Morgunblaðið - 13.06.1981, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö.
Hlutverk varnar-
liðsins óbreytt
Andstæðingar varna íslands í Alþýðubandalaginu hafa fundið
upp á því síðustu misseri, að „eðli“ eða hlutverk varnarliðsins
á íslandi hafi breyst. Þessi áróður fellur saman við boðskapinn frá
Moskvu, þar sem menn eins og Belski ofursti „fréttaskýrandi"
Rauðu stjörnunnar, málgagns sovéska hersins, leggja sig fram um
að lýsa því hvernig „eðli“ varnarliðsins hafi breyst og rlota það
síðan sem átyllu til að hóta íslendingum með kjarnorkusprengjum.
Þessi blekkingariðja er kjarninn í hræðsluáróðrinum, sem
Alþýðubandalagið ákvað að taka upp á landsfundi sínum sl. haust,
helstu málsvarar hennar á þingi hafa verið Ólafur R. Grímsson og
Svavar Gestsson. Hér í blaðinu hefur verið vakin athygli á því, hve
mikill samhljómur er í málflutningi þessara talsmanna Alþýðu-
bandalagsins og Belski ofursta í Moskvu.
Á þriðjudaginn í þessari viku flutti Richard A. Martini aðmíráll,
yfirmaður varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, ræðu á fundi
Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs, þar sem hann lýsti
starfsemi varnarliðsins og hvernig hún hefur þróast frá því það
kom hingað fyrst, fyrir 30 árum. Sú lýsing var í litlu samræmi við
áróðursskrif Belski ofursta og ræður þeirra alþýðubandalags-
manna, enda láta bæði Belski og skoðanabræður hans hér á landi
alveg hjá líða að geta um útþenslu sovéska flug- og sjóhersins á
heimshöfunum, þegar þeir fjalla um öryggi íslands.
Richard A. Martini sagði: „Frá því sögur hófust hafa menn
tæplega séð jafn mikinn herflota á einum stað og stefnt hefur verið
saman í Norðurflota Sovétmanna. Stærð þessa flota ein og
staðarvalið fyrir bækistöð hans gefa til kynna, að á átakatímum
eigi hann að halda frá höfunum á Murmansksvæðinu suður fram
hjá íslandi og til þeirra starfa, sem Gorshkov aðmíráll lýsir svo:
„mylja óvininn mélinu smærra, eyðileggja lífsafl hans og
auðlindir“.“ Richard A. Martini greindi frá stóraukinni flugumferð
sovéskra hervéla á loftvarnasvæði íslands undanfarin ár og gat
þess jafnframt, að ferðum sovéskra kafbáta við Island hefði fjölgað
um 63% á síðustu fimm árum, og þar af hefði ferðum
kjarnorkuknúinna sovéskra kafbáta fjölgað um 120%. Þessar tölur
segja sína sögu og það er engin furða, þótt Belski ofursti eða
skoðanabræður hans hér á landi vilji sem minnst um þær ræða.
Yfirmaður varnarliðsins sagði, að fyrir 30 árum, þegar liðið kom,
hafi hugmyndir manna verið þær, að það kæmi í veg fyrir, að
nokkur árásaraðili gæti hertekið Island í því skyni að kúga þjóðina
undir alræðisstjórn og nýta aðstöðuna í landinu til frekari
landvinninga. Áuðvitað er þetta enn í dag helsta hlutverk
varnarliðsins á íslandi. Hlutverk liðsins hefur ekki breyst, „eðli“
starfseminnar á Keflavíkurflugvelli er hið sama og í upphafi.
Richard A. Martini orðaði þetta svo í ræðu sinni: „Tækniframfarir
Sovétmanna hafa krafist þess, að við bættum aðferðir okkar til að
bregðast við þeim. Hlutverk okkar hefur ekki breyst. Aðeins þau
tæki, sem við beitum til að gegna því.“
Útiíundur Sjálfsbjargar
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, heldur aukaþing um þessa
helgi, þar sem fjallað verður um ýmis réttindamál félags-
manna. I tilefni aukaþingsins ræðst Sjálfsbjörg í það stórvirki að
efna til útifundar á Lækjartorgi í dag til að vekja athygli sem
flestra á málefnum fatlaðra. Almennur skilningur er forsenda þess,
að árangur náist í baráttunni fyrir fullri þátttöku fatlaðra í
þjóðlífinu, ef þannig má að orði komast. Fatlaðir fara ekki fram á
nein forréttindi, heldur það tillit, sem dugar til að gera þeim kleift
að njóta sín jafnfætis hinum heilu. Orð eru til alls fyrst í þessu efni
eins og öðrum. Á ári fatlaðra hafa heitstrengingar þegar verið
gefnar og munu verða gefnar. Þeim ber vissulega að fagna, en þó er
það á þessu sviði eins og svo mörgum öðrum, að framkvæmdin
skiptir mestu. Með því að sýna Sjálfsbjörg samstöðu á fundi
hennar í dag geta menn lagt sitt af mörkum til stuðnings góðum
málstað.
Fréttaskýring
Einkaframtakinu
vex fiskur
um hrygg í Kína
„Ix» að náttúran sé lamin
með lurk, leitar hún út um
síðir,“ segir gamall íslensk-
ur málsháttur og segja má,
að hann eigi vel við um
einkaframtakið í Kína, sem
kommúnistar þar i landi
hafa löngum útmálað sem
hinn argasta kapitalisma. í
þeirri þíðu, sem að undan-
förnu hefur rikt i kínversk-
um þjóðmálum, hefur fram-
takssemi einstaklinganna
sem sé verið að vaxa fiskur
um hrygg þrátt fyrir for-
dóma og óvild margra emb-
ættismanna.
