Morgunblaðið - 22.08.1981, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1981
Sísí flutt á Frakkastíg
VERZLUNIN Sísí hefur flutt í
nýuppgert og rýmra húsnæði að
Frakkastíg 12, sem er rétt ofan
við Laugaveg. Húsnæði þetta var
á sinum tima starfrækt sem
bakari og einnig sem Vagna-
smiðja Kristins.
Núverandi eigendur keyptu
verziunina Sísi árið 1970, sem þá
var að Laugavegi 53, og verzlaði
með ungbarnafatnað og kvenund-
irfatnað. Nokkrum áruð síðar
flutti verslunin yfir götuna að
Laugavegi 58, og hefir verið þar
fram að þessu.
Verzlunin hefur sl. 10 ár sér-
hæft sig í fatnaði fyrir bðrn frá
2—12 ára, frá fyrirtækinu Steff-
ens í Danmörku og einnig nú sl. 2
ár í sportfatnaði fyrir unga fólkið
frá fyrirtækinu Oasis, sem er
systurfyrirtæki Steffens.
Ljówm. Mbl. RAX.
Við opnun verzlunarinnar á nýja staðnum. talið frá vinstri: Dóra
Hilmarsdóttir og ólöf Hilmarsdóttir, afgreiðslustúikur, og Sigrún
Ólafsdóttir og Hilmar Guðmundsson, sem eru eigendur verzlunarinn-
ar.
Ráðstefna félagsráðgjafa:
„Þjóðfélagið í for-
eldra stað - eða hvað?“
NORRÆN samtök félagsráðgjaía
halda ráðstefnu dagana 16.—21.
ágúst nk. að Laugarvatni. Efni
ráðstefnunnar verður „Þjóðfélagið
í foreldra stað — eða hvað?“
Fjallað verður um ábyrgð foreldra
annars vegar og þjMfélagsins hins
vegar hvað snertir kjör og uppeldis-
aðstæður harna og unglinga og
störf félagsráðgjafa á þessum vett-
vangi.
Innlendir og erlendir sérfræð-
ingar munu flytja fyrirlestra á
þinginu og kynntar verða rannsókn-
ar á þessu sviði. Til umfjöllunar
verður m.a. vernd barna og unglinga,
meðferð geðveikra barna, fíkniefna-
notkun unglinga, aðstæður þroska-
heftra barna, vistun barna á stofn-
unum og einkaheimilum, vinnu-
markaðurinn og unglingarnir, æsku-
lýðsstarf. — Fjallað verður um hin
ýmsu efni í starfshópum.
Fjöldi þátttakenda á ráðstefninni
verður um 100 frá öllum Norður-
löunum. Af íslands hálfu verða
einníg fulltrúar annarra starfs-
stétta, sem starfa að þessum málum
hér á landi.
Samtök norrænna félagsráðgjafa
hafa starfað um árabil. Islenskir
félagsráðgjafar hafa átt aðild að
samtökunum undanfarin 10 ár.
Markmið samtakanna er m.a. að efla
samvinnu norrænna félagsráðgjafa
og að stuðla að endurbótum á sviði
félagsmála á norrænum og alþjóð-
legum vettvangi. — Á vegum sam-
takanna er gefið út fræðiritið „Nord-
isk Socialt Arbeid", sem hóf göngu
sína á þessu ári.
Ráðstefnur norænna félagsráð-
gjafa eru haldnar ár hvert, og er
þetta í annað sinn sem Stéttarfélag
íslenskra félagsráðgjafa sér um
ráðstefnuhaldið. Fyrsta ráðstefnan
hérlendis var haldin árið 1975. Voru
þá aðeins 16 félagsráðgjafar starf-
andi hér á landi en þeir eru nú 50 að
tölu.
Á götum Parísar
Rigning hefur herjað á Parísarbúa bæði í vor og sumar. Þrátt fyrir það eru
kaffihúsin á aðalbreiðgötu Parísarborgar, Champs-Elysée þétt setin bæði daga og
nætur. Texti og myndir Anna Nisael.
Snyrtivöruverzlunin Brá opnar á Laugavegi
VERZLUNIN Brá var nýlega opnuð að Laugavegi 74. Eigendur verzlunarinnar eru þær Sigriður
Tómasdóttir og Ingigerður Jóhannsdóttir. Ýmiss konar snyrtivörur eru á boðstólum í nýju verzluninni, en
mest áherzla er lögð á eftirtalin merki: Jean d’Aveze, Coryse, Salome og Mary Quant.
Ögri og Vigri „kassa-
væddir“ - kostnaður
rúmlega 18 milljónir
SKIP Ögurvíkur hí., Vigri og
Ögri, eru nú í lengingu í
Póllandi auk þess sem miklar
endurbætur^ verða gerðar á
skipunum. Áætlað er endurbót-
unum verði lokið 10. september
á Ögra og 30. á Vigra. Kostnað-
ur mun nema um 1,1 milljón
dollara á hvort skip.
Að sögn Gísla Jóns Her-
mannssonar, eins af eigendum
skipanna, verða þau, auk leng-
ingarinnar, kassavædd, sett í
þau grandaraspil svo hægt verði
að vera með tvöfaldar skeiðar,
ísvélar, kranar og skutrennulok-
ar. Þá verða skipin styrkt og í
þeim endurnýjað allt, sem þörf
er á. Sagði hann að verkið væri
vel unnið og skipin yrðu nánast
eins og ný. Þó að skipin yrðu
lengd um 8 metra myndu þau
ekki rúma meiri afla, þar sem
kassarnir tækjum mun meira
pláss en stíurnar, sem verið
hefðu í skipinu. En það væri
mikil framför að geta verið með
kassana, því þá fengist 10%
meira fyrir aflann. Eins og
lestar skipsins hefðu verið áður,
hefði verið mjög erfitt að vera
með kassa í þeim.
Nú hefur einnig verið gengið
frá samningum um svipaðar
breytingar á togurunum Engey
og Viðey og munu þær væntan-
lega hefjast í október. Þá munu
fleiri aðilar hér á landi vera að
reyna að afla sér svipaðra samn-
inga.