Morgunblaðið - 13.06.1981, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981
25
_*
Hvað segja þeir um skipunina i embætti forstjóra BI:
Sturla Böðvarsson sveitarstjóri
i Stykkishólmi:
Þetta rekur endahnútinn
á það - alþýðubandalags-
menn óhæfir í ríkisstjórn
„F'ramkvæmdastjórnin sem er
á vegum sveitarfélaganna, er
lítilsvirt með mjög grófum hætti
(>K ég kann enna skýrinKU aðra
en að þarna þurfi að koma að
þessum manni <>k það sé svo
mikilvægt, að jafnvel samráð-
herrar Svavars Gestssonar eru
látnir Kjalda þessa og hreinlega
lítilsvirtir. Við héldum, þegar
þessi rikisstjórn tók við völdum,
að það gæti leitt til líóðs að hafa
AlþýðubandalaKÍð i rikisstjórn.
Þetta rekur endahnútinn á það
ok ég tel að þeir Alþýðubanda
lagsmenn séu óhæfir til þess,“
sagði Sturla Böðvarsson sveitar-
stjóri i Stykkishólmi.
Hann sagði einnig: „Það má
kannske velta því fyrir sér hvort
þarna sé loksins komið tækifæri
til þess að ná sér niðri á dóms-
málaráðherra, Friðjóni Þórðar-
syni, fyrir að hafa staðið fast á
sínu í Gervasoni-málinu og svín-
beygt Svavar þá. Sá grunur hefur
læðst að manni, því þetta er
óskiljanleg framkoma og það
hljóta að vera mjög annarleg
sjónarmið sem þarna eru á ferð-
inni.
Þessi veiting kemur afskaplega
mikið á óvart og ég hefði ekki
trúað því að óreyndu að þetta
forstjóraembætti yrði notað til
þess að staðsetja þar einhverja
pólitíska gæðinga úr innsta hring,
ekki sízt þar sem mjög hæfir
menn úr þessu tryggingafélagi
sækja þarna um.
Ég lít svo á, að sveitarfélögin
hljóti að endurskoða afstöðu sína
til þessa fyrirtækis eftir þessa
veitingu — hljóti að endurskoða
viðskipti sín við þetta fyrirtæki,
og ekki sízt vegna þess að ég lít
svo á, að Ásgeiri Ólafssyni sé
hreinlega sparkað af ráðherra til
að hann geti komið að sínum
manni í þetta embætti.
Sturla Böðvarsson
Þá finnst mér fráleitt að ráð-
herra skuli hafa einn og alfarið,
lagalega, með þetta að gera og
þarf að breyta lögum sem gera ráð
fyrir því. En þegar gengið er
þannig fram hjá framkvæmda-
stjórn tryggingafélagsins þá hlýt-
ur það að snúa beint að sveitarfé-
lögunum að mínu mati. Persónu-
lega mun ég endurskoða afstöðu
mína til Brunabótafélagsins eftir
þetta og við munum fylgjast mjög
náið með og skoða þau mál
rækileg."
Knútur Jónsson Siglufírði:
í takt við tímann og fyrri
aðgerðir stjórnvalda
„ÞESSI gjörð ráðherrans er í
takt við tímann og fyrri að-
gerðir núverandi stjórnvalda
og þetta kom mér ekkert á
óvart. En mér finnst af almenn-
um fréttum af máli þessu að
allt bendi til að bæði stjórn
Brunabótafélagsins og fráfar-
andi forstjóri hafi haldið hálf
óhönduglega á máli þessu,"
sagði Knútur Jónsson fram-
kvæmdastjóri í Siglufirði um
skipan Inga R. Helgasonar sem
forstjóra félagsins, en Knútur
er fulltrúi Siglufjarðar i full-
trúaráði Brunabótafélagsins.
„Bæði stjórn félagsins og frá-
farandi forstjóri máttu vita um
ákvæði laganna og þeir gátu
búið sig undir þetta. Það hafa
þeir ekki gert.
