Morgunblaðið - 13.06.1981, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981
39
Guðmundur Jónatan
Sigurösson - Minning
Fæddur 18. desember 1965.
Dáinn 10. júni 1981.
Hann Guðmundur er dáinn.
Eg taldi mig vera tilbúna að
taka þeirrri frétt en samt var eins
og jörðin opnaðist undir fótum
mínum þegar hún kom og ég fann
að ég hafði innst inni trúað á að
kraftaverkið myndi ske — hann
fengi að lifa lengur og vera styrka
stoðin hennar mömmu sinnar sem
þegar hafði misst svo mikið.
Hann barðist svo hetjulega við
dauðann, þessi brosmildi ljúfi
piltur, og var svo sterkur að það
var sem ekkert gæti yfirbugað
hann, hvorki sorglegur missir
ástvina eða veikindin.
En enginn getur barist enda-
laust og nú hefur Guð tekið hann
til sín og komið í veg fyrir meiri
þjáningar.
Allir fá mismunandi erfiðar
leiðir í þessu lífi. í erfiðustu
leiðinni minni, kom Guðmundur
eins og lítill ljósgeisli og lýsti upp
drungalega tilveru mína með glað-
legu brosi og frjálsmannlegu fasi.
Þrátt fyrir þá miklu erfiðleika
sem hann átti í þá, var hann svo
gjafmildur á brosin sín og elsku-
legt viðmót að ekki var hægt
annað en líða vel í návist hans.
Góður maður sagði við mig um
daginn, að það væri ekki spurning
um hve langt lífið manns væri,
heldur hve mikið maður gæfi
öðrum af gleði, hamingju, huggun
o.s.frv., svo þó að Guðmundur hafi
ekki orðið langlífur, væri hann
búinn á sinni stuttu ævi að gefa
öðrum meira en margur maðurinn
gefur á 90 árum.
Við, sem höfum verið samferða
Guðmundi, höfum lært mikið. Við
horfðum á ungan dreng, sem
aldrei gafst upp, sem hélt höfðinu
hátt hvað sem á dundi. Nú, þegar
við horfum á eftir honum yfir
móðuna miklu, vitum við, að í
hjarta okkar eigum við fallega
minningu um góðan dreng — og
hana getur enginn frá okkur tekið.
Ég bið góðan Guð að blessa
Sigurður Einarsson, Hamrahlíð
2, Egilsstaðakauptúni andaðist á
sjúkrahúsi á Akureyri 6. þ.m.
Sigurður lét af störfum hjá
Kaupfélagi Héraðsbúa fyrir rúm-
um þremur árum vegna heilsu-
brests, en þá var hann rétt við
sjötugsaldur. Nú hafði hann feng-
ið hjartaáfall, og var að læknis-
ráði fluttur á sjúkrahús á Akur-
eyri til meðhöndlunar sérfræð-
inga. Þar lést hann á þriðja degi.
Sigurður fæddist að Víðivöllum
ytri í Fljótsdal 11. nóvember 1907.
Foreldrar hans voru hjónin Einar
Jónsson bóndi þar og kona hans,
Þórunn Einarsdóttir. Hann ólst
upp hjá foreldrum sínum í stórum
systkinahópi, 8 að tölu.
Þegar faðir hans dó og móðir
hans stóð ein uppi með þennan
stóra barnahóp, fluttist Sigurður í
fóstur til hjónanna Halldórs Stef-
ánssonar og Bjargar Halldórs-
dóttur að Hamborg í sömu sveit
árið 1918, þá 10 ára. Árið 1921
flyst hann með fósturforeldrum
sínum að Torfastöðum í Vopna-
firði, og er þar til ársins 1931. En
þá flytur Halldór Stefánsson til
Reykjavíkur með fjölskyldu sinni.
Það ár 1931 réðst Sigurður
starfsmaður að búi okkar hjón-
anna að Egilsstöðum og var þar
samfleytt til 1943, eða nærfellt í
12 ár, að undanskildu einu ári, er
hann bjó hjá tengdaforeldrum
sínum í Skógargerði í Fellum. En
Margrét, dóttir hjónanna Gísla
bónda Helgasonar í Skógargerði
og Dagnýjar Pátsdóttur, kom sem
hann og varðveita alla tíð, svo og
föður hans og bróður, sem nýlega
eru á undan honum gengnir.
Guð blessi einnig Vilborgu móð-
ur hans, sem sér nú á eftir
ástríkum syni, og gefi henni styrk
til að ganga í gegnum þetta allt.
