Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 48
5 krónur 5 krónur eintakið wirj0miiP4iipiiP eintakið ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981 Hald lagt á fíkniefni að verðmæti nær 1,4 millj. AÐ IJNDANFÖRNU hefur ver- ið lagt hald á óvenju mikið ma^n af fíkniefnum af lög- reglu og tollgæzlu. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið fékk í gær, hefu' á síðustu 8—10 vikum verið lagt haid á 5—6,5 kíló af fíkniefnum, aðallega kannabisefnum. Lætur nærri að söluverðmæti þessa magns sé á bilinu 1,2—1,4 millj- ónir króna eða nær 140 milljón- ir gamalla króna. Tollvörugeymslan: Afgreiðslu- menn lögðu niður vinnu - Telja tollgæzlu ekki nægilega . Flak Varnarliðsflugvélarinnar var á víð og dreif um skriðjökulinn, scm fellur niður milli Gvendarfells og Mosakambs syðst i Mýrdals- jökli, eins og þessi mynd ber glöggt með sér. Jökullinn skilaði þeim eftir 28 ár SÍÐASTLIÐINN laugardag er Mýrdælingar voru i annarri fjár- leit á Heiðarheiði komu þeir auga á flugvélarflak i jökulbrúninni vestur af Mosakambi. Við nánari athugun kom i ljós, að þetta var flak flugvélar frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, sem fórst 17. desember 1953 og með henni niu menn. Mikil leit fór fram að vélinni á sínum tíma, en veður hamlaði leit lengi vel. Það var svo á aðfanga- dagsmorgun 1953, að þyrla frá Varnarliðinu komst að flakinu í suðurbrún Mýrdalsjökuls, eða milli Gvendarfells og Mosakambs og fann þar eitt lík. Flak vélarinnar og önnur lík voru á kafi í snjónum, þannig að ógeriegt var að finna þau, en nú 28 árum síðar, þegar flakið hefur skriðið fram um eina 5 kílómetra á jöklinum, komu öll lík- in átta undan jökli. „Þetta hafði í raun töluverðan aðdraganda, því þegar við vorum í göngum fyrir viku, sá ég einhvern hlut á jöklinum, sem ég hélt að gæti verið úr flugvél, en félagar minir voru ekki trúaðir á það svo við héldum til byggða,“ sagði Einar Jónsson frá Reyni, sem fyrstur sá flakið, í samtali við Mbl. — „Við athuguðum því málið nánar á laug- ardaginn, þegar við vorum að nýju á ferðinni. Þá sást greinilega hvað var á ferðinni," sagði Einar enn- fremur. „Flak vélarinnar var á víð og dreif á jöklinum og ekki var um að ræða neina heila hluti, bara hrúg- ur. Þetta var mjög mulið niður og hangir mest saman á rörum og leiðslum og þess háttar," sagði Reynir Ragnarsson, umdæmis- stjóri SVFÍ í Vík í Mýrdal, en hann fór fyrir björgunarsveitar- mönnum, sem fóru á staðinn á sunnudag. Björgunarsveitarmenn úr Víkverja, björgunarsveit Slysa- varnafélagsins í Vík, fluttu síðan líkamsleifar mannanna niður á kambinn við jökulsporðinn, en þangað sótti þyrla Varnarliðsins þær. Sjá nánar samtöl bls. 18—19. verða sykursýki á háu stigi og kemur hún í flestum tilfellum fram í börnum og unglingum. Bent er á, að svo virðist sem veirusýkingar auki líkurnar á sykursýki. Sjúkdómurinn kem- ur niður á afkvæmi, en ekki neytanda. I rannsóknum þessum hefur komið fram, að sykursýki af þessu tagi er 29% algengari hjá körlum en konum. I greininni í Lancet er bent á, að mest sé borðað af hangikjöti á Akureyri og þar hafi fundist fleiri sykursýkistilfelli þessar- ar tegundar en annars staðar hér á landi. Þessi sjúkdómur var tiltölulega sjaldgæfur á ís- landi, þangað til farið var að nota aðrar vinnsluaðferðir en áður tíðkuðust og bendir allt til að þessar nýju vinnsluaðferðir á íslensku hangikjöti, sem teknar voru upp í kring um 1940, hafi í för með sér myndun sérstakra efnasambanda í kjöt- inu, sem samkvæmt kenningu greinahöfunda hafa aukið á tíðni sjúkdómsins. Eftir 1940 hefur þessi tegund sykursýki á háu stigi aukist í sveinbörnum, sem getin eru í janúar og fæð- ast í október. að salt- kjöti STARFSMENN í tollvörugeymsl- unni í Laugarnesi lögðu niður vinnu í gær og fengust vörur því ekki afgreiddar þaðan. Afgreiðsl- umenn í tollvörugeymslunni eru með þessu að mótmæla þvi, að ekki skuli vera stöðug tollvarzla i geymslunni eins og þeir telja nauðsynlegt. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær, hefur verið stöðug tollvarzla í tollvörugeymslunni til skamms tíma en yfirvöld telja að ekki sé þörf á slíku og hafa því dregið úr tollgæzlunni. Starfsmenn tollvör- ugeymslunnar vildu í gær ekkert tjá sig málið, en eftir því sem næst varð komizt var unnið að lausn málsins í dómsmálaráðuneytinu í gær. Sykursýkisrannsóknir íslenzks læknis vekja heimsathygli: Böndin berast pétri í reyktu í BREZKA læknablaðinu The Lancet, sem út kom 3. október Varaformannskjör á landsfundi: Sigurgeir Sigurðs- son í framboð SIGURGEIR Sigurðsson, bæjar- stjóri á Seltjarnarnesi, sendi i gær frá sér fréttatilkynningu, þar sem hann skýrir frá því, að hann verði í framboði til varaformanns Sjálf- stæðisflokksins á landsfundi flokksins i lok þessa mánaðar. Með framboði Sigurgeirs Sigurðssonar eru frambjóðendur til varafor- manns orðnir tveir, en sem kunn- ugt er tilkynnti Friðrik Sophusson. alþm. framboð sitt til þessa embætt- is fyrir helgina. Sigurgeir Sigurðsson segir í freftatilkynningu um framboð sitt, að „einlægur áhugi minn á viðgangi Sjálfstæðisflokksins og þá um leið þjóðarinnar, kveður mig til átaka á vettvangi flokksins." Sigurgeir Sig- urðsson segir ennfremur: „Sjálf- stæðisflokkurinn á flokkslega í vök að verjast um þessar mundir. Flokknum er því nauðsyn að gerast ekki of þröngur og varna með því þeirri endurnýjun, sem öllum er nauðsynleg." Sigurgeir Sigurðsson hefur verið bæjarstjóri á Seltjarnarnesi frá 1965. Hann skipaði fjórða sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi í alþingiskosn- ingunum 1979, og hann hefur tvíveg- is setið á Alþingi sem varamaður. Sjá fréttatilkynningu á bls. 46. síðaHtliðinn, er grein sem f jall- ar um, að efni í reyktu kinda- kjöti geti framkallað sykur- sýki á hæsta stigi, en greinin fjallar um rannsóknir Þóris Helgasonar, yfirlæknis á göngudeild sykursjúkra á Landspítalanum, á sykur- sjúku fólki hér á landi. Höf- undar greinarinnar í Lancet eru Þórir Helgason og aðstoð- armaður hans, Magnús R. Jónasson, iæknir. Rannsóknir þessar benda mjög ákveðið til, að samband sé á milli saltpéturs í reyktu kjöti og sykursýki, sem nota þarf insúlín við. Svo virðist sem veirusýkingar auki á lík- urnar á því, að viðkomandi fái sykursýki, en tilraunir eru nú gerðar á dýrum til að afla upp- lýsinga um kenningar þessa ís- lenzka læknis, sem vakið hafa mikla athygli eins og sjá má á því, hvernig Lancet ber þær fram, enda munu þær marka tímamót í skilningi á sjúkdómi þessum, ef þær reynast réttar. Fram að þessu benda allar lík- ur til að svo sé. Tilraunir á dýrum eru nú gerðar í Aberdeen óg mun end- anlegra niðurstaðna að vænta eftir um það bil mánuð. í Lanc- et er þess getið, að vonir standi til, að skilningur á sjúkdómn- um aukist, þegar þær liggja fyrir. í greininni í Lancet er bent á, að hangikjöts er einkum neytt á íslandi um og upp úr jólum. Saltpéturinn getur breyst í eins konar eiturefni, sem skaða starfsemi briskirtilsins með þeim hætti, að afleiðingarnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.