Morgunblaðið - 06.08.1981, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981
úr landi. Sagði hún að síðustu
svör til hennar um vegabréfs-
áritun hefðu verið að sækja um
hana í maí 1982. Hún sagðist
hafa símasamband við mann
sinn u.þ.b. tvisvar í mánuði, en
hún truflaði hann ekki þegar
hann væri að tefla á stórmótum.
Stuðningur ís-
lenzkra skákmanna
Forystugrein Mbl. 16. júní fjallar
um þessa ákvörðun Friðriks
Ólafssonar og segir hana vera
rétta. „Friðrik Ólafsson og félag-
ar hans hafa boðið Sovétvaldinu
•byrginn með eftirminnilegum
hætti, nú reynir meira á stuðn-
ing íslenzkra skákmanna og
þjóðarinnar allrar við Friðrik
Ólafsson en nokkru sinni fyrr,“
segir í nefndri forystugrein.
Einnig er þar rætt um þá
þvermóðsku Sovétmanna að
telja málið innanríkismál, þeir
hafi neitað að taka við bæn-
arskjali, sem Islendingar vildu
afhenda sovézka sendiráðinu í
Reykjavík, og íslenzkir þing-
menn í heimsókn í Moskvu hafi
ekki fengið að ræða málefni
fjölskyldu Korchnois. „Að þessu
leyti halla Sovétmenn réttu máli
og kemur það í sjálfu sér ekki á
óvart. Mannréttindamál eru ekki
einkamál einstakra ríkisstjórna.
Um þau hafa verið gerðir al-
þjóðasamningar og 1975 undir-
ritaði sjálfur Leonid Brezhnev
við hátíðlega athöfn i Helsinki
svonefnda lokasamþykkt ráð-
stefnunnar um öryggi og sam-
vinnu 'í Evrópu. I þessari loka-
samþykkt eru skýr fyrirmæli um
það, hvernig ríkisstjórnir skuli
bregðast við í tilvikum eins og
deilu Victor Korchnois við
Moskvuvaldið. Samkvæmt
Helsinki-samþykktinni á Sovét-
stjórnin að virða vilja Korchnois
_ og fjölskyldu hans.“
Ákvörðun Friðriks Ólafssonar um
frestun einvígisins vakti mikla
athygli víða um heim og sögðu
blöð í Evrópu að hún hefði komið
Sovétmönnum mjög á óvart,
bæði skáksambandi þeirra og
heimsmeistaranum. Talsmenn
sovézka skáksambandsins létu
þau orð falla, að þetta væri ekki
íþróttamannsleg leið til að ná af
þeim heimsmeistaratitlinum.
Reglur FIDE brotnar?
Morgunblaðið segir í frétt 23. júní
frá viðbrögðum sovézka skák-
sambandsins. í bréfi til FIDE
segja þeir að Friðrik hafi með
ákvörðun sinni brotið lög og
reglur Alþjóðasambandsins og
krefjast þeir sérstaks fundar
ráðgjafar- og framkvæmda-
nefndar FIDE til að fella úr-
ÖRLAGATAFL
Eftir tvo mánuði munu þeir
skáksnillingar Victor Korchnoi
og Anatoly Karpov hefja einvígi
sitt um heimsmeistaratitilinn i
skákíþrótt á Ítalíu. Vart þarf að
minna á, að undirbúningur
mótsins hefur tekið langan tíma,
margir aðilar komið við sögu og
skiptar skoðanir eru um hvort
pólitík kemur þar við sögu eða
ekki.
Um langt skeið hefur Korchnoi
barizt fyrir því að fjölskyldu
sinni, þ.e. eiginkonu og syni,
verði veitt fararleyfi frá Sovét-
ríkjunum og verða hér á eftir
rifjaðir upp nokkrir áfangar í
þessari baráttu hans.
Almenningsálitið hjálpar
Þegar Korchnoi dvaldi á íslandi
síðla aprílmánaðar á þessu ári
lét hann þau orð falla á blaða-
mannafundi að aðeins almenn-
ingsálitið á Vesturlöndum gæti
hjálpað honum og fjölskyldu
hans og hingað væri hann kom-
inn til að leita stuðnings, hér
_ sem annars staðar.
Áþessum blaðamannafundi rakti
hann hvernig sovézk yfirvöld
hefðu með ofsóknum á hendur
konu hans og syni reynt að
brjóta hann andlega niður allar
götur síðan í Amsterdam í júlí-
mánuði 1976, að hann „yfirgaf
Sovétríkin til að lengja skákferil
minn og komast hjá aðgerðum
sovézkra yfirvalda í minn garð“.
Sonur hans er í vinnubúðum í
Síberíu fyrir að neita að gegna
herþjónustu og kona hans býr í
Leningrad, svipt öllum mögu-
leikum til að vinna fyrir sér.
