Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 17
17 Útlaginn gefinn út í bók UM SVIPAÐ leyti og kvikmynd ÁKÚsts Guðmundssonar, leik- stjóra, Utlajfinn. verður frum- sýnd mun koma út bók með sama nafni, gerð af Indriða G. Þor- steinssyni rithöfundi, byggð á kvikmyndahandriti Ágústs og Gísla sögu Súrssonar. Það er Prenthúsið, sem sér um útgáfuna en hún verður í brotinu A-4 og verða í henni milli 50 og 60 litmyndir úr kvikmyndinni. Mokuðu snjó af túnum til að féð næði beit Neskaupstað 11. oktúhcr. FJÁREIGENDUR hér um slóðir hafa átt i hinum mestu erfiðleik- um að undanförnu og hafa orðið fyrir skakkaföllum af völdum fannfergis og erfiðs tíðarfars. Fyrir röskri viku síðan fóru smá- hændur héðan úr bænum, og ein- hverjir innan úr sveit, á litlum bátum yfir til Mjóafjarðar til að smala fé sinu og flytja hingað til Neskaupstaðar. Þeir náðu saman yfir 500 fjár, en þá skall á mikil snjókoma og fljótlega var með öllu orðið beitarlaust. Var þá gripið til þess ráðs að moka snjó af túnum til að féð næði ein- hverju, en einnig var fénu gefið gamalt hey. Þrátt fyrir þetta var féð orðið mjög þrekað og illa á sig komið undir vikulokin. Ekki varð viðlit að koma fénu til Norðfjarðar á litlu bátunum og því var gripið til þess ráðs að fá varðskipið Tý til að flytja féð yfir til Neskaupstaðar. Selflytja þurfti féð úr litlu bátunum um borð í varðskipið og var það erfitt verk en tókst þó. Þá var fé Mjófirðinga flutt á þennan hátt til slátrunar í Neskaupstað. Um 700 fjár eru eft- ir í Mjóafirði og eiga mestan hluta þess bændur af Héraði og verður það væntanlega flutt á sama hátt til Reyðarfjarðar. Bændum tókst að smala Við- fjörð, Hellisfjörð og suðurbæina áður en veðrið versnaði til muna, en hins vegar voru ekki aðstæður til að smala Gerpi og Sandvík og eru menn uggandi um féð, sem þar gekk í sumar. Marga bændur vantar enn töluvert af fé sínu. Hér í bænum er í dag 50 cm jafnfallinn snjór. Góðar sölur í Englandi TVEIR bátar seldur ísaðan fisk í Englandi í gær og fengu báðir gott verð fyrir aflann. Vöttur Su seldi 54 tonn í Grimsby fyrir 518,9 þús kr. og var meðalverð á kílói kr. 9,61. Þá seldi Vestri Ba 92 tonn í Hull fyrir rétt rúmlega 1 milljón og meðal- verð á kíló var kr. 10,89. INNLEN-T MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGURT3 OKTÓBER 1981 Fjórhjóiadrifsbílar ársins1981 í U.S.A. LAND CRUISER HI-LUX 4x4 BENSIN/ DIESEL TOYOTA hefur áunniö sér eftirsóttustu viöur- kenningar um alian heim sem traustir og vand- aöir bílar meö lága bilanatíöni. Þaö sanna hinar fjölmörgu faglegu athuganir sem geröar hafa veriö víöa um heim. Þar má nefna könnun á 225.000 bílum, geröa af Bandarísku neytendasamtökun- um, þar sem TOYOTA fær bestu útkomuna. Könnun á 127.000 bílum, geröa af Sænska bifreiöaeftirlitinu, þar fær TOYOTA einnig bestu útkomu. ÞaÖ er vegna hinna miklu gæöa sem TOYOTA hefur aukiö hlutdeild sína á heimsmarkaöinum og er nú annar stærsti bifreiöaframleiöandi í heimi. COROLLA Metsölubíll um allan heim. Glæsilegur fjölskyldubíll. Rúmgóður og vel gerður að innan með stórt farangursrými. Bíll, sem eins og aðrir Toyota bílar er traustur, öruggur, viðhaldsléttur og eyðir litlu bensíni TERCEL FramNóladrifinn bíll.semer óvenju rúmgóður. Sportlegur, hljóðlátur, og með frábæra aksturseiginleika. Bíll sem eyðir ótrúlega litlu og er eins og aðrir Toyota bílar, traustur, öruggur og viðhaldsléttur. WTOVOTA UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SÍMI 44144 UMBOÐIÐ Á AKUREYRI: BLÁFELL S/F ÓSEYRI 5A — SlMI 96-21090 Vandaðir bílar fyrir vandláta kaupendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.