Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTOBER 1981 39 Minning: Guðbrandur J. Jónas- son frá Sólheimum Fæddur 29. maí 1890. Dáinn 24. september 1981. Að stinga niður penna til að minnast Guðbrands Jónassonar frá Sólheimum í Laxárdal, getur reynst erfitt, en það verður að taka viljann fyrir verkið. Hvar á að byrja og hvar á að enda? Saga hans er saga óbreytts al- þýðumanns sem vann með hönd- um verk sitt ef verk var að hafa og stóð meðan stætt var. Saga ungra hjóna sem áttu ung börn í garði er móðir náttúra hjó svo nærri í einni af stórhríðunum ísiensku, að margra ára þrotlaus vinna og erf- iði urðu að engu á einni nóttu, saga hrakninga með sundurtætt heimili á mölina fyrir sunnan þar sem helst var bjargar von. En við tók fátækt, næstum örbirgð kreppuáranna. Samt er hún líka saga sigra, gleði, hamingju og ást- ar sem jafnvel dauðinn sjálfur, sem við berum óttafulla virðingu fyrir, megnaði ekki að deyfa. Mér koma í hug ljóðlínur sem Jóhannes úr Kötlum, frændi hans og vinur, orti til föður Guðbrand- ar eitt sinn. Þær eiga undarlega vel við er minnst er sonarins. Möruu lovnir lífx þins sat:a litufl spur um Krýttan stÍK þú hofur okki alla daaa í anKun riisa haóaA þÍK. Guðbrandur Jóhannes Jónassu.. var fæddur 29. maí árið 1890 að Sólheimum í Laxárdal, sonur hjónanna Ingigerðar Sigtryggs- dóttur og Jónasar Guðbrandsson- ar bónda þar. Þau hjón eignuðust tvo syni, Guðbrand og Eyjólf, fyrrum bónda í Sólheimum, sem mörgum er kunnur fyrir góðan Fæddur 16. júni 1907. Dáinn 5. október 1981. Haustið er sú árstið, sem vekur minningar og fær menn til að staldra við, líta til baka, oft með söknuði, en líka með þakklæti og frið í huga. Við sjáum fegurð lífsins og þroska í náttúrunni sem er að búa sig undir langan vetrarsvefn, eftir annasama tíð, þar sem hver stund, só! og regn, var nýtt. Jörðin skilar nú ávöxtum sumarsins í okkar hendur og býr sig jafnframt undir að vakna á ný síðar meir því ræt- urnar lifa og gefa af sér á ný, þeim mun meir og betur, sem stofninn var sterkari. Þannig vil ég hugsa til vinar okkar, sem við kveðjum í dag. Sig- hvatur Davíðsson bóndi að Brekku í Lóni hefur lokið sínum sumar- störfum og fær nú hvíld að lokn- um athafnasömum og vel nýttum starfsdegi. Hugurinn leitar heim í sveitina hans fögru, þar sem hann fæddist og ólst upp, þar sem þroski hans óx og foreldrar hans beindu honum á gæfubraut. Þeir sem til þekkja munu hafa fundið sterk áhrif umhverfisins í skapgerð og viðmóti Sighvats. Jökulsáin þung og sterk, fjöllin með allri sinni litadýrð og gróður- inn sem einkennir þetta svæði, allt gat þetta heillað hug og hjarta, en jafnframt kallað á áræði og sterkan vilja til að sigrast á oft erfiðum aðstæðum. Þörf til að vaða straumþung fljót og klífa brött fjöll. Sighvatur mun líka ungur hafa staðist þessa þolraun með ágætum og þannig var líf hans fram á lokadag. Hann var bóndinn, sem bætti landið sitt, græddi og stækkaði tún og engi, byggði hús og hugsaði stórt í búskaparmálum, enda átti hann opinn hug og var haldinn þekkingarþrá, sem hvatti hann til kveðskap og frábæra hesta- mennsku. Ingigerður móðir þeirra hafði áður verið kvænt Eyjólfi Skúlasyni frá Gillastöðum og voru synir þeirra Sigtryggur, er bjó í Stykkishólmi, og Skúli, bóndi á Gillastöðum. Sólheimar