„Hlutirnir gætu verið
miklu einfaldari en þeir eru,“
sagði nýlega í Dagblaði al-
þýðunnar í Peking. „Fólki
þannig að ekki þarf að óttast,
að þeir verði að kapitalistum
þegar tímar líða fram“:
Þótt kommúnistar hafi
alltaf amast við einkafram-
takinu hvarf það aldrei með
öllu í Kína, þó að nærri lægi í
menningarbyltingunni, og að
sögn tímarits, sem kemur út
hálfsmánaðarlega, eru einka-
fyrirtækin nú um það bil 80%
af því, sem var fyrir menn-
ingarbyltinguna, eða um ein
milljón talsins.
í tímaritinu segir, að einka-
fyrirtæki væru nauðsynleg til
að framleiða vörur og inna af
hendi þjónustu, sem ríkisfyr-
irtækin sinntu ekki; til að
Margar aðrar sögur til lofs
og dýrðar einkaframtakinu
eru sagðar í Kína um þessar
mundir, bæði um velgengni
þess og hvernig reynt er að
bregða fæti fyrir það. Þar á
meðal er sagan um Zhang
Zanying, 28 ára gamla for-
ystukonu í samvinnufélagi,
sem hefur tehúsarekstur á
sinni könnu. í fyrstu voru þau
aðeins 13, sem að rekstrinum
stóðu, en nú eru þau 220 og
umsvifin aukast dag frá degi.
Zhang Zanying og félagar
hennar höfðu einnig orðið
fyrir barðinu á ríkisfyrir-
tækjum, sem reynt höfðu að
koma þeim á kné, en þá kom
Wan Li, varaforsætisráð-
„í fataframleiðslu ... gengur flest á afturfótunum.“ Nýjasta hattatískan skoðuð í búðarglugga í
Peking. Af geispanum að dæma hefur ekki verið um ýkja róttækar breytingar að ræða.
gengur illa að fá sjálfsagða
þjónustu á veitingastöðum, í
fataframleiðslu og viðgerðar-
þjónustu gengur flest á aft-
urfótunum og einföldustu
flutningar eru erfiðleikum
bundnir. Á sama tíma er
fjöldi fólks atvinnulaus.
Trúlega verður þó erfitt að
koma atvinnuleysingjunum
af stað í verki, sem enginn
hefur unnið í langan tíma,“
bætti blaðið við.
Á tímum menningarbylt-
ingarinnar, þegar upptendr-
aðir og óbilgjarnir „vinstri-
sinnar" skipuðu fyrir verkum
með kínversku þjóðinni, þótt
enginn maður með mönnum
nema hann ynni við „sósí-
alska framleiðslu" hjá ein-
hverju ríkisfyrirtæki en
hvers konar þjónustustörf
voru hins vegar talin fyrirlit-
legur atvinnuvegur.
Nú er öldin önnur og opin-
berir fjölmiðlar keppast við
að fullvissa hina vantrúuðu
um, að einstaklingar, sem
reki sín eigin fyrirtæki, „ráði
yfir litlu fjármagni, raki ekki
saman fé og arðræni engan,
auka atvinnuna og auka
skatttekjur ríkisins.
í Dagblaði alþýðunnar í
Peking var nýlega sagt frá
manni nokkrum, sem bauð til
sölu nýtt svínakjöt og kom
sér upp dálítilli aðstöðu fyrir
framan eina ríkisverslunina í
borginni. Ríkisverslunin
hafði einnig svínakjöt á
boðstólum en það var bara
allmiklu dýrara en það, sem
falt var á gangstéttinni fyrir
framan. Þegar ríkisstarfs-
mennirnir sáu, að þeir voru
engan veginn samkeppnis-
færir, fóru þeir að undirbjóða
einkaframtakið og hættu ekki
fyrr en maðurinn varð að
taka saman föggur sínar og
fara.
Dagblað alþýðunnar sagði,
að þessi saga væri dæmigert
fyrir yfirgang opinberra emb-
ættismanna og bætti því við,
að einkafyrirtæki væru nauð-
synleg, því að þau ýttu undir
samkeppni og hvettu ríkisfyr-
irtæki til að veita betri þjón-
ustu.
herra, þeim til hjálpar. Hann
skipaði Duan Junyi, aðalrit-
ara kommúnistaflokksins í
Peking, að sjá til þess hið
snarasta, að samvinnufélagið
fengi aukið athafnarými, ella
yrði hann gagnrýndur fyrir
vikið.
Duan hét öllu góðu um það
og viku síðar skýrði Xinhua-
fréttastofan kínverska frá
því, að í öllum afkimum hins
kínverska stjórnkerfis hefði
verið birt sú tilkynning
stjórnvalda, að samvinnufé ■
lög og einkafyrirtæki skyldu
aðstoðuð á alla lund og jafn-
framt lagt til, að í því skyni
yrði gripið til þess pláss, sem
fyrir hendi væri í loftvarnar-
byrgjum og á jarðhæð mikilla
íbúðarbygginga.
Ásýnd og eðli kínversks
þjóðfélags á vafalaust eftir að
breytast mikið á næstu árum
og áratugum ef fram fer sem
horfir, enda eru Kínverjar
orðlagðir fyrir dugnað og
hugvitssemi þegar þeir eru
sjálfs síns ráðandi.
- Sv.