Um Inga R. Helgason er það
að segja, að hann er hvorki
tryggingalærður né nokkuð
slíkt. Það má vel vera að hann
geti skipað þetta sæti. Ég þekki
það ekki. Ég vil síður en svo vera
að kasta rýrð á stjórnina eða
Knútur Jónsson
forstjórann sem verið hefur, en
mér finnst að þeir hefðu átt að
geta séð að hverju stefndi og
haldið öðruvísi á málum,“ sagði
hann að lokum.
Árni Emilsson sveitarstjórnar-
maður i Grundarfirði:
Embættisveitingin for-
hert og pólitísk - Ómögu-
legt að una henni
„ÞESSI embættisveiting er svo
forhert og pólitisk að það er
ómögulegt að una henni. Ég vil
senda flokksbræðrum mínum i
ríkisstjórn áminningu, nema þeir
sjái um að þetta verði dregið til
baka. Lýðræðissinnar í sveitar-
stjórnum. allir þeir sem ég hefi
talað við. eru fjúkandi illir yfir
þessu. Menn hafa haft á orði og
þar á meðal Morgunblaðið að
kommúnistar ráði öllu i þessari
ríkisstjórn og ég sem stuðnings-
maður ríkisstjórnarinnar hef nú
viljað draga það mjög i efa, en
þvf er ekki að neita og verður að
segjast eins og er að þessi emb-
ættisveiting rennir stoðum undir
þá fullyrðingu," sagði Árni Em-
ilsson sveitarstjórnarmaður í
Grundarfirði í tilefni af for-
stjóraveitingunni i Brunabótafé-
laginu.
góður viðskiptis, góður embættis-
maður og sveitarstjórnarmenn al-
mennt hafa treyst honum mjög
vel. Ég held að við sveitarstjórn-
armenn skoðum okkur vel um
bekki áður en við höldum viðskipt-
um við Brunabótafélagið áfram —
það er ég hræddur um. Það eru
gífurlegir fjármunir og hagsmunir
í höndum stjórnenda fyrirtækis-
ins og því mikil nauðsyn að
sveitarstjórnarmenn treysti
stjórn Brunabótafélagsins og for-
stjóra þess. Þegar maður sér þessa
óskaplega pólitísku embættisveit-
ingu — hún hefur ekkert annað
markmið — þá hlýtur maður að
hætta að treysta þeim. Ég tel að
það sé hverjum manni ljóst.“
Árni sagði í lokin: „Við sjálf-
stæðismenn sem styðjum ríkis-
Albert K. Sanders bæjarstjóri
Njarðvik:
Maður er svo gáttaður
að það tekur engu tali
Árni Emilsson
stjórnina erum afskaplega mikið á
varðbergi fyrir því að Alþýðu-
bandalagið ríði húsum í þessari
stjórn. Þeir eru nú einu sinni
okkar höfuðandstæðingar í ís-
lenzkum stjórnmálum og mér
finnst þeir nú vera orðnir heldur
lausbeizlaðir."
„MAÐIJR er svo gáttaður á
þessari afgreiðslu ráðherrans
að það tekur engu tali. Ég
held að það sé sama sjónar-
miðið hjá öllum sveitarstjórn-
armönnum og mér finnst
ástæða til þess að menn láti í
sér heyra. Við eigum ekki að
láta þetta þegjandi fram hjá
okkur fara.“ sagði Albert K.
Sanders bæjarstjóri, en hann
situr í fulltrúaráði Bruna-
bótafélagsins fyrir Njarðvík.
„Mér finnst þetta út í hött að
þetta skuli geta átt sér stað. Að
það skuli ekki vera talað við
stjórn félagsins um ráðningu á
þeim mönnum sem til greina
koma. Ásgeir hefur staðið sig
þannig í þessu starfi að hann
Albert K. Sanders bæjarstjóri.
