Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRlÉ>JUDAGtiR-l3^0K:TÓBER 1981 19 28 árum — Flugslysið á Mýrdalsjökli fyrir 28 árum — Flugslysið. á Mýrdalsjökli fyrir 28 árum — Flugslysið á Mýr / Ljósmyndir: Eínar Hjörleifur Ólafsson Reynir Ragnarsson Sæmundur Runólfsson Meðfylgjandi myndir tóku þrír félagar úr björg- unarsveitinni Víkverja í Vík í Mýrdal á skrið- jöklinum milli Gvendarfells og Mosakambs í Mýrdalsjökli, þar sem flak Varnarliðsflugvélar, sem fórst fyrir 28 árum, eða 17. desember 1953, fannst sl. laugardag og með henni átta lik. Björgunarsveitarmennirnir fluttu siðan lík- amsleifar Bandarikjamannanna fram á kamb- inn við rætur jökulsins, en þangað sótti þyrla Varnarliðsins þær. (Sjá fleiri myndir bls. 20.) „Benzínbirgðir á þrotum og urðum að halda niður“ sagði Brandur Stefánsson í Vik, sem fór á fyrsta snjóbílnum til leitar 1953 „ÞAÐ VAR nokkur óvissa um hvar vélin hefði farið, en síðan bárust fréttir af því, að hún hefði farið niður við Kðtlugjá. Þá var ákveðið að við færum á snjóbiinum mínum upp Sól- heimajökul og áleiðis,“ sagði Brandur Stefánsson i Vik i Mýrdal i samtali við Mbl., en hann lagði af stað upp á Mýr- daisjökul við fjórða mann til leitar. „Aðalleitarflokkurinn fór hins vegar upp á jökulinn upp af Álftaveri, en þeir urðu að gefast upp vegna illviðris. Við héldum eins og sagði inn á jökulinn í siæmu veðri og vorum þar í um 100 klukkutíma, án þess að verða nokkurs varir, enda skyggni nánast ekki neitt. Daginn eftir kom svo Guð- mundur Jónasson við fjórða mann á sínum snjóbíl austur á jökulinn til okkar. Við dvöldum síðan á jöklinum í þreifandi byl, þar til að benzínbirgðir okkar voru á þrotum. Þá héldum við niður aftur án þess að verða nokkurs vísari. Þetta veður hélzt. stöðugt í um vikutíma og því varð ekkert úr því, að við héldum aftur upp á jökulinn. Á aðfangadag birti svo upp og flugu flugvélar þá yfir svæðið og fundu brak úr vélinni. Þyrla Varnarliðsins fór upp á jökul og fannst eitt lík, sem flutt var til byggða. Árið eftir sá ég neðan frá Vík Brandur Stefánsson einhvern hluta úr flakinu og við ákváðum þrír félagar að halda upp á jökulinn. Þá stóð ekkert uppúr nema hluti stélsins. Upp úr því kom svo hingað til lands faðir eins flugmannsins, sem vildi sjá hvar sonur hans hafði farizt. Ég ásamt nokkrum félög- um mínum fórum með þennan bandaríska mann á snjóbíl upp að flakinu og sást einungis í stél- ið eins og í fyrri ferð okkar þá um sumarið. Annars vissum við það með vissu, að eftir einhvern ákveðinn árafjölda myndi jökullinn bera flakið og líkin fram. Jökullinn skilar sínu alltaf aftursagði Brandur Stefánsson að síðustu. ,JMunaði minnstu að við héldum jólin á jöklinum64 sagði Sigurður M. Þorsteinsson, fyrrverandi formaður Flugbjörgunarsveitarinnar „ÞAÐ var flogið með okkur austur á Skógasand, þar sem þyrla frá Varnarliðinu kom og tók okkur og flutti upp á jökul- inn,“ sagði Sigurður M. Þor- steinsson, fyrrverandi formað- ur Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavik, i samtali við Mbl., en hann var einn þeirra sem fór með þyrlu Varnarliðsins að flugvélarflakinu á aðfanga- dagsmorgun árið 1953, þegar loks birti upp eftir viku óveður. „Þegar við komum inn yfir sást greinilega hvernig flak vél- arinnar hafði dreifst yfir nokkuð svæði, en þá hafði fennt yfir töluvert mikið af því. Við fund- um þennan morgun eitt lík, en annað var undir snjólagi. Þegar við áttum svo að halda af stað að nýju kom í ljós, að þyrlan var orðin of þung. Það stóð jafnvel til um tíma að skilja okkur eftir, þannig að við ættum jólin þarna á jöklinum. Flug- maðurinn ákvað síðan að reyna og keyrði upp vélina. Þá fór að rjúka inn hjá okkur, þannig að mönnum stóð ekki alveg á sama. Þetta hafðist nú samt að lokum og flogið var með hópinn niður á Skógasand," sagði Sigurður M. Þorsteinsson. „Síðan fréttist lítið af þessu fyrr en foreldrar eins flugmann- anna komu hingað til lands árið eftir. Þau vildu komast á staðinn og það varð að ráði, að Flug- björgunarsveitin í Vík færi með þau á staðinn," sagði Sigurður ennfremur. Þá kom það fram í samtalinu við Sigurð M. Þorsteinsson, að þessar aðgerðir hefðu verið mjög umfangsmiklar og margir hefðu lent i töluverðum hrakningum. Sigurður M. Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.