Morgunblaðið - 22.08.1981, Síða 22
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1981
Af Islandsmiðum á Esjuberg
Sérstakir fiskrétt-
ir framreiddir í
tilefni 195 ára af-
mœlis Reykjavíkur
f TILEFNI 195 ára afmælis
Rcykjavíkurborgar verður Hótel
Esja með sérstakt fiskhlaðborð á
EsjuberKÍ á sunnudaK í hádegi ok
um kvöldið. Þar verða framreidd-
ir sérstakir og nýstárlejfir fisk-
réttir sem unnir eru úr hráefni
sem fólk notar lítið i dajj. eins og
blálönKU ok karfa. ýmist reyktu,
Kröfnu eða ofnbökuðu. Þá verða
einnÍK fleiri fiskteKundir hafðar
á boðstólum eins ok t.d. ufsi ok
smokkfiskur.
Sjómannalög verða leikin undir
borðhaldi og verður matsalurinn
sérstaklega skreyttur með hlutum
frá sjávarsíðunni af tilefninu.
Að sögn Einars Olgeirssonar,
hótelstjóra, er þetta gert m.a.
vegna óska BÚR þess efnis að
veitingahúsin gerðu eitthvað til að
kynna fiskrétti og reyna að búa til
nýja rétti.
„Mannstu gamla daga?“ heitir
skemmtidagskrá þar sem gömul
og hugljúf lög eru rifjuð upp og
hefur fólk tekið þessu afskaplega
vel, að sögn Einars.
Þá sagði Einar að Esjuberg væri
sérstaklega „dubbað" upp um
helgar og reynt að miða borðhald
við fjölskylduna og m.a. væru
börnum 10 ára og yngri gefið
ókeypis að borða með foreldrum
sínum.
Að lokum gat Einar þess að
ætlunin væri að vera með ein-
hverjar nýjungar annað veifið í
allan vetur.
LEIKLIST:
FERÐALEIKHÚSIÐ, sem einnÍK
starfar undir nafninu The Summer
Theatre, hefur í sumar haldið sínar
árlegu sýningar á Light Nights að
Fríkikjuvegi 11, í Reykjavík.
Sýningarkvöld eru fjögur í viku,
það er á fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöldum
og hefjast sýningarnar klukkan
21.00. Light Nights sýningarnar eru
sérstaklega færðar upp til skemmt-
unar og fróðleiks enskumælandi
ferðamönnum. Efnið er allt íslenskt,
en flutt á ensku, að undanskildum
þjóðlagatextum og kveðnum lausa-
vísum. Meðal efnis má nefna: þjóð-
sögur af huldufólki, tröllum og
draugum, gamlar gamanfrásagnir
og einnig er lesið úr Egilssögu. Á
milli atriða eru sýndar skyggnur af
verkum þekktra listamanna og leik-
in islensk tónlist af hljómplötum.
Leiksviðsmyndin er gömul íslensk
baðstofa. Allt talað efni er flutt af
Kristínu G. Magnús, leikkonu.
Þetta er tólfta árið sem Ferða-
leikhúsið færir upp leiksýningar
fyrir enskumælandi ferðamenn í
Reykjavík og einnig hefur leikhúsið
haldið sýningar víða erlendis, bæði í
Bandaríkjunum og á Edinborgar-
hátiðinni í Skotlandi, — og á sl. ári
frumflutti ferðaleikhúsið nýtt ís-
lenskt barnaleikrit á ensku, er
nefnist The Storyland, í West End,
London.
Siðasta sýning á Light Nights á
þessu sumri verður þann 30. ágúst.
REYKJAVÍKURVIKA 81:
Eitthvað fyrir alla
FJÖLBREYTT atriði verða á
dagskrá Reykjavikurviku um
helgina. Skólahljómsveit Ár-
bæjar ok Breiðholts leikur við
Slökkvistöðina kl. 13.30 á laug-
ardag. Klukkan 14.00 verður
fræðslusýning á Slökkvistöð-
inni. Klukkan fjórtán verður
lagt af stað í Fjölskylduferð i
Saltvík frá Árseli.
Klukkan fimmtán hefst útihá-
tíð þroskaheftra við Þróttheima.
Frá klukkan 13.00—17.00 verða
siglingar í Nauthólsvík.
Kynning á Strætisvögnum
Reykjavíkur verður á Kirkju-
sandi og þar mun fara fram
nákvæmnisakstur bifreiðastjóra
SVR.
Tónleikar verða í Tónabæ
i klukkan 16.00. Bara flokkurinn
leikur. Á sama tíma sýnir Þjóð-
i dansafélag Reykjavíkur þjóð-
! dansa á Miklatúni.
Á sunnudag verður mikið um
að vera á Kjarvalsstöðum. Her-
dís Þorvaldsdóttir og Gunnar
Eyjólfsson flytja ljóð klukkan
15.00. Magnús Pétursson leikur á
píanó. Leifur Blumenstein mun
flytja erindi um endurbyggingu
og viðhald gamalla húsa á veg-
um Reykjavíkurborgar klukkan
15.30.
Vísnavinir halda tónleika
klukkan 16.00.
Sigfús Halldórsson og Frið-
björn Jónsson söngvari skemmta
klukkan 16.45.