Til þessa hafa yfirvöld hafnað
öllum beiðnum um að veita
fjölskyldu Korchnois fararleyfi
og segja mál þetta innanríkis-
mál, sem önnur ríki geti engin
afskipti haft af. Korchnoi gagn-
rýndi á fundi með fréttamönnum
í Reykjavík Alþjóðaskáksam-
bandið fyrir að hafa ekki viljað
taka upp mál hans á þingum
sínum, en það væri vilji margra
skákmanna og skákunnenda. í
viðtali við Mbl. 26. apríl í ár
sagði Korchnoi m.a.:
„Ég áfellist ekki Friðrik Ólafsson
þótt hann hafi skort pólitíska
þekkingu, þegar hann tók við
starfi forseta Aiþjóðaskáksam-
bandsins. Hann hefur gert ýmsa
góða hluti, en mér dettur ekki í
hug, þótt á íslandi sé, annað en
að segja það eins og er, að mér
finnst hann ekki hafa gengið
nægilega röggsamlega fram í
máli mínu og fjölskyldu minnar.
Forseti FIDE getur
talað mínu máli
Forseti Alþjóðaskáksambandsins
nýtur nefnilega talsverðrar virð-
ingar í Sovétríkjunum, eiginlega
meiri virðingar en ég held ann-
ars staðar í heiminum, og þess
vegna er honum alveg óhætt að
ræða við æðri menn í Sovétríkj-
unum en yfirmenn íþróttamála.
Friðrik Ólafsson gæti því auð-
veldlega talað mínu máli við
miklu hærra setta menn en hann
virðist hafa haft kjark til.“
Friðrik Ólafsson dvaldi í Moskvu
nokkra daga í apríl og eftir ferð
sína þangað sagði hann m.a. í
samtali við Mbl.: „Ég vænti þess
innan tíðar að fá að vita hvort
fjölskyldumál Korchnois fái far-
sæla lausn, en takist það ekki
verður FIDE að grípa til sinna
ráða og þar er um fastmótaðar
hugmyndir að ræða, sem hafa
verið fyrir hendi frá upphafi."
Friðrik sagði það skyldu sína að
fyllsta jafnræði ríkti í öllum
atriðum milli keppenda og sagði
hann fjölskyldumál Korchnois
standa þar í vegi. „Það er
grundvallaratriði að keppendur
standi jafnt að vígi. Ég er og hef
lengi verið í þeirri aðstöðu að
hafa lítið getað sagt um fram-
vindu þessa máls opinberlega, en
Sovétmenn vita að ég er ekki
ánægður með stöðuna og þeir
vita að ef ekki rætist úr mun
mikil ólga fylgja heimsmeistara-
einvíginu þar sem samúðin yrði
á einn veg ... Við í FIDE erum
orðnir leiðir á því að vera
stöðugt i eldlínunni milli Sovét-
manna og Korchnois og ef þessi
mál fá ekki farsæia lausn fyrir
einvígið mun FIDE gera hreint
fyrir sínum dyrum. Þarna er um
grundvallaratriði að ræða og án
lausnar er ekki aðstaða til þess
að hafa taumhald á einvíginu."
Einvíginu frestað
Þetta var síðast í apríl og einvígið
átti að hefjast 19. september.
Um miðjan júní tók forseti
Alþjóðaskáksambandsins þá
ákvörðun að fresta einvíginu um
einn mánuð. Mbl. segir 14. júní
eftir Friðriki Ólafssyni: „Það er
vilji FIDE, að þetta mál leysist
og þess vegna setjum við þennan
þrýsting á Sovétmenn. Ég tel
það skyldu mína að sjá um, að
aðstaða keppenda sé jöfn og
ákvað því að gefa Rússunum
aukinn tíma til að leysa rnálið."
Ennfremur sagði Friðrik við
tta tækifæri:
hef engar upplýsingar um það
hvort eitthvað hefur liðkazt til
um þeirra hagi síðan ég var í
Moskvu, og vegna þess hve
tíminn var orðinn knappur fram
að einvíginu ákvað ég að gefa
Rússunum aukinn tíma til að
leysa málið. Ég vil, að það komi
skýrt og greinilega fram, að
FIDE vill lausn á máli fjölskyldu
Korchnois, sem hefur verið
skákhreyfingunni erfitt. Afstaða
FIDE hefur harðnað og það
hefur ýmislegt verið gert að
undanförnu, þó það hafi ekki
verið í fjölmiðlum. Ég tók þessa
ákvörðun um frestun að vel
athuguðu máli í samráði við þá
stjórnarmenn FIDE, sem talizt
geta hlutlausir í málinu.
Alban Brodbeck lögfræðingur
Korchnois sagði í samtali við
AP-fréttastofuna að Korchnoi
væri þakklátur FIDE fyrir að
beita sovézkum stjórnvöldum
þessum nýja þrýstingi. Bella
Korchnoi sagði í viðtali við
AP-fréttastofuna, að ákvörðunin
um frestun yrði vonandi drjúgt
lóð á vogarskálunum til að hún
og sonur hennar fengju að fara
Karpov og Korchnoi tefla um heimsmeistaratitillnn i Manila.
Friðrik
ólafsson
forseti
FIDE.