Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGURÍ3. OKTÓBER 1981 ________________________" -'.. “ ________ Fréttaskýring ÓSVEIGJANLEG stefna henn- ar í peninKamálum virðist vera að missa marks, vinsæld- ir hennar með þjóðinni eru í algeru láKmarki og hófsamir menn innan flokksins eru i uppreisnarhuK. l»etta er sú mynd. sem blasir við Margaret Thatcher, forsætisráðherra. „Járnfrúnni“ svokölluðu, þeg- ar flokkur hennar, íhalds- flokkurinn breski, byrjar flokksþinK sitt í Rlackpool á morgun. þriðjudag. Margaret Thatcher Edward Heath Landsþing breska íhaldsflokksins að hefjast: Oánægja og uppreisn gegn stjórnarstefnu Thatchers Þegar Thatcher sneri heim frá Samveldisráðstefnunni í Ástralíu í síðustu viku var ástandið innan íhaldsflokksins, sem hún hefur stjórnað með harðri hendi í hálft þriðja ár, orðið þannig, að líkja má við beina uppreisn gegn for- manninum og einstrengingslegri stefnu hennar í peningamálum. Hinir hófsamari menn í flokkn- um, þeir sem vilja fara hægar í sakirnar, eru vissir um, að í næstu kosningum bíði Ihalds- flokksins ekkert annað en hroða- legur ósigur og ekki verður annað sagt en að þeir hafi ýmsar gildar ástæður fyrir þeim ótta sínum. Atvinnuleysið í Bretlandi er nú það mesta, sem verið hefur í hálfa öld, og atvinnuvegirnir, einkum iðnaðurinn, eru á horrim- „Framtíð flokksins er í veði,“ sagði Edward Heath, fyrrum for- sætisráðherra, á flokksfundi í London nú um helgina. „Stór hluti þessarar þjóðar finnur ekki lengur til neinnar samkenndar með landsstjórninni og þegar svo er komið, þá er meira í hættu en efnahagsleg afkoman ein“. Edward Heath er ekki einn um óánægjuna með stefnu Thatch- ers. Tveir fyrrverandi ráðherrar og 13 þingmenn hafa krafist þess, að stefna flokksins verði tekin til gagngerrar endurskoðunar og þeir hfa gefið í skyn, að þeir muni greiða atkvæði gegn fyrirhuguðu frumvarpi stjórnarinnar, sem lagt verður fram í upphafi þings í næsta mánuði. í frumvarpinu er gert ráð fyrir, að ríkisútgjöld verði enn skorin niður um fimm milljarða punda, að sett verði þak á skattheimtu sveitarfélaganna og ýmsar skorður settar við frelsi verkalýðsfélaganna. Þrátt fyrir þessa ólgu telja flestir, að Thatcher sé ekki í mik- illi hættu sem formaður flokks- ins, í bili að minnsta kosti. Ef hún hins vegar, er sagt, verður jafn ósveigjanleg og fyrr á flokksþinginu, sem nú er að hefj- ast, þá er ekki ólíklegt, að „upp- reisnarmennirnir" bjóði fram gegn henni í nóvember þegar formaðurinn verður endurkjör- inn, sem er yfirleitt bara forms- atriði þegar flokkurinn fer með stjórn. Andstaðan gegn stefnu Thatch- ers innan Ihaldsflokksins byggist fyrst og fremst á eftirfarandi röksemdum: • Samkvæmt skoðanakönnunum hafa íhaldsmenn 6% minna fylgi en Verkamannaflokkurinn, þrátt fyrir ástandið innan hans, og rétt hanga í því að vera jafn stórir og nýi jafnaðarmannaflokkurinn, sem hinir hægfara íhaldsmenn líta á sem stórhættulegan keppi- naut. • Vinsældir Margaret Thatchers eru minni en nokkurs annars bresks forsætisráðherra bæði fyrr og síðar. • Atvinnuleysingjar, sem voru 1,24 milljónir þegar Thatcher tók við, eru nú tæplega 3 milljónir. • Ríkisstjórnin hreykir sér af einstrengingslegri stefnu í pen- ingamálum, en