Morgunblaðið - 13.06.1981, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981
Skjóni sigraði nokkuð örugglega i 250 m skeiði og var hann rúmlega
sekúndu á undan næsta hesti. Timi hans var 22,9 sek. og er greinilegt
að hann er iiklegur til stórra afreka i sumar.
Jónsson en knapi var Sigrún
Valdimarsdóttir.
í eldri flokknum sigraði Blesi
frá Breiðabólstað með 8,39 í ein-
kunn. Eigendur hans eru Guðjón
og Hörður Jónssynir en knapi var
Ester Harðardóttir. í öðru sæti
varð Bjarki frá Vallarnesi með
8,37 í einkunn. Eigendur hans eru
Ragnar Tómasson og Þorsteinn
Steingrímsson en knapi var Tóm-
as Ragnarsson og var hann eini
pilturinn sem tókst að komast upp
á milli stúlknanna. í þriðja sæti
varð svo Blöndu-Blesa frá Hof-
stöðum í Skagafirði. Hún hlaut í
einkunn 8,22. Eigandi hennar er
Ejrvindur Hreggviðsson en knapi
Þórunn Eyvindsdóttir.
Góður árangur
_______í brokki________
í brokkinu náðist verulega góð-
ur tími á fyrsta hest og þokka-
Hvítasunnukappreiðar Fáks:
Jöfn keppni gæð-
inga - Góðir tímar í
Öllum á óvart sigraði ungur og óþekktur hestur i A-flokki gæðinga.
Hann heitir Glæsir og er frá Glæsibæ i Skagafirði. Glæsir hlaut i
einkunn 8,68 og er það góður árangur hjá sex vetra hesti. Knapi á
Glæsi er Gunnar Arnarson.
kappreiðum
Hið árlega Hvítasunnumót Fáks var haldið um síðustu helgi. Á
laugardag voru gæðingar dæmdir, bæði hjá fullorðnum og unglingum.
Mikil þátttaka var í gæðingakeppninni eða samtals 103 hestar, sem
skiptust þannig milli flokka: í A-flokki gæðinga voru 37 keppendur. í
B-flokki voru 39 keppendur, í unglingaflokki 10—12 ára voru keppendur
8 og í unglingaflokki 13—15 ára voru keppendur 19. Á mánudag annan í
hvítasunnu voru svo tólf efstu gæðingar í A- og B-flokki sýndir og
verðlaun afhent. Einnig voru unglingum afhent verðlaun þá.
Að lokinni verðlaunaafhendingu
gæðinga hófust kappreiðar. Til
leiks voru skráð 111 hross og þar á
meðal voru mörg af fremstu
kappreiðahrossum landsins eins
og venja er á hvítasunnukappreið-
um. Veðurguðir voru hliðhollir á
laugardag þegar gæðingadómar
fóru fram, en eitthvað hefur þeim
sigið í skap á mánudeginum, því
að aflokinni verðlaunaafhendingu
í gæðingakeppni byrjaði að rigna
og samfara því var hálfgerð
kuldanepja fram eftir degi og
stytti ekki upp fyrr en langt var
liðið á kappreiðarnar. Þrátt fyrir
þetta náðist ágætur árangur í
flestum greinum.
Mikil breidd í
gæðingakeppninni
í A-flokki voru skráðir margir
kunnir gæðingar, má þar nefna
Frama, Ögra og Skugga. Einnig
voru aðrir minna þekktir.
í A-flokki urðu úrslit nokkuð
óvænt, en þar sigraði ungur og svo
til óþekktur hestur, Glæsir frá
Glæsibæ í Skagafirði. Glæsir er
aðeins 6 vetra og er þetta skjótur
frami hjá svo ungum hesti, að
sigra í gæðingakeppni þar sem
teflt er fram mörgum af fremstu
gæðingum landsins. Eigandi
Glæsis er Jón Ingi Baldursson, en
knapi var Gunnar Amarson.
Glæsir hlaut í einkunn 8,68, sem
er frábær árangur. í öðru sæti
varð skeiðhesturinn kunni, Frami
frá Kirkjubæ, með 8,56 í einkunn.
Ekki er þörf á að fara mörgum
orðum um Frama, hann er marg-
búinn að sanna ágæti sitt bæði
sem kappreiðahestur á skeiði og
sem gæðingur og má segja að
hann hafi undirstrikað gæði sín í
þessari keppni. Eigandi Frama er
Erling Sigurðsson og var hann
einnig knapi. I þriðja sæti varð
svo Hofstaða-Brúnn frá Hof-
stöðum í Skagafirði með 8,55 í
einkunn. Eigandi hans er Jóhann
Friðriksson en knapi á honum var
Eyjólfur ísólfsson. Hofstaða-
Brúnn er eins og Glæsir óþekktur
og hæfileikamikill.
í B-flokki voru hestar jafnir að
gæðum og til marks um það má
geta þess að einkunnir tólf efstu
hesta voru á bilinu 8,40 til 8,58, en
þá einkunn hlaut Röðull frá Sauð-
árkróki. Eigandi hans er Hörður
G. Albertsson en knapi var
Trausti Þór Guðmundsson. Fast á
hæla hans kom svo Hljómur frá
Vatnsleysu með 8,57 í einkunn.
Eigandi Hljóms er Þórdís H.
Albertsdóttir en knapi var Sigur-
björn Bárðarson. í þriðja sæti
varð svo gamla kempan Muggur
frá Rauðalæk, eigandi hans er
Fríða H. Steinarsdóttir og var hún
einnig knapi. Muggur hlaut í
einkunn 8,52.
