Morgunblaðið - 22.08.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1981
13
Úr myndinni um Snorra Sturluson: Sturlungar með alvæpni á
hestbaki. albúnir til orrustu.
Sturlungaöld í
sjónvarpinu 20. og
27. næsta mánaðar
Nú styttist óðum í að ís-
lendingar fái að sjá kvik-
myndina um Snorra Sturlu-
son. því ákveðið hefur verið
að sjónvarpið sýni hana dag-
ana 20. til 27. september nú í
haust. að því er Hinrik
Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Lista- og skemmtideild-
ar sjónvarpsins, sagði í sam-
tali við Hlaðvarpann í vik-
unni. Kvikmyndin er sem
kunnugt er langdýrasta verk-
efni, sem íslenska sjónvarpið
hefur ráðist í, en sjónvarps-
stöðvar á hinum Norðurlönd-
unum tóku þátt í kostnaðin-
um að verulegu leyti.
Myndin hefur þegar verið
sýnd í Danmörku eins og
komið hefur fram í fréttum
hér. Hlaut myndin nokkuð
misjafna dóma, svo sem búast
mátti við, og voru ekki allir
jafn hrifnir. Þeir íslendingar
sem fjölmiðlar töluðu við voru
þó heldur jákvæðir ef eitthvað
var. Enda mun það svo, að þeir
sem eitthvað þekkja til efnis-
ins, fá vafalaust mun meira út
úr myndinni en þeir, sem ef til
vill hafa aldrei heyrt Snorra
og Sturlunga nefnda. Ekki
virðist því úr vegi, að hvetja
landsmenn nú til að blása
rykið af Sturlungu, og lesa
hana áður en Snorri, Sturla
Sighvatsson, Gissur jarl og
fleiri sómamenn Sturlunga-
aldar birtast á skjánum.
Húsavík:
4 flokkur kveður
þjálf ara sinn
Helgi Benediktsson „hjúkr-
unarkona“ og knattspyrnu-
kappi var kvaddur með virkt-
um þegar hann lék á dögunum
sinn síðasta heimaleik fyrir
Völsung á Húsavík. í tilefni
dagsins var Helgi fyrirliði
leiksins.
Helgi hefur dvalið á Húsavík í
2 ár við miklar vinsældir bæjar-
búa, sem sést vel á því að
félagar hans í Völsungsliðinu
héldu honum samsæti að leik
loknum og 4. flokkur, sem Helgi
þjálfaði, færði honum gjafir í
leikslok. Var myndin tekin við
það tækifæri.
Helgi er á förum til Reykja-
víkur, þar sem hann hyggur á
framhaldsnám í hjúkrunarfræð-
um.
Ljósm. Mbl. SS.
Greta Garbo fyrr og nú
Fréttir
af fólki
Bette Davis
Mæðgurnar Olivia de Ilavilland og Giseile
Gallant.
Olivia de Havilland
Það eru áreiðanlega margir
sem enn muna eftir leikkonunni
Olivia de Havilland úr kvik-
myndum, má þar t.d. benda á
hlutverk hennar í myndinni Á
hverfanda hveli.
Leikkonan er búsett í París og
á fullorðna dóttur, Giselle Gall-
ant, 24 ára að aldri og lögfræð-
ingur að mennt.
Olivia de Havilland þykir enn
falleg kona, og er hún var spurð
að hvað hún gerði fyrir húð sína,
til að halda henni svo ungri og
frískri var svarið á þessa leið:
„Þegar ég var um fertugt keypti
ég mér barðastóran stráhatt til
að skýla andlitinu fyrir sól. Ég
hef aldrei farið út í sólskin
hattlaus síðan."
Bette Davis
Þess var getið hér í Heimilis-
horni að Bette Davis ætlaði að
leika í sjónvarpskvikmynd, sem
NBC-sjónvarpsstöðin hæfi töku
á snemma sumars. Það hefur
áreiðanlega glatt marga að-
dáendur leikkonunnar að eiga ef
til vill von á að fá að sjá þessa
mynd.
Er skemmst frá því að segja,
að leikkonan hefur ekki brugðist
vonum manna með frammistöðu
sinni, ef marka má skrif um leik
hennar í myndinni „Family Re-
union" þar sem hún leikur sjö-
tuga kennslukonu, Elizabeth
Winfield að nafni. Hún hefur
kennt í barnaskóla í 50 ár og er
komin á eftirlaunaaldur þegar
sagan gerist, og skilnaðargjöf
nemenda hennar er vægast sagt
óvenjuleg, þ.e. miði uppá ótak-
mörkuð ferðalög með rútubílum.
Best er að segja ekki meira frá
efninu í þeirri von að við eigum
eftir að fá að sjá þessa mynd
hér. Myndin tekur um fjóra tíma
í sýningu og því skipt niður á tvö
kvöld í sjónvarpi. Þess má að
lokum geta, að barnabarn Bette
Davis, J. Asley Hyman að nafni,
leikur drenginn sem hún tekur
með sér í ferðalagið.
Greta Garbo
Það hefur heyrst fyrr, að
Greta Garbo ætli að leika á ný,
án þess að nokkuð hafi orðið úr
því. En nú segir sænskt blað, að
ákveðið sé að Greta Garbo leiki í
nýrri gerð „Gösta Berlingssaga"
eftir Selmu Lagerlöf. En það var
einmitt í fyrstu kvikmyndinni,
sem gerð var eftir þeirri sögu, að
Greta Garbo sló í gegn árið 1924.
Leikkonan hefur ekki leikið í
kvikmyndum í 40 ár, er orðin 75
ára að aldri, en lifir enn á fornri
frægð.
Frystihúsin í Vestmannaeyjum:
Hef ja móttöku
á mánudag inn
Vestmannaeyjum, 20. ágúst.
Frystihúsin hefja aftur mót-
töku hráefnis næstkomandi
mánudag 24. ágúst. Sem kunn-
ugt er hafa húsin verið lokuð
síðan um þjóðhátið. Þó hafa
nokkrir starfsmenn verið í
vinnu í hverju húsi og hefur
tíminn verið notaður til ým-
issa lagfæringa, viðgerða á
vélum. málningarvinnu og
fleira, sem ekki vinnst tími til
þegar vinnsla á sér stað.
Þá hefur verið unnið í skreið,
bæði við að taka skreið af
hjöllum og pakka skreið og
einnig hafa farið fram ýmsar
afskipanir á fiski. Reikna má
með að húsin fari fremur ró-
lega af stað því fáir bátar eru á
veiðum og togarar hafa verið í
siglingum. Þó munu einhverjir
bátar fara á net og einnig verða
bátar eitthvað á trolli, auk þess
sem nokkrir bátar fara á rek-
net.
Bv. Sindri mun væntanlega
landa hér í næstu vikum, en
hann fór á veiðar í fyrradag.
Klakkur landaði í gær í Fær-
eyjum um 120 tonnum, en næst
mun hann landa heima. Breki
er í Bodö í Noregi og verið er að
yfirfara spilakerfið, en togar-
inn seldi um 190 tonn í síðustu
veiðiferð í Vestur-Þýskalandi.
Vestmannaey fór í siglingu á
Þýskaland með 190 tonn.
Það eina sem unnið hefur
verið í þessum fimm frystihús-
um, sem nokkru nemur í fiski,
það sem af er þessum mánuði,
var í frystihúsi Five í þessum
mánuði, en frekar rólegt hefur
það verið. Þar hefur nær ein-
göngu verið unninn koli.
Sigurgeir.