Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
228. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Viðbúnaður
á flokksþingi
Itjarkpool. 12. okt. AP.
LÖGREGLA gerði víðtækar öryggisráðstafanir í
Blackpool í dag, einum degi fyrir þing brezka íhalds-
flokksins, vegna naglasprengjuárásar írska lýðveld-
ishersins (IRA) í Lundúnum á laugardaginn þegar
ein kona beið bana og 39 slösuðust.
Lögreglan rannsakaði gesta- byggingum Hæstaréttar og yfir-
bækur hótela, kom fyrir sjón-
varpsmyndatökuvélum og
dreifði sér meðal fólks í borg-
inni. BBC sagði í kvöld að IRA
hefði hótað nýjum árásum á
meginlandi Bretlands. Tveir
hafa verið handteknir eftir árás-
ina á laugardag.
Á Norður-Irlandi olli ein
sprengja tjóni á kapellu, kirkju
og húsum í Limavady og vörubíll
sprakk í loft upp 275 metra frá
eftirlitsstöð skammt frá Lond-
onderry. Ekkert manntjón varð.
I Dyflinni var kveikt í fjórum
dómstóla Irlands og tjón varð í
dómsölum og skrifstofum.
Frú Margaret Thatcher for-
sætisráðherra fór til Blackpool í
dag þess albúin að verja pen-
ingamálastefnu sína á flokks-
þinginu. Óánægðir menn úr hin-
um hófsamari armi flokksins
telja þingið síðasta tækifæri sitt
til að knýja fram stefnubreyt-
ingar fyrir næstu kosningar —
ella bíði flokkurinn ósigur í
kosningunum.
Um baksvið flokksþings-
ins, sjá bls. 28.
Thatcher í heimsókn
Frú Margaret Thatcher forsætisráðherra ræðir við hermann í
Westminster-sjúkrahúsi eftir naglasprengjuárás írska lýðveldis-
hersins hjá Chelsea-herskálunum i Lundúnum. Ein kona beið bana.
Sjá frétt á bls. 28.
18 yfirmenn reknir
úr egypzka hernum
Kairó, 12. okt. AP.
ABU GHAZALA hershöfðingi.
landvarnaráðherra Egypta, sagði
i dag að allir fjórir tilræðismenn
Anwar Sadats hefðu komizt lifs af
gagnstætt tilkynningum um að
einn hefði fallið og kvaö höfuð-
paurinn hafa „sagt allt af létta“.
Ghazala spáði skjótum herréttar-
höldum og aftökum.
Aðspurður hvort höfuðpaurinn,
El-Islambouly, yrði leiddur fyrir
aftökusveit sagði Abu Ghazala:
„Hann á ekki kúlu skilið — hann á
skilið reipi." Hann sagði: „Ég mun
krefjast opinberrar aftöku. Ég
vona þeir láti hann hanga í gálgan-
um í viku eða svo.“
Abu Ghazala sagði að tilræðis-
mennirnir hefðu notað vopn smíð-
uð í Egyptalandi. Hann kvaðst ef-
ast um að þeir stæðu í tengsium við
aðra hópa í Egyptalandi eða öðru
landi eins og Líbýu.
El-Islamabouly skipulagði sam-
særið sumpart þar sem bróðir hans
var í hópi andstæðinga sem Sadat
forseti lét handtaka. Aðalástæðan
var sú að þeir félagar töldu að Sad-
at „stjórnaði ekki landinu á ísl-
amska vísu“, sagði Abu Ghazala.
Átján liðsforingjar hafa verið
reknir úr landhernum fyrir trúar-
ofstæki. Þjóðin gengur að kjör-
borðinu á morgun að staðfesta til-
nefningu Hosni Mubaraks í stöðu
forseta. Víðtækar öryggisráðstaf-
anir hafa verið gerðar við hús Nab-
awy Ismails innanríkisráðherra
eftir árás öfgamanna.
Bandaríkjamenn munu hraða
sendingu orrustuþotna, skriðdreka
og loftvarnaflauga. Alexander
Haig utanríkisráðherra sagði eftir
viðræður sínar við Egypta að sam-
eiginlegar heræfingar í nóvember
yrðu auknar og lið frá Persaflóa-
ríkjum og B-52-vélar tækju í fyrsta
sinn þátt. „Við verðum að sýna
nærveru okkar hér öðru hverju til
að sanna að það er ekki lífshættu-
legt að vera bandamaður Banda-
ríkjanna," sagði Haig.
Bandaríkjamenn hafa stóreflt
herskipaflota sinn við strendur Eg-
yptalands að sögn ísraelska blaðs-
ins „Maariv“. Flugvélaskipið „Nim-
itz“, tvö stór herskip og nokkur
minni skip eru á siglingu norður af
Alexandríu. Jafnmörg bandarísk
herskip hafa ekki áður verið á þess-
um slóðum.
ísraelskir ráðamenn gagnrýndu í
dag þá yfirlýsingu Gerald Fords og
Jimmy Carters að Bandaríkin yrðu
að lokum að semja við PLO til að
koma á friði og sögðu tímasetning-
una óheppilega eftir gleðilæti PLO
vegna dauða Sadats. Reagan for-
seti sagði í dag að slíkar viðræður
yrðu að byggjast á viðurkenningu
PLO á ísrael. Aðspurður hvort
bandarískt lið færi til Súdan sagði
Reagan: „Þátttaka Bandaríkja-
manna í bardögum er ekki ætlun
okkar.“ Þótt Ford og Carter gagn-
rýndu Khadafy Líbýuleiðtoga taldi
Reagan til lítils að hætta kaupum á
líbýskri olíu, aðrir mundu kaupa
hana. Forsetinn kann að senda
Philip Habib aftur til Miðaustur-
landa í næsta mánuði.