á Laxár- dal eru ennþá byggð af þessum trausta stofni, því þar býr nú Ingvi sonur Eyjólfs. Æsku- og unglingsár Guðbrandar má segja að hafi verið eftir þeirra tíðar- anda með skinum sínum og skúr- um. Bræðurnir voru hressir og kátir og margt munu þeir hafa brallað á sínum sokkabandsárum. Báðir voru þeir bræður vel hag- mæltir og áttu létt með að kasta fram vísu, sérstaklega þó Eyjólf- ur. Það er sem ég sjái Guðbrand fyrir mér ungan mann með kraft í kögglum og glóð í augunum sinum fögru þeysandi á föngulegum fáki „yfir mela, móa og grund", bar- áttuglaðan og staðráðinn í að gef- ast aldrei upp. Það var vanalega líf í tuskunum er þeir hittust síðar á ævinni, mikið hlegið og hátt, sagðar sögur og kveðið við raust af mikilli innlifun. Þá var gaman að vera krakki í Bræðraparti og fá að hlusta og sjá. Eyjólfur lifir bróður sinn og er hann orðinn háaldrað- ur, en sérlega ern og hress. Guðbrandur kvæntist 17. sept- ember 1915 Guðrúnu Helgu Jóns- dóttur frá Hömrum. Hún hafði vcrið glæsileg kona á sínum yngri árum og þóttu þau hjón fönguleg á að líta. Aðeins fátt kann ég að segja frá veru þeirra fyrir vestan annað en að þau hófu búskap í Sólheimum og komu sér upp sæmilegu búi og eignuðust þar þrjú af börnum sínum. En óblíð náttúran lagði þetta fyrsta heimili að kynna sér nýjungar og fylgjast vel með. Hann bar einnig hag sveitar sinnar og héraðsins fyrir brjósti. Við hlið hans stóð svo eiginkonan, Nanna Bjarnadóttir, og studdi hann á allan hátt, hún lagði allt sitt af mörkum til þess að heimili þeirra og uppeldi barnanna yrði sem fullkomnast, og fórst það frábærlega vel úr hendi. Samhent voru þau að taka vel á móti öllum þeim gestum sem á heimili þeirra komu, jafnt til lengri eða skemmri dvalar. Sumardvalarbörn þeirra voru mörg og urðu oft einlæg vin- artengsl þar á milli. Rausnarlegar veitingar og glaðværar samræður við þau hjón lifa í minningu margra, sem heimsótt hafa þau að Brekku gegnum árin. Þar má segja, að hin íslenska sveitamenn- ing hafi birst á einlægan og hlýjan hátt. Sighvatur naut þess að eiga bækur og lesa um hin ólíkustu efni, það sýnir að hann var leit- andi og áhugasamur um mörg svið mannlegs Iífs. Móðir hans, Sigrún Sigurðar- þeirra í rúst er illviðrið áður- nefnda skall á mjög skyndilega og féll þá svo til allt fé þeirra hjóna. Fátt var til ráða fátækum hjónum með ung börn og helst var von um að eitthvað mundi rætast úr fyrir sunnan og lagt var af stað á vit óvissunar. Árið 1919 var víst ekki sérlega gjöfult, hvað atvinnu snerti, og fékk fjölskyldan stóra fljótlega að finna bragðið af því. Menn stóðu í röðum til að fá vinnu í salti eða kolauppskipun og kaupið var lágt, aðeins greitt fyrir unna stund. Oft var unnið í löngum skorpum og voru þá ekki kaffi- eða matartím- ar, maturinn gleyptur í sig á staðnum og ekkert gefið eftir. Konurnar reyndu að fá vinnu í fiskreitum við breiðslu og vask, eldri börnin gættu þeirra yngri heima. Þannig gekk þetta einnig til hjá Guðbrandi og Guðrúnu eins og hjá svo fjöldamörgum öðrum fjölskyldum, öll hugsun snerist um að hafa vinnu, svo hægt væri að metta alla munnana. Baráttan var oft hörð en aílt hafðist þetta. Börnin uxu úr grasi og fóru að létta undir með foreldrunum og spöruðu sig ekki við að reyna að verða að gagni. Hagur