Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR43. OKTÓBER 1981
27
Anwar Sadat Egyptalandsforseti borinn til grafar:
„Sadat, þú munt aftur lifa“
Kista Anwars Sadats lögð til hvíldar f grafhýsi óþekkta hermanns-
ins. Gamal, sonur Sadats, er til vinstri og styður annarri hendinni á
kistuna. Reza Pahlevi, sonur fyrrverandi íranskeisara, er standandi
til vinstri.
Kairó. 12. okt. AP.
ANWAR Sadat. hinn látni leið-
togi Egypta, var borinn til Kraf-
ar sl. lauKardag að viðstöddum
miklum fjölda erlendra fulltrúa.
EKypskur almenninKur. sem
fyllti allar nálaxar Kötur við þá
sem jarðarförin fór eftir, harm-
aði leiðtoga sinn bæði hátt og i
hlji'tði en var hins vegar ekki
leyft að taka þátt í sjálfri útför-
inni af öryggisástæðum.
Sadat var lagður til hvíldar í
grafhýsi óþekkta hermannsins, í
eyðimörkinni utan við Kairó, og
yfir honum var reistur svartur
bautasteinn sem á var letrað:
„Hetja í stríði og friði". Þjóðar-
leiðtogar og aðrir erlendir stjórn-
málamenn vottuðu Sadat sína
hinstu kveðju og héldu að því
búnu hver til síns heima, en
Egyptar sjálfir horfa kvíðnir til
framtíðarinnar og óttast það,
sem morgundagurinn kann að
bera í skauti sínu.
„Sadat, Sadat. Þú munt aftur
lifa. Svo lengi sem friður ríkir
mun sál þín búa með okkur,"
hrópaði fólkið, sem fyllti nálægar
götur og reyndi oft að brjótast í
gegnum raðir lögreglumannanna.
Utförin hófst með því, að lesið
var úr Kóraninum yfir kistu Sad-
ats á sjúkrahúsinu þar sem hann
lést og var fjölskylda hans þá ein
viðstödd. Að því búnu var kistan
flutt í þyrlu til herleikvangs í 15
km fjarlægð og komið fyrir á
vagni, sem sex svartir hestar
drógu. Fyrir vagninum gengu ör-
yggisverðir forsetans, fallhlífar-
hermenn og hermenn úr öðrum
deildum og herhljómsveit, sem
lék egypska þjóðsönginn og her-
marsa.
Á eftir kistunni gengu Mubar-
ak, tilvonandi forseti, og Gamal
Sadat, sonur hins látna forseta,
og héldust hönd í hönd, en á eftir
þeim komu síðan aðrir framá-
menn egypskir og erlendir full-
trúar. Þegar að grafhýsinu kom
tóku 13 menn kistuna og komu
henni fyrir í hvítri marmaragröf
undir stórkostlegu píramída-líku
minnismerki um óþekkta her-
manninn. Þegar því var lokið yf-
irbuguðu tilfinningarnar eigin-
konu Sadats, sem brast í óstöðv-
andi grát.
Egypzkir hermenn á verði fyrir utan sjónvarpsstöðina í Kaíró.
Grátandi syrgjendur ná-
lægt minnismerki óþekkta
hermannsins i útborginni
Nasr.
Frú Jihan, ekkja Sad-
ats ásamt systur hins
látna forseta (til
vinstri) og Hosni Mu-
barak varaforseti við
gröf hins látna. Tvær
dætur frú Sadats eru
lengst til hægri og
vinstri.