Eins og áður sagði voru tólf
efstu hestar í hvorum flokki sýnd-
ir á mánudeginum og voru þar
samanljomnir gæðingar í háum
gæðaflokki og er ekki ólíklegt að
þetta sé ein besta gæðingasýning
sem Fákur hefur boðið upp á.
í unglingakeppninni virtust
stúlkurnar hafa talsverða yfir-
burði yfir piltana, því af sex
verðlaunum sem veitt voru (þrjú í
hvorum flokki) komst aðeins einn
piltur í verðlaunasæti. En úrslit
urðu annars sem hér segir: í yngri
flokknum sigraði Glotti frá
Kirkjubæ með einkunnina 8,20.
Eigandi er Ellen Blömenstein en
knapi var Dagný Ragnarsdóttir. í
öðru sæti varð Dúnu-Blesi frá
Bergvík með 8,05. Eigandi og
knapi var Hanna Dóra Hjartar-
dóttir. í þriðja sæti varð svo Krapi
frá Uxahrygg með 8,01 í einkunn.
Eigandi hans er Valdimar K.
legur tími hjá þeim sem á eftir
komu, þannig að menn ættu að
geta gert sér góðar vonir með
árangur í þessari grein í sumar.
Bestum tíma náði að þessu sinni
skeiðhesturinn Fengur, 1.39.0 mín.
sem er mjög gott á hringvelli, og
verður fróðlegt að fylgjast með
þessum hesti á hlaupabrautinni í
sumar. Eigandi Fengs er Hörður
G. Albertsson en knapi var Sigur-
björn Bárðarson. Á eftir Feng
kom Bimba-Skjóni frá Stokkhólmi
á 1.45.9 mín. Eigandi hans er
Finnbogi Karlsson og var hann
einnig knapi. Þriðji í röð var svo
Tvistur frá Torfastöðum á 1.46.0
mín. Eigandi er Heiða Guðjóns-
dóttir en knapi var Guðmundur
Clausen.
Hörð keppni í
800 m stökki
í 800 m stökki var keppni
geysihörð bæði í undanrásum og
úrslitum. Til leiks voru skráðir
þrír fyrrverandi methafar, þeir
Reykur, Þróttur og Sesar, sem að
vísu mætti ekki til leiks, ásamt
núverandi methafa, Gnýfara.
Einnig var Leó mættur en hann
sigraði í þessari grein á vorkapp-
reiðunum. Gnýfari virtist ekki í
góðu formi og blandaði sér því
ekkert í baráttu um verðlaunasæt-
in. Það voru aftur á móti þeir
Reykur, Þróttur og Leó sem háðu
harða baráttu um fyrsta sætið.
Reykur og Þróttur komu jafnir í
mark á 59,4 sek. og var Reykur
dæmdur sjónarmun á undan. Leó
var ekki langt undan því hann
hljóp á 59,5 sek. Eigandi Reyks er
Hörður G. Albertsson en knapi
var Hörður Þ. Harðarson. Eigandi
Þróttar er Sigurbjörn Bárðarson
en knapi á honum var Kristrún
Sigurfinnsdóttir, og eigandi Leós
er Baldur Baldursson en knapi var
Jón ólafur Jóhannesson. Leiðinleg
mistök áttu sér stað þegar raðað
var í úrslitariðilinn, en þá gleymd-
ist ein hryssa sem með réttu átti
að vera i úrslitunum. Þessi hryssa
sem ber nafnið Stóra-Dóra sýndi
mjög góð tilþrif í undanrásum
eftir að startið hafði misheppnast
hjá henni og þegar ca. fimmtíu
metrar voru í næsta hest tók hún
heldur betur á honum stóra sínum
og vann upp þetta forskot og gott
betur því hún kom þriðja í mark á
eftir þeim Þrótti og Leó. Verður
fróðlegt að fylgja þessari hryssu á
hlaupabrautinni í sumar. Þess má
einnig geta að Reykur varð fyrir
því óhappi að hestur sem á eftir
honum hljóp greip með framfæti í
annan afturfót hans og hlaut hann
talsverðan áverka. Taldi umsjón-
armaður Reyks, Sigurbjörn Bárð-
arson, sennilegt að Reykur yrði
eitthvað frá keppni vegna þessa.
Keppni í 350 m stökki var með
heldur daufara móti, að vísu
náðust góðir tímar í undanrásum,
en það virðist vanta þá spennu
sem einkennt hefur þessa keppnis-
grein undanfarin ár. Saknaði
maður óneitanlega að fá ekki að
sjá Storm sem var nær ósigrandi í
fyrra, einnig Glóu en hún var
skráð en mætti ekki. En það fór nú
eins og á vorkappreiðunum að
Gjálp sigraði nokkuð örugglega á
26,1 sek. Eigendur hennar eru þeir
feðgar Gylfi Þorkelsson og Þorkell
Bjarnason en knapi var Kristrún
Sigurfinnsdóttir. Ánnar varð Don
Harðar G Albertssonar á 26,8 sek.
Knapi á Don var Hörður Þ.
Harðarson. Bæði þessi hross gerðu
garðinn frægan í 250 m ung-
hrossahlaupi á sínum tíma og er
Mansi kom sá og sigraði i 250 m stökki öllum á óvart, i sinu fyrsta
hlaupi á kappreiðum.