Þóra Stefánsdóttir
Á einu ári hefur hinn slyngi
sláttumaður knúð dyra þrem sinn-
um hjá sömu fjölskyldunni. Eldri
sonurinn lést fyrir ári, eiginmað-
urinn fyrir mánuði og nú Guð-
mundur Jónatan, sem í vor lauk
sínum fyrsta áfanga á mennta-
brautinni, grunnskólaprófi.
Sagt er: „Þeir deyja ungir sem
guðirnir elska.“ Getum við trúað
slíku þegar við sjáum sláttumann-
inn á slíkri hraðferð?
Móðirin stendur nú ein uppi.
Allir farnir, ekkert eftir.
Það er ekki að undra þótt maður
spyrji sjálfan sig: Hver er tilgang-
ur lífsins?
Svar við þeirri spurningu hefur
mannlegur skilningur ekki fundið
enn, svo fullkomið sé.
Hvers vegna hann? Og hvers
vegna nú?
Þegar loftið fyllist gróðurangan
og blómin skjóta upp kolli sínum,
eftir stormasaman vetur, þarf
hann að hverfa. Hver fær skilið að
ungir menn fullir af lífslöngun og
viljastyrk til framtíðardrauma og
starfa fái ekki að njóta sín?
Það hlýtur að vera einhver
dulinn kraftur sem heimtar þessa
menn til sín, án okkar skilnings.
Heimtar þá úr þessum storma-
sama óblíða mannheimi til æðra
og betra lífssviðs.
Fyrir tæpum tíu árum, eða 1971,
kom Guðmundur Jónatan í Álfta-
mýrarskóla, þá tæpra sex ára, og
þar hlaut hann sína skólagöngu.
Guðmundur Jónatan var áhuga-
samur og góður námsmaður og
stóð við sitt nám meðan stætt var.
Síðastliðinn vetur mátti oft sjá að
það var viljinn en ekki getan sem
kaupkona í Egilsstaði 1934. Þar
kynntust þau Sigurður og dró sú
kynning til hjónabands þeirra
1935.
Búskapur okkar hér á Egils-
stöðum var nokkuð frábrugðinn
venjulegum sveitabúskap. Honum
fylgdi óumflýjanlega mikil gesta-
móttaka og fyrirgreiðsla, hér á
krossgötum, þar sem öll umferð
fór í gegn og ekki í annað hús að
venda fyrir gesti og gangandi. Sú
starfsemi var síst umsvifaminni
en við hin hefðbundnu bústörf.
Það var því ómetanlegt fyrir
okkur að fá slíkan starfsmann
sem Sigurð í öll þau umsvif, sem
tilheyrðu þessu heimili. Hann var
jafnvígur til að sinna öllum störf-
um utan húss á heimilinu, hvort
sem um var að ræða margvísleg
störf við búreksturinn, eða fyrir-
greiðslu við ferðamenn. Kom þá
ekki síst í ljós dugur og þor það,
sem Sigurður bjó yfir, en oft varð
að aðstoða eða fylgja ferðamönn-
um yfir fjallvegina hér, Fjarðar-
heiði og Fagradal, í illviðrum og
ófærð á vetrum. Þá var hann
traustur og harður, þegar á þurfti
að halda. Sigurður var sérstaklega
glaðvær og geðþekkur maður á
heimili og vinfastur.
Þessi langi starfstími Sigurðar
við heimili okkar var afgerandi
þáttur við heimilishald okkar og
búrekstur. Teljum við okkur í
mikilli þakkarskuld við minningu
hans.
1943 flytja þau hjónin, Margrét
og Sigurður, til Reyðarfjarðar.
réðu ferðinni. Metnaður og kjark-
ur voru meðal hans kosta og frá
þeim skyldi ekki vikið.
Ég man sérstaklega eftir honum
vegna þess að nafna hans, afann,
þekkti ég mjög vel og af góðu einu,
enda bar hann einstaka umönnun
fyrir þessum nafna sinum.
Guðmundur Jónatan kom í
Álftamýrarskóla haustið 1971,
eins og fyrr segir, og lauk í vor
grunnskólaprófi. Árangur hans
var það góður að honum voru allir
vegir færir til framhaldsnáms, en
þá kom kallið, kallið sem allir
verða að svara og hlýða og Guð-
mundi var svipt af sjónarsviði
mannlegrar tilveru.
Ég vona að með því sé einhver
tilgangur, þó að ég fái hann ekki
skilið og að Guðmundur fái að
njóta sín og þroska hæfileika sína
á mörgum sinnum glæstari braut
en boðið er upp á hér í heimi.
Ég bið fyrir mína hönd, sam-
kennara og nemenda minna góðan
Guð að styrkja og styðja móður
hans og gefa henni trú og kraft til
þess að trúa því að drengurinn
hennar sé í höndum almættisins
þar sem við eigum öll eftir að
koma.