Valtýr Pétursson segir frá
kynnum sínum af Kjarval og
Þóra Kristjánsdóttir sýnir verk
hans klukkan 17.15. Mál þeirra
verður túlkað á táknmáli.
Klukkan 21.00 verða haldnir
útitónleikar á Miklatúni. Þá
leika Mezzoforte og Haukur
Morthens.
MYNDLIST:
Sýning á verkum þriggja
listamanna í Listmunahúsinu
KLUKKAN 14.00 i dag verður
opnuð í Listmunahúsinu sam-
sýning þeirra Tove ólafsson,
Þorvaldar Skúlasonar og
Kristjáns Daviðssonar.
í sýningarskrá segir m.a. um
listamennina: „Þó sitthvað sé
líkt með þessum listamönnum
eiga þau þó ýmislegt sameigin-
legt m.a. að vera trú köllun
sinni, skapa listaverk sín út frá
eigin brjósti óháð markaðskröf-
um og tískustefnum hvers
tíma...“
Tove er fædd árið 1909 i
Kaupmannahöfn. Hún lauk
námi árið 1938 við höggvaradeild
Listaháskólans í Kaupmanna-
höfn. Tove bjó í Reykjavík á
árunum 1945—53, en fluttist þá
aftur til Danmerkur. Hún sýnir
hér í fyrsta sinn síðan 1953.
Þorvaldur er fæddur árið 1906.
Stundaði nám í Noregi og París.
Hefur hann haldið margar sýn-
ingar og tekið þátt í mörgum
samsýningum og hafa nokkur
verka hans verið til sýningar á
Sumarsýningu Norræna hússins.
Kristján Davíðsson er fæddur
1917. Hann stundaði nám hér á
landi og síðar í Bandaríkjunum.
Siðar stundaði hann fram-
haldsnám í París og London.
Þess má geta hér í lokin að
Flugleiðir fluttu að kostnaðar-
lausu verk Tove Ólafsson frá
Kaupmannahöfn til íslands.
Sýningin er opin þriðjudaga
til föstudaga frá kl. 10—18,
laugardaga til sunnudaga frá kl.
14—18. Lokað er á mánudögum.
MYNDLIST:
„Leikið með
Ijós og skugga“
Finnsk kona með
textilsýningu í
Gallerí Langbrók
Á FIMMTUDAGINN 20. ágúst
kl. 18.00 opnar finnska veflista-
konan Agneta Backlund textil-
sýningu i Gallerí Langbrók, á
Bernhöftstorfu. Sýninguna nefn-
ir hún „Leikið með ljós og
skugga“.
Verkin á sýningunni eru um 30
talsins, öll unnin á siðasta ári.
Flest eru verkin smá umfangs
(mineaturer) og upphieypt (relif).
Verkin eru abstrakt (óhlutbundin)
en túlka skynjun listakonunnar á
náttúrunni og árstíðunum.
Agneta Backlund hefur verið
hönnuður hjá hinu þekkta finnska
fyrirtæki, Marimekko, en starfar
nú með sjálfstæð verkefni á eigin
vinnustofu. Hún kemur hingað
sem styrkþegi íslensk-finnska
menningarsjóðsins.
#
„Kona með geit“. eitt verka Tove á sýningunni.
Gömul hús til sýnis
NÝLEGA hlaut húsið Tjarnar-
gata 33 viðurkenningu umhverf-
ismálaráðs Reykjavíkur fyrir vel
gerðar endurbætur á gömlu húsi.
Eflaust langar marga til-að sjá
hvernig staðið hefur verið að verki
og því hefur verið ákveðið að gefa
borgarbúum kost á að skoða það
ásamt tveimur öðrum húsum sem
gert hefur verið við á vegum
Reykjavíkurborgar, þ.e. húsin
Tjarnargötu 20 og „Líkn“ í Árbæj-
arsafni, áður Kirkjustræti 12.
Húsin í Tjarnargötu verða opin
sunnudaginn 23. ágúst frá kl.
13—15 og þar verður staddur
Leifur Blumenstein byggingar-
fræðingur, sem hefur haft yfir-
umsjón með verkinu. Hann flytur
svo erindi um viðgerðir og endur-
byggingu gamalla húsa í eigu
Reykjavíkurborgar á Kjarvals-
stöðum kl. 15.30. Húsið „Líkn“
verður opið á sunnudaginn á sama
tíma og safnið frá kl. 13.30 til kl.
18.00.
TÓNLIST:
Orgeltónleikar
í Dómkirkjunni
ORGELTÓNLEIKAR verða I
Dómkirkjunni á sunnudag kl.
18.00. Gústaf Jóhannesson leikur
á orgel kirkjunnar í 30 til 40
mínútur. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
MYNDLIST:
Sýningu Gunnars
í Eden aö Ijúka
Málverkasýningu Gunnars Halldórs Sigurjóns-
sonar í Eden í Hveragerði lýkur n.k. sunnudags-
kvöld.
Um 40 myndir eru á sýningunni, málaðar í olíu,
akrýl og oliupastel og eru flestar málaðar á þessu
ári. Þetta er niunda einkasýning Gunnars, auk þess
sem hann hefur tekið þátt í samsýningum.