de Janeiro 31 heiöskírt
Rómaborg 33 heiöskírt
San Francisco 18 heióskírt
Stokkhólmur 18 heiöskírt
Sydney 18 heíóskírt
Tel Aviv 27 heiöskírt
Tókýó 22 rigning
Vancouver 17 skýjað
Vínarborg 25 heiðskírt
Búist er við að dagblöð komi út að
nýju nk. þriðjudag og jafnvel að
síðdegisblöðin komi út næsta
mánudag.
Níu dagblöð sem gefin eru út úti
á landi koma þó ekki út vegna
verkfalls blaðamanna. Starfsmenn
þessara blaða hafa sagt upp störf-
um vegna kjaradeilu blaðamanna
og útgefenda og danska blaða-
mannafélagið segir að útgáfa
tveggja stærstu dagblaða Kaup-
mannahafnar verði stöðvuð 1. júlí
hafi samningar ekki tekist svo og
starfsemi fréttastofunnar Ritzau.
Engar viðræður eru nú í gangi
milli samningsaðila.
Spadolini
vongóður
RúmaburK. 12. júnl. AP.
GIOVANNI Spadolini aðalritari
Lýðveldisflokksins, er nú freistar
^88 að mynda starfhæfa stjórn á
Uíu, sagðist í dag hafa fengið
góðan hljómgrunn meðal kristi-
leKra demókrata ok sósíalista við
tilraunir sinar.
Spadolini ræddi í morgun við
fulltrúa beggja flokkanna. Sagðist
hann vongóður um að stjórnar-
myndunartilraunir sínar tækjust.
Hann kvaðst hafa kynnt full-
trúum flokkanna hugmyndir sínar
að stefnuskrá og hvernig taka
bæri á efnahagsvanda þjóðarinnar
og hlotið stuðning fulltrúanna við
þær.
Spadolini gaf það einnig í skyn
að hann gerði sér vonir um
stuðning kommúnista á þingi, en
lagði á það áherzlu að þeir fengju
ekki ráðherrastóla í stjórn sinni.
Blöð fá samkeppni
ATLANTIC CITY: Lesendur
munu fá daglegar fréttir og
aðrar upplýsingar frá tölvu-
væddum myndböndum í fyrir-
sjánlegri framtíð, en nútíma-
dagblöð verða eftir sem áður
aðalupplýsinganáman, sagði
blaðaútgefandi á ráðstefnu á
fimmtudag. Annar ræðumað-
ur varaði blöð við því að
hundsa fyrirsjáanlega bylt-
ingu í fjarskiptum. (AP)
Biblían stytt
COLUMBIA, South Carolina:
Ritstjórar tímaritsins Read-
er’s Digest hafa unnið að því í
fimm ár að stytta Biblíuna í
samþjappað form og nú er því
starfi næstum lokið. Ritstjór-
arnir segja að þeir sjái fram á
mótmæli frá heittrúuðum og
að þeir hafi fengið fyrirspurn-
ir um hverju þeir ætli áð
henda úr hinni helgu bók.
(AP)
Flóttamönnum hefur fækkað
en erfiðleikar þeirra aukast
New Yurk 12. júni. AP.
FLÓTTAMÖNNUM í heiminum
hefur fækkað frá þvi á sl. ári en
ástandið meðal þeirra hefur
verndað, að því er fram kemur I
niðurstöðum athugana sem
Sameinuðu þjóðirnar og handa-
rísk flóttamannastofnun,
USCR, hafa gert.
USCR birti nýlega skýrslu
um flóttamenn i ár. Segir þar að
12,6 milljónir flóttamanna séu
nú í heiminum 3,4 milljónum
færri en á sl. ári. Segir i
skýrslunni að flóttamönnum
hafi fakkað vegna þess að 5
milljónir flóttamanna frá Kam-
hódíu og Laos hafi snúið heim á
ný.
En flóttamönnum í Afríku-
löndum hefur fjölgað úr 4 millj-
ónum í 6,3 milljónir og hefur
ástandið þar versnað til muna. í
skýrslunni segir að ef ekki dragi
úr fólksfjölgun og efnahags-
ástand og veðurfar batni muni
ríkisstjórnum Afríku ganga erf-
iðlega að ná tökum á flótta-
mannavandamálinu.
Samkvæmt skýrslu Sameinuðu
þjóðanna er 1,7 milljónir flótta-
manna í heiminum. George
Gordon-Lennox, fulltrúi flótta-
mannastofnunar SÞ segir að tala
SÞ sé lægri en USCR vegna þess
að flóttamannastofnunin telji
ekki með 1,7 milljón palestínskra
flóttamanna. Önnur stofnun inn-
an SÞ fari með málefni þeirra.
Gordon-Lennox segir að
ástandið í flóttamannamálum
hafi síst farið batnandi frá því á
sl. ári. „Við erum nú að fá
skýrslur um það að 2 milljónir
Afgana séu nú flúnir til Pakistan
og að ástandið í Sómalíu hafi
versnað til muna. Miklir þurrkar
í Afríku hafa gert ástandið þar
enn verra en það var í Indókína á
sl. ári,“ segir hann. „Við þurfum
líklega að eyða meira fjármagni í
flóttamannahjálp í ár en á sl. ári.
Samkvæmt upplýsingum
bandarísku stofnunarinnar eru
6,3 milljónir flóttamanna í Afr-
íku, 3,6 milljónir í Mið-Austur-
löndum, 2,3 milljónir í Asíu, 250
þúsund í Evrópu og 240 þúsund í
Mið-Afríku.
Samkvæmt upplýsingum
USCR hafa Bandaríkjamenn
sent mest fjármagn til aðstoðar
flóttamönnum gegnum alþjóð-
legar hjálparstofnanir. í öðru
sæti eru Japanir og Vestur-
Þjóðverjar í því þriðja.
Ef miðaö er við ibúafjölda hafa
Norðmenn og Svíar látið mest af
hendi rakna og Bandaríkin koma
þá í 12. sæti. Á eftir Svíum koma
Sameinuðu furstadæmin, Dan-
mörk, Ástralía, Japan og Vest-
ur-Þýskaland. Á botninum eru
Suður-Afríka, Suður-Kórea, Arg-
entína, Chile, Singapore og Bras-
ilía.
Hvorki Sovétríkin né önnur
kommúnistaríki eru á skrá yfir
þau lönd sem sent hafa fjármagn
til aðstoðar flóttamönnum.
Wella Klein yfirmaður USCR
segir að það sé vegna þess að þau
hafi ekki sent fjármagn gegnum
alþjóðlegar hjálparstofnanir
heldur eftir eigin leiðum.