sannleikurinn er sá, að ríkisútgjöld hafa vaxið vegna atvinnuleysisins og mikilla framlaga til ríkisrekinna fyrir- tækja. Verðbólgan er 11,4%, helmingi minni en hún var mest í fyrra, en þó meiri en hún var þeg- ar Thatcher tók við. Þannig standa sem sagt málin þegar landsþing íhaldsflokksins hefst í Blackpool á morgun. Stuð- ningsmenn Thatchers reyna að gera lítið úr óánægjunni en eitt er víst: hinir óánægðu munu ekki sætta sig við, að eftirmælin um landsþingið að þessu sinni verði þau sömu og í fyrra þegar Thatcher sagði þessi fleygu orð: „Frúnni verður ekki hnikað". Thatcher fordæmir sprengjuárás IRA I.ondon. 12. októhcr. AP. MARGRÉT Thatcher íorsæt- isráðherra Bretlands for- dæmdi í dag sprengjuárás írskra hryðjuverkamanna í Lundúnum í gær, en öldruð ekkja fórst í sprengingunni og 38 siösuðust. „Þetta er ómannúðlegur verknaður, framkvæmdur af mönnum sem hafa engar mann- legar tilfinningar. Ég mun aldr- ei veita þeim pólitíska viður- kenningu," sagði Thatcher um írska lýðveldisherinn, sem lýsti ábyrgð á verknaðinum. Thatcher heimsótti hina særðu í sjúkrahús, en þar á undan litaðist hún um á staðn- um í Chelsea-hverfinu þar sem sprengingin varð. Var hún augljóslega hrærð er hún tók upp sex tommu langan nagla úr bifreiðinni sem sprengjan var falin í. „Þetta eru glæpamenn, sem enga virðingu bera fyrir lífi manna og limum," sagði forsæt- isráðherrann, „þetta eru morð- ingjar, bölvaðir morðíngjar." Sprengjan, sem var fjarstýrð naglasprengja, sprakk er 23 verðir úr Tower of London voru að snúa til búöa sinna í Chelsea-hverfi. Særðust 22 varðanna er nöglum, gleri og annað lauslegt rigndi yfir þá. Kona, sem var á gangi við búðir hermannanna lézt. Þrettán þeirra er særðust eru enn í sjúkrahúsi og eru tveir her- mannanna í alvarlegri hættu. Sjónarvottar sögðu, að naglar hefðu stungist á kaf í andlit, höfuð eða skrokk hinna slösuðu. Scotland Yard varaði við því að hugsanlega væru írskir hryðjuverkamenn að hefja sprengjuherferð í Lundúnum. Sprengjan var fjarstýrð en þeirri tækni hafa írskir hryðju- verkamenn ekki beitt áður í Lundúnum. 80 njósnavél- ar á tveim- ur vikum Norfolk. 12. október. AP. FLUGMENN með aðsetur á bandaríska flugmóðurskipinu Eisenhower flugu í veg fyrir 80 sovézkar njósnaflugvélar á tveimur vikum í september og er líklega um met að ræða. Flogið var til móts við fyrstu sovézku njósnavélina suðaustur af ís- landi, en annars varð vart við flugvélarnar á nánast öllu Norður-Atlantshafssvæðinu. Helmut Kohl um friðargönguna í Bonn: Gef ur alranga mynd af afstöðu Þjóðverja tíl NATO Bonn. 12. októbcr. AP. IIELMUT Kohl, leiðtogi stjórn- arandstöðunnar, sagði á sunnu- dag. að mótmælaganga 240.000 manna í Bonn á laugardag, gæfi alranga mynd af afstöðu Þjóð- verja til afvopnunar og staðsctn- ingu kjarnorkuvopna i Evrópu. Tugþúsundir göngumanna væru jafnframt óvinir sambandslýð- veldisins og hallir undir vald- herrana í Moskvu. Kohl sagði, að mikill meirihluti Vestur-Þjóðverja væru fylgjandi aðild að Atlantshafsbandalaginu Líbýskar herflugvélar sprengja þorp í Súdan Khartoum. 