Morgunblaðið - 13.06.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981
27
Samtök aldraðra:
Byggingaframkvæmd-
ir við Eyrarlandsveg
AÐALFUNDUR Samtaka aldraðra
var haldinn í húsi BSRB þriðjudatí-
inn 28. april siðastliðinn. t skýrslu
formanns, Hans Jor^onssonar kom
fram. að félagið er að hefja bygK-
innar á ibúðum fyrir aldraða við
EyrarlandsveK. eða austan við
IiorKarspítalann. betta verða
tveKKja ok þrÍKKja herberKja íbúð-
ir í eins ok tveKKja haAa raðhús-
um. Verður féloKum samtakanna
Kefinn kostur á að kaupa þessar
ibúðir á kostnaðarverði.
Gert er ráð fyrir að þjónustu-
miðstöð komi síðar í tengslum við
íbúðirnar, en fyrst verður að ráða
mann til eftirlits ok þjónustustarfa
fyrir íbúana meðan þjónustumið-
stöðin er ekki komin í gagnið. Á
fundinum var gengið frá lögum um
Hans Jðrgensson
»Bygg>ngasamvinnufélagið Samtök
aldraðra“ og þau samþykkt. Fund-
armenn skrifuðu síðan undir sam-
þykkt og skuldbindingu sína við þau
lög. Þeir félagsmenn, sem voru ekki
á fundinum, eiga svo kost á að koma
og staðfesta j>essi lög og þátttöku
sína í þeim á skrifstofu félagsins.
Á síðastliðnum vetri fékk félagið
fjárveitingu til að starfrækja
skrifstofu, sem reyndar er enn í
bráðabirgðahúsnæði að Skólavörðu-
stíg 12, 3. hæð, og verður þar a.m.k.
enn um sinn. Þessi skrifstofa er
starfrækt alla virka daga frá klukk-
an 10 til 15 með matarhléi. Verkefni
hennar eru m.a.: að veita upplýs-
ingar á sviði réttindamála lífeyris-
þega, sem þess óska, eftir því sem
mögulegt er; og að koma á móti
Hátíðahöld Sjómanna-
dagsins í Reykjavík
DAGSKRÁ sjómannadagsins
verður með hefðbundnu sniði i
Reykjavík. Fánar verða dregnir
að hún á skipum I Reykjavikur-
höfn kl. átta og Lúðrasveit
Reykjavikur mun leika létt
sjómannalöK við Hrafnistu i
Reykjavík kl. 10. MinninKarKuðs-
þjónusta verður i Dómkirkjunni
kl. 11. Séra Ólafur Skúlason
dómprófastur predikar ok minn-
ist drukknaðra sjómanna, i fjar-
veru séra SÍKurbjarnar Einars-
sonar biskups. Dómkórinn syn^ur
undir stjórn Marteins H. Frið-
rikssonar ok SÍKUrður Björnsson
synKur einsönK-
Pétur Sigurðsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs, sagði á blaða-
mannafundi m.a. að öllum ágóða af
sölu merkja og Sjómannadagsblað-
sins verði varið til byggingar
hjúkrunarheimilisins við Hrafn-
istu í Hafnarfirði en reiknað er
með að það verði fokhelt í haust.
Pétur sagði að heimilinu hefðu
borist peningagjafir frá ýmsum
aðilum, m.a. launþegasamtökum og
von væri á frekari styrk frá
verkalýðsfélögum. Einnig hefði
fengist vilyrði frá Alþingi fyrir því
að ríkissjóður greiddi 20 prósent
byggingarkostnaðar. Pétur sagðist
vonast til þess að íbúðarhæðir
heimilisins yrðu tilbúnar seint á
næsta ári en það réðist þó af því
hvernig tækist að útvega nauðsyn-
legt fjármagn. „Þar leggjum við
okkar traust fyrst og fremst á
almenning, sem alltaf hefur sýnt
okkur velvilja og rausn," sagði
Pétur.
Útihátíðahöld í
Nauthólsvík
Útisamkoman í Nauthólsvík
verður sett kl. 14 en Lúðrasveit
Reykjavíkur mun leika frá kl. 13.30
undir stjórn Odds Björnssonar.
Kynnir og þulur verður Guðmund-
ur Hallvarðsson.
Fulltrúi ríkisstjórnarinnar,
Steingrímur Hermannsson sjávar-
útvegsráðherra, mun flytja ávarp
að lokinni setningu. Kristinn
Pálsson, formaður útvegsbændafé-
lags Vestmannaeyja, mun flytja
ávarp fyrir hönd útgerðarmanna
og Hannes Hafstein, framkvæmda-
stjóri Slysavarnafélags Islands,
flytur ávarp fyrir hönd sjómanna.
Að ávörpunum loknum mun Pét-
ur Sigurðsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs, heiðra aldraða
sjómenn með heiðursmerki Sjó-
mannadagsins og afhent verða af-
reksbjörgunarverðlaun, sem veitt
eru þeim sem lagt hafa líf sitt í
hættu við björgun mannslífa.
Kappsigling á seglbátum mun
hefjast kl. 15. Það eru unglingar úr
æskulýðsklúbbum Reykjavíkur og
nágrannasveitarfélaganna ásamt
félögum úr Siglingasambandi ís-
lands sem keppa.
Kappróður fer einnig fram í
Nauthólsvík. Margar sveitir keppa
og koddaslagur fer fram milli
atriða.
Merki sjómannadagsins og Sjó-
mannadagsblað, verða seld ásamt
veitingum á hátíðarsvæðinu.