Varsjá. 12. «kt. AP.
LEIEÍTOGAR Samstöðu veittu í
dag pólsku ríkisstjórninni frest
á fyrsta fundi sínum eftir þing
hreyfingarinnar til að ganga til
viðræðna er gætu afstýrt viðvör-
unarverkfalli vegna skorts á
matvælum.
Þar með er hætt við verkföll á
ýmsum stöðum nú þegar, en
verkamenn í smábænum Tomas-
oq Mazowiecki hefja sólarhrings-
verkfall á morgun og verkamenn
í Grudziadz lýstu yfir verkfalls-
viðbúnaði.
Samstaða virðist þar með hafa
tekið upp nýja baráttuaðferð: að
efna til táknrænna verkfalla í
stað víðtækra landshlutaverk-
falla, sem gætu leitt til ásakana
um tilraunir til að lama efna-
hagslífið.
Sýrlenzkir fjölmiðlar hylltu í dag
„aftöku“ Sadats og sögðu að aðrir
egypzkir leiðtogar ættu von á
„sömu örlögum og landráðamaður-
inn“ ef þeir héldu áfram stefnu
hans. Sýrlendingar og Líbýumenn
hafa áhyggjur af umsvifum 6.
bandaríska flotans og Líbýa kvað
flotann stunda „ögrandi æfingar"
við ströndina.
Assad forseti sagði: „Við erum
sannfærðari en áður að Camp-
David-samningurinn mun hrynja
til grunna.“ Fulltrúi Arababanda-
lagsins spáði baráttu um „sál Eg-
ypta“.
Talsmaður stjórnarinnar sagði
í kvöld að þing Samstöðu hefði
haft „neikvæð" áhrif á landið og
dregið grundvallaratriði komm-
únistakerfisins í efa. En ummæl-
in bentu ekki til að stjórnin
mundi drága til baka tillögu sína
um þátttöku Samstöðu í nefnd til
að skipuleggja matvælamál, verð-
lag og skömmtun.
Miðstjórnarfundi kommúnista-
flokksins á morgun hefur óvænt
verið frestað. En þar sem fundur-
inn hafði ekki verið formlega
boðaður er frestunin ekki talin
skipta verulegu máli.
Á stjórnarfundi Samstöðu í
Gdansk í dag komu engin við-
brögð fram við tilboði stjórnar-
innar um aðildina að matvæla-
nefndinni. En nýr maður og
hækkandi stjarna í stjórn Sam-
stöðu, hagfræðingurinn Grzegorz
Amnesty
til Iran?
Teheran, 12. okt. AP.
TVEIR særðust i sprengingu í
miðborg Teheran i dag og
„nokkrir“ menn úr Khalq-sam-
tökunum biðu bana þegar bylt-
ingarverðir gerðu árás á felustað
þeirra í horginni. Sjö vinstrisinn-
ar voru handteknir i tveimur öðr-
um borgum.
Nefnd sovézkra sérfræðinga
kom til Teheran í dag að kynna
sér „breytingar af völdum ísl-
ömsku byltingarinnar".
í gær var sagt frá aftökum 82
vinstrisinna. Alls hafa 1.328 verið
líflátnir á fjórum mánuðum skv.
opinberum tölum. En vinstrileið-
toginn Massoud Rajavi segir 2.400
hafa verið líflátna. Amnesty Int-
ernational segir töluna 1.800.
Amnesty sagði í dag að samtök-
in mundu reyna að senda nefnd til
Teheran til að reyna að binda
enda á fjöldaaftökurnar.
Samsæri í
Shanghai
Peking. 12. okt. AP.
FJÓRIR hafa verið handtekn-
ir fyrir að dreifa flugmiðum
með tilkynningu um stofnun
og stefnu samtaka. sem
stefndu að þvi að kollvarpa
stjórn kommúnistaflokksins.
Foringi hópsins, Chen, var
handgenginn Wang Hongwen,
fyrrverandi varaformanni
flokksins er var í „fjórmenn-
ingaklíkunni".
Tæplega 300 flugmiðar fund-
ust á rúmiega 120 stöðum í
Shanghai 17. til 21. sept. Chen
var rekinn úr flokknum 1958 ,
en fékk uppreisn í menning-
arbyltingunni.
Fór í bið
FIMMTA einvígisskák Karpovs og
Korchnois fór í bið í gærkvöldi og
staðan var jafnteflisleg.
Sjá skákskýringu á bls. 20.
Palka frá Lodz, hyggst bráðlega
halda fund með stjórninni um
matvælaástandið.
Samstöðuleiðtogar sögðu i dag
að ef samkomulag næðist ekki
yrði tekin um það ákvörðun hvort
boðað yrði stutt viðvörunarverk-
fall þegar hin róttæka lands-
hlutanefnd hreyfingarinnar (KK)
kemur saman 22. okt. Sagt er að
slíkt verkfall muni kannski
standa aðeins í 15 mínútur eða
eina klukkustund og fremur
þjóna þeim tilgangi að veita reiði
útrás en valda truflunum.
En nýr öryggismálastjóri
flokksins, Miroslaw Milewski,
sagði í dag að flokkurinn mundi
ekki hika við að verjast „óvinurn"
sínum og ítrekaði í aðalatriðum
viðvaranir forsætisráðherrans
um baráttu gegn „andsovétisma"
og lögbrotum.
Alexander Ilaig, utanrikisráðherra Bandarikjanna. og Ilosni Murab-
ak, tilvonandi forseti Egyptalands, svara spurningum fréttamanna að
loknum viðræðum.
Samstaða veitir
stjórninni frest