Harmurinn er sár, en það eina
sem hann getur sefað er minning-
in um góðan dreng.
Fari hann í friði.
Ragnar Júliusson
Við daKsins dýrAarljóma
ók daKKarperlur sá
í bikar unxra blóma,
þá brosti líísins þrá,
sem spe^lar mancar myndir
á móti sólarbrá,
hve djúpar lifsins lindir
hinn íitli dropi á.
(Ó.H.)
Dauðinn mismunar engum en er
misjafnlega tímabær að skilningi
okkar, ófullkominnuamanna.
Dauðinn er þjónn lifsins og getur
komið í líki engils til að frelsa
hinn sjúka og þjáða frá kvölum og
pínu, stundum fyrirvaralaust.
Það er sagt, að það séu aðals-
menn, sem geti umgengist sorg og
gleði. Hér stendur einn í dag,
móðirin, yfir moldum 15 ára sonar
síns.
Alfaðir hefir sótt aleiguna
hennar á einu ári, tvo syni og
eiginmanninn.
Sigurður gerist þá afgreiðslumað-
ur hjá Kaupfélagi Héraðsbúa.
1948 flytjast þau aftur í Hérað og
setjast að í Egilsstaðakauptúni og
byggðu sér strax íbúðarhús, sem
skrásett er Hamrahlíð 2, Egils-
staðakauptúni.
Þau Margrét og Sigurður eign-
uðust þrjú börn, sem öll eru búsett
hér: Gísli, verkstjóri hjá Raf-
magnsveitum ríkisins, kona hans
er Heiða Aðalsteinsdóttir, eiga
þau 5 börn, Svavar, bifreiðastjóri,
kona hans er Kolbrún Halldórs-
dóttir, reka þau fyrirtæki, með
vöruflutninga milli Reykjavíkur
og Austurlands, þau eiga 5 börn,
Dagný, talsímavörður við símstöð-
ina á Egilsstöðum, maður hennar
er Arnfinnur Jónsson, vélgæslu-
maður hjá prjónastofunni Dyngju,
eiga þau 5 börn.
Með þessum línum og fátæklegu
orðum viljum við hjónin minnast
Sigurðar og votta konu hans og
börnum og þeirra fjölskyldum
innilega samúð.
Sveinn Jónsson
Við drjúpum höfði skilnings-
laus, orðvana og hljóð. Guðmund-
ur J. Sigurðsson lést á Borgarspít-
alanum 10. júní eftir langa og
stranga baráttu við erfiðan sjúk-
dóm. Hann verður til moldar
borinn frá Eyrarbakkakirkju í
dag. Hann fæddist 18. desember
1965. Sonur hjónanna Vilborgar
Sæmundsdóttur og Sigurðar J."
Guðmundssonar (d. 17. maí síð-
astliðinn). Hann átti einn bróður,
Hafstein, (d. 25. maí 1980).
Guðmundur var fallegur dreng-
ur, laglegur, myndarlegur og mjög
greindur. Nám í skóla gekk honum
mjög vel. Hann las sér til um alla
hluti og var óvenjulega fróður af
svo ungum dreng. Skapið var
stórt.
„Ræktaðu garðinn þinn“ mun
hafa verið einkunnarorð fjölskyld-
unnar. Allt var gert til að búa
fjölskyldunni fallegt og gott heim-
ili. Hjónin voru mjög samhent í
því að heimilið væri sem best úr
garði gert, enda fjölskyldan
heimakær. Heimilið stóð líka opið
vinum og kunningjum drengj-
anna, þeim var tekið opnum örm-
um, svo og gestum og gangandi.
Fyrir tveim árum byrjar
óvenjuleg harmasaga þessarar
fjögurra manna fjölskyldu, þegar
Guðmundur litli kennir þessa
hræðilega sjúkdóms, sem eftir
þrotlausa baráttu verður að lokum
banamein hans. Aðgerð var gerð á
handlegg hans, sem tók 14 tíma,
vonir voru bundnar við að aðgerð-
in mundi takast, þó ekkert væri
öruggt í baráttunni við þennan
vágest.
Hann fer í létta vinnu um
sumarið, svo í skólann um haustið
og gengur námið vel. Hann var
glaðlegur og fallegur þegar hann
sagðist vera farinn að skrifa með
hendinni sinni. Foreldrarnir og
bróðirinn studdu hann og styrktu
af alúð og kærleika, en geta má
nærri að ótti hefir búið undir
niðri.
TÍKna sofk —
l*0K«r menn hoyra fótatak þitt nálRast
konna þoir óstyrks ok vilja flostir flýja —
en vita þo sjaldnast hvort flýja skal.
(Grétar Folls.)
