Morgunblaðið - 13.06.1981, Síða 30

Morgunblaðið - 13.06.1981, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1981 Þjóðleikhúsið: Gustur í kvöld - fáar sýningar eftir í kvöld verður sýning á rússn- eska söngleiknum Gusti í Þjóð- leikhúsinu. Leikurinn er eftir Mark Rozovskí og er byggður á sögu um veðhlaupagæðinginn Gust, eftir Lev Tolstoj. Sýning þessi hefur fengið mjög góða dóma gagnrýnenda blaðanna. — Það er Bessi Bjarnason sem leikur Gust sjálfan, en aðrir í aðalhlutverkum eru Arnar Jóns- son, Árni Tryggvason, Flosi Ólafs- son, Gunnar Eyjólfsson, Róbert Arnfinnsson, Sigríður Þorvalds- 'dóttir og Sigurður Skúlason. Tólf aðrir leikarar fara með hlutverk hestastóðs og kórs og auk þeirra er sígaunahljómsveit á sviðinu sem skipuð er Laufeyju Sigurðar- dóttur á fiðlu, Karli Sighvatssyni á harmonikku, Sigurði I. Snorra- syni á klarinett og Snorra Erni Snorrasyni á gítar. Árni Bergmann þýddi leikinn, Þórhildur Þorleifsdóttir er leik- stjóri, leikmynd og búningar eru eftir Messíönu Tómasdóttur, Atli Heimir Sveinsson hafði umsjón með tónlistinni og Árni Baldvins- son með lýsingunni. Aðeins þrjár sýningar eru eftir á Gusti. La Bohémc annað kvöld — fáar sýningar eftir Annað kvöld, sunnudag, verður síðasta sýningin sem Kristján Jóhannsson, Sieglinde Kahman og Elín Sigurvinsdóttir syngja sem gestir í uppfærslu Þjóðleikhússins á óperunni La Bohéme, eftir Pucc- ini. Óperan hefur þegar verið sýnd yfir tuttugu sinnum og oftast fyrir fullu húsi við góðar undirtektir. Eftir helgina eru aðeins þrjár sýningar eftir á þessari vinsælu óperu og verða þær allar í næstu viku. Munu þá Garðar Cortes, Ólöf K. Harðardóttir og Ingveldur Hjaltested syngja á ný í sýning- unni. Aðrir einsöngvarar eru Halldór Vilhelmsson, John Speight, Jón Sigurbjörnsson, Kristinn Hallsson og Guðmundur Jónsson. Söngleikurinn Gustur hefur fengið mjög góða dóma gagnrýnenda blaðanna Guðbcrgur Auðunsson Ljósm. SigurKcir SÍKurjónsson Gallerí Langbrók: Guðbergur Auðuns- son opnar sýningu í dag kl. 15.00 opnar Guðbergur Auðunsson sýningu i Galleri Langbrók í Bernhöftstorfu. Þar sýnir hann 30 myndir unnar með blandaðri tækni. Guðbergur er fæddur í Reykjavík árið 1942. Hann nam í Kunsthaandværkerskolen í Kaupmannahöfn árið 1959—63 og í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1976—77. Hann hefur haldið einkasýningar í Vestmannaeyjum 1977; á Kjarvalsstöðum 1978; á veitingastaðnum Á næstu grösum 1978; í Gallerí Suðurgötu 7 1979; í FÍM-salnum 1980, og í Gallerie Baden-Baden, V-Þýskalandi 1980. Þá hefur hann tekið þátt í haustsýningum FÍM og á þessu ári tók hann þátt í Rostock-bíenalnum í A-Þýskalandi. Sýningin er opin virka daga frá kl. 12—18 og 14—18 um helgar, en henni lýkur 29. þ.m. Tónleikar í Ak- ureyrarkirkju BLÁSARASVEIT Tónlistarskólans á Akureyri undirbýr nú þátttöku í alþjóðlegri keppni og móti lúðrasveita sem fer fram i Ilamar í Noregi dagana 19.—29. júní nk. í tilefni þessa heldur blásara- sveitin tónleika í Akureyrar- kirkju annað kvöld, og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskránni verða innlend og erlend lög og m.a. verður tónverkið „íslensk æska“, rapsódía eftir Roar Kvam, sem er stjórnandi sveit- annnar, flutt í fyrsta skipti. Tónverkið er byggt á íslenskum þjóðlögum. Um 6—7.000 gestir munu sækja lúðrasveitahátíðina í Hamar og 140 lúðrasveitir taka þátt í keppninni. Alls munu 13 listamenn sýna verk sin á sýningunni i vestursal Kjarvalsstaða. Tvœr sýningar opnað- ar á Kjarvalsstöðum í dag verða tvær sýningar opnað- ar á Kjarvalsstöðum. þ.e. sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals, sem eru i eigu Reykjavikurhorgar, en hún verður i Kjarvalssal. og svo sýningin Leirlist, Gler, Textíll, Silfur og Gull sem verður í Vestur- sal. Þeir listamenn sem sýna þar sýndu saman i Hasselby-höll i Svíþjóð fyrr í vor, að Sigrúnu Ólöfu Einarsdóttur undanskilinni, en hún hefur ekki sýnt verk sín opinherlega fyrr hér á landi. Forstöðumaður Hásselby-hallar, Birger Olsson, valdi þátttakendur og listmuni á sýninguna í samráði við Stefán Snæbjörnsson innan- hússarkitekt sem síðan hafði allan veg og vanda af uppsetningunni þar og á Kjarvalsstöðum. Þessir listamenn eru: Steinunn Marteinsdóttir sem sýnir leirlist, Haukur Dór Sturluson sem er með listaverk á sýningunni sem kallast „Magn og gæði“ en hann sýnir leirlist, Jónína Guðnadóttir er einn- ig með leirlist, svo og Elísabet Haraldsdóttir. Hulda Jósefsdóttir sýnir Textíl, ullarvörur í sauðalitum og Sigríður Jóhannsdóttir og Leifur Breiðfjörð eru með Textíl-myndvefnað. Guðrún Auðunsdóttir sýnir Textíl-tauþrykk og einnig Ragna Róbertsdóttir. Ás- dís Sveinsdóttir Thoroddsen sýnir skartgripi úr gulli og silfri og Jens Guðjónsson er einnig með ýmsa muni unna úr silfri og gulli. Guð- brandur J. Jezorski er með gull- og silfurverk en að síðustu er Sigrún Ólöf Einarsdóttir með glervörur, en hún er nýkomin heim frá námi í Kaupmannahöfn. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22 til 23. ágúst og er ókeypis aðgangur. Kaffistofa Kjarvalsstaða er opin daglega frá kl. 14—19 og einnig á kvöldin þegar sérstök dagskrá er í húsinu, t.d. tónleikar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.