Strætisvagnaferðir verða frá
Lækjargötu og Hlemmtorgi frá kl.
13.00 og verða á fimmtán mínútna
fresti.
í Hrafnistuheimilinu í Hafnar-
firði verður handavinna vistfólks
til sýnis og sölu frá kl. 14.30 til
17.00. Á sama tíma verður kaffisala
og rennur allur ágóði í skemmti- og
ferðasjóð vistmanna heimilisins.
Sjómannaskemmtun
á Hótel Sögu
Á sunnudagskvöldið verður sjó-
mannadagsskemmtun á Hótel Sögu
sem hefst með borðhaldi kl. 19.30.
Veislustjóri er Árni Johnsen. Ýmis
skemmtiatriði verða undir borð-
haldi. Sigurður Björnsson óperu-
söngvari syngur og Ragnar og
Bessi skemmta með gamanþáttum.
Stjórn Sjómannadagsráðs: F.v. Pétur Sigurðsson (ormaður, Garðar Þorsteinsson ritari, Hilmar Jónsson og
Tómas Guðjónsson meðstjórnendur. Að baki þeirra er Dvalarheimili aldraðra sjómanna I Hafnarfirði.
Hjúkrunarheimilið (t.h.) verður væntaniega fokhelt i haust. Guðmundur H. Oddsson gjaldkeri var
fjarverandi.
atvinnurekendum, sem kynnu að
óska eftir fullorðnu og reyndu fólki
til .starfa. Einnig kemur þessi
skrifstofa sér vel vegna komandi
byggingaframkvæmda, bæði til upp-
lýsinga og undirbúningsvinnu, svo
og fyrir félaga, til að ræða félags-
málin án fundarboðs. Sími skrif-
stofunnar er 26410.
Eins og hér hefur verið vikið að og
áður hefur verið greint frá í bréfi til
félagsmanna, ætlar skrifstofa Sam-
taka aldraðra að greiða fyrir því að
þeir lífeyrisfélagar, sem heilsu hafa
og þess óska, geti fengið vinnu við
sitt hæfi hluta úr degi. Þeir, sem
kynnu að óska eftir þessari fyrir-
greiðslu eru beðnir að hafa samband
við skrifstofuna sem fyrst — segir í
fréttatilkynningu frá samtökunum.
Tveir fulltrúar félagsins sóttu
Norðurlandaþing ellilífeyrisjæga
sem haldið var í Danmörku í júní á
síðastliðnu ári og voru sagðar frétt-
ir af þinginu á fundinum. Þá voru á
fundinum einnig rædd ýmis félags-
mál og gerðar áætlanir um framtíð-
ina. Stjórn félagsins skipa: Hans
Jörgensson, formaður, og aðrir í
stjórn eru: Lóa Þorkelsdóttir, Sig-
urður Gunnarsson, Stefán Björns-
son og Soffía Jónsdóttir. Varamenn
eru: Guðrún Runólfsdóttir, Ólafur
Pálsson og Hafsteinn Þorsteinsson.
BLÓM /<o/ V •
VIKUNMR V \v
UMSJÓN: ÁB. ®
• •
FJOLÆRAR
JURTIR
Og þá er komið að lokaorðunum hans Ólafs Björns
Guðmundssonar um fjölærar jurtir og enn um
UMHIRÐU:
Á haustin, þegar frost hafa sviðið jurtirnar, er best
að klippa ofan af þeim 10—15 sm frá jörð og leggja
toppana yfir til hiífðar, en stubbarnir sem eftir standa,
varna því að skýlið fjúki út í veður og vind.
Viðkvæmum jurtum í steinbeðinu má skýla með því
að leggja yfir þær glerplötur yfir veturinn til að verja
þær fyrir bleytu og krapi. Glerið má þó ekki liggja fast
niður að jurtinni, heldur vera á lofti. Létt skýli úr lyngi
eða laufi, eða jafnvel striga, er oft til mikilla bóta.
Sérlega dýrmætar og viðkvæmar jurtir ætti að flytja
í sólreit á haustin og geyma þær þar undir gleri yfir
veturinn til að vera við öllu búinn. Þetta er sjálfsagt að
gera við jurtir eins og t.d. urðargull, húslauka, sumar
MJALLHÆRA — Luzula nivea — er eitt þeirra fjölæru
skrautgrasa scm vel henta til ræktunar hér á landi. Axið er
snjóhvítt ok sé það skorið hæfilega þroskað má þurrka það «k nota
til skreytinga eða i vasa. Jurtin. sem er náskyld islensku
vallhærunni er um það bil 50 sm á hæð.
hnoðrategundir og ýmsar háfjallajurtir, sem vanar eru
að blunda undir sinni fannsæng allan veturinn. Annars
er hætta á að berfrostin leiki þær svo illa, að þær verði
allt sumarið að jafna sig og nái alls ekki að blómstra, ef
þær þá lifa af harðærin. Margar þessara jurta má sem
best rækta í pottum og flytja þær á milli í þeim. Sú
aðferð er víða notuð erlendis svo okkur ætti ekki að
vera vandara um.
Söfnun fræs af eigin jurtum (og annarra) er
skemmtilegt viðfangsefni, sem flestir ættu að reyna.
Enda er það oft eina leiðin til þess að komast yfir
sjaldgæfar tegundir.
Og þá er ekki annað eftir en að óska ykkur góðs
ræktunarárangurs og margra ánægjustunda í garðin
um.
Ó.B.G.