12. októher. AP. LÍBÝSKAR herílugvélar vörpuðu sprengjum á tvö þorp í vesturhluta Súdan á fimmtudag, að sögn opinberrar fréttastofu í Súdan í dag. Fórust tvær konur í árásinni og margir slösuðust. Fréttastofan hafði eftir formælanda utanríkisráðu- neytisins að það hefðu verið líbýskar flugvélar með aðsetur í Chad sem gert hefðu árás á þorpin Tendelti og El-tina, sem eru rétt við landamæri Chads og í um eittþúsund kílómetra fjarlægð frá höfuðborg Súdan. Sagði fréttastofan, að Súd- anir myndu ekki sitja auðum höndum ef fleiri árásir af þessu tagi yrðu gerðar, en því hefur verið haldið fram af opinberri hálfu í Súdan, að líb- ýskar flugvélar hefðu gert tíð- ar árásir á þorp í Súdan í síð- asta mánuði. Samskipti Súdan og Líbýu hafa verið með erfiðara móti frá því Súdanir sökuðu Líbani um aðild að tilraun kommún- ista til að steypa Gaafar Nim- eiri forseta 1976 og hafa tengsl ríkjanna enn versnað eftir inn- rás Líbýuhers í Chad í fyrra. Súdanir hafa sakað Líbýu- menn um tilraunir til land- vinninga í Súdan og kvartaði yfir aðgerðum Líbýumanna í síðastliðnum mánuði við Ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna. Eftir innrás Líbýumanna í Chad fóru Súdanir fram á hernaðaraðstoð við Banda- ríkjamenn. Háttsett sendi- nefnd undir forystu Roberts McFarlands ráðunauts í utanríkisráðuneytinu í Wash- ington kom í gær, sunnudag, til Súdan til viðræðna við yfirvöld um varnir landsins. Sendiherra Bandaríkjamanna í Súdan, William Kontos, skýrði Abdel- Magid Khalil varnarmálaráð- herra frá því í síðustu viku, að Bandaríkjamenn myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að tryggja varnir Súdana og uppfylla hergagnaþörf þeirra, samkvæmt heimildum frá Khartoum. og góðum samskiptum Þjóðverja og Bandaríkjamanna. Sakaði hann Helmut Schmidt kanzlara um aðgerðarleysi gagnvart at- höfnum „hættulegra afla“, sem unnið hefðu að því að draga úr og breyta samskiptum austurs og vesturs. Yfirlýstur tilgangur mótmæla- göngunnar í Bonn var sá, að mót- mæla vopnakapphlaupi stórveld- anna og staðsetningu kjarnorku- vopna í Evrópu, en aðalskotmark- ið virtust þó áætlanir Atlants- hafsbandslagsins um staðsetn- ingu meðaldrægra kjarnorku- eldflauga í Vestur-Evrópu. Tíu þúsund manns fóru í mót- mælagöngu í Rómaborg á sunnu- dag til að mótmæla þeirri ákvörð- un yfirvalda að staðsetja 110 kjarnorkueldflaugar þar í landi. Sjónvarpið í Moskvu sýndi kvikmyndir frá mótmælagöng- unni í Bonn þegar í útsendingum á laugardagskvöld. Tjáði sjón- varpsstöðin hinum sovézku áhorfendum, að göngumenn væru fylgjandi slökun og andsnúnir því að bandarískum meðaldrægum kjarnorkueldflaugum yrði komið fyrir í V-Evrópu. Var ekki skýrt frá því að mótmælaaðgerðunum væri einnig beint gegn hernað- arstefnu Austantjaldsríkja, eins og skipuleggjendur göngunnar héldu fram. Arafat í Japan YASSER Arafat leiðtogi frelsis- samtaka Palestínumanna kom í dag til Japan og er það fyrsta heimsókn hans til meiriháttar iðnríkis og lýðríkis. Arafat var varfærinn í öllu orðalagi og var viðhafður öryggisvörður vegna heimsóknar hans eins og um þjóð- arleiðtoga væri að ræða. Óbreytt líðan hjá Kekkonen Ilelsinki, 12. uktóber. AP. TILKYNNT var á skrifstofu Kekkonens Finnlandsforseta í dag, að engin breyting hefði orðið á líðan forsetans og verð- ur hann í veikindafríi fram til 10. nóvember.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.