Laugardaginn fyrir hvítasunnu
situr fjölskyldan heima. Haf-
steinn, eldri sonurinn, skreppur
út, kemur að vörmu spori aftur,
hafði hitt kunningja sina og
kvaðst ætla að skreppa með þeim í
bíltúr. Morguninn eftir er hann
liöið lík, þeir fórust tveir í bílslysi
um nóttina.
Nokkru eftir jarðarför Haf-
steins, sem var ljúfur og myndar-
legur piltur, fer að bera á veikind-
um hjá Guðmundi aftur. Hann
stundar skólann fram að áramót-
um, en er á spítalanum af og til og
gengur í sprautur, tekur ágætt
próf um nýár, en upp úr því fer
heilsunni að hraka. Sigurður faðir
þeirra hefir ekki heldur gengið
heill til skógar, ef til vill lengur en
vitað var. Þeir voru til skiptis á
spítalanum og viku stundum úr
rúmi hvor fyrir öðrum, faðir og
sonur, annar fór heim. Sigurður
lést úr sama sjúkdómi og drengur-
inn. Móðirin og eiginkonan hljóp á
milli.
Frá því að móðirin vaggaði
drengnum, var mjög náið sam-
band milli þeirra mæðgina. Þau
voru alla tíð mjög samrýnd, miklir
félagar og trúnaðarvinir. Hann
ræddi við hana um vandamál
lífsins og það sem hann las. Svo
þegar hann var orðinn helsjúkur
eftir aðra aðgerð, þá á fæti, og
faðirinn að dauða kominn, reyndi
hann að hugga hana en jafnframt
að undirbúa og sagði eitt sinn
meðal annars: „Hann pabbi deyr
nú ef til vill, mamma, en ég lifi
áreiðanlega, því það hlýtur að
vera einhver tilgangur með þess-
um aðgerðum á mér.“
Ml>vi hvaó or ástar ok hróArar dís.
»K hvaó or onKÍII úr Paradis.
hjá K«óri ok kóÍukH moóur."
(M.J.)
Mikilli og óvenjulegri sorgar-
sögu er lokið, en jafnframt ennþá
stærri sigursögu — móðurinnar —
sem að allra dómi, sem með
fylgdust, gekk í gegnum allar
þessar óvenjulegu raunir á svo
auðdáunarverðan og yfirnáttúru-
legan hátt, án þess að æðrast,
álasa eða kvarta, að slíks eru fá
dæmi. Það virtist, að því meira
sem hún gaf af sjálfri sér því
meiru væri af að taka. Mikil er trú
þín, kona.
Læknirinn sem gerði aðgerðirn-
ar á drengnum lagði hér mikla
líkn með þraut. Þar sem vísindin
biðu lægri hlut, kom hann sjúkl-
ingnum sínum til hjálpar með
kærleikanum sem er vísindunum
æðri. Hann vitjaði hans oft, þeir
glettust og með þeim tókst góð
vinátta, sem var hinum sjúka
ómetanleg. Einn dag, þegar dreng-
urinn hafði misst alla matarlyst,
kom hann, lét dúka borð inni í
sjúkrastofunni og þeir borðuðu
saman. Þetta var heilög kvöld-
máltíð. Þessi læknir er einn af
þeim sem er sómi sinnar stéttar.
Honum var þakkað af alhug svo og
öðrum læknum og öllu starfsfólki
á deild A 7 á Borgarspítala, sem
allt sýndi einstaka umhyggju, alúð
og fórnfýsi.
Sof barn mitt, sof. Allir englar
syngi þér lof.
Guð blessi gengna og leiði Vil-
borgu um ókomin ár.
Ok seinna. þar sem enKÍnn telur ár
ok aldrei falla nokkur harmatár.
mun herra timans. hjartans faóir vor.
úr hausti timans Kjóra eilift vor.
(Ó.u.)
Ágústa Júlíusdóttir
t
Innilegar þakkir til allra þelrra er auösýndu vináttu og samúö viö
fráfall og jaröarför eiginmanns míns og fööur okkar.
SIGUROAR GUOMUNDSSONAR,
Hjaröarholti 8, Akranesi,
Guölaug Ólafsdóttir
og börn.
t
Innilegar þakkir til allra fyrir auösýnda samúö viö andlát og
iaröarför systur minnar og frænku,
JÓNÍNU GRÓU PÉTURSDÓTTUR
frá Kjörseyri.
Sérstakar þakkir til Matthíasar læknis og starfsfólks Sjúkrahúss
Hvammstanga svo og allra sem hafa veitt okkur aöstoö,
Halla Pétursdóttír,
Sigríóur Halldórsdóttir
og aörir aðstandendur.
Sigurður Einarsr
son - Minning