fjölskyld- unnar batnaði því allir lögðust á eitt. Guðrún og Guðbrandur eignuð- ust níu börn, Ástu Guðrúnu, sem er látin, Ingólf, Jón, er lést snemma á þessu ári, Elínu, Krist- ínu, er lést barn að aldri, Ingi- gerði, Eyjólf, látinn, Jónas og Guðbrand Gunnar. Stórt skarð hefur verið höggvið í hóp systkin- anna í Bræðraparti. Árið 1942 réðst Guðbrandur ásamt Jóni syni sínum í að kaupa erfðafestuland í Laugardal er Bræðrapartur heitir. Þar átti síð- ar eftir að verða heil fjölskyldu- byggð. Þarna þróaðist skemmtileg sambúð barna og fullorðinna með afann og ömmuna í fararbroddi. Einhvern smábúskap mun Guð- brandur hafa haft þar, því á þess- um tíma var almennt verið með dóttir, sem andaðist háöldruð á heimili hans fyrir fáeinum árum, mun hafa gefið honum gott vega- nesti á margan hátt. Til hennar er gott að hugsa nú. Guðstrú og blessun voru svo sterkir þættir í lífi hennar, að ekki þarf að efast um að sú blessun fylgi syni hennar nú. Að endingu kveð ég hann með virðingu og þökk, kveð hann sem afa og föður, þakka hlýjar stundir, er glettinn afi strauk litla drengjakolla heima á hlaðinu á Brekku. Ég veit, að bænir hans og góðar óskir fylgja jörðinni hans og megi sú blessun fylgja þeim, sem þar um tún ganga. Heitust er þó bænin, sem fylgir þér, Nanna mín, og þinum nýja bústað, það verði þinn styrkur ásamt öllum góðum minningum um ykkar samlíf. Blessuð sé minning Sighvats Davíðssonar. Þóra Á. Guðmundsdóttir. skepnur í Laugardal og sumstaðar meira að segja búið stórt, og var þá aðallega verið með kýr. Nú eru mörg af þessum býlum horfin, svo sem Laugabrekka, Múli, Lauga- land og Langholt. I Bræðraparti leið öllum vel, þó þröngt mættu sáttir sitja og var mörgum sárt að skilja við þann stað seinna meir er borgin fór að þenjast út og Laug- ardalur fór undir skipulag nútím- ans. Samt þrauka margir enn og sitja sem fastast. Frá þessum tíma er skýrust mynd af Guð- brandi í mínum huga er hann kom gangandi niður túnið á Álfa- brekku og krakkastóðið hljóp í spretti til að fagna afa sínum, þá breiddist hýrt og hlýtt bros yfir andlitið og það réttist úr þreyttu bakinu við að líta hóp barnabarna sinna. Árin í Bræðraparti voru bestu ár hjónanna, því þar var fjölskyldan öll saman að svo miklu leyti sem það var hægt. Síðar keypti Guðbrandur íbúð við Glaðheima í Reykjavík og bjó þar síðan. Síðustu árin reyndust Guð- brandi þung í skauti, Guðrún veiktist allhastarlega og lá í lang- an tíma nær ósjálfbjarga. Þá reyndist sveigjan í honum hvað mest er hann sá sína heittelskuðu eiginkonu svo sjúka. Hún lést svo eftir langa og erfiða legu og var hörmuð af eiginmanni sínum alla tíð síðan. Hann sagði þó alltaf að hún væri nú samt hjá sér til að styrkja sig þegar hann væri „ræf- ili“. Ingigerður dóttir þeirra hjóna hélt heimili með föður sínum upp frá því og reyndist hún honum ákaflega vel. Áföllin komu hvert af öðru, Eyjólfur hafði látist skömmu á undan móður sinni og síðar Ásta og Jón, öll fyrir aldur fram. Blessaður gamli maðurinn, þá orðinn blindur og gat þar af leiðandi ekki notið sín sem skyldi þrátt fyrir góða heilsu að öðru leyti, nú kom það sér vel sem oftar að lundin var létt og harka í hverju beini. Með góðri hjálp Ingu fylgdist hann með öllu og öllum, notaði símann óspart til að hringja og fá fréttir að fjölskyld- unni sinni stóru. Alla afkomendur sína þekkti hann með nöfnum og Byrjendanámskeiö í lyftingum veröur haldiö í Jakabóli í vetur og hefst 15. október. Um er aö ræöa mánaðarnámskeið á mánudögum, miövikudögum og fimmtudögum frá 20.00—22.00 og er þjálfari Birgir Þór Borgþórsson. Innritun og uþþ- lýsingar í síma 81286. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Reykjavík heldur sinn árlega basar aö Hallveigarstööum nk. laug- ardag, 17. okt. kl. 2. Velunnarar eru beðnir aö koma basarmunum og kök- um aö Hallveigarstöðum eftir kl. 18 föstud. 16. okt. og fyrir hádegi laugard. 17. okt. Stjórnin. Sighvatur Davíðs- son bóndi - Minning kom við skírnir, fermingar og gift- ingar þeirra, studdur af Ingu sinni og sá með sínum innri augum allt er fram fór, sálarstyrkur hans var með eindæmum. Mig langar aftur að vitna í áð- urnefnt kvæði Jóhannesar úr Kötlum: Mdrci þo á a vi þinni hIvpk lóstu huKÍallast hönd ok íótur. hjarta hk sinni hoimtuóu aó þvrrskallast. Háaldraður maður er hér kvaddur hinstu kveðju og honum þökkuð uppörvandi orð og athafn- ir í þágu þeirrar, er þetta ritar, umhyggja hans og elska til fjöl- skyldunnar allrar. Okkur afkom- endum sínum var hann tákn hinn- ar íslensku seiglu og þolinmæði er þrautir vinnur allar, hann hefur átt góða heimkomu í ríki eilífðar- innar. Samúðarkveðju sendi ég frænku minni Ingu svo og öðrum börnum og tengdabörnum hans. Þórunn Jónsdóttir Mig langar að kveðja hann Guð- brand tengdaföður minn með nokkrum orðum, og þakka honum fyrir rúmlega 30 ára kynni. Ég minnist þess þegar ég kornung var að kynnast þessari stóru fjöl- skyldu, hvað hann tók mér hlýlega og var ætíð svo hýr og góður. Lífsbaráttan var hörð fyrr á árum fyrir verkamann með stóra fjöl- skyldu, en þrekið var mikið og geðið gott. Það var dásamlegt að hann fékk að halda sálarkröftum fram á síðustu stund. Og rétt áður en svefninn eilífi kom var hann að tala í síma við bróðurdóttur sína til að fá fréttir af réttunum í Döl- unum sínum kæru. Hann fylgdist af áhuga með öllum sínum afkom- endum sem eru 85 að tölu og þegar einhver var á ferðalagi var hann ekki í rónni fyrr en viðkomandi var kominn heim heilu og höldnu og hann búinn að fá fréttir af því hvernig ferðin hafði gengið. Hann varð fyrir þungum áföll- um undanfarin ár við ástvinamissi og blindur var hann síðustu 3 árin en hélt sinni reisn þrátt fyrir það. Hann naut umhyggju Ingu dóttur sinnar á sínu heimili til þess síð- asta og er henni þakkað af alhug. Ég veit hann hefur átt góða heimkomu og vel tekið á móti hon- um af Guðrúnu og börnunum þeirra 4 sem farin voru á undan honum. Ég kveð svo góðan mann. Guð blessi hann. Gígja. GLÆSILEGIR - STERKIR - HAGKVÆMIR Lftum bara ð hurðina: Færanleg fyrlr hægrl eða vlnstrl opnun, frauðfyllt og nfðsterk - og ! stað fastra hillna og hólfa, brothættra stoða og loka eru færanlegar fernu- og flöskuhlllur úr málml og laus box fyrlr smjör, ost, egg, álegg og afganga, sem bera má beint Dönsk gæði með VAREFAKTA, vottorði dönsku neytendastofnunarinnar DVN um rúmmál, einangrunargildi, kæll- svið, frystigetu, orkunotkun og aðra eiglnleika. GRAM BVDUR EINNIG 10 GERÐIR AF FRYSTISKÁPUM OG FRYSTIKISTUM /fq nix HATUNI 6A • SÍMI 24420

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.