Þá sagði Árni: „Auðvitað una
sjálfstæðismenn því ekki að liggja
undir því að kommúnistar ráði og
ég vil að ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisstjórn verði varir
’ við það. Það er forsenda fyrir
stuðningi okkar við ríkisstjórnina
að völd kommúnista séu ekki of
mikil.
Þessi embættisveiting ráðherr-
ans er í stíl við aðrar veitingar hjá
honum, þær eru allar umdeildar,
en mér finnst nú fyrst taka
steininn úr. Mér finnst út í hött að
svona pólitískur maður eins og
Ingi R., yfirlýstur kommúnisti, sé
ráðinn í þetta starf og hjá fyrir-
tæki sem er í eigu sveitarfélaga
landsins og ég tel einnig að aðrir
sem sóttu um, fyrst Ásgeir fékk
ekki að vera áfram, hefðu verið
nær því að fá embættið. Þeir voru
ýmist sérstaklega menntaðir til
starfans eða með mjög langa
reynslu hjá félaginu.
Það er ákaflega viðkvæmt
hvernig þessi embættisfærsla er
rækt og Ásgeir hefur verið mjög
Jóhannes Árnason sýslumaður:
Sýnir ótvírætt einræðislegar til-
hneigingar húsbændanna á þeim bæ
„ÞESSI afstaða ráðherra Alþýðu-
bandalagsins gagnvart óskum
fulltrúa sveitarfélaganna sýnir
ótvirætt einræðislegar tilhneig-
ingar húsbændanna á þeim bæ,
mjög svo i anda hins austræna
siðar. Þetta er aðeins eitt af
mörgum dæmum um það við
hverju megi búast verði Alþýðu-
bandalaginu veitt aukin völd hér.
Þá skal gilda einn vilji og afstaða
kjörinna fulltrúa sveitarfélag-
anna lendir augljóslega utan
dyra. Það ber að fordæma vinnu-
brögð ráðherrans í þessu máli,“
sagði Jóhannes Árnason sýslu-
maður Vestur-Barðastrandar-
sýslu, en hann er fulltrúi sýsl-
unnar i fulltrúaráði Brunabóta-
félagsins.
Jóhannes Árnason
Þá sagði hann: „Ég harma það
að ráðherrann skyldi ekki verða
við óskum framkvæmdastjórnar
Brunabótafélagsins um að fela
Ásgeiri Ólafssyni að gegna áfram
starfi forstjóra til ársloka 1982
svo sem hann hafði fallist á, en
Ásgeir hefur unnið þessari stofn-
un langt og óeigingjarnt starf.
Vekja má einnig athygli á því að
Brunabótafélag Islands er ekki
ríkisfyrirtæki eins og margir virð-
ast halda. Brunabótafélagið er
gagnkvæmt tryggingafélag í eigu
sveitarfélaganna í landinu og því
er stjórnað af kjörnum fulltrúum
bæjarfélaga og sýslufélaga, en af
óskiljanlegum ástæðum er sá
háttur á hafður að ráðherra
tryggingamála skipi forstjóra
þess.“
fær alls staðar hundrað prósent
meðmæli og við hefðum talið
okkur mikinn akk í því að hann
fengi að starfa áfram.
Eftir því sem ég veit voru
einnig mjög hæfir menn og þar
með starfsmenn Brunabótafé-
lagsins sem hafa verið þar í
áratugi og reynst prýðismenn,
sem sóttu um og var ekki einu
sinni litið á.
Svona vinnubrögð ráðherra,
það skiptir ekki máli hvaða
stjórnmálaflokkur á í hlut,
hljóta að kalla á mótmæli.
Þarna er það eingöngu pólitíkin
sem ræður. Maður hélt að svona
yfirgangur væri liðinn undir lok
en þetta þekktist hér á árum
áður. Það er verið að endurtaka
„svínaríið" sem áður gilti í
þjóðfélaginu og ég held að það sé
ekki neitt til að hrópa húrra
fyrir.“