Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 23
 • ‘’lMfjú' MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981 - 23 Cosmos vann stórsigur s s COSMOS, handaríska • Hilmar Harðarson og ChinaKlia kljást um knöttinn. Ljósm. Kristján. knattspyrnuliðið sem lék Keiín Val í boði Vals og Fluj?- leiða um helgina. vann óþarf- lega stóran sigur gegn is- lenska liðinu i gaddinum á laugardaginn. Hilmar Sighvatsson náði reyndar forystunni fyrir Val, gott mark eftir fyrirgjöf Njáls Eiðssonar. Markamaskínan Giorgio Chinaglia svaraði með tveimur mörkum fyrir hléið og Júgóslavinn Bogicevic bætti síðan þriðja markinu við. Skotinn John Main svaraði fyrir Val með góðu marki, en allar flóðgáttir áttu eftir að opnast hjá Valsmönnum. Chinaglia lauk við þrennuna sína og á síðustu mínútunum skoruðu Romero og Bogicevic hvor sitt markið. Fátt áhorfenda lagði leið sína í Laugardalinn og kom þar fleira til en eitt. Bæði var verulega leiðinlegt veður og síðast en ekki síst brást helsti aðdráttarliðurinn, sjálfur George Best, en Valsmenn fengu þau skilaboð frá um- boðsmanni hans á föstudags- morgun, að hann kæmi ekki til leiks. _ gK KR-inpar búnir að næla i körfurisa Körfuknattleiksdeild KR hefur nælt sér í Bandaríkjamann sem leysa á af Stu Johnson. meðan sá síðarnefndi er að ná sér í fingrin- um. Nýi Kaninn heitir Art Hous- ey og er 23 ára gamall. Hann er dökkur á hörund og hefur verið á bráðabirgaatvinnusamningi hjá Dallas og einnig leikið með Uni- versity of Kansas. þar sem hann skoraði að meðaltali 18 stig í leik. Housey. sem ráðinn er til skamms tíma. kemur til landsins á morgun og leikur sinn fyrsta leik gegn Val á laugardaginn. Þó Stu sé á batavegi, er talið að Ilousey muni leika 3—4 leiki fyrir KR. -gg. Armenningar hættir við þrátt fyrir allt ÁRMENNINGAR tilkynntu KKÍ í gær, að þeir myndu ekki verða með í íslandsmótinu i körfu- knattlcik þrátt fyrir fyrri yfir- lýsingar um að þeir myndu verða með þrátt fyrir allt. Guðmundur Sigurðsson hringdi á skrifstofu KKÍ í gær og tilkynnti þetta, dró hann formlega alla þá flokka Ármanns út úr mótinu sem til- kynnt hafði verið að yrðu með. Fyrst um sinn að minnsta kosti. mun drildin þó ekki verða lögð niður. Enn fleiri leikmenn Ar- manns hafa tilkynnt félagaskipti að undanförnu og er tala flótta- manna þar með örugglega komin vel á annan tuginn. Er miður að svona skuli fara. það eru fá ár síðan Ármann varð íslands- meistari. — gg. FRAMARINN Hafþór Svein- jónsson fékk einhverja hörðustu refsingu sem islenskur íþrótta- maður hefur fengið, er agadóm- stóll FIFA tók fyrir hin ýmsu mál um helgina. FIFA dæmdi Ilafþór i 3ja leikja hann i Evrópukeppni, en Ilafþór mun hafa sparkað í mótherja i siðari viðureign Fram og Dundalk. scm fram fór í írlandi. Var honum vikið af leikvelli fyrir ódæðið og fær nú að súpa scyðið af þvi. Ilaf- þór byrjar væntanlega að taka hannið út næsta sumar. því Fram tekur þátt í UEFA-keppninni. Verði liðið slegið út í fyrstu um- ferð, sem er ekki óalgengt þegar íslensk lið eiga í hlut, þá mun það taka Ilafþór tvö keppnistimabil að taka út hannið, svo fremi sem Fram va>ri í Evrópukeppni 1983. Þetta er þvi geysilega ströng refsing. Nokkrir knattspyrnumenn aðrir voru dæmdir í þriggja leikja bann, þeirra kunnastur Alan Curtis hjá Swansea, en brot hans var ekki ósvipað broti Hafþórs, þ.e.a.s. spark í mótherja. Þá voru þrír leikmenn dæmdir í 4ra leikja bann, Halihodzic hjá Nantes, Pad- riac O’Connor hjá Áthlone og Iztv- an Kovacz hjá Tatabaniay. • Hafþor var of bráður. Víkingur Reykjavíkurmeistari Vikingur varð Reykjavikurmeist- ari i handknattlcik i gærkvöldi, er liðið sigraði ÍR 20—13 i Höll- inni. Þar með gátu hvorki KR eða Valur lengur náð liðinu að stigum og enn einn titillinn bætt- ist i safn Vikings. En þó sigurinn hafi verið stór þegar öllu var á botninn hvolft, áttu Víkingarnir lengst af í hinu mesta basli með ÍR-inga, sem léku vel framan af, sérstaklega í vörn- inni. Þar tóku þeir Víkingana úr umferð til skiptis og komu auk þess langt út á móti skyttunum. Auk þessa voru Víkingarnir ekki sjálfum sér líkir. En kraftur ÍR- inga fjaraði smám saman út og Víkingarnir tóku stigin sem þeir þurftu. Mörk Víkings skoruðu: Páll Björgvinsson 7, Sigurður Gunnarsson 3, Þorbergur Aðal- steinsson, Guðmundur Guð- mundsson, Árni Indriðason og Steinar Birgisson 2 hver, Ólafur Jónsson og Óskar Þorsteinsson eitt hvor. Björn Björnsson og Sig- urður Svavarsson voru atkvæða- mestir hjá ÍR með 4 mörk hvor. Annars var Jens markvörður Ein- arsson þeirra besti maður, já, lang besti. — gg. Stórleikur í körfunni í kvöld STÓRLEIKUR fer fram í úr- valsdeildinni í körfuknattleik í kvöld. en þá eigast við i Haga- skólanum lið Fram og UMFN, eða lið hinna nýbökuðu Reykja- víkurmeistara og lið Íslands- meistaranna. /Etti að bjóða upp á spennu. Leikurinn hefst klukkan 20.00. Aösóknin í sumar: Ahorfendum fer f jölgandi - athyglisverð fækkun þó á Skaganum Ef á hcildina er litið, fjölgar áhorfendum að 1. deildar leikjum í íslensku knattspyrnunni. Er það staðreynd þrátt fyrir fækkun áhorfenda á nokkrum stöðum. Sumarið 1981 var mcðalfjöldi áhorfenda að 1. deildar leikjum hér á landi 1010, en árið áður var samsvarandi tala 942. Aukningin nemur 7,2 prósentum. Islandsmeistarar Víkings trekktu lang flesta áhorfendur að meðaltali og aukningin hjá liðinu frá fyrra ári var gífurleg. 1716 manns að meðaltali sóttu leiki Víkings, en samsvarandi tala frá 1980 var 941. Valsmenn komu næstir með 1407 áhorfendur, en það var afturför, því 1845 manns að meðaltali borguðu sig inn á leiki þeirra 1980. Verða nú hin 1. deildar liðin upp talin og þe'irra meðaltal 1981. I svigunum standa til samanburðar samsvarandi töl- ur frá sumrinu 1980. KA 1127 (ekki gefið upp), Fram 1048 (1262), KR 957 (994), UBK 936 ( 795), Þór 792 (ekki gefið upp), ÍA 778 (990), ÍBV 738 (654) og FIl 575 (425). I átta tilvikum, þar sem viðmiðun- artölur eru gefnar upp, hefur fjölgun orðið hjá 4 félögum, en fækkun hjá öðrum 4. Eftirtektar- vert er, áð umtalsverð hækkun er á Kaplakrikanum hjá FH þrátt fyrir ömurlegt gengi liðsins á keppnistímabilinu. Meðalfjöldi áhorfenda að 1. deildarleik í Reykjavík var 1282. Samsvarandi tala frá 1980 var 1137, því 12,75% hækkun. Fjölgun að meðaltali var einnig í Kópa- vogi, Hafnarfirði og Vestmanna- eyjum eins og sjá má af ofan- greindum tölum. Viðmiðunartölur liggja ekki fyrir frá Akureyri, en í sumar voru þar 960 manns að meðaltali á vellinum. Fækkun var aðeins á Akranesi, þeim mikla knattspyrnubæ. Áhorfendur þar í sumar voru að meðaltali 778, en voru 990 árið áður. Mikil fækkun, eða 27,25%. Fækkunin á Skaganum kemur hins vegar spánskt fyrir sjónir þegar litið er á hæstu aðsóknina í einstökum leikjum. Þar kemur fram að Skagamenn trekkja enn í Reykjavík, enda eitt skemmtileg- asta liðið þó svo að almenningur á Skaganum kunni ekki í vaxandi mæli að meta það. í þremur af fimm hæstu leikjunum koma Skagamenn við sögu. Ekki reynd- ar í hæsta leiknum, en það er úr- slitaleikur Víkings og KR undir haustið. Þar komu 2985 manns. Næst hæsti leikurinn var viður- eign Víkings og ÍA, 2497 manns. Númer þrjú var leikur Vals og ÍA, 2482 manns, þá leikur Víkings og UBK, 2407 manns og loks Fram gegn ÍA, 2380 stykki. —gg. róttir Hafþór dæmdur